Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Qupperneq 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Qupperneq 3
|Dagur-'3lTOtmn —— F R E T T I R Laugardagur 5. apríl 1997 - 3 Efnahagur ■ Arðgreiðslur Blússandi kaupmáttur Kaupmáttaraukning um 20%, meira en íslend- ingar hafa áður upplifað Nýgerðir kjarasamningar og fyrirhugaðar skatta- lækkanir auka kaupmátt ráðstöf- unar- tekna um 12% á næstu árum. Kaup- máttur heimil- anna mun sam- kvæmt því aukast um rúmlega 20% á árunum 1995 til 1999, sem er meira en íslendingar hafa áður upplifað og fáar þjóð- ir geta státað af öðru eins. Þetta sagði Davíð Oddson, for- sætisráðherra í utandagskrár- umræðum á Alþingi í gær Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, hóf umræðuna og sagði m.a. að reynsla síðustu ára hefði kennt mönnum að við afgreiðslu íjár- laga hverju sinni væri forsend- Davíð Oddsson forsætisráðherra Kaupmáttur hefur aukist meira hér á landi en nokkru sinni áður og mun meira en í ná- grannalöndum um gjarnan kippt undan gerðum kjara- samn- ingum. Nauðsynlegt væri að fá skýr svör um fyrirætlanir ríkis- stjórnar, m.a hvort til stæði að Margrét Frímannsd. form. Aiþýðubandalagsins skera niður eða hækka þjón- ustugjöld hjá ríkinu. Slík gjöld hefðu hækkað um rúma 2 millj- arða í tíð Davíðs í for- sætis- ráðu- neyt- inu. Það væri í raun skatta- hækkun, sem komið hefði illa niður á launafólki. Davíð sagði að kjarasamningarnir sem slfk- ir gæfu ekki tilefni til slíkra að- gerða, en hér eftir sem hingað til myndi ríkisstjórnin hafa að leiðarljósi, að tryggja stöðug- leika í efnahagsmálum. Margrét sagði ríkisstjórnina hafa sótt að verkalýðshreyfing- Þjónustugjöld hafa hœkkað um 2 millj- arða hjá Davíð unni og réttindum launafólks úr mörgum áttum undanfarið, nú síðast með áformum um breyt- ingar á lífeyris- sjóða- kerfinu, en þau tengdust augljós- lega fyr- irhugaðri einka- væðingu ríkis- bankanna. Færa ætti stóran hluta lífeyrissparnaðar vinn- andi fólks til bankakerfisins. Forsætisráðherra sagði að kom- ið hefði verið til móts við verka- lýðshreyfinguna og gerðar breytingar á lífeyrissjóðafrum- varpinu. Um það ætti nú að geta orðið góð sátt. -vj Vel athugandi Stjórn Kaupfélagsins hefur tekið vel í þessa málaleitun. í bókun okkar kom frarn skilning- ur á beiðni mjólkurbænda en við þurfum að skoða vel hvernig þetta verður tæknilega fram- kvæmt ef af verður. Það er sam- eiginlegur vilji Búnaðarsam- bandsins og Kaupfélagsins að kjör bænda á þessu svæði séu ekki verri er gengur og gerist annars staðar," segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarfor- maður KEA. í frétt blaðsins í gær kom fram sú krafa mjólkurbænda í Eyjafirði að fá greiddan arð frá mjólkursamlagi KEA eins og gert hefur verið hjá Mjólkurbúi Flóamanna og Mjólkursamsöl- unni. Eyfirskir mjólkurbændur hafa rætt um 14 milljónir kr. sem er hlutfallslega á svipuðum nótum og samið hefur verið um fyrir sunnan. „Við drögum menn ekki lengi á ákvörðun okkar. Niðurstaða mun liggja fyrir með vorinu,“ segir Jóhannes Geir. BÞ Sjónvarpið Örlagarík sundferð Sr. Þórir staðarhaldari ræddi málið í sundi við ríkissak- sóknara annan páskadag. Þeir tveir og Pálmi Gestsson Spaugstofumaður eru bræður í sömu frímúrarareglu samkvæmt fréttum RÚV. Ríkissaksóknari biður um upplýsingar í sundi, Sjón- varpið tekur „umdeilda“ mynd af dagskrá. Verður Spaugstofan á dagskrá í kvöld? Biskup íslands, Hr. Ólafur Skúlason, skýrði frá því í útvarpsviðtali í gær að meint guðlast Spaugstofumanna hefði komið til tals í sundferð ríkissaksóknara á öðrum degi páska. Þar hittust Ilallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari