Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.05.1997, Síða 10
10 - Fimmtudagur 15. maí 1997
4Dagm-(Eímmn
HANDBOLTI
Reynir Þór skoraði sigur-
markið gegn Portúgai
Reynir Reynisson tryggði
íslenska landsliðinu sigur
gegn Portúgal í vináttu-
leik liðanna í Japan í gærmorg-
un. íslendingar höfðu þriggja
marka forskot í leikhléi, 11:8 en
staðan var jöfn 20:20 á loka-
mínútunni, þegar Reynir Þór
skoraði sigurmarkið með því að
fleygja knettinum yfir endilang-
an völlinn og í markið.
Allir leikmenn íslenska hóps-
ins spreyttu sig í leiknum og
léku að minnsta kosti í tuttugu
mínútur hver. Mörkin skiptust
nokkuð bróðurlega á milli
leikmanna, en Valdimar
Grímsson var markahæstur
með fjögur mörk.
Fyrirhugað var að liðið
mundi leika við Ungverjaland í
dag, en ekki var ljóst í gær
hvort af þeim leik yrði.
íslenska liðið leikur sem
kunnugt er opnunarleikinn á
HM á laugardaginn, þegar liðið
mætir gestgjöfunum, Japan.
Japönum gekk misjafnlega að
eiga við
spænska
landslið-
ið í æf-
inga-
leikjum,
fyrr í
vikunni.
Fyrri
leiknum
lyktaði með tveggja marka sigri
Spánar, en þann síðari unnu
Spánverjar með fimmtán
marka mun.
Vaidimar Grímsson -
markahæstur gegn
Portúgal.
KNATTSPYRNA
Leiftursmenn /
vandræðum
Llmsóknir Judith Estergal, Petr Baumruk og Alexei
Trufan um íslenskan ríkisborgararétt voru
samþykktar, en synjun á beiðni Harjurdin Cardaklija,
kann að reynast Leiftursliðinu dýrkeypt.
KARFA • NBA
Umsóknir um íslenskan
ríkisborgararétt voru
afgreiddar frá Allsherjar-
nefnd Alþingis í gær. Nokkrir
Chicago og
Utaháfram
Urslitakeppni NBA deildar-
innar er nú vel á veg
komin. Chicago hefur
þegar tryggt sér sæti í úrslita-
leikjum Austurdeildarinnar og
það sama hefur Utah Jazz gert í
Vesturdeildinni. Það þarf ekki
að koma á óvart meistararnir
frá Chicago séu enn í toppbar-
áttunni. Þrátt fyrir að liðið hafi
ekki verið að leika eins vel í vet-
ur og á síðasta ári var Atlanta
engin hindrun fyrir Jordan og
félaga. Chicago vann einvígið 4-
1, rak síðasta naglann í kistu
Atlanta á þriðjudagskvöldið með
107-92 sigri sínum. Það er at-
hyglisvert hve liðið leikur ævin-
lega mun betur með Dennis
Rodman en án hans. Annars
fóru viðureignir liðanna sem
hér segir:
Chicago-Atlanta
Atlanta-Chicago
Chicago-Atlanta
Chicago-Atianta
Chicago-Atlanta
Bestu menn:
Chicago:
Stig: Jordan,
Fráköst: Jordan,
Stoðs.: Pippen,
Atlanta:
Stig: Blaylock,
Fráköst: Mutombo,
Stoðs.: Blaylock,
100-97
103-95
100-80
89-80
107-92
26.6
10.2
5.6
20.6
11.8
6.4
unnið 3 leiki af 4 og þurfa því
aðeins einn sigur í viðbót til að
tryggja sér réttinn til að leika
við Chicago í úrslitunum um
hvorir fái tækifærið til að berj-
ast um meistaratignina við sig-
urvegara Vesturdeildarinnar. Sú
rimma getur farið á hvorn veg-
inn sem er því Patrick Ewing
hefur sjaldan eða aldrei leikið
betur en hann gerir nú og þá er
fátt sem stöðvar N.Y. Knicks
Utah hefur heldur betur látið
andstæðinga sína finna til te-
vatnsins í úrslitakeppninni. Lið-
ið hefur leikið feikna vel upp á
síðkastið og fátt virðist geta
stöðvað Póstinn og hans menn.
