Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Page 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Page 5
Pagur-®ímimt Laugardagur 5. apríl 1997- 5 Vikartindur Kranínn virkar gámarnir bíða Mynd: BG Veður hamlaði því í gær að gámar væru hífðir frá borði Vikar- tinds. En nú í morg- unsárið átti að taka til óspilltra málanna. Mér sýnist að ekki verði byrjað að hífa gáma frá borði Vikartindi í dag. En strax í fyrramálið, laugar- dagsmorgun, ættu menn að geta byrjað á þessu verkefni. Síðustu sólarhringa hefur verið unnið við rafsuðu um borð í skipinu til þess að styrkja kran- ann á skipinu og hann virkar alveg með ágætum. Það er helst núna í augnablikinu að vindátt torveldi það að gámar verða ekki hífðir frá borði Vikartinds í dag. Nú er liann hér að snúa sér í austanátt með allt að átta vindstigum en þetta verður betra á morgun," sagði Por- steinn Haukur Þorsteinsson, fulltrúi ríkistollstjóra á strand- stað Vikartinds, í samtali við Dag- Tímann, síðdegis í gær. Um tuttugu gámar eru enn á þilfari Vikartinds, og í neðri lestum skipsins eru á annað hundrað gámar. Þorsteinn segir Björgunaraðgerðir á strandstað. að ekkert sé vitað um ástand eða innihald þeirra gáma. Hann minnir hinsvegar á að bæði sjór og olía hafi komist í lestar skipsins og því sjálfsagt valdið skemmdum á gámunum og innihaldi þeirra. Dæling á olíu úr Vikartindi var haldið áfram í gær. Starfs- mönnum Olíudreifingar hf. og hins hollenska björgunarfélags tókst að ná um það bil 10 þús. ltr. af olíu úr skipinu - og minnka olíubirgðirnar í skipinu dag frá degi. Þorsteinn Haukur Þorsteins- son segir starfsmenn tollyfir- valda og tryggingafélaga - og annarra hlutaðeigandi aðila - þurfa að yfirfara allt innihald gámanna úr Vikartindi um leið og það er híft upp í Háfsijöru. Tollskoðun þurfi að fara fram á stóru, rúmgóðu og afgirtu svæði sem tollyfirvöld viður- kenna. Þar komi helst til greina að tollskoðun fari fram á Sel- fossi eða í Reykjavík - þar sem löggiltar tollhafnir eru. Þetta séu þó allt mál sem óákveðin séu, enda bíða menn nú eftir því að sjá hvernig til tekst í dag að hífa gáma frá borði Vikar- tinds. -sbs. Vestmannaeyjar Strandgóss í flörunum Reki úr strandi Vikartins á Háfsfjöru hefur fundist víða við suð-vesturströnd íslands. Undanfarna daga hefur reki úr strandinu einnig borist á íjörur í Vestmannaeyjum. Að sögn bæjarstarfsmanna hefur margvíslegt góss borist á land eins og t.d. bjórdósir, slitr- ur af húsgögnum, hlutar af ís- skápum og frystiskápum, skó- fatnaður o.fl. Ekki er um mikið magn að ræða enn sem komið er en menn óttast að reki úr strandinu eigi eftir að aukast við fjörur Vestmannaeyja. ÞoGuÆyjum Kjaramál Flugvirkjar sömdu Síðdegis í gær sömdu Flug- virkjafélag íslands og Flug- leiðir um nýjan kjarasamning. Samhliða því frestuðu flugvirkj- ar boðuðu verkfalli. Flug verður því samkvæmt áætlun. Kjara- samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar sem gerðir hafa verið. -grh Bingó Karlakór Akureyrar-Geysir heldur bingó á sunnudagskvöldiö í Lóni og hefst það kl. 20.00. Fjölbreyttir vinningar. Akureyrarbær Mynd: GS Snjómokstur í meðallagi Samkvæmt uppgjöri síð- ustu mánaðamóta horfir í að kostnaður við snjómokstur og hálku- varnir verði í þokkalegu meðallagi hjá Akuroyrarbæ í ár. Um 7,8 milljónum hef- ur verið varið í mokstur en áætlun yfir árið gerði ráð fyrir 13,9 millj. kr. Hálku- varnir hafa kostað 1.130 þús. en áætluð heildartala ársins er 1.930 þús. Að sögn Guðmundar Guðlaugssonar bæjarverk- fræðings gerir áætlun ráð fyrir að um tveir þriðju hlutar kostnaðar