Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.03.1997, Blaðsíða 18

Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.03.1997, Blaðsíða 18
30 - Laugardagur 8. mars 1997 ^Dagur-®mrám B R I D G E Þrír frakkar unnu Þeir unnu fjölmennt (!) mót yngri spilara um síðustu helgi. Frá vinstri Hlynur T. Magnússon, Halldór Sigurðarson, Tryggvi Ingason og fyrirliðinn Ragnar Torfi Jónasson. Myndin var tekin í fyrra þegar sveitin keppti undir nafni Tímans en þá varð silfrið hlutskipti sveitarinnar. Mynd: Bjöm Þorláksson Þorláksson Sveit Þriggja frakka hafði öruggan sigur í sveita- keppni kvenna 1997 sem fór fram um síðustu helgi í Þönglabakka í Reykiavík. Sveit- ina skipa Guðrún Oskarsdóttir, Anna ívarsdóttir, Esther Jak- obsdóttir, Valgerður Kristjóns- dóttir, Ljósbrá Baldursdóttir og Jacqui McGreal. Þannig varð lokastaða efstu sveita: 1. Þrír frakkar 208 2. Erla Sigurjónsdóttir 192 3. Sparisjóður Kópavogs 185 4. íris 174 5. Jóhanna Sigurjónsdóttir 173 6. Stefanía Skarphéðinsd. 169 í íjölsveitaútreikningnum urðu Ljósbrá og Jacqui efstar með 19.00. María Ásmunds- dóttir-Þóra B. Ólafsdóttir urðu aðrar með 17,36 og Hertha Þorsteinsdóttir-Elín Jóhanns- dóttir þriðju með 17,05. Keppn- isstjóri var Jakob Kristinsson og spilastjóri Ragnheiður Ragnars- dóttir. ísfirðingar sigruðu í flokki yngri spiiara Á sama tíma og íslandsmót kvenna í sveitakeppni fór fram spiluðu fjórar sveitir yngri spil- ara um íslandsmeistaratitilnn í sveitakeppni. Verður það að teljast ansi róleg þátttaka hver sem skýringin er. Sveit Ragnars Torfa Jónassonar sigraði örugg- lega með 183 stig. Ásamt Ragn- ari spiluðu Tryggvi Ingason, Halldór Sigurðarson og Hlynur T. Magnússon. Þessir kappar koma allir frá ísafirði. í öðru sæti varð sveit Strýtu frá Akureyri með 165 stig, sveit Halldórs Más Sverrissonar varð þriðja með 102 impa og sveit Austurlands rak lestina með 81 stig. Fyrirfram var biíist við harðri keppni milli ísfirðing- anna og sveit Strýtu. í lokaum- ferðinni kom þetta spil upp í innbyrðisviðureign: 1 4 54 * 97432 ♦ 963 * 875 4 AK76 N 4 DG VÁKG8 ¥6 ♦ ÁKD54 V A ♦ G872 * S * KGT964 4 k T9832 * DT5 ♦ T ♦ AD32 Þetta eru engin smáspil í vestur og eins og sést er al- slemma í tígli á borðinu. Hvor- ugt parið náði þó henni og ann- að parið lét sér geim duga. Á öðru borðinu hindraði Steinar Jónsson í austur á tveimur gröndum sem sýndu einhvern lit og væntanlega ekki góðan. Stefán Jóhannsson í vestur sagði 3 tígla sem er krafa og hefur ekkert með tígul að gera. Steinar sagði þá 3 grönd og þar enduðu sagnir. í þessu spili reyndist hindrunin afar óheppileg. Við hitt borðið fékk Ragnar Torfi að opna á sterku laufi og makker hans, Hlynur Magnús- son, kreisti upp úr sér 2 lauf. Ragnar sagði 2 tígla, makker hækkaði í þrjá og eftir það var aldrei spurning um að komast í slemmuna. Sagntækni ísfirðing- anna sýndi hins vegar ekki að 13 slagurinn væri í augsýn og enduðu þeir í 6 tíglum. En það var handfylli af impum samt. Það lá allt Umsjónarmaður var staddur á árshátíð nýverið þegar sá ágæti áhugamaður um bridge, Jón Aðalsteinsson, vék sér að hon- um með söngtextablað hátíðar- innar og hafði þar párað á spil sem hann spilaði í tvímennings- keppni á dögunum. * Á5 VÁ97 * ÁT863 * KD6 N S * K632 VDG8 * G * ÁT853 „Ég varð sagnhafi í sex lauf- um og fékk út spaða. Hvernig spilar þú, spurði Jón og hélt strax áfram. „Ég ákvað að reyna að fá 7 slagi á tromp og gera ráð fyrir laufgosanum öðr- um. Ég trompaði því tvisvar spaða í bhndum og fór heim með tígultrompun. Laufgosinn kom annar í laufásinn og þá voru alltaf 12 slagir í húsi.“ En með því að hringsvína hjartanu, hvernig hefði spilið þá farið? „Ja, þetta var ótrúlegt spil. Það lá bara allt. En þetta er besta leiðin, er það ekki,“ sagði Jón en beið ekki svars, enda nægar stelpur til að dansa við á árshá- tíðinni. Jón spilaði rétt en væntanlega hefur hann fyrst tekið einu sinni hátt tromp áður en hann fór í „víxlið“. Þannig getur hann með ákveðinni legu enn unnið spilið þótt suður eigi blankan laufgosa. Það nýjasta nýtt hjá unglingunum, 13 ára og eldri, er mikil litagleði í jorðun. Varalitirnir eru svartir, hvítir, bláir, grœnir, silfurlitaðir eða gylltir. Eiginlega allt nema rauðir, eins og áður var. * kringum varirnar er síðan teiknuð lína í sama lit og varaliturinn og yfir er sett glimmer sem getur verið í sama lit, silfurlitað eða gyllt. Farðinn sem unglingarnir nota er mjög ljós. Augnskuggar með glimm- ergeli yfir og jafnvel algengt að stúlkur noti fölsk augnhár í sUf- urlituðum, grænum, bleikum eða bláum lit. Neglurnar eru líka lakkaðar í öllum regnbog- ans litum í stíl eða sjálflýsandi í myrkri eða diskóljósum. Litagleðin kemur einnig fram í hárlitum. Hárrautt, blátt, grænt, appelsínurautt og bleikt er í tísku. Gallinn við að lita hárið í þessum litum er að lit- urinn upplitast illa og því þarf oft að aflita undir litinn. Það getur líka verið erfitt að fara í strætó í skólann með grænt hár þó það sé „kúl“ að mæta þannig á diskótekið. Þessu má komast hjá með þvx að fá sér bara skærlita hárkollu til að bregða á sig eina kvöldstund. Litagleðin gefur unglingun- um tækifæri til að vera virki- lega öðruvísi og skera sig úr fjöldanum. Þannig geta þeir virkjað sköpunarmátt sinn og hannað sinn eigin stíl. Ljós farði, glimmer á vörum og augnlokum og naglalakk í öllum regnbogans litum er meðal þess sem er áberandi í unglingatískunni um þessar mundir.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.