Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.05.1997, Qupperneq 9
|Ðágur-‘ðlfeiÁm
LaugardagúrÉ^^áiát 'f$97 K-'É1
LIFIÐ I LANDINU
Gísli G. Jónsson er á kafi við að gera bílinn kláran í keppni. Hann hefur nóg af lausu auglýsingaplássi hafi einhver
áhuga. Mynd:HÞ
Stóð til að endurheimta titilinn
Toifœrukeppnir summim
24. maí Akureyri íslandsmeistari
14. júní Reykjavík íslandsmeistari
5. júlí Egilsstaðir ísiandsmeistari
19. júlí Akranes íslandsmeistari
16. ágúst Reykjavík Heimsbikarmeistari
30. ágúst Reykjavík Heimsbikarmeistari
13. september Hella ísiandsmeistari
—
—
AKUREYRARBÆR
Skólagarðar!
Skráning í skóiagarða og starfsvelli Akureyrar-
bæjar fer fram dagana 21. maí-30. maí, á skrif-
stofu Umhverfisldeildar í síma: 462 5600.
Gísla G. vantar
styrktaraðila.
Ef ekkert kemur
þá rœður hann
ekki við þetta
segir hann.
Gísli G. Jónsson hampaði
bæði íslands- og bikar-
meistaratitli fyrir tveimur
árum en það gekk ekki eins vel
í fyrra, varð hann í öðru sæti í
íslandsmeistarakeppninni,
næstur á eftir Haraldi Péturs-
syni. „Það stóð nú til, já,“ svar-
ar Gísli með hægð þegar spurt
er hvort eigi að endurheimta
titilinn í sumar. „Það hefur að
vísu gengið svolítið illa að selja
auglýsingar á bílinn þannig að
það er allt óljóst ennþá með
það að gera. Ef maður fær ekk-
ert á bílinn þá þarf maður eitt-
hvað að endurskoða þetta,“
segir hann.
Það væri sannarlega sorglegt
ef Gísli G. Jónsson yrði að hætta
keppni vegna þessa. Hann hef-
ur sett mikinn svip á torfæruna
undanfarin ár og er einn af
okkar bestu torfæruökumönn-
um.
Gísli G. ók um á Makkanum í
fyrra. „Það gerðist eitthvað inn-
an dyra hjá þeim. Ég var búinn
að fá loforð fyrir öllu því sama
og var í fyrra svo var það bara
einhvern tíma í febrúar, þá var
allt í einu sagt nei. Það kom
svolítið flatt upp á mann, mað-
ur var ekkert búinn að undir-
búa sig undir það.“
Úthaldið kostar sitt, hann
segir það reyndar fara alveg
eftir því hvernig menn reikni
það. „Ef menn reikna ekki vinn-
una sína þá er þetta kannski
einhver milljón kall, svona fljótt
á litið,“ og Gísli segist halda að
það sé svipað yfir línuna hjá
þessum strákum sem eru í
toppbaráttunni á annað borð.
„En í rauninni kostar þetta
mikið meira.“
Hann segist eiginlega ekkert
hafa breytt bílnum í vetur. „Ég
var að prufa loftpúðafjöðrun að
framan, ég veit ekkert hvernig
það kemur út.“ Nei. nei, hann
er ekkert búinn að æfa sig í vor.
Þarf þess ekki. „Ég tók smá
rúnt á honum hérna í vetur,
bara í snjónum hérna fyrir
framan. Keyrði ofan í eina holu,
skemmdi dekk og beygði stýris-
tjakkinn. Þar með keyrði ég
hann bara inn aftur og lagði
honum.“
Gísli er ekki stressaður fyrir
keppni: „Ég er alltaf rólegur yf-
ir þessu þannig, það þýðir ekk-
ert annað.“ -ohr
Upphafsmaðurinn að
grindarbílunum
stefnir í slaginn
aftur.
