Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.05.1997, Blaðsíða 10
10- Föstudagur 16. maí 1997
.lOagur-Címmn
íþrótta-
POTTURINN
• Margir Akureyringar hafa
verið áhyggjufullir yfir „mann-
falli“ lslandsmeistaranna í
handbolta, en nærri lætur að
um helmings afföll hafi orðið á
leikmannahópnum frá því að
íslandsmótinu lauk, fyrir rúm-
um mánuði. Varla hefur Uðið sú
vika öðru vísi en að tala fall-
inna KA-manna hækkaði. Það
væri hins vegar verðugt verk-
efni fyrir veðurfræðinga að
kanna áhrif þessara frétta á
veðurfar í norðlenska höfuð-
staðnum. Veðurguðirnir brostu
blítt vikurnar eftir að titill KA-
manna var í höfn, en í takt við
neikvæðu fréttirnar sem bárust
úr herbúðum meistaranna
lækkað hitastigið mjög ört í
stórum radíus í kringum KA-
heimilið.
• Það er hins vegar aftur farið
að hlýna norðanlands og hjá-
trúarfullir pottormar tengja það
að sjálfsögðu því sem nú er í
deiglunni í kringum KA-liðið.
Björgvin Rúnarsson, örvhenti
leikmaðurinn hjá Selfossi, sem
barði fast að landsliðsdyrunum
hjá Þorbirni Jenssyni í vetur,
gengur væntanlega til liðs við
KA, þó enn sé það ekki öruggt.
Það mun ráðast af því hvort
leikmaðurinn geti sett upp
Hróa-Hattar pizzustað á Akur-
eyri, en hann er nýlega búinn
að selja einn slíkan á Selfossi.
KA-menn sitja hins vegar ekki
einir að Björgvini, því hann hef-
ur einnig rætt við sitt gamla lið,
ÍBV. Fleiri leikmenn hafa verið
orðaðir við KA, þar á meðal
Júrí Sadovski, rússneska stór-
skyttan sem lék með Gróttu í
fyrra. Nýlega slitnaði upp úr
samningaviðæðum hans við
austurrískt lið og heyrst hefur
að hann sé sterklega inni í
myndinni hjá KA.
• Körfuboltamenn í sportpott-
inum velta nú mjög fyrir sér
mannaþreifingum Njarðvíkinga.
Félagið, sem haft hefur erfiðan
íjárhag eins og mörg önnur fé-
lög undanfarin ár og afar fáa
áhorfendur að leikjum sínum,
virðist nú vera að rétta úr kútn-
um. Það hefur ráðið til sín dýr-
asta þjálfara landsins, einnig
dýrasta leikmanninn, Teit Ör-
lygsson. Eftir því sem pottorm-
ar segja fær hann a.m.k. 200
þúsund krónur á mánuði fyrir
að leika með liðinu. Þar með er
ekki látið staðar numið. Nú eru
þeir á eftir Hermanni Hauks-
syni úr KR og hafa boðið hon-
um sex stafa tölu gerist hann
leikmaður þessa forna stórveld-
is. Spekingar pottanna telja víst
að gullæð hafi fundist í Njarð-
víkinni. Öðruvísi geti þeir ekki
ljármagnað ævitýrið.
Aðalfundur
íþróttafélagsins Þórs
verður haldinn í Hamri,
laugardaginn 17. maí kl. 17.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
HANDBOLTI • Félagaskipti
Þrír íslenskir
leikmenn
með Álaborg
Þrír íslenskir handknattleiks-
menn munu leika með
danska 2. deildarliðinu Álaborg
á næsta vetri. Gunnar Erlings-
son, fyrrum markvörður úr
Stjörnunni, lék með hðinu í
fyrra og í júlí bætast tveir ís-
lenskir leikmenn í hópinn. Það
eru bræðurnir Jóhann og Atli
Þór Samúelssynir. Jóhann lék
með Bjerringbro í fyrra, en var
liðsmaður með Aftureldingu áð-
ur en hann hélt út, Atli Þór lék
með Þórsliðinu síðasta vetur.