verði á fyrri hluta árs en 1/3 á haustmánuðum. „Veturinn er náttúrlega ekki búinn, en þetta lítur ágætlega út,“ segir Guðmundur. Við hálkuvarnir er notað- ur sandur á Akureyri en á höfuðborgarsvæðinu þekkja menn saltausturinn. Veður- farslegur munur veldur því fyrst og fremst að þessi mis- munandi efni eru notuð. Staðviðrasamara er á Akur- eyri og minni umhleypingar en í Reykjavík en deildar meiningar eru um saltnotk- un. Hvað ástand gatna varð- ar segir Guðmundur að göt séu komin í hjólför á ein- stökum stöðum eins og bú- ast mætti við en það sé yfir- leitt allt á götum sem fyrir- hugað sé að leggja nýju slit- lagi í sumar. Þess má geta að miðað við síðasta ár stefnir í held- ur meiri kostnað við snjó- mokstur en mikill munur er á árinu í ár og 1995. Um 28 milljónir fóru í mokstur og hálkuvarnir þá, enda sér- lega þungur vetur þá. BÞ Kaupfélag Eyfirðinga Stjórnarmönniim fækkað um tvo og kjörtímabil stytt Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga hefst klukkan 10.00 í dag en árið 1996 skilaði reksturinn 117 milljón króna hagnaði á móti 44 millj- ón króna tapi árið 1995. Á ár- inu 1995 var KEA í 9. sæti yfir stærstu fyrirtæki Iandsins. Stjórn KEA mun leggja til að aðalstjórnarmönnum verði fækkað úr 7 í 5 og að þeir verði allir kosnir til eins árs í stað þriggja áður og stjórnin skipti með sér verkum. Ilelstu kostir þessarar breytingar eru taldar vera þær að stjórnarmenn verði ábyrgari gerða sinna en það er nokkuð tímafrekt starf að sitja í stjórn KEA. Auk þess eru þess- ar breytingar taldar vera í takt við nýja tíma. Engu að síður getur margfeldiskosning farið fram, þ.e. ef að 20% fundar- manna æskir þessir. Á fundinum í dag verða einnig ræddar aðrar tillögur til breytinga á samþykktum KEA, m.a. að aðalfundarfulltrúum verður fækkað úr u.þ.b. 180 talsins niður í 120. Þannig verða 35 fulltrúar bak við hvern fulltrúa í stað 50 í dag. Þó verður hverri deild tryggður einn aðalfundarfulltrúi. Kaupfélag Eyfirðinga kaupir allan sinn áburð af Áburðar- verksmiðjunni hf. í ár en vangaveltur voru uppi um að kaupa áburð af innilutningsfyr- irtækinu ísafold hf. í Reykjavík. Eftir nokkrar umræður þótti ekki fýsilegt að eiga viðskipti við ísafold en margra áratuga hefð er fyrir viðskiptum við Áburðarverksmiðjuna og við verksmiðjuna náðust samningar á hliðstæðu verði og bændum var boðið á sl. ári. GG Körfubolti „Aldrei allir ánægðir“ Askrifendur Stöðvar 2 eru sumir mjög ósáttir við að leikur Grindavíkur og Keflavíkur í fyrrakvöld hafi ver- ið sýndur á Sýn en ekki Stöð 2. Aðeins hluti landsmanna nær útsendingum Sýnar en dreifi- kerfi Stöðvar 2 nær yfir allt landið og því telja margir eðli- legra þegar uin úrslitakeppni í íslandsmótinu í körfubolta sé að ræða, að sem stærstur hluti landsmanna eigi þess kost að sjá úrslitaviðureignirnar. All- margir aðilar höfðu samband við Dag-Tímann í gær og lýstu yfir óánægju sinni hvað þetta varðaði. Valtýr Björn Valtýsson, íþróttafréttamaður hjá Bylgj- unni/Stöð 2, segir að þetta sé gert í fullu samráði við Körfu- knattleikssambandið og sé samningsbundið. „Það má alltaf deila um fyrirkomulagið, en þess má geta að í fyrra og hitt- eðfyrra voru leikir númer 2 ekki sýndir í úrslitunun. Þetta er því hrein viðbót. Einnig má benda á að dreifikerfi Sýnar verður æ stærra.“ Valtýr Björn kannaðist við að óánægðir áhorfendur hefðu haft samband við sjónvarps- stöðina, en sömu sögu væri líka að segja um handboltamenn sem hefðu viljað auka við sinn hlut. „Það verða aldrei allir ánægðir." BÞ

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.