Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Blaðsíða 2
2 - Föstudagur 11. júlí 1997
Jkgur-mmtmn
Heiti Pottiirinn
Asunnudag er reiknað
með að kratar í Hafn-
arfirði slökkvi endanlega
Ijósin í svefnherberginu
sem þeir hafa deilt með
Jóa Begg. Fundur er boð-
aður og þykir einkar líklegt
Begg-armur Sjálfstæðis-
flokksins fái Júdasarkoss-
inn (eða aflúsunarmeð-
ferðina?) og vistarveran
dauðhreinsuð. Allaballar
komi inn í stjórn bæjarins.
Morgunsjónvarp er á
leiðinni með haust-
inu. Morgunhanar hafa
ekki verið kynntir fyrir
þjóðinni, en þetta verður
vanþakklátt starf. Nógu
erfitt er að vera vekjandi,
skemmtilegur og þó fræð-
andi í morgunútvarpi -
sem útvarpsmenn vita er
ein krítískasta staðan við
hljóðnemann. En að vakna
kiukkan 05 til að vera
hress og sæt(ur) í tvo heila
tíma milli 7-9 og mala við
landann grútfúlan gegnum
svartasta skammdegið er
ekki fyrir neina meðaljóna.
Einhver sagði að Helgi
Pé væri fulltrúi. Og þá
er ekkert eftir nema Vala.
Alltaf laus...
Kolfinna Baldvinsdóttir
er líka laus - atvinnu-
laus - að eigin sögn í
blaðaviðtali og enn ein
sjónvarpskonan er laus
síðan í fyrra. Hirst. Framan
í hvern viltu horfa þegar þú
vaknar 13. janúar?
Daivík
íbúð rústuð á meðan
íbmnn var á spítala
Ótrúleg skemmdar-
fýsn nokkurra dal-
vískra unglinga bitnar
á innbúi Sigurhönnu
Vilhjálmsdóttur.
Það var ófögur aðkoman á
heimili Sigurhönnu Vil-
hjálmsdóttur á Dalvík í
gær en einhverjir, að öllum lík-
indum unglingar, höfðu brotist
inn í íbúð hennar í svokölluðu
Tírolhúsi og eyðilegt búslóð
hennar og nánast allt annað
sem hugsanlega var hægt að
skemma. Búið var að brjóta
sjónvarp og afruglara, sprauta
íssósum upp um veggi og maka
veggi og mublur í matarlit.
Sigurhanna hefin verið í
burtu um skeið þar sem hún
hefur verið í læknismeðferð á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri þannig að íbúðin sem hún
leigði á Davík hefur staðið auð
um skeið, en í húsinu eru
eingöngu leiguíbúðir.
Sigurhanna frétti í gær af því
að brotist hafi verið inn í íbúð-
ina þar sem hún var á áfanga-
heimili við Álfabyggð á Akur-
eyri en þangað hafði hún raun-
ar afráðið að flytja og var því
fyrir nokkru búin að pakka bú-
slóð sinni í kassa sem stóðu til-
búnir í íbúðinni í Týrolhúsinu.
„Ég er enn í sjokki,“ sagði
Sigurhanna sem hefur fengið
sinn skammt af hörmungum upp
á síðkastið, en sambýlismaður
hennar Iést í hörmulegum bruna
á Árskógsströnd í fyrra og brann
þá líka allt hennar innbú og
dætra hennar tveggja. „Maður
hefur síðan verið að reyna að
koma sér upp nýrri búslóð, en
lendir svo í þessu áfalli aftur.
' ' v. 4i
Sigurhanna Vilhjálmsdóttir situr hér í stofunni í íbúðinni og heldur á brotum skálar sem móðir hennar gaf henni
og kertastjaka sem henni er sérlega kær. Þetta er annað áfallið sem dynur yfir hana á rúmu ári en í fyrra fórst
sambýlismaður hennar í eldsvoða og allt hennar hafurtask brann.
Maður er tvisvar sleginn niður
með stuttu millibili," sagði Sigur-
hanna í gær og var augljóslega í
miklu uppnámi.
