Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Blaðsíða 4
4 - Föstudagur 11. júlí 1997
jDítgnr-ÍEímmn
F R E T T I R
Ríkisútvarpið
Markús Öm vonar að
Illugí hafi breyst
\F
V fi
Ráðning
dregst
lllugi og Hannes
Hólmsteinn báðir
komnir aftur í pistla-
flutning á Rás 2 um
óákveðinn tíma.
Markús Örn segir
enga skoðanalöggu í
útvarpinu og að hann
hlusti ekki alltaf á
pistlana sjálfur.
Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson flutti sinn fyrsta
pistil á Rás 2 á miðviku-
daginn en honum var sagt upp
störfum í kjölfar uppsagnar 111-
uga Jökulssonar í aðdraganda
borgarstjórnarkosninga 1994.
Þótti Illugi þá gerast hlutdræg-
ur Reykjarvíkurlistanum í vii.
Illugi hefur nú um nokkurt
skeið flutt pistla sína á Rás 2 en
þeir eru birtir í Degi-Tímanum
á föstudögum við miklar vin-
sældir lesenda. Markús Örn
Antonsson, framkvæmdastjóri
ríkisútvarpsins, sagði í samtali
við Dag-Tímann að um ótíma-
bundna ráðningu væri að ræða.
En sér hann fyrir sér að þeir
verði með pistla sína fram yfír
næstu borgarstjórnarkosning-
ar? „Það veit ég ekki. Það hafa
engin tímamörk verið sett á það
og ég get ekki miðað við borg-
arstjórnarkosningar frekar en
jól eða áramót.“
Engar hlutdrægar
yfirlýsingar
En hvað hefur breyst frá því
þeir voru látnir fara síðast?
„Það var reyndar Illugi sem var
látinn fara fyrst vegna þess að
hann þótti hafa brotið af sér. Og
Hannesi var sagt upp af því að
Illuga var sagt upp. Ég held að
þetta sé spurning um hvort
menn hafi lært eitthvað af
reynslunni.“ Áttu þá við Illuga?
„Já. Mönnum er yfirhöfuð
treyst hérna til að virða reglur
sem settar eru um grundvallar-
atriði í störfum þessarar stofn-
unnar. Að vera ekki með hlut-
drægar yfirlýsingar og lýsa ekki
yfir stuðningi við einhverjar til-
teknar stjórnmálahreyfingar
eða skoðanir. Það er ekki ætlast
til þess og menn vita það þegar
þeir eru ráðnir til þess. Og það
var ástæða þess að Illugi var
látinn hætta á sínum tíma og ég
ætla bara að vona að slíkir
hlutir þurfi ekki að endurtaka
sig.“
Nú er það þeirra hlutverk að
Markús Örn Antonsson
framkvæmdastjóri „Hannesi var sagt upp af því að Illuga var sagt upp. “ iP
lllugi Jökulsson.
inu sem vera skal. Þetta eru
ákveðin forréttindi sem tilteknir
menn hafa með því að þeim er
trúað fyrir því að sjá hér um
pistla reglulega í
útvarpinu. Það eru
ekki allir sem njóta
þess.“
hafa skoðun á hlutunum, hljóta
þær ekki að verða pólitískar?
„Ég held að Illugi hafi skoðanir
á hlutum og hafi látið þær í ljós
hér en það á ekki að opna fyrir
sérstök áróðurshorn fyrir R-
lista eða hvern annan stjórn-
málaflokk eða hreyfingu í land-
Engin lögga
hér
Það verður semsé
fylgst vel með því
sem þeir eru að
segja á næstu
mánuðum?
„Ekkert sérstaklega. Ég er
ekki sérstaklega í því að fylgjast
með því hvaða skoðanir menn
hafa á einstökum málum. Þetta
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
eru þá hlutir sem koma eftir á í
umræðuna. Þannig er það í
langflestum tilfellum þegar haft
er orð á einhverju slíku atriði í
útvarpsráði. En það er engin
lögga hér ef það er eitthvað
svoleiðis sem þú ert að hugsa
um.“ En þú hlustar á pistlana?
„Ég hlusta ekki alltaf á þá. Ég
hef ekki alltaf tíma til þess. Það
eru fundir hér og hitt og þetta
sem er á þessum tímum. Hér
les enginn yfir pistla sem menn
fara inn með. Ég held að Illugi
sé oft á tíðum að semja þetta
rétt áður en hann fer inní stúd-
íóið. Situr við tölvu hér ein-
hversstaðar inná skrifstofu.
Þannig gerist þetta í ríkisút-
varpinu."
framkvæmdastjóra og höfum
ekki ákveðið hvenær það verður.
Við ætlum ekkert að flýta okkur
óskaplega," sagði Hreiðar Karls-
son á Húsavík, stjórnarformaður
Kísiliðjunnar, í gær.
