Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Blaðsíða 6
6 - Þriðjudagur 25. febrúar 1997 Jlagur-®tmmn F R É T T I R Sameining fjölmiðla Ekki beint eins og að koma á vinafund Ragnar Tómasson héraðsdómslögmaður við Stöð 3 í Húsi verslunarinnar í gærmorgun. Reyndur friðarboði milli harðvítugra keppinauta. Mynd: pök agnar Tómasson lög- maður batt saman hnútana, bræddi ís og tortryggni milli keppinaut- anna á Stöð 3 og Stöð 2 og færðí þá saman i eina sæng - Jón Gunnar Zoéga hóf sam- bræðsluna fýrir áramót „Það má orða það svo að mér hefur oft verið tekið betur, það var ekW eins og ég væri að koma á vinafund. Þetta var þannig hjá forráðamönnum beggja stöðvanna. Það gætti verulegrar tortryggni, ekki var mér beint sýnd ókurteisi, en menn vildu vita hver hefði „sent mig“, vildu fá umboð. En smám saman skapaðist tiltrú, menn fóru að sjá að þarna væri skyn- samlegur möguleiki í stöðunni," sagði Ragnar Tómasson lög- maður í samtali við Dag-Tím- ann í gær. Fyrir hans tilstilli voru Stöðvar 2 og 3 sameinaðar um helgina. Sameinaði Bónus og Hagkaup líka Ragnar Tómasson er 57 ára, hann er einn úr hópi hörðustu aðdáenda hins frjálsa framtaks einstaklingsins. Hann er guð- faðirinn að sameiningu og sam- runa Stöðvar 3 við Stöð 2. Ragnar lék sama leikinn, og ekki síður óvæntan leik, þegar hann sameinaði Bónus og Hag- kaup um árið. Nú sameinar hann tvær sjón- varpsstöðvar en Ragnar rekur einskonar fyrirtækjamiðlun án formlegrar skrifstofu. Hann segir „skrifstofu" sína í raun vera á vettvangi hverju sinni, í viðtölum við fólk hér og þar. Ragnar er orðinn einhver al- ræmdasti sameiningarsinni ís- lands, einskonar Bismarck okk- ar tíma og okkar breiddar- gráðu. Þurfa þriðja manninn til „Allur fyrirtækjarekstur á ís- landi er í mikilli uppstokkun. Einingar eru að stækka og fyr- irtæki eru að skapa sér betri sóknarfæri með hagræðingu og sameiningu rekstrar. Það er oft erfitt fyrir tvö fyrirtæki, oftast hatrama andstæðinga, að eiga frumkvæðið. Það þarf þriðja manninn tfi. Það er minn akur,“ sagði Ragnar Tómasson í viðtali við Dag-Tímann í gær. „Oft eru þetta eins og hundar og kettir, þarna ríkir tortryggni, óvild og menn hafa mikið stolt. Oft finna menn sig tilneydda tU að halda áfram baráttu sem þeir innst inni vildu gjarnan að tæki enda,“ sagði Ragnar. Hann sagði að vissulega hefðu margir séð að enginn grundvöllur var fyrir tvær áskriftarstöðvar á litlum markaði eins og íslandi. Ragnar segir að þegar hann hefur komið fram með hug- myndir um sameiningu fyrir- tækja hafi hann orðið að rjúfa múr höfnunar og tortryggni. Hann hefur verið spurður að því hver hafi sent hann. Ragnar segir átakanlegt ef íslendingar geta ekki einbeitt sér að því að styrkja lífskjörin í landinu með hagræðingu á fyrirtækjasviðinu. Sameining leiðir gott af sér „Ég er ekki í vafa um það að innkaupsverð á matvælum og fleiru hefur stórlækkað með samrunaferli Bónuss og Hag- kaups. Sú aðgerð varð þannig til góðs fyrir allan almenning í landinu," sagði Ragnar. „Þeir menn sem ég hef haft tal af eru ekki aðeins miklir baráttumenn, þeir eru líka góð- ir bissnessmenn. Ég hef beðið menn að leggja stoltið til hliðar um stund, og það hefur tekist í þessum tveim tilvikum," sagði Ragnar. Ragnar hefur allt frá unga aldri í Verslunarskóla og Há- skóla talað hárri röddu fyrir frjálsu framtaki einstaklingsins. Hann kveðst síðin- en svo hafa snúið baki við þeim hugmynd- um sínum. En oft sé það besti kosturinn fyrir keppinauta að slíðra sverðin og taka höndum saman um reksturinn. Báðir hefðu legið í valnum „í rauninni datt mér þetta í hug með Stöð 2 og Stöð 3 fyrir löngu síðan. En mér finnst stundum að þetta sé líkt og með mann sem drekkur of mikið af víni, fyrirtækið þarf að ná ákveðnum botni áður en bata er von. Mér fannst núna fyrir nokkrum vikurn síðan að vit- leysan væri orðin þvflík að nú hiytu menn að skilja að það var annað hvort eða. Ég velti því líka fyrir mér hvort þarna væru ekki tvö fyrirtæki í hólmgöngu, sem mundi lykta með því að bæði mundu liggja í valnum. Hver var þá árangurinn af hólmgöngunni. í þetta sama stefndi með Bónus og Hagkaup á sínum tíma. Ótti beggja sam- einar, og sú skynsemi sem skynjar hættuna," sagði Ragnar Tómasson í gær. Ragnar sagði að þrátt fyrir miklar sameiningar fyrirtækja á síðustu misserum, í verslun, út- gerð, flugi, bönkum og víðar, mætti gera enn meira í þessa veruna, öllum til góðs. Samrunaferlið hófst fyrir áramót Ragnar Tómasson sagði að hann hefði í raun tekið við starfi sem Jón Zoéga hæstarétt- arlögmaður hóf fyrir síðustu áramót. Jón staðfesti þetta í samtali við Dag-Tímann. „Ég var búinn að ræða við báða aðila. Stöð 2 var ekkert óviljug í þessu máli, en Stöð 3 síður,“ sagði Jón í gær. Hann sagðist hafa komið að málinu sem einskonar sjálfboðaliði. „Þetta er sama niðurstaðan og ég stillti upp, Ragnar tók við þessu og kom því blessunarlega í höfn,“ sagði Jón. Jón Gunnar Zoéga, hæsta- réttarlögmaður, sagði að þessi sameining væri ekki að öllu leyti í höfn. Mikil vinna væri greinilega eftir í hinu nýja sam- eiginlega félagi og um marga hluti að ræða og semja. -JBP Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00 1982-1.fl. 01.03.97 -01.03.98 kr. 183.487,50 1983-l.fl. 01.03.97 -01.03.98 kr. 106.606,30 1984-2.fl 10.03.97 kr. 100.240,90 1985-2.fl.A 10.03.97 kr. 61.926,70 < 1985-2.fl.B 10.03.97 - 10.09.97 kr. 28.442,30** * Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. ** Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 25. febrúar 1997. SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.