Dagur - Tíminn Reykjavík - 02.04.1997, Qupperneq 16
^Dagur-ÍEtmtrat
800 70 80
JOagur-®mrám
-besti tími dagsins!
Miðvikudagur 2. apríl 1997
Úr páskadagbók lögreglunnar í Reykjavík 26. til 31. mars
Páskarnir voru nokkuð
annasamir hjá lögregl-
unni. í dagbókinni um
páskana eru 602 færslur. Af
þeim eru 12 líkamsmeiðingar,
41 innbrot, 21 þjófnaður og 27
eignaspjöll. Afskipti þurfti að
hafa af 42 vegna ölvunar á al-
mannafæri og vista þurfti 60
manns í fangageymslunum. í
umferðarmálum ber hæst 37
tilkynnt umferðaróhöpp, auk
þess sem 33 ökumenn voru
kærðir fyrir of hraðan akstur
Á páskum í fyrra, en þá voru
þeir í byrjun apríl, gerði
vonskuveður á skírdag. Þá varð
ófært á mörgum leiðum út úr
borginni. Af 38 umferðaróhöpp-
um urðu 28 þennan eina dag.
Af 37 umferðaróhöppum nú
urðu flest annan í páskum, en
þá tók að snjóa eftir annars
ágætt veður.
Aðfaranótt skírdags þurftu
lögreglumenn að aka manni á
slysadeild eftir slagsmál í Lækj-
argötu. Þá var stúlku, sem hafði
ristarbrotnað þar, einnig ekið á
slysadeild, sem og manni er
hlotið hafði skurð á hnakka eft-
ir átök á veitingahúsi. Maður
var stunginn með hnífí í mag-
ann í Austurstræti við Lækjar-
götu skömmu fyrir kl. ijögur.
Skömmu síðar þurfti að flytja
aðila með sjúkrabifreið á slysa-
deild eftir slagsmál í Austur-
stræti. Pjórir aðilar voru hand-
teknir. A einum þeirra fundust
fíkniefm. Loks voru 5 aðilar
handteknir í Lækjargötu eftir
slagsmál og að hafa unnið
skemmdir á leigubifreið.
Vildu ekki loka
Á skírdagsmorgun var bifreið
ekið á staur við Suðurlands-
braut. Ökumaðurinn var grun-
aður um ölvunarakstur. Eftir
hádegi varð stúlka á reiðhjóli
fyrir bifreið í Fellsmúla við
Grensásveg. Ökumaðurinn ók
hins vegar á brott eftir óhappið.
Um var að ræða ljósbláa Dodge
Aries fólksbifreið á R-númeri.
Stúlkan handarbrotnaði við
óhappið.
Þrír ungir menn voru hand-
teknir á Lækjartorgi á skírdag
eftir að hafa veist þar að út-
lendingum. Vista þurfti annan
þeirra í fangageymslunum.
Áfengisveitingastaðir máttu
hafa opið til kl. 23.30 á skírdag.
Þremur stöðum hafði ekki verið
lokað eftir miðnætti og þurftu
lögreglumenn því að stöðva
reksturinn og vísa gestunum út.
Skýrslur voru ritaðar um málin
og verða þau tekin fyrir á
næstu dögum.
Lögreglumenn höfðu afskipti
af opnum söluturni við Tungu-
veg. Starfsfólkinu var gert að
loka, enda um að ræða brot á
helgidagalöggjöfinni sem og
ákvæðum samþykktar um af-
greiðslutíma verslana í Reykja-
vík. Þá var söluturni við Rauð-
arárstíg einnig lokað á föstu-
daginn langa.
Ástfangnir þjófar
Lögreglumenn þurftu að hafa
afskipti af tveimur foreldralaus-
um samkvæmum aðfaranótt
laugardags. í fyrra tilvikinu olli
hávaði frá samkvæminu nálæg-
um íbúum óþægindum, en í því
síðara þurftu lögreglumenn að
vísa nokkrum gestanna
út. Nokkrir
þeirra veittust 5
að lögreglumönnum svo hand-
taka varð þrjá þeirra og færa á
lögreglustöð. Tilkynnt var um
innbrot í skúr við Tryggvagötu.
