Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Side 11
ÍDagm--®tmtmt Föstudagur 11. júlí 1997 -11
Mót Opið unglingamót i - l* " 1 1 Opin mót
Péturléká
73höggum
Opna Slazenger unglingamót-
ið var haldið á Grafarholts-
vellinum í fyrradag og urðu úr-
slit þessi:
Piltar 15-18 ára
Án forgjafar:
Pétur Berg Matthíass., GKJ 73
Jens Kristján Guðmundss. GR 77
Gunnar Pór Jóhannsson, GS 77
Með forgjöf:
Atli Viðar Gunnarss., GR 62
Jón Hafsteinn Guðmundss., GR 63
Ólafur Sverrir Jakobss., 66
Stúlknaflokkur:
Án forgjafar:
Katla Kristjánsd., GR 81
Alda Ægisdóttir, GR 85
Helga R. Svanbergsd., GKJ 86
Með forgjöf:
Katla Kristjánsd., GR 68
Alda Ægisdóttir, GR 70
Snæfríður Magnúsd., GKJ 73
Piltar 14 ára og yngri:
Án forgjafar:
Hróðmar Halldórss., GL 76
Stefán Orri Ólafsson, GL 78
Tómas Freyr Aðalsteinss., GKG 82
Með forgjöf:
Brynjólfur Einar Sigurðss., GKG 63
Hróðmar Halldórsson, GL 65
Stefán Már Stefánsson, GR 65
Keppendur á mótinu voru
rúmlega áttatíu talsins.
Valiarmat
Formenn
kvörtuðu
við GSÍ
Formenn sex af stærstu
klúbbunum, það er GR, GK,
GKG, GA, GKJ og GV, sendu ný-
lega samhljóða bréf til Golfsam-
bandsins, þar sem þeir fóru
fram á að ákvæðið um lækkun
vallarmats, þegar hreyfingar
eru leyfðar á brautum, verði
fellt úr gildi.
Klúbbarnir telja reglur um
hreyfingar á brautum ekki
leyfðar til að hygla kylfingum
að ástæðulausu, fyrst og fremst
hafi klúbbarnir þurft að grípa
til þess vegna slæms ástands
brauta.
Ljóst er að Golfsambandið
mun ekki gefa eftir í þessu
máli. Bréf var sent til klúbb-
anna og það ítrekað að reglun-
um yrði ekki breytt, en búast
má við hörðum umræðum á
næsta golfþingi.
Víða grund í aðgerð
Keilismenn fundu leið til að
fara framhjá þessu vallarmats-
ákvæði á meistaramóti sínu.
Þeir lýstu allt snöggslegið svæði
á fyrri níu holunum sem grimd
í aðgerð og heimiluðu hreyfing-
ar sem námu einni kylfulengd,
innan grundarinnar. Vallarmet
breytist ekki vegna svæða sem
eru grund í aðgerð og þó hafn-
firskir kylíingar hafi geta stillt
bolta sína að vild á fyrri níu
brautunum hafði það ekki áhrif
á vallarmatið.
Slazengermótið var haldið á Grafarholtsvellinum í fyrradag. Á myndinni má sjá verðlaunahafa á mótinu. Fremri
röð frá vinstri: Snæfríður Magnúsdóttir GKJ, Katla Kristjánsdóttir GR, Stefán Már Stefánsson GR, Brynjólfur Ein
ar Sigurðsson GKG og Hróðmar Halldórsson GL. Aftari röð frá vinstri: Alda Ægisdóttir GR, Jón Hafsteinn Guð-
mundsson GR, Ólafur Sverrir Jakobsson GR, Pétur Berg Matthíasson GKJ, Þorkell Pétursson GR og Atli Viðar
Gunnarsson GR.
Hítt & þetta
Atvinnumennska
Góð
veríUaun
/ Garða-
bænum
Opna Aiwa-mótið verður
haldið á Vífilstaðavellinum í
Garðabæ á laugardaginn. Mót-
ið, sem styrkt er af Radióbæ, er
óneitanlega sérstakt fyrir þá
sök að verðlaun til keppenda
eru metin á yfir 600 þúsund
krónur, í formi nándarverð-
launa og árangurs með og án
forgjafar, svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er annað árið sem Golf-
klúbbur Garðabæjar og Kópa-
vogs gengst fyrir þessu móti og
allt stefnir í að uppfullt verði í
mótið, þegar í dag.
GKG mun standa fyrir öðru
stórmóti um aðra helgi, í sam-
vinnu við Keilismenn og mun
það verða spilað með sama fyr-
irkomulagi og Opna GR-mótið,
sem margir þekkja, það er,
tveir leika saman og spilaður er
betri bolti.
Sögur afvellinum
1-2-3-4
Óskar Halldórsson var í topp-
baráttunni í 1. flokki á Meistara-
móti GS, allt þar til hann kom að
3. holunni, sem gjarnan er
nefnd Bergvfkin. Hann sló fyrsta
högg sitt með bolta af gerðinni
Top-flite út í sjó og þurfti að
teygja sig í annan bolta, sem
hann tOkynnti að væri af gerð-
inni Top-flite 2. En það fór á
sömu leið. Þriðja teighögg Ósk-
ars var með bolta af sömu gerð,
með númerinu 3, en með engu
betri árangri. Óskar var, þegar
hér er komið við sögu, orðinn
uppiskroppa með Top-flite bolta
svo hann tók upp Titleist, númer
4. Það gekk hjá Óskari í fjórðu
tilraun, en möguleikarnir á sigri
í flokknum voru fyrir bí, eftir að
hafa fengið níu á þessa holu.
Þrátt fyrir skelfilega útkomu,
skipti Óskar aldrei skapi og það
væri ráð fyrir aðra kylfinga að
taka hann sér til fyrirmyndar,
hvað það varðar.
Sama og þið...
Aðstoðarflughótelstjórinn, Júb'-
us Steinþórsson, keppti í 2.
flokki á sama móti og lenti þá í
svipuðum vandræðum á 6.
brautinni, sem er par fimm.
Júlíus kom við í öllum fjórum
glompunum á brautinni og ekki
er Iaust við að tveir meðspilarar
hans, sem báðir léku holuna á
sex höggum, hafi verið farnir að
vorkenna honum. Skrifari hans
var ekki með höggafjöldann á
hreinu og spurði hann því var-
færnislega, á hve mörgum
höggum hann hefði leikið.
„Sama og þið,“ svaraði Júlíus,
sem lék holuna á 12 höggum.
Sú átjánda er erfið
Háar tölur voru á 18. holunni í
Hvaleyrarholtinu á Meistara-
móti GK um helgina. Stór
glompa fyrir framan flötina
reyndist mörgum erfið. Fjöl-
margir voru í skálanum og
fylgdust með sálarstríði eins
kylfings úr unglingaflokki í
glompunni, en þegar hann
hafði tekið sitt 13. högg á hol-
unni tók hann upp bolta sinn og
hætti keppni.
44 högg á lokaholunni
Öllu hærra skor mældist á 18.
holunni á Jaðarsvellinum á
Meistaramóti GA. Kylfingur í 1.
flokki kvenna fékk skráð á sig
44 högg á 18. holunni og kom
sá fjöldi högga til af því að sam-
tals skor á síðari níu holunum
var fært inn í reitinn þar sem
skor 18. holunnar átti að vera.
Konan fékk því á sig fjörtíu
aukahögg fyrir vikið.
Ás hjá Einari Inga
Einar Ingi Egilsson, þrettán ára
gamall félagi í GA, fór sömu
holu, þ.e. 18. holuna á Jaðars-
vellinum, á einu höggi nýlega.
Einar Ingi lék af karlateigun-
um, sem voru í rúmlega 140
metra ljarlægð frá holunni.
100 & 100 hjá Hildi
Hildur Rós Símonardóttir var
einn þátttakendanna á Arctic-
open golfmótinu sem haldið var
á Jaðarsvellinum fyrir stuttu.
Eftir að Hildur Rós hafði slegið
teighögg sitt á 9. brautinni kom
100 dala seðill í ljós fyrir fram-
an hana. Enginn vildi kannast
við seðilinn, þrátt fyrir fyrir-
spurnir, en 100 dala seðillinn
reyndist hins vegar hafa tákn-
ræna merkingu, því Hildur Rós
lék hringinn á 100 höggum.
Hola í höggi á Leiru
Björn Víkingur Skúlason fór
holu í höggi á 8. holunni á
Hólmsvellinum í Leiru á Meist-
aramóti GS í síðustu viku. Björn
Víkingur sem er með fimm í
forgjöf fékk ásinn á öðrum degi
mótsins.
Karen fékk300þús-
undkr. stuðning
Félagar í
Golfklúbbi
Suðurnesja
gengust fyrir
styrktarmóti
fyrir Karenu
Sævarsdóttur,
íslandsmeist-
ara kvenna á
sl. átta árum,
sem nú kepp-
ir sem kunn-
ugt er á Fut-
ures-móta-
röðinni í Bandaríkjunum. Mótið var
haldið á þriðjudaginn og þátttakan
var góð, 105 kylfmgar voru skráðir
til leiks og innkoman var um 300
þúsund krónur, sent fer í sjóð til
stuðnings þátttöku Karenar á móta-
röðinni.
í mótslok þakkaði Karen fyrir sig
í hófi í golfskálanum og þá afhenti
hún varaforseta Golfsambandsins,
Júlíus Jónssyni, íslandsbikarinn sem
hún hefur verið með í vörslu sl. átta
ár. Karen hélt síðan utan til æfinga í
fyrradag, en hún keppir á næsta at-
vinnumannamóti sínu í byrjun næsta
mánaðar.
Karen Sævarsdóttir
skilaði íslandsbikarn-
um sem hún hefur
haft i sinni vörslu
undanfarin átta ár.
Eldfjallamót
/ Eyjum
Alls höfðu 82 kylfingar, þar
af helmingur þeirra erlend-
is frá skráð sig á Volcano- open,
eða opna Eldijallamótið, eins og
það gæti heitið á móðurmálinu,
um hádegisbilið í gær. Skrán-
ingu lauk í gærkvöld og mótið
hefst á laugardaginn. Erlendu
keppendurnir koma flestir frá
Þýskalandi og Luxemborg og
nokkur áhugi virðist vera hjá
kylfingum á höfuðborgarsvæð-
inu fyrir þessu móti. Leiknar
eru 18 holur, bæði á laugardag
og sunnudag og síðan verður
slegið upp iéttu 3-holu móti um
miðnætti á laugardagskvöld.
Þetta er í fyrsta skipti sem
GV gengst fyrir Volcano open.
Eyjamenn hugðust standa fyrir
Volcano open í fyrra, en þá
þurfti að aflýsa því vegna veð-
urs.
Samviniiiiíeróir
Lanúsýn
* latnM ii • t ím mi • ttrt m mt« m m m mi • mmm i w iiti
IHBI »1. W an • m MrQMr. 14 • 1»1116 • tMr« tft 0»
8 • t C1 m • Mr« 01MM *rwtt MkHli 1 • l «1JM . Mrtl 011111
■** 1 • t <H 1M • «111» tommmrfir feHM B • l «1 «71 • Mr« «1IW
Samvinnuþerðir - Landsýn
hetjur um langt drabil boðið
glœsilegar goltherðir um heim
allan. Við skipuleggjum
got/jherðir til Spdnar og
Maltorca og sameinum jahnvel
golh og siglingu! Allir harþegar
okkar í golhherðum geta gengið
í golhherðaