Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.03.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.03.1997, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 8. mars 1997 iDagur-®tntmn Rambo ...eða kannski lögaa? Islenskir lögreglumenn lenda sjaldan eða aldrei í skotbar- daga og hafa því tiltölulega litla reynslu af því að skjóta á menn miðað við starfsbræður þeirra erlendis. Sem betur fer hefur enginn íslenskur lög- regiumaður enn sem komið er lent í þeirri aðstöðu utan einu sinni í Neskaupstað fyrr á öld- inni þegar lögreglumaður varð að verja sig og skjóta að mannfjöida enda hefur reynsl- an erlendis sýnt að lögreglu- menn þurfa áfallahjálp eftir slíka reynslu. Þjóðfélagið tekur örum breytingum og ofbeldið fer sífellt vaxandi. Það er því fremur spurningin hvenær en hvort íslenskir lögreglumenn verða að beita kunnáttu sinni. „Á lögreglustöðvunum hafa alltaf verið til byssur til að nota í neyð. Skotvopnaþjálfun hefur hins vegar ekki verið neitt mjög mikil, þó alltaf einhver gegnum árin. íslensk lögregla er óvopn- uð dags daglega. Vopn eru ekki tekin fram nema upp komi til- felli þar sem er við að eiga menn, sem eru vopnaðir skot- vopnum," segir Jón Bjartmarz, yfirmaður sérsveitar Lögregl- unnar í Reykja- vík, sem dag- legu tali köliuð Víkinga- sveitin. Heimil að að vopna alla Grundvall- arkunnátta á skotvopn þykir nauð- synleg fyrir alla lögreglu- menn í frið- sældarríkinu íslandi þó að löggurnar þurfi sem betur fer sjaldan að grípa til vopna. I Lögregluskól- anum læra menn um skot- vopn og þjálfa notkun skamm- byssu enda hafa lögreglustjórar heimild til þess að vopna alla lög- menn stunda ekki skotæfingar og hafa ekki mjög virka skot- kunnáttu þó þeir hafi tækifæri til þess að stunda skotfimi hjá íþróttafélagi lögreglumanna. í Reykjavík er starfrækt sér- sveit sem sinnir verkefnum út um allt land og hafa sérsveitar- mennirnir aðgang að skamm- byssum af gerðinni Glock, hríð- skotabyssum eða handvélbyss- um af gerðinni Heckler&Kock MP5, rifflum og haglabyssum af fínustu gerð. Allir eru sérsveit- armennirnir vopnaðir skamm- byssum en ekki eru þeir allir vopnaðir hríðskotabyssum eða rifflum enda þarf ákveðna sér- hæfingu í þá síðastnefndu. Ákveðin leynd hvílir yfir starf- semi sérsveitarinnar. Þannig vill Jón ekki gefa upp hversu margir sérsveitarmennirnir eru en talið er að þeir séu um 20 talsins. Skjóta í hjartað „Við erum að llestu leyti með sambærilegan vopnabúnað á við aðrar sérsveitir," segir Jón og Við erum að flestu leyti með sambærilegan vopnabúnað á við aðrar sérsveitir," segir Jón. Flestallir sérsveitar- menn í heiminum eru með hríðskotabyssur af sömu gerð og íslendingar og marcjir eru með sams konar skamm- byssur. Rifflarnir eru hins vegar af sömu gerð og fást í venjulegum veiðibúðum. Islenskir sérsveitarmenn hittast reglulega til að æfa skotfimi og annað sem nauðsynlegt þykir að þeir hafi á valdi sínu. reglumennef nauð- Skot syn krefur að höfðu skóla e aiJS svonasv^aðÞ^; ^aöur Víkmga samráði við dóms- málaráðuneytið. Al- Jaidnar þarf hón að ski mennir lögreglu- sveitarinnar. bætir við að flestallir sér- sveitarmenn á Vestur- löndum séu með hríð- skotabyssur af sömu gerð og íslendingar og margir séu með sams konar skammbyssur. Rifflarnir eru hins veg- ar af sömu gerð og fást í venjulegum veiðibúð- um. Sérsveitarmennirn- ir sinna samtímis öðrum störfum innan iögreglunnar enda segir Jón að ekki sé fullt starf að vera í sveitinni. Erfitt er að komast í sér- sveitina enda eru strangar kröfur gerðar til sérsveit- armanna um and- legt og líkamlegt atgervi og eru þeir í reglulegum æfingum, bæði líkamsæfingum og skotæfing- um. Skotæfing- arnar eiga sér stað ýmist á æfingasvæði Skotfélags Kópavogs í kjallara Digranes- skóla eða Saltvík. Þar miða menn á pappír með áprentuðum mannslíkama og skjóta í hjartað, hausinn eða út- limina allt eftir því á hvað er miðað. „Það má eiginlega segja um svona sveit að því betri sem hún er því sjaldnar þarf hún að skjóta. Starfið miðast að því að leysa málin á sem farsælastan hátt. Við höfum náttúrulega oft staðið frammi fyrir vopnuðum mönnum en höfum ekki enn skotið á móti fólki nema kannski gas- skotum. Við höfum blessun- arlega sjaldan þurft að gera það,“ segir hann. Æfa meira en í út- löndum „Við æfum margt íleira en að skjóta af vopnum. Við æfum alls kyns taktík og aðferðir. Við lærum til dæmis ákveðnar aðferðir til að yfirbuga hnífamenn. Svona sér- sveit kallar á síþjálfun," segir Grundvallarkunnátta á skotvopn þykir nauðsynleg fyrir alla lögreglumenn ífriðsœldarríkinu Islandi þó að löggurn- ar þurfi sem betur fer sjaldan að grípa til vopna. Menn í Víkingasveitinni hafa aðgang að ferns konar vopnum, meðal annars skamm- byssum og hríð- skotabyssum og cefa reglulega meðferð þessara vopna. Jón og bendir á að skotæfingum sérsveitarinnar sé dreift yfir allt árið. Hann segir að sérsveitar- menn hórlendis æfi meira en almennir lögreglumenn úti í heimi þó að ekki nái þeir sama æfingamagni og aðrar sér- sveitir. Menn- irnir gangast undir skotpróf einu sinni á ári og verða þá að ná ákveðnu lágmarki. Með viðhaldsþjálfun gengur það vel en þeir sem uppfylla ekki kröfurnar detta út úr sveitinni. „Lögreglan mætir alltaf óvopnuð með- an mennirnir, sem hún á að mæta, eru óvopnaðir," segh Jón. Þeg- ar minnst er á Rambó bendir hann á að það séu ranghug- myndir að í sérsveitum séu Rambó-týpur. Svo sé einmitt alls ekki. Slíkir menn séu ekki teknir inn í sveitina. „IIC, ■uíib

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.