Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.05.1997, Page 14

Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.05.1997, Page 14
„Lítil fimm ára vin- kona mín sagði einu sinni við mig að hún vœri sko engin buxnakona heldur kjólakona. Ætli ég sé ekki svo- lítið þannig líka: kjólakona. “ Alma J. Árnadóttir er gest- ur okkar á Líf og stíl síðu í dag. Reyndar er hún ekki eini gesturinn því eins og sjá má á myndunum er hún kona eigi einsömul. Hún og eig- inmaður hennar, Eiríkur Björg- vinsson, bíða eftir frumburðin- um og er von á barninu um miðjan júní. Alma er Húsvíkingur en búsett á Ak ureyri og eng- inn ný- græðingur í tískumál- um. Hún bjó í Þýskalandi í nokkur ár þar sem hún fór í módel- skóla og lærði ýmislegt hvað varðar sviðsfram- komu og tísku. Þá þekkingu notfærði hiin sér þegar hún sá um þjálfun þátt- takenda í Fegurðar- samkeppni Austur- lands, Fegurðarsam- keppni íslands og , keppninni Herra Island. Á Akureyri hefur hún einnig verið með námskeið í tísku og förðun í félagsmið- stöðvunum. „Ég tók mér frí frá öllu þesshátt- ar í ár þar sem mig langaði að njóta þess að vera ófrísk," segir hún. Sérlunduð í fatavali Alma hefur gaman af fötum og segist vera þekkt fyrir að klæða sig í hvað utan yfir annað. „Ég er ekki merkjafrík þegar kemur að því að velja föt en er engu að síður mjög sérlunduð í fatavali. Samt er enginn einn stíll ráð- andi. Ég á það til að klæðast þröngum leðurbuxum eða blómakjól og sandölum, allt eft- ur því hvað ég er að gera,“ seg- ir hún. Oft er Alma með kollinn full- an af hugmyndum og veit ná- kvæmlega hvað hún vill en fínn- ur hvergi það sem hún leitar að. „Mér finnst mestu skipta að svolítið af sjálfri mér sé í því sem ég klæðist. Skemmtilegustu flíkurnar sem ég hef átt eru því þær sem hafa verið sér- saumaðar á mig eftir mínu V-3" V.o'í'® höfði. Ég á " góða vinkonu sem er fatahönnuður og alger snillingur í að gera mér til hæf- is.“ Fatastíll Ölmu hefur lítið breyst við þungunina en þó segist hún meira klæðast kjólum en áður. „Annars kom mér á óvart hve erfitt er að finna falleg óléttuföt," segir hún og tekur fram að það sé miður þar sem henni þyki fátt fallegra en ófrísk kona sem kunni að njóta vaxtarlags síns á meðgöngunni. „Ég er allt of montin af kúlunni til að fela hana.“ Náttúrleg förðun fallegust Á meðgöngunni hefur komið frarn roði á húð sem Alma hef- ur ekki fundið fyrir áður. Þetta gerir það að verkum að hún hefur ekki getað notað farða undanfarið sem henni þykir synd þar sem fallegur farði sé punkturinn yfir i-ið í góðu útliti. „Ég legg áherslu á að förðunin sé þannig úr garði gerð að hún dragi það fallegasta fram í hverri konu, sé hófleg og falli inn í andlitið, en ekki séu notaðir litir litanna vegna. Mér finnst nátt- úruleg förðun því alltaf fallegust," segir hún. Sjálf notar Alma mest snyrtivörur sem heita „Make up Forever" en af kremum hefur hún bæði notað „Clar- ins“ og einnig krem sem eru blönduð í apó- tekum. „Dýr- ustu kremin eru ekki endilega best,“ tekur hún fram. Ilmvatn notar hún helst við sérstök tækifæri. Ekkert ákveðið ilmvatn er í uppáhaldi en hinsvegar á eiginmaðurinn uppáhaldsilm- ” vatn fyrir hana Skipta að SVolítÍð af sem hann gefur x ^ sjdlfri mér sé í þvt „Þetta er uppáhaldskjólinn minn. Eg Alma J. Árnadóttir. Von er á barninu júní. Silfurkross í morgungjöf Skartgripi notar Alma fremur lítið þó hún sé reyndar hrifín af fallegum skart- ,Mér finnst mestu henni reglu- lega. „Ilmvatn- ið heitir Giorgio frá Beverly Hills. Ég var með þetta ilmvatn þegar kynntumst fyrir ellefu árum segir Alma og hlær. sem ég klœðist. gripum. „Ég hef oft keypt tískuskartgripi en þegar ég er búin að hengja þá á mig finnst mér þeir ekki passa mér. Þannig að þeir enda bara ofan í skúffu.“ Alma er þó ekki skartgripa- laus í viðtalinu. Um hálsinn ber hún fínlegan silfurkross sem hún segir vera morgungjöf frá er eiginlega alltaf í honum,“ segir sem hún ber undir belti um miðjan Myndir: GS manninum sínum. „Ég er búin að vera með hann mestalla meðgönguna og finnst eins og hann veiti vernd,“ segir hún og grípur í krossinn. „Ég held mjög mikið upp á hann.“ AI við Ég er kjólakona

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.