í ljós kom að um var að ræða
par sem leitað hafði þar skjóls
til ástarleikja. Undir morgun
kærði kona nauðgun. Hún náði
að hringja á aðstoð, en í milli-
tíðinni sleit hann samtalinu og
náði að sparka í og berja kon-
una. Maðurinn var farinn þegar
lögreglumenn komu á vettvang,
en konan var flutt á neyðarmót-
töku Sjúkrahúss Reykjavíkur.
RLR annast framhaldsrannsókn
málsins.
Internets martröð?
Á laugardag hvarf bifreið, E
3404, rauðbrún Honda Civic
árg. ’88, frá húsi við Beykihlíð,
en hún hafði verið skilin þar
eftir í gangi um morguninn.
Þeir, sem orðið hafa bifreiðar-
innar varir eru beðnir um að
láta lögregluna vita. Um
kvöldið varð maður
fyrir líkamsmeiðingu
á veitingahúsi við
Laugaveg. .
Að morgni ann-
ars í páskum hand-
tóku lögreglumenn
tvo menn, eftir að hafa
stöðvað bifreið þeirra í
Langarima. Við leit í bif-
reiðinni fannst 51 mynd-
bandsspóla, myndbandstæki,
gönguskór og eitthvað af
peningum. Mennirnir voru
vistaðir í fangageymslum.
Við athugun kom í ljós að
þeir höfðu skömmu áður
brotist inn í myndbanda-
leigu við Rangársel og í
bifreið við Nökkvavog. Um
morguninn handtóku lög-
reglumenn einnig fimm menn í
bifreið, sem stöðvuð var við
Dalsel. f bifreiðinni fundust
munir, sem þeir gátu ekki gert
grein fyrir. í framhaldi af því
var farið í húsleit við Laufa-
rima. Þar fannst mikið magn af
ætluðu þýfi, sem tengja mátti til
innbrota í bifreiðir um nóttina.
RLR tók að sér framhaldsrann-
sókn málsins.
Á páskadag var 15 ára
stúlku saknað frá fsaflrði, en
hún var þar í heimsókn. Við eft-
irgrennslan kom í ljós að hún
hafði áður verið í sambandi við
aðila á Internetinu. Símanúmer
þess aðila stóðst hins vegar
ekki, en við nánari rannsókn
lögreglumanna og gott samstarf
við hlutaðeigandi aðila var
hægt að rekja slóð stúlkunnar í
tiltekið hús í borginni. Þar bjó
22 ára gamall maður, en hann
hafði haft stúlkuna hjá sér í sól-
arhring eftir að samskiptum
þeirra á
Internet-
inu lauk á laugardag. Mál þetta
mun sæta frekari rannsókn hjá
RLR.
Úr dagbók lögregluimar á Akureyri dagana 24. -30. mars
Aþessum tíma eru bókfærð
331 verkefni í dagbók
lögreglunnar. Að vanda
ber mest á ýmis konar vinnu
tengdri umferðinni. Af þeim
vettvangi eru bæði góðar og
slæmar fréttir. Góðu fréttirnar
eru að lögregla þurfti aðeins
að hafa afskipti af 7 umferðaró-
höppum og voru gerðar lög-
regluskýrslur vegna þriggja
þeirra. Þetta eru óvenju fá
óhöpp á 7 dögum og er
það að sjálfsögðu afar
ánægjulegt. Á hitt ber
að líta að lögreglan
fær ekki upplýsing-
ar um nema hluta
þeirra óhappa sem verða þar
sem fólk gengur frá mörgum
þessara tilvika sjálft, með út-
fyflingu tjónstilkynninga.
Slæmu fréttirnar eru þær að
48 ökumenn voru á sama
tíma kærðir fyrir of
hraðan akstur. Þetta er allt of
mikill Ijöldi. Lögreglan verður
með radarinn á lofti á næstunni
sem endranær og ætti fólk að
varast að aka hraðar en leyfi-
legt er.