Lakers áttu aldrei möguleika
gegn firnasterku Jazz liðinu og
urðu að sætta sig við 4-1 tap.
Það verður að virða hinu unga
liðið Lakers það til vorkunnar
að það er enn ungt, efnilegt og
ómótað. Annars urðu úrslit lið-
anna þessi:
í viðureign New York Knicks og
Miami Heat stendur Knicks með
pálmann í höndunum og hefur
Utah-Lakers
Utah-Lakers
Lakers-Utah
Utah-Lakers
Utah-Lakers
Bestu menn:
Utah:
Stig: Malone,
Fráköst: Malone,
Stoðs. Stockton,
Lakers:
Stig: O’Neal,
Fráköst: O’Neal,
Stoðs.: Van Exel,
93- 77
103- 101
104- 84
110- 95
98- 93
28.6
12.6
8.4
22.0
11.6
6.4
Aðalfundur
íþróttafélagsins Þórs
verður haldinn í Ham'ri,
laugardaginn 17. maí kl. 17.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Von Seattle Super Sonics
glæddist lítillega í fyrrinótt þeg-
ar liðið vann Houston á útivelli,
100-94. Hersey Hawkins fór á
kostum í liði Sonics og skoraði
21 stig. Annars er það Gary
Payton sem hefur verið að skora
mest fyrir Sonics það sem af er,
22.4 stig í leik. Shawn Kemp er
allur að braggast eftir að launa-
deila hans við forráðamenn fé-
lagsins hefur verið leyst í bili.
Það er því enn spenna í undan-
úrslitunum og ekkert öruggt
enn sem komið er.
Dagur-Tíminn spjallaði við
Einar Bollason, körfugúrú
Stöðvar 2, og spurði hann fyrst
hvort eitthvað hefði komið hon-
um á óvart til þessa.
Utah Jazz þykir ekki leika áferðarfallegan körfuknattleik en hann er
árangursríkur. Karl Malone sem hér sést hefur leikið mjög vel með liðinu
að undanförnu.
„Já. Það sem kom mér mest
á óvart var góð frammistaða
Phoenix Suns sem náði að
velgja Seattle verulega undir
uggum. Þá kom mér líka á óvart
óstöðugleiki Chicago Bulls sem
hafa alls ekki náð að sýna sama
styrk og í fyrra. Annað hefur
ekki komið mér á óvart. Ég
reiknaði alltaf með öruggum
sigri Utah á hinu efnilega La-
kersliði. Aðdáendur þeirra
verða að gera sér grein fyrir því
að þeir eru ennþá bara efnileg-
ir. Þeir eru ekki orðnir góðir.
Shaquille 0’Neal er sér kafli.
Það er ekki nóg að hann skori
40 stig í einhverjum 30 stiga
sigri Lakers gegn lélegra liði.
O’Neal er ekki enn búinn að
sýna að hann standist þá pressu
sem úrslitakeppninni er sam-
fara. Menn hafa ekki gleymt út-
reiðinni sem hann fékk fyrir 2
árum á móti Houston. Þá pakk-
aði Draumurinn honum ger-
samlega saman.“
Um möguleika Seattle sagði
Einar: „Ég var búinn að spá
Utah sigri í Vesturdeildinni og
það hefur ekkert komið fram
sem breytir því. Að mínum dómi
er aðeins eitt lið sem getur ógn-
að þeim í Vesturdeildinni og það
er Houston. Ég hef alltaf sett
spurningarmerki við lappirnar á
gömlu mönnunum í Houston,
hvort þær héldu þetta út. Nú
held ég að langvarandi meiðsli
þeirra Barkley og Drexlers séu
að bjarga þeim núna. Þeir hafa
fengið langar hvíldir í vetur og
eru því óþreyttir. Ef þeir ná að
sigra Seattle getur orðið veru-
lega heitt í kolunum þegar þeir
leika við Utah.“
Telur Einar þá að Utah og
Houston séu bestu liðin í Vestur-
deildinni?
„Að mínum dómi eru þau
það. Ég tel að Seattle eigi ekki
möguleika í Utah. Það er alveg
greinilegt að þar eru þessar
innbyrðis deilur í vetur að taka
sinn toll. Shawn Kemp liefur
verið svo lágt launaður að hann
hefur illa getað sætt sig við þau
laun sem honum hafa verið
boðin í samanburði við hvítan
staurakall, sem kom til þeirra
og ekkert getur. Það er svívirða
að borga honum miklu hærri
laun en Shawn Kemp.
En svo er það náttúrlega það
sem maður saknar úr úrslita-
keppninni. Það er náttúrlega
Boston, með stóru Béi,“ voru
lokaorð Einars Bollasonar. gþö
þekktir íþróttamenn eins og
Judith Estergal, handknattleiks-
kona úr Haukum, og handbolta-
mennirnir Petr Baumruk úr
Haukum og Alexei Trufan úr
Víkingi fengu vilyrði fyrir ríkis-
borgararétti þegar þau hafa náð
sjö ára búsetu hér á landi, sem
er á næstu vikum og mánuðum.
Umsókn Júgóslavans Harj-
urdin Cardaklija, markvarðar
Leifturs, sem áður lék með
Breiðablik, var hins vegar hafn-
að og heyra mátti að sú ákvörð-
un allsherjarnefndarinnar kom
á óvart og olli mönnum von-
brigðum í Ólafsíirði í gær.
Ástæðan fyrir því er sú að Leift-
ursliðið hefur innan sinna her-
búða þrjá erlenda leikmenn,
auk Cardaklija, þá Rastoslav
Lazorik frá Slóvakíu og Slobod-
an Milosevic frá Júgóslavíu og
ljóst er að samkvæmt reglum
KSÍ mega aðeins tveir þeirra
leika hverju sinni, með liðinu í
sumar.
„Þetta er mikið reiðarslag.
Við vorum búnir að leita álits
lögfræðinga og þeir töldu flest
benda til þess að umsóknin yrði
samþykkt, þar sem Cardaklija
uppfyllti þau skilyrði sem sett
voru. Hann kemur frá stríðs-
hrjáðu landi og hefur búið hér á
landi með Ijölskyldu sinni í
fimm ár,“ sagði Ægir Ólafsson,
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar Leifturs, í gærdag. „Svo
virðist sem mikill fjöldi um-
sókna hafi orðið til þess að
ákveðið var að taka mjög
strangt á öllum umsóknum,”
sagði Ægir.
Umdeildar reglur
Reglur KSÍ kveða á um að lið
geti aðeins teflt fram tveimur
erlendum leikmönnum í einu,
en undantekningar eru þó til frá
þeirri reglu. Þeir leikmenn sem
tilheyra löndum sem eru með
aðild að Evrópusambandinu
teljast ekki með, vegna reglna
sambandsins um frjálsa atvinnu
á milli landanna. Til að mynda
tefla íslandsmeistarar Akraness
fram þremur leikmönnum sem
eru af júgóslavnesku bergi
brotnir í sumar. Einn þeirra er
hins vegar með ítalskt vegabréf
og þess vegna verða þeir allir
löglegir með ÍA í sumar. Reynd-
ar gætu íslensk lið teflt fram ell-
efu manna liði ítala og Englend-
inga, það væri löglegt sam-
kvæmt núverandi reglum. Það
er hins vegar ekki leyfilegt fyrir
þá að tefla fram þremur erlend-
um leikmönnum eins og staðan
er hjá þeim í dag, þar sem fyrr-
um heimalönd þeirra eiga ekki
aðild að ESB og þar við situr.
Mörgum kann að þykja sem
þessar reglur séu ekki
sanngjarnar, en reglur Evr-
ópusambandsins um atvinnu-
frelsi, eru æðri þeim reglum
sem einstök sérsambönd setja,
eins og körfuknattleiksáhuga-
menn þekkja frá sl. vetri.