Arni Kópsson er óumdeild-
ur upphafsmaður að
grindarbílunum sem nú
eru orðnir allsráðandi í sérút-
búna flokknum í íslensku tor-
færunni, en nú eru komin fimm
ár síðan hann hætti keppni og
það var sannarlega mikill sjón-
arsviptir að honum á sínum
tíma. Hann var þekktur fyrir
mikil tilþrif og það kom ósjald-
an fyrir að hann færi þrautir
sem enginn annar réði við.
„Jú, slæmur," svarar hann
aðspurður hvort ekki sé kominn
fiðringur í hann nú þegar tor-
færan er að byrja. Árni smíðaði
tvo grindarbfla á keppnisferlin-
um, Heimasæturnar, sem báðar
eru ennþá í keppni. Þeim yngri
ekur Gunnar Egilsson (Cool)
sem lenti í 5. sæti í ísiands-
Árni Kópsson stundar köfunar-
vinnuna í dag en veit fyrir víst að
hann á eftir að mæta aftur í slaginn
í torfærunni.
meistarakeppninni í fyrra og
þeim eidri ekur Ásgeir Jamil
Allansson (Skutlan) sem lenti í
6. sæti í fyrra. Áður hafði Árni
smíðað keppnisbfl í flokki götu-
bfla.
Árni segir fiðringinn kannski
ekkert sérstaklega vera út af
því að torfæran sé að byrja,
„þetta er bara búið að vera að
ágerast," segir hann. „Ég held
það ekki, ég veit það!“ svarar
hann ákveðið þegar spurt er
hvort hann haldi að hann eigi
eftir að koma í slaginn aftur.
Hann er ekki byrjaður að smíða
bfl en byrjaður að skoða málið.
- En hvemig finnst
Árna torfæran hafa þróast síð-
an hann hætti í slagnum?
„Aðalvandamálið sem ég sé
er að keppnishaldið mætti þró-
ast meira. Það þarf að fara að
vinna eitthvað meira í því, gera
það meira fagmannlegra." Árni
segir skipulagið oft hafa verið í
lagi en það þurfi að gera meira
fyrir innanlandsmarkað. „Það
hefur ekkert verið unnið í því,“
segir hann og á þar við bæði
auglýsinga- og
áhorfenda-
markað.
-ohr
Starfsemin hefst 9. júní og lýkur 28. ágúst og er ætl-
uð börnum, fædd árin 1985, 86 og 87.
Þátttökugjald er kr. 2.000.-
Umhverfisstjóri.
J
HÁSKÓLINN
A AKUREYRI
Háskólinn
á Akureyri
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar
stöður við Háskólann á Akureyri:
Staða dósents í markaðsfræði
Kennslu- og rannsóknasvið er markaðsfræði, æski-
Iegt sérsvið markaðsrannsóknir, sölustarf og útflutn-
ingsverslun. Til greina kemur að ráða í stöðu lekt-
ors. Starfsvettvangur er aðallega við rekstrardeild.
Staða lektors í rekstrarfræði -
gæðastjórnun
Kennslu- og rannsóknasvið er rekstrarfræði, æski-
legt sérsvið hagnýt notkun gæðastjórnunar í ís-
Ienskum iðnaði og þjónustu.
Starfsvettvangur er aðallega við rekstrardeild.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ræki-
lega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið,
ritsmíðar, rannsóknir, kennslustörf, stjórnunarstörf
svo og námsferil sinn og önnur störf. Með umsókn-
um skulu send eintök af þeim vísindalegu ritum
sem umsækjendur vilja láta taka tillit til.
Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram
hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að,
hverju þeir eru að sinna og hver eru áform þeirra ef
til ráðningar kemur. Ennfremur er ætlast til þess að
umsækjendur láti fylgja nöfn og heimilisföng minnst
tveggja aðila sem leita má til um meðmæli. Sæki
umsækjandi um tvær eða fleiri stöður við Háskól-
ann á Akureyri á sama tíma skal hann láta fullnægj-
andi gögn fylgja báðum/öllum umsóknum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskóla-
kennara á Akureyri. Upplýsingar um starfið gefur
forstöðumaður rekstrardeildar eða rektor háskólans
í síma 463 0900.
Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri
fyrir 10. júní 1997.