og sr. Þórir Stephensen stað- arhaldari í Viðey. Eftir þá sund- ferð tjáði sr. Þórir biskupi að rík- issaksóknari hefði áhuga á að fylgjast með samskiptum bisk- upsstofu og RÚV vegna kvörtun- arbréfs sem biskup ætlaði að senda vegna Spaugstofuþáttar- ins. Vitneskja sr. Þóris um þessi mál stafaði af nánum samtölum þeirra biskups strax eftir út- sendingu þáttarins; þá var sr. Þórir einnig viðstaddur messu biskups á Páskadag, þar sem hann gagnrýndi þáttinn. Daginn eftir fór sr. Þórir í sund. Þar hitti hann Hall- varð Ein- varðsson ríkissak- sóknara sem sr. Þórir seg- ir að hafi fregnað af málinu; tal- aðist þeim stað- Sr. Þórir arhaldara Stephensen svo til að ríkis- saksóknari fengi að fylgjast með. Afrit af kvört- unarbréfi bisk- ups til útvarps- ins var svo komið til emb- ættis saksókn- ara þriðjudag eftir páska, samtímis því að það barst útvarpsstjóra. Biskup sagði í samtali við Brodda Broddason fréttamann gærkvöld að hann hafi ekki viljað kæra til rík- issaksóknara, aðeins kvarta við RÚV. Hann staðfesti þó að afrit af kvörtunarbréfi sínu hefði farið frá skrifstofu sinni til saksókn- ara. Þaðan fór málið til Rann- sóknarlögreglu ríkisins sem nú kannar hvort um guðlast Spaug- stofumanna hafi verið að ræða. „Nóg komið af guðlasti" „Það er nóg komið af guðlasti," sagði símastúlka sjónvarpsins að hefði verið viðkvæðið hjá fólki sem hringdi til að kvarta yfir fyr- irhugaðri sýningu RÚV á Síðustu freistingu Krists, eða Last Temptation of Christ. Hinrik Bjarnason dagskrárstjóri sagði í útvarpi í gær að þetta væri „um- deild mynd“. Mikil brögð voru að því að hringt væri í Sjónvarpið í gær til að fá skýringar á dagskrárbreyt- ingunni. Tengdu sumir ákvörð- unina hugsanlegu guðlasti Spaugstofumanna. Síðasta freist- ing Krists var umdeild á sínum tíma, en hún tekur á frelsaran- um með öðrum hætti en gert er í biblíusögum barnanna. Verður Spaugstofan í kvöld? Óhætt mun að segja að beðið verði með óþreyju eftir hinum umdeildu Spaugstofumönnum í kvöld. Almenningur mun nokkuð áhugasamur að vita hvort þeir mum sjá spaugilegar hliðar á deilum um eigin þátt. Ekki höfðu verið tilkynntar frekari breyting- ar á dagskrá Sjónvarpsins þegar blaðið fór í prentun. Þráinn Bertelsson, kvikmyndagerðar- maður og dagskrárgerðarmaður, sagði í samtali við RÚV í gær- kvöld að sjálfritskoðun stofnun- arinnar væri „skelfileg". Kjaramál Iðja kolfelldi samningana Félagsmenn í Landssam- bandi iðnverkafólks kol- felldu í atkvæðagreiðslu nýgerðan kjarasamning við at- vinnurekendur. Sömuleiðis felldu rafiðnaðarmenn hjá Ra- rik gerðan samning með afger- andi meirihluta. Verkfall rafiðn- aðarmanna kom til fram- kvæmda á miðnætti í nótt. Bæði Iðja og rafiðnaðarmenn hafa verið boðaðir til samningafunda í dag, laugardag. Guðmundur Þ. Jónsson, for- maður Iðju, segist ekki líta á þessa niðurstöðu sem vantraust á sig. Hann kynnti í gær fyrir samninganefnd sambandsins drög að nýjum kjarasamningi sem er á hliðstæðum nótum og önnur aðildarfélög ASÍ sömdu um á sínum tíma. Stefnt er að því að atkvæðagreiðslu um seinni samning Iðju verði lokið um miðjan mánuðinn. -grh Gildir til 11. apríl eöa meöan birgöir endast Samsung SV-35 vídeótæki Glænýtt módel meö Super Jet drive (hraðspólun) Kyrrmynd, fjarstýring, tímaupptaka, skarttengi ofl. Afmælistilboö 1Q QOO aðeins kr. I m \J - Láttu sjá þig í afmælinu Kaffi, gos og rjómatertur frá kl 13-16 Hápunkturinn er í dag! Munið lukkupottinn, dregið tvisvar á dag og að lokum um ferð til Benidorm Fylgist meö á FM 102 Sími 462 4102 ___ RdDlðíHAtÍs Geislagata 14 • Sími 462 1300

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.