Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Blaðsíða 10
10- Föstudagur 11. júlí 1997 iOagwr-altiiTOm
Peter Leaver, framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar,
segir að liðum í úrvalsdeildinni verði fækkað í framtíðinni, úr 20 í
18. Jafnframt er stefnt að fækkun þátttökuliða í ensku Coca Cola
bikarkeppninni. Þetta er gert til að minnka álagið á þeim liðum
sem ná langt í Evrópukeppnunum en þau lið þurfa oft að leika allt
upp í 3 leiki á viku undir lok keppnistímabilsins. Framkvæmda-
stjórar stórliðana, Alex Ferguson hjá Manchester United, Roy Ev-
ans hjá Liverpool og Brian Little hjá Aston Villa, hafa allir látið þá
skoðun í ljós að þessi breyting þurfi að koma til og eftir fund með
framkvæmdastjórunum þremur í fyrradag, samþykkti Leaver að
stefna að fækkun leikja hjá toppliðum deildarinnar.
Vancouver Grizzles hefur framlengt samning sinn um 6
ár við tröllið barnalega, Bryant Reeves, sem gengur undir nafninu
„Big Country". Reeves, sem er 214 cm á hæð stóð sig mjög vel í
annars arfa slöku liði Grizzles. Hann skoraði að meðalteli 16,2 stig
í þeim 75 leikjum sem hann lék og hirti 8,1 frákast. Þessi ágæta
frammistaða dugði þó liðinu skammt því það rak lestinna í gjör-
vallri NBA deildinni á síðasta tímabili, vann aðeins 14 leiki en tap-
aði 68. Þrátt fyrir slakt gengi Grizzles er Reeves ánægður hjá félag-
inu, sem er það yngsta í deildinni ásamt hinu Kanadaliðinu, Tor-
onto, og hann segir að liðið eigi bestu stuðningsmenn í deildinni.
Liverpoolmenn eru að vonum ánægðir með að hafa landað
Paul Ince á Anfield. Því er fróðlegt að sjá hvað Roy Hodgson, fyrr-
um stjóri Inter, þar sem Ince lék undir hans stjórn og núverandi
stóri Blackburn Rovers segir um miðjumanninn sterka.:
„Hann getur fært Liverpool sinn fyrsta titil í mörg ár. Hann er bæði
frábær leikmaður og ekki síður góður félagi. Paul getur tekið leik-
inn f sínar hendur ef á þarf að halda og er oft sá sem rekur smiðs-
höggið. Hann hefur verið að skerpa sóknarleik sinn verulega und-
anfarin tvö ár og hann er enn einn besti varnartengiliður í Evrópu.
Það er aðeins eitt sem ég get sagt við Liverpool nú. Til hamingju
með kaupin."
Sundmeistaramót íslands hefst # dag
Sundmeistaramót íslands hefst í dag í sund-
lauginni í Kópavogi og lýkur á sunnudag. Allt
besta sundfólk landsins mætir til leiks og að sögn
Erlu Skaptadóttur, framkvæmdastjóra Sundsam-
bands íslans, er reiknað með mörg ný met verði
sett á mótinu. „Nú sýna bestu sundgarpar íslands
sig og allir þeir sem veitt haf þeim mesta keppni
og þá er alltaf von á rneturn," sagði Erla. gþö
KNATTSPYRNA
Gullnáman ToreAndre Flo
Everton rær nú lífróður þessa dagana til að manna lið sitt. Fa-
brizio Ravanelli sem er á leið til Liverpool, að eigin sögn, freistar
þeirra nú. Middlesbrough hefur samþykkt að lækka verðið á hon-
um úr 9 milljónum í 7,2 milljónir og nú reynir Everton enn að
keppa við nágranna sína um leikmann. Gallinn er bara sá að Ra-
vanelli vill ekki fara á Goodison Park.
Everton leggur net sín víðar en á Englandi fyrir ítalska leik-
menn. Nú eru þeir einnig á höttunum eftir Roberto Baggio, sem
lýst hefur því yfir að hann vilji gjarnan leika á Englandi og þá með
Derby. ítalska liðið Parma er reyndar líka inni í myndinni hjá
Baggio sem metinn er aðeins á 1 milljón pund. Útsala þar á ferð-
inni.
Roberto Baggio er ekki eini ítalinn sem Derby sækist eftir
nú. Gamla brýnið, Toto Schillaci, sem nú leikur með japanska lið-
inu Iwata, gæti hugsanlega verið á leið til þeirra. Schillaci, sem
kemur frá Sikiley, varð frægur þegar hann varð markakóngur í
heimsmeistarakeppninni 1990. Eftir það gekk hann til liðs við Ju-
ventus þar sem frægðarsólin hneig fljótlega undir sjóndeildarhring-
inn. Því gæti farið svo að 3 ítalir klæddust Derby peysunni á kom-
andi leiktíð. gþö
Verða Baggio og 2 samlandar hans með Derby á næstu leiktíð?
Norskir knattspyrnu-
menn eru eftirsóttir á
Englandi þessi misser-
in. Manchester United
skartar tveimur og Li-
verpooi þremur leik-
mönnum frá Noregi auk
þess sem fjöldi annarra
enskra liða er með
Norsara innanborðs.
