Dagur - Tíminn Reykjavík - 02.04.1997, Page 8
20 - Miðvikudagur 2. apríl 1997
,®agur-®mmm
LIFIÐ I LANDINU
Einn keppandinn kom skríðandi yfir marklínuna í boðgöngunni.
Anægður
Eg verð að vera ánægður
með þrenn gullverðlaun
og eitt silfur. Petta er í
fyrsta sinn í ár sem ég keppi í
risasvigi og ég er ánægður
með útkomuna þar. Fyrir
mótið hélt ég að ég ætti mestu
möguleikana í sviginu, en það
klúðraðist. Aðstæður voru
mjög erfiðar, færið þungt og
skyggnið lélegt. Það er samt
engin afsökun, aðstæðurnar
voru eins hjá öllurn," sagði
Kristinn Björnsson, skíða-
kappi frá Ólafsfirði, sem var
sigursælasti keppandinn í
alpagreinum.
Kristinn hefur náð mjög
góðum árangri í svigi og
sagðist búast við því að vera
nálægt 60. sætí á heimslista
alþjóða skíðasambandsins.
„Eg færist örugglega neðar á
næsta sviglista, en ég reikna
með því að verða undir 60.
sætinu og það er framar mín-
um björtustu vonum.“
Hann sagðist vera mjög
ánægður með mótið og sagði
áhugann fyrir því hafa komið
sér nokkuð á óvart. „Það var
fullt af fólki að fylgjast með og
allir að óska mér til ham-
ingju. Ég trúi ekki öðru en að
menn séu ánægðir með það
hvernig til tókst,“ sagði Krist-
inn.
Daníel Jakobsson tryggir Ólafsfirðingum sigurinn í boðgöngunni á föstudaginn langa.
Myndir: JHF
(t t>P*nn
stttðMRi fyrirlestur
Miðvikudaginn 2. apríl nk. mun Mel West halda
opinn fyrirlestur við Háskólann á Akureyri. Hefst
fyrirlesturinn kl. 16.15 og verður í húsnæði há-
skólans við Þingvallastræti í stofu 16 á fyrstu
hæð. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku.
Fyrirlesturinn nefnist Þáttur kennara í skóla-
þróun. Á síðustu tveimur árum hafa fjórir skólar
á Norðurlandi eystra unnið að sérstökum skóla-
þróunarverkefnum. Þessi verkefni eru byggð á að-
ferðum sem þróaðar hafa verið við Cambridgehá-
skóla. Mel West mun í fyrirlestrinum fjalla um
þróun þessara aðferða. í fyrirlestrinum leggur
hann sérstaka áherslu á þátt kennara við að þróa
gæði skóla. Líkanið heitir á ensku Improving the
Quality of Education for All (IQEA) en á íslensku
hefur það verið kallað Aukið gæði náms (AGN).
Mel West lauk BA gráðu í hagfræði og hagsögu
frá University of London árið 1971 og MBA gráðu
frá University of Keele 1984. Hann hefur síðan
1984 starfað sem kennari við háskólann í Cam-
bridge þar sem aðalsvið hans er skólaþróun og
gæði menntunar. Mel West hefur verið ráðgjafi
Skólaþjónustu Eyþings vegna AGN verkefnisins.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Líf & fjör á Skíðamóji Islands