Innbú Sigurhönnu var tryggt
og segir hún talsmann VÍS hafa
sagt líkur á að einhverjar bætur
kæmu þrátt fyrir að iðgjald hafi
ekki verið greitt. Fyrir liggur
hjá henni að flytja inn í áfanga-
heimilið* við Byggðaveg og vera
þar næsta árið en dætur hennar
tvær búa hjá föður sínum.
Að sögn lögreglunnar á Dal-
vík er þetta mál í frumrann-
sókn, en böndin berast að ótil-
greindum hópi unglinga. Ólík-
legt er talið að skemmdarverk-
in hafi öll verið unnin á einni
helgi.
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Náttúrulækningar eru ekki kukl
Gunnlaugur K. Jónsson
formaður Náttúrulœkningafélags íslands
Sauðárkróksbœr, í samvinnu
við Náttúrulœkningafélag ís-
lands og Heilbrigðisráðuneyt-
ið, standa fyrir ráðstefnunni
„Heilsa og heilbrigðir lífshœtt-
ir“ á Sauðárkróki um helgina.
- Um hvað verður Jjallað á ráðstefn-
unni?
„Yfirskriftin er „Heilsa og heilbrigð-
ir lífshættir“ og tilgangurinn er að fá
fólk til að íhuga alvarlega að taka
ábyrgð á eigin heilsu.“
- Telur þú að ábyrgð einstaklings-
ins á eigin heilsu sé eitthvað sem
hafi verið vanmetið í heilbrigðiskerf-
inu?
„í sjálfu sér ekki vanmetið. Hinsveg-
ar hefur ekki verið lögð nægileg
áhersla á þessa ábyrgð.“
- Heilbrigðisráðuneytið og Nátt-
úrulœkningafélagið koma bœði að
þessari ráðstefnu. Oft hefur verið
togstreita milli þeirra sem stunda
hefðbundnar lœkningar og náttúru-
lœkningar. Er sú togstreita á undan-
haldi?
„Já, á því er ekki nokkur vafi. Fkki
aðeins hér, heldur einnig erlendis, er
farið að blanda mikið saman því sem
kallað er hefðbundnar og óhefðbundn-
ar lækningar. Þá á ég eingöngu við þær
óhefðbundnu lækningar sem hafa sýnt
og sannað að hafi skilað árangri. í
sjálfu sér hefur aldrei verið sérstakur
ágreiningur milli heilbrigðisráðuneyt-
isins og Náttúrulækningafélags ís-
lands. Frekar hafa komið upp deilur
t.d. við Læknafélag íslands og hafa þær
mest snúist um áherslur við meðferð,
hvað skili árangri og hvað ekki.“
- Hvað haji þið þá helst gagnrýnt?
„Við viljum meina að ekki hafi verið
lögð næg áhersla á fræðslu og fyrir-
byggjandi aðgerðir. Eins og Jónas
Kristjánsson, stofnandi Náttúrulækn-
ingafélagsins, sagði hafa menn verið
allt of fastir í þeim farvegi að eiga við
afleiðingar í stað þess að velta fyrir sér
orsök vandamálsins."
- Er íslenskt þjóðfélag opið gagn-
vart náttúrulœkningum nú miðað við
það sem áðurvar?
„íslendingar hafa alltaf verið opnir
fyrir náttúrulækningum, alveg frá því
að kenningarnar komu fram árið
1923. Okkar vandamál í gegn um tíð-
ina hefur hinsvegar verið að almenn-
ingur hefur ekki vitað hvað náttúru-
lækningar snúast um og hefur blandað
öllu saman. Að trúa á stokka og steina,
andatrú, rafmagnslækningar og annað
í þeim dúr; allt er þetta flokkað undir
náttúrulækningar. En náttúrulækning-
ar eru allt annað. Náttúrulækningar
eru vísindi en ekki kukl.“
- Árni Gunnarsson, ráðstefnu-
stjóri, hœlir Ingibjörgu Pálmadóttur,
heilbrigðisráðherra, sérstaklega fyr-
ir að þora að taka þátt í umrœðu um
náttúrulœkningar í grein í Morgun-
blaðinu. Þarf hugrekki til að starfa
með Náttúrulœkningafélaginu?
„Nei, það þarf bara heilbrigða skyn-
semi.“
AI