Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.02.1997, Blaðsíða 2
14- Miðvikudagur 26. febrúar 1997 Hagur-'ðlmmm BÆNDALÍFIÐ í LANDINU „Bændur ætla ekkí að daga uppi“ „Kannski ar maður hlutdraagur og finnat að vorið aé að ráðat á sig. En mér þykir launþagahreyfingin fara offari þagar hún fjallar um landbúnaö og krofst laagra búvöruvorðs," aaglr Slgurgelr á Hrishóli. Mynt jhf Kjaramálin eru það sem heitast brennur á mönn- um. Margir eru harðorðir gagnvart forystunni og kreflast úrbóta. Við bændur gáfum eftir þegar þjóðarsáttin var gerð ár- ið 1990. Sfðan þá hefur launa- liður í búrekstri lækkað talsvert - og hefði stefnt í að verða enn meiri ef menn hefðu ekkert hagrætt í sínum búrekstri,“ seg- ir Sigurgeir Hreinsson, bóndi á Hríshóli í Eyjafjarðarsveit og formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar, í samtali við Dag- Tímann. Samfélagsþjónustan tapast Sigurgeir og Bylgja Svein- björnsdóttir, eiginkona hans, hafa sl. 15 ár rekið félagsbú á Hríshóli með foreldrum Sigur- geirs. Fyrir um ári keyptu Sig- urgeir og Bylgja búið allt, það er kúabú með um 165 þúsund U'tra kvóta. Þau hjón eiga þrjú börn. Þegar blaðamaður ræddi við Sigurgeir fyrir síðustu helgi var hugur hans nokkuð bund- inn við Búnaðarþing, sem hald- ið er i þessari viku. Þar verða tekin fyrir mörg af þeim málum sem heitt brenna. Fyrst og síð- ast eru það kjaramál. Við beindum tali okkar meðal ann- ars að þeim. „Menn verða að halda öllum útgjöldum niðri, ef endar eiga að nást sam- an. Sjóðagjöld hafa lækkað síðustu ár, eða úr 2,1% af af- urðaverði nið- ur í 1,4%. Menn hafa gælt við að þau geti lækkað enn meira, ef til dæmis gjöld til Stofniána- deildar land- búnaðarins lækka. Vissu- lega hafa kjör bænda batnað eitthvað með þessu, en á móti töpum við samfélags- þjónustu sem samtök bænda veita, þjónustu sem sjóðagjöldin standa straum af,“ segir Sigurgeir. Launþegahreyfingln fer offari f þjóðmálaumræðunni hefur borið á ágreiningi milli forystu- manna bænda og launþega. Hinir síðarnefndu krefjast enn meiri iækkunar en orðin er á verði innlendrar búvöru og jafnframt aukinnar hagræðing- ar hjá bændum og í rekstri af- urðastöðva þeirra. Svör bænda eru hins vegar að hagrætt hafi verið eins mikið og hægt sé. Lengra verði ekki gengið, eða meira gefið eftir. „Kannski er maður hlut- drægur og finnst að verið sé að ráðst á sig. En ég get ekki að því gert að mér þykir launþega- hreyfingin fara offari þegar hún fjallar um landbúnað og krefst lægra búvöruverðs. Innlendar landbúnaðarvörur eru aðeins 7% af því sem myndar verð- lagsgrunninn í vísitölu neyslu- verðs. Verð á landbúnaðarvör- um hefur lækkað stórum síð- ustu ár, á sama tíma og til dæmis fiskur hefur hækkað i verði. Krafa samtaka launþega er að allur fiskur eigi að fara á markað, enda þótt vitað sé að slíkt hækkar fiskverð og þar með framfærslukostnaðinn. En ef til vili er flskur ekki gerður að umtalsefni, þar sem hann er ekki visitöiubundinn. Verð á innfluttum neysluvörum hefur elnnig hækkað allmikið, án þess að hátt sé um það haft,“ segir Sigurgeir. Tengslin mllli moldar og malar Hann bætir því við að ákveðnir forystumenn launþega hafi betri skiinlng en aðrir á land- búnaðarmál- um. „Yfirleitt hafa verkalýðs- leiðtogar úti á landi gleggri sýn á þessi mál en þeir sera eru við Faxa- flóa,“ segir Sig- urgeir. - Að mati hans er ágreinlngur miili bænda og samtaka laun- þega sprottinn af djúpum rót- um. Tengsl milli dreifbýlis- fólks og þótt- býlisbúa hafi rofhað. „Það eru þessi tengsl milli moidar og mal- ar, sem óg er að tala um. Vlssiega hafa bændur reynt að bregðast við þessu, en kannski hefur það ekld verið gert með nægilega skýrum og skeleggum hætti.“ f takt við tfðaranda, tækifærl og tækni Þegar Búnaðarfélag ísiands og Stéttarsamtök bænda voru sameinuð í Bændasamtök ís- lands bar nokkuð á gagnrýni um að aðalfundur samtakanna skyidi nefndur Búnaðarþing. Sú nafngift á sér rösklega 100 ára sögu. Sumir vildu taka upp nýtt nafn til að breyta ímynd sam- komunnar, sem mörgum þóttl fráleitt nútímaleg. Hvað fhmst Sigurgeiri um þetta? „Nlðurstaðan var að menn nefndu þetta áfram Búnaðar- þing og við það situr. Ég vil hins vegar mótmæla því, sem haldið hefur verið fram, að forystu- menn bænda séu gamlir menn með gðmul viðhorf. Mlkil end- urnýjun hefur orðið í forystu- sveit bænda sfðustu ár. Menn f stjórn Búnaðarsambands Eyja- fjarðar eru til dæmis allir um og innan við fimmtugt og í stjórn Bændasamtaka ísland eru menn á svipuðu reki. Eng- inn má þó taka orð mt'n þannig að ég sé á móti gömlum mönn- um. Málið er að f félagsstarfl verða skoðanir forystumanna að vera f noklcru samhengi við tfðaranda, tækni og tækifæri lfðandi stundar, svo framarlega ef árangur á að nást. Ég tel að forystumenn bænda séu nú- tímamenn. Ef þeir væru það ekki myndum við daga uppi - og það er ekki markmið ís- lenskrar bændastóttar," sagði Sigurgeir Hreinsson. - sbs „Enginn má taka orð mín svo að ég hafi á móti gömlum mönnum. En skoðanirforystu- manna verða að vera i samhengi við tiðaranda, tœkni og tœk{færi líð- andi stundar, svofram- arlega ef árangur á að nást," segir Sigurgeir Hreinsson, bóndi á Hris- hóli i Eyjafjarðarsveit ogformaður Búnaðar- sambands Eyfqfjarðar.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.