Dagur - Tíminn Reykjavík - 02.04.1997, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 02.04.1997, Qupperneq 9
JDagur-'íEmmm Miðvikudagur 2. apríl 1997 - 21 LIFIÐ I LANDINU Brynja Þorsteinsdóttir og Theodóra Mathiesen. Hörkubarátta í stórsviginu Brynja Þorsteinsdóttir frá Akureyri og Theodóra Mathiesen úr KR eru einu íslensku skíðakonurnar sem æfa erlendis og það kom því engum á óvart að þær skyldu berjast um íslandsmeistaratitla í alpagreinum, á mótinu á Dal- vfk og í Ólafsflrði. Brynja hafði vinninginn að þessu sinni, hampaði gulli bæði í stórsvigi og risasvigi, en Theodóra varð að láta sér annað sætið lynda í báðum greinunum. Báðar duttu þær úr leik í sviginu og misstu þannig að tækifærinu til að ná verðlaunum í alpatvikeppni. „Ég er mjög ánægð með stór- svigið á föstudaginn, þar sem ég var önnur eftir fyrri ferðina. Risasvigið gekk líka vel og ég hefði orðið númer fimm hjá strákunum. Ég hef bætt mig í vetur, þó það hafi ekki verið mikið og aðstæðurnar eru meiriháttar hér á Dalvfk," sagði Brynja. Theodóra hefur örugglega fengið margar útnefningar sem óheppnasti keppandinn á landsmótinu. Hún rétt missti af gullinu í stórsviginu og keyrði síðan út úr brautinni í svigi, þegar hún átti nokkra metra eftir í markið. „Ég ætlaði mér sigur í bæði svigi og stórsvigi og þetta hefði getað farið á báða vegu, enda munaði litlu á okkur í stórsviginu. Ég hef aldrei orð- ið íslandsmeistari, en ég hef aldrei verið eins nálægt því eins og á þessu móti,“ sagði Theo- dóra, sem er 22 ára gömul, tveimur árum eldri en Brynja. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Aðalskipulag Reykjavíkur 1996 - 2016 Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 - 2016, greinargerð og landnotkun- arkort, auglýsist hér með samkvæmt 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1964. Sýning á skipulagstillögunni verður opnuð íTjarnarsal Ráðhússins kl. 16:00 miðvikudaginn 2. apríl. Tillagan ásamt þemakortum og öðrum uppdráttum sem tengjast aðalskipu- laginu er almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarsal, frá 2. til 9. apríl og frá 10. apríl til 30. maí er sýningin í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa að Borgartúni 3, 1. hæð kl. 9:00 til 16:00 virka daga. Sérstakir þemadagar verða 3. 8. og 9. apríl. Þá daga kl. 16:00 til 18:00 verða efnisþættir aðalskipulagsins kynntir af starfsfólki Borgarskipulags og fulltrúum frá öðrum borgarstofnunum. Þann 3. apríl verður fjallað um byggð og hús- vernd, þann 8. apríl samgöngumál og þann 9. apríl umhverfismál og þjónustu. Allan auglýsingatímann svara fulltrúar Borgarskipulags fyrirspurnum varðandi skipulagstillöguna. Athugasemdum eða ábendingum skal skila skriflega til Borgarskipulags eigi síðar en kl. 16:00 þann 30. maí 1997. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Aldrei séð svona marga áhorfendur Eg hef aldrei séð svona marga áhorfendur á skíðamóti, áhuginn var greinilega mjög mikill og ég get nefnt að í boðgöngunni á föstu- daginn voru nokkur hundruð manns sem fylgdust með og það hefur ekki sést á íslandi í nokkra áratugi, ef það hefur þá einhvern tímann sést,“ sagði Haraldur Gunnlaugs- son, sem var í skíða- mótsnefnd á lands- mótinu, sem lauk á Dalvík á mánudaginn. Skíðadeildirnar á Dalvík og í Ólafsfirði sáu um framkvæmd mótsins og er það viðamesta verkefnið sem þessar deildir hafa ráðist í. Fyrir fimm árum sáu sömu aðilar um imdirbún- ing skíðalandsmóts- ins, en þá þurfti að flytja keppni í alpa- greinum til Akureyrar vegna snjóleysis. Haraldur sagði að framkvæmd mótsins hefði gengið eins og í sögu. „Það kom ekki fram ein einasta hrukka á skipulagið, nema ef vera skyldi rigningin á laugar- dag. Við gátum því miður ekki séð við henni, því það er aldrei hægt að kortleggja ís- lenska veðráttu.“ Haraldur sagðist ekki getað gert sér grein fyrir því hve kostnaðurinn væri mikill við mótshaldið, líklega hlypi hann á einhverjum hundruðum þús- unda, en einhverjar tekjur kæmu á móti. Haraldur Gunnlaugsson frá Ólafsfirði var í mótsstjórn. Saltkjötfars kr. 298 kg. KEA-kjötfars kr. 298 kg. Ýsufars kr. 468 kg. Kýrhakk kr- 598 kg. Kýrsnitsel kr. 898 kg. Úrbeinað hrossasaltkjöt kr. 38B kg. Hrísalundur sér um sína

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.