Tore Andre Flo, sem er 24
ára, er eitt Norðurljósið
sem skín á Englendinga
þessa dagana. Hann var keypt-
ur til Chelsea fyrir 35 milljónir
frá Brann, liði þeirra Birkis
Kristinssonar og Ágústs Gylfa-
sonar. Af þessum 35 milljónum
fær Tore Ándre sjálfur 3,5 millj-
ónir og gamla félagið hans
Tromsö, fær 8 milljónir.
Tore Andre Flo hefur verið
bæði sjálfum sér og liðum sín-
um ágæt fjárfesting. Hann hóf
ferilinn með smáliði frá Sogn-
dal, Stryn, sem síðan seldi hann
til Tromsö fyrir tæpar 3 milljón-
ir. Ári seinna seldi Tromsö
kappann til Brann í Bergen sem
greiddi 10 milljónir fyrir hann.
Nú hefur Brann selt Flo til
Chelsea fyrir 35 milljónir svo
segja verður að fjárfesting
Brann hafi verið góð.
Þar með hefur Tromsö grætt
tæpar 16 milljónir á Flo og
Brann 25, og velta félaganna
samanlagt í gegnum Tore
Andre er þá orðin tæpar 50
milljónir. Og nú eru laun Norð-
mannsins loks orðin mannsæm-
andi, hann hefur 130 milljónir í
laun á ári hjá Chelsea, fyrir ut-
an bónusa og auglýsingar.
Bosman-dómurinn, sem hef-
ur gjörbylt allri verðlagningu á
knattspyrnumönnum, hefur
orðið til þess að ungir og efni-
legir knattspyrnumenn gera
ekki langtímasamninga við fé-
lög sín í Noregi. Leikmenn með
útrunna samninga geta farið
hvert sem er án þess að lið
þeirra eigi rétt á greiðslu. Þeir
vilja komast til liða í Englandi
og á meginlandinu með eins
litlum fyrirvara og kostur er.
Þetta hefur orðið til þess að
norsku liðin fá ekki nema brot
af því sem þau fengju annars
fyrir leikmennina. Sumir leik-
mennirnir hafa farið til enskra
stórliða fyrir ekki neitt. Dæmi
um slíkt er Björn Tore Kvarme,
sem kom frá Rosenborg til Li-
verpool þeim að kostnaðar-
lausu. Eftir sat norska liðið með
sárt ennið og tóma buddu. gþö
KNATTSPYRNA
Breyting
eikur ÍA og ÍBV sem vera
^átti á Akranesvelli kl. 20:00
á sunnudaginn hefur verið
færður fram um 2 klukkustund-
ir og verður því kl. 18:00.
ÞORVALDSDALSSKOKKIÐ
Jón Ivar Rafnsson setti met
Fjórða Þorvaldsdalsskokkið
fór fram laugardaginn 5.
júlí sl. við ágætar aðstæð-
ur. Þátttakendur voru í færra
lagi eða rétt um 20, en það
vakti athygli að engar konur
mættu til leiks. Þorvaldsdals-
skokkið er ætlað hlaupurum,
skokkurum og göngumönnum,
og fer hver á þeim hraða sem
honum hentar best, og velur þá
leið sem honum sýnist hag-
kvæmust. Má segja að Þor-
valdsdalsskokkið sé eins konar
blanda af hlaupi, göngu og rat-
leik. Elsti þátttakandinn í ár var
67 ára.
Sífellt er verið að bæta met-
ið, og nú bætti Jón fvar Rafns-
son á Akureyri, met Finns Frið-
rikssonar um 6 mínútur og 13
sekúndur og var tími hans
2,07,37. Tími þátttakenda var
sem hér segir:
16-39 ára
1. Jón ívar Rafnsson, Akureyri 2,07,37
2. Starri Heiðmars., Lýtingsst.hr.
2,25,25
3. Brynjar Skúlason, Akureyri 2,26,42
4. Ólafur Briem, Kópavogi 2,45,50
5. Andri Sigurjónsson, Kópavogi
2.47.50
6. Erkki Peukkuri, Eyjafjarðarsveit
2,58,30
7. Helgi Pór Helgason, ðxnadal
3.14.50
8. Björgvin Jónsson, Árskógsstr.
3,56,47
9. Ólafur Elís Gunnarsson, A.ey
'4,03,30
40-49 ára
1. Ólafur H. Baldvinsson, Akureyri
2,43,20
2. Steinar Frímannsson, Reykjavík
2,50,24
3. Þorsteinn Konráðsson, Akureyri
4,24,00
4. Frosti Meldal, Akureyri 5,26,00
50-59 ára
1. Sigurður Bjarklind, Akureyri
2,09,03
2. Vöggur Magnússon, Reykjavfk
2,27,04
3. Bjarni E. Guðleifsson,
Arnarneshreppi 3,05,45
4. Þorsteinn Skaftason, Dalvrk 3,16,17
60-69 ára
í. Arnór Haraldsson, Akureyri 5,26,00
mn.í ti M' I