Af öðrum brotum á umferð-
arlögum má efna að 2 voru
kærðir fyrir að sinna ekki
stöðvunarskyldu, 2 fyrir brot á
reglum um ljósanotkun, 2 fyrir
réttindaleysi við akstur, 7 fyrir
að láta ekki skoða ökutæki sín á
tilskildum tíma, 1 fyrir ölvun
við akstur, 19 fyrir að nota ekki
öryggisbelti og 12 fyrir að vera
ekki með ökuskírteinið með-
ferðis við aksturinn. 1 var
kærður fyrir að vera aðeins
með annað skráningarnúmerið
á bifreið sinni. Sumir hafa vað-
ið í þeirri villu að það sé nóg að
vera aðeins með annað númer-
ið á ökutækinu og þykir það
jafnvel flott.
Lagðist til svefns
Til lögreglunnar vorp m.a. kærð
3 þjófnað-
armál, 1 innbrot, 4 skemmdar-
verk og 1 líkamsárás. Tveir
voru gómaðir fyrir rúðubrot. 4
máttu gista fangageymslur,
vegna ölvunar sinnar og ósæmi-
legs hátternis. Þrjú slys voru
tilkynnt til lögreglunnar, þar af
voru tveir skíðamenn sem
höfðu dottið í Hlíðarfjalli og
voru taldir fótbrotnir.
í vikunni var lögregla kölluð
að húsi hér í bæ en þar hafði
óboðinn og ölvaður gestur farið
inn og lá sofandi í sófa húsráð-
anda er hann kom heim. Mað-
urinn var handtekinn og færð-
ur í fangageymslu.
Festu vélsleðann
Föstudaginn 28. kl. 22:14 barst
tilkynning um að tveggja pilta,
16 og 17 ára, væri saknað en
þeir hefðu farið af stað á ein-
um vélsleða um kl. 15:00 og
ætlað að vera komnir aftur fyr-
ir myrkur. Ekki lá fyrir nein
ferðaáætlun og talið að a.m.k.
annar piltanna væri illa búinn.
Þeir voru ekki með nesti og
höfðu engan fjar-
skiptabúnað. Haft
var samband við
félaga úr Flug-
björgunarsveitinni og
Hjálparsveit skáta, sem
kölluðu út menn og skipu-
lögðu leit. Kl. 00:45 fundu
hjálparsveitarmenn piltana
heila á húfi í Lamba, sem er
skáli Ferðafélags Akureyrar,
innarlega á Glerárdal.
Piltarnir höfðu þá
fest vélsleðann
og orðið að taka á það ráð að
ganga í Lamba og það tekið þá
allt að þremur klukkustundum.
Iljálparsveitarmenn hafa
greinilega unnið hratt og skipu-
lega og er aðdáunarvert
hversu flj ótir þeir voru að finna
þá týndu. Þetta tilfelli færir
okkur heim sanninn um, hversu
mikilvægt það er að láta liggja
fyrir ferðaáætlun í styttri jafnt
sem lengri ferðum og leggja
áherslu á góðan búnað, nesti
og fjarskiptatæki.
Aðstoðuð til byggða
Hjálparsveitarmenn voru ekki
komnir í hús aftur er önnur
hjálparbeiðni barst. Faðir ungr-
ar stúlku var farinn að undrast
um hana en hún var akandi á
fólksbifreið á leiðinni frá Egils-
stöðum til Skagafjarðar. Fregnir
höfðu þá borist af því að Öxna-
dalsheiðin væri orðin ófær
fólksbifreiðum. Hjálparsveitar-
menn fóru á bílum bæði til
vesturs og austurs frá Akureyri,
auk þess sem haft var sam-
band við aðrar hjálparsveitir
við fyrirhugaða akstursleið
stúlkunnar. Kl. 03:32 var
tilkynnt að stúlkan væri fundin
á Möðrudalsöræfum, þar sem
bifreið hennar sat föst í skafli.
Ekkert amaði að henni og var
hún aðstoðuð til byggða.
Allt er gott sem endar vel.
J.S.
22. /Ji/i(fs/nó{
UMFÍ
Boreames
s.-6!júlí S997 j
Fjölskylduskemmtun
Engin aðgangseyrir
WFf