Stjórn Kísiliðjunnar kom þá
saman vegna ráðningar nýs
framkvæmdastjóra en ekki var
gengið frá málinu. Má telja lík-
legt, þar sem hluti stjórnarinnar
starfar erlendis, að stefnt hafi
verið að því að ganga frá ráðn-
ingu en Hreiðar vildi ekki tjá sig
um hvort niðurstaðan ylli von-
brigðum. Eins og kunnugt er
hættir Bjarni Bjarnason fram-
kvæmdastjóri á næstu dögum og
tekur við stjórn járnblendisins.
„Það er inni í myndinni að
auglýsa en við höfum ekki skoð-
að hvort það verður gert. Það
liggur hins vegar fyrir að ekki
verður gengið frá ráðningu nýs
manns alveg á næstunni," sagði
Hreiðar.
En þarf að kalla stjórnina
aftur saman til að ráða nýjan
fr amkvæmdastjóra?
„Hún þarf a.m.k. að ná sam-
an með einhverjum hætti,“
sagði Hreiðar. BÞ
Landhelgisbrot
Réttað í dag
Mál á hendur skipstjóra
norska loðnuveiðiskipsins
Kristian Ryggeíjörd vegna brota
á íslenskum reglugerðum um
loðnuveiðar Norðmanna í ís-
lenskri lögsögu verður tekið fyrir
í dag í héraðsdómi Suðurlands.
Til stóð að rétta í máhnu í dag
en því var frestað að ósk sækj-
anda og verjanda í málinu. rm
Lax í Miðá í Döíum
Miðá hefur opnað, Veiðst hefur lax og bleikja. Veiðileyfi
eru seld hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur. Stutt er að
fara fyrir laxveiðimenn frá Sauðárkróki og Akureyri.
Leigutaki.
Ríkisbankarnir
leigja íbúðir
Hvert sem er - hvenær sem er
□Bnnnmri
AUSTFJARÐALEIÐÍ? UL
©477 1713 Rj
892 8922 852 8922/8933
Samningar um leigu á
íbúðum fara eftir að-
stæðum fólks sem
hefur misst þær,
þannig getur slíkur
samningur náð yfir
langan tíma.
Rúmlega hundrað íbúðir
eru í eigu ríkisbankanna,
Landsbanka og Búnaðar-
banka, en í langflestum tilvikum
er um að ræða eignir sem þeir
hafa leyst til sín vegna gjald-
þrota viðskiptamanna sinna.
Ekki liggur þó ætíð gjaldþrota-
skiptameðferð að baki eigna-
yfirtökunni. í sumum tilfellum
hefur eignayfirtakan verið liður
í skuldauppgjöri viðskipta-
manna við bankana, sem ekki
hefur leitt til gjaldþrotaskipta.
„Húsnæði sem bankar eignast
vegna skuldalúkningar þegar lán
eru tryggð með veði í eignum
fara í gegnum ákveðna meðferð
innan bankanna. Það fer yfirleitt
strax í sölu á söluskrá. Rekstrar-
félag Landsbankans kaupir
þannig t.d., bókfærslulega, eign-
irnar af útibúunum og setur þær
strax í sölu hjá fasteignasala.
En engin regla er um hversu
lengi fólk fær að leigja íbúðirn-
ar. Þar eru yfirleitt aðstæður
metnar í hvert skipti og mjög
oft er það þannig að af tilfinn-
ingalegum ástæðum sé fólki
leyft að vera í húsunum t.d. ef
fólk á börn sem er í skólum í
nágrenninu. Reynt er að ganga
frá þessum málum á eins
mannlegan hátt og hægt er,“
segir maður í Landsbankanum
sem Dagur-Tíminn ræddi við.
Hann segir jafnframt að gerðir
séu samningar við fólk um
leigutíma ef sérstakar aðstæður
kreijast. Þá fer íbúðin ekki á
söluskrá fyrr en að liðnum
samningstímanum. rm
Neysluverðsvísitala
Ríllinn hækkar það
sem flugið lækkar
Vísitala neysluverðs hækk-
aði um 0,2% milli júní og
júlí. Hagstofunni reiknast
til að flugfargjöld innanlands
hafi lækkað um 47% í júní, sem
leitt hafi til 0,14% lækkunar á
vfsitölu neysluverðs. Helmingur
þeirrar lækkunar ást hins vegar
upp með tæplega 1% hækkun á
rekstrarkostnaði heimilisbílsins
í mánuðinum, m.a. vegna rúm-
lega 4% verðhækkunar á vara-
hlutum.
Nær 8% verðlækkun á græn-
meti leiddi til 0,1% lækkunar
vísitölunnar. Sú lækkun var líka
étin upp og meira en það af
5,5% hækkun á húsaleigu. Aðr-
ar verðbreytingar urðu fremur
litlar í júní. - HEI