Bræðurnir Atli Þór og Jóhann munu leika með liði Álaborgar
en félagið stefnir að sæti í 1. deildinni.
næsta vetur,
Mynd: fe
HANDBOLTI • Rikisborgararéttur
„Ég vonaðiþað besta
enbjómigund-
irþað versta"
Eg fékk fréttirnar í gær-
kvöld þegar mamma vin-
konu minnar í Vestmann-
eyjum hringdi í mig og ég er
ánægð með að þetta mál skuli
loksins vera komið í gegn. Ég
var ekki viss um hvemig tekið
yrði á umsókninni, en ég vonaði
það besta, en bjó mig undir það
versta. Ég hef hins vegar fengið
mikil viðbrögð og það eru allir
að bjóða mig velkomna í hóp-
inn,“ segir Judith Esztergal,
leikmaður Hauka, en í fyrradag
var umsókn hennar um íslensk-
an ríkisborgararétt, samþykkt
af allsherjarnefnd Alþingis.
Judith kom hingað til lands
haustið 1990, þá 23 ára til að
leika með ÍBV. „Eyjaliðið var að
leita að spilara, sem gæti þjálf-
að, talaði ensku og gæti komið
einsömul hingað til lands og
þessi lýsing átti við mig,“ segir
Judith, sem fyrir ijórum árum
byrjaði að sækja um íslenskan
ríkisborgararétt. „Erla Rafns-
dóttir, sem var landsliðsþjálfari,
hjálpaði mér mikið á sínum
tíma, þó að sú hjálp hafi ekki
borið árangur og það hafa fleiri
komið mér til hjálpar og vil ég
koma þakklæti mínu til þeirra,“
segir Judith, sem segist í vafa
um möguleika sína að leika með
HANDÐOLTI
Nýtt nmarit
Nýtt tímarit er komið á
maricaðinn, HSÍ-blaðið. Það
fjallar um handbolta eins og
nafnið bendir til og er gefið út
af Útgáfuþjónustu MM ehf. í
samvinnu við Handknattleiks-
samband íslands.
Fyrsta tölublaðið er allt helg-
að þátttöku íslenska landsliðs-
ins í heimsmeistaramótinu í
Kumamoto. Þar er meðal ann-
ars að finna viðtöl við Þorbjörn
Jensson, landsliðsþjálfara, fyr-
irliðann Geir Sveinsson, Viggó
Sigurðsson og marga fleiri.
HSÍ-blaðið kemur út þrisvar
til Qórum sinnum á ári. Það er
ríkulega myndskreytt, 60 blað-
síður, kostar kr. 200. gþö
íslenska landsliðinu. „Núna er
ég orðin þrítug og ég veit ekki
nema ég sé orðinn fullgömul til
að verða nýliði í landsliðinu.
Málið hefði horft öðru vísi við
fyrir nokkrum árum. Ég er samt
ekki bitur út í kerfið og að sumu
leyti get ég verið samþykk því.
Það þarf að gæta öryggis í þess-
um málum og landið þarf að
halda sérstöðu. Þetta er kannski
spurning um að ávinna sér
traust og ég er ánægð yfir því
að vera talin traustsins verð,“
sagði Judith.
Judith Esztergal fékk umsókn sína
um íslenskan ríkisborgararétt
samþykkta í fyrradag.
KARFA • NBA
Hettt i kolunum
í sigri Miami
Miami Heat og N.Y.
Knicks léku 5. leik sinn
í undanúrslitum Aust-
urdeildarinnar f fyrrakvöld. Mi-
ami glæddi vonir sínar verulega
um að komast áfram með því
að sigra sterkt lið Knicks, 96-
81. Knicks leiddi lengst af fyrri
hálfleiks en Miami komst yfir á
seinustu sekúndum hálfleiksins
og leiddi að mestu eftir það.
Sigur Miami er merkilegur fyrir
það að aðalmenn liðsins, Tim
Hardaway og Alonzo Mourning,
náðu sér aldrei á strik í leikn-
um. Staða liðanna er nú 3-2
N.Y. Knicks í hag og þeir þurfa
því aðeins að vinna einn leik til
viðbótar, sem þeir ættu að geta
gert á laugardaginn kemur á
heimavelli sínum, Madison Squ-
are Garden.
Þessi leikur verður lengi í
minnum hafður og þá ekki fyrir
góðan körfuknattleik heldur
fyrir áflog leikmanna sem brut-
ust út. Atið hófst í stöðunni 88-
74 fyrir Miami og tæpar tvær
mínútur til leiksloka. Charles
Oakley, leikmaður Knicks, var
þá rekinn af leikvelli fyrir kjaft-
brúk. Tveim sekúndum síðar
lenti P.J. Brown og Charlie
Ward saman. Ward, sem var
þekkt ruðningshetja með Flor-
ida State háskólanum, beitti
ruðningskunnáttu sinni með því
að stökkva á lappir P.J. Brown
þegar sá síðarnefndi hugðist
rífa niður frákast. Skipti þá
engum togum að Brown hætti
við að taka frákastið og reif
þess í stað Ward, sem er 20 sm
lægri en Brown, upp úr gólfinu
og henti honum út af velhnum.
Eftir þetta atvik heilsuðust
menn að sjómanna sið, með
hnefum og hnúum, sem endaði
með því að þeir voru báðir
reknir út af og Jóhn Starks
fylgdi á eftir. Þar með hafði
Knicks misst 3 leikmenn útaf og
Miami 1 leikmann. Það er þó
fleira sem hrjáir N.Y. Knicks en
brottrekstur þessara þriggja
leikmanna þeirra því 5 af 7
varamönnum liðsins ruddust
inn á völlinn og tóku þátt óeirð-
unum. Þeir geta allir átt yfir sér
leikbann svo hætt er við að N.Y.
Knicks verði þunnskipað á
laugardaginn en NBA dæmir í
málinu á föstudaginn.
gþö
Golf
Fyrsta konan með
tandsdómarapróf
Anne-Mette Kokholm, kylfmgur úr
Golfklúbbi Bakkakots, braut blað í
sögu golfíþróttarinnar hér á landi
um síðustu helgi. Anne-Metta er
fyrsta konan til að hljóta lands-
dómararéttindi, en landsdómarar
eru aðeins á annan tug hér á landi.
Nokkrar konur hafa hins vegar
hlotið héraðsdómararéttindi.
Keilismenn á sögu-
slóðum í Skotiandi
Gamli völlurinn St. Andrews er
talinn elsti golfvöllur heims,
samkvæmt heimildum, en það
eru vellir sem eru litlu yngri,
eins og Sigurjón Gíslason og Sig-
urjón Sverrisson úr Keili komust
að, þegar þeir fóru fyrir tilviljun
inn á m'u holna völl í nágrenni
Edinborgar í Skotlandi. Völlur-
inn heitir Musselburgh Links og
ýmsir þekktir einstaklingar, bæði
í veraldarsögunni og í golfsög-
unni, hafa leikið golf á þessum
velli. María Skotadrottning, sem
illa var þjáð af golfbakteríunni
fyrir rúmum íjórum öldum lék á
vellinum og fyrsta Opna breska
meistararamótið var haldið á
þessum velli árið 1874. Keilis-
mennirnir létu vel af vellinum og
rétt er að benda golfþyrstum
ferðalöngum á að hafa augun
opin, næst þegar haldið er í píla-
grímsferð til Skotlands. Ekki
spillir fyrir að vallargjaldinu er
stillt í hóf, en það er sex sterl-
ingspund.
„Shoot-out“-mót
á Nesvellinum
Framkvæmdamenn í Nesklúbbn-
um munu í samvinnu við fleiri
aðila gangast fyrir góðgerðar-
móti, sem iíklega verður haldið á
Nesvellinum mánudaginn 21. júlí
og mun verða sjónvarpað. Tíu
keppendur verða á mótinu og
vonast aðstandendur mótsins til
að allir bestu kylfingar landsins,
að þeim Birgi Leif Haíþórssyni
og Sigurjóni Arnarssyni meðtöld-
um, muni mæta til leiks. Leiknar
verða níu holur með útsláttarfyr-
irkomulagi, sem kallað er „sho-
ot-out“ og margir íslendingar
þekkja erlendis frá. Einn kylfing-
ur mun heltast úr lestinni á
hverri holu, þar til aðeins einn
stendur uppi sem sigurvegari.
Vikulegur golf-
þáttur á FM 95,7
Eyjamaðurinn Þorsteinn Hall-
grímsson er með þátt á Útvarps-
stöðinni FM 95,7 í samvinnu við
Einar Lyng, sem sendur er út
klukkan 19 á sunnudagskvöld-
um. í þættinum er meðal annars
fjallað um helstu mót helgarinn-
ar og úrslit þeirra tíunduð. Út-
sendingarsvæði útvarpsstöðvar-
innar er á suð-vesturhorninu, en
hægt er að ná útsendingunum í
öðrum landshlutum með loftneti.
Þátturinn næsta sunnudags-
kvöld gæti orðið hinn athyglis-
verðasti, sérstaklega ef Þor-
steinn lendir í þeirri stöðu að
þurfa að fjölyrða um eigin afrek.
llann er með forystu á íslensku
mótaröðinni, því kylfingar tóku
með sér stig frá Stigamótunum í
fyrra og þykir alltaf líklegur til
sigurs, þegar leikið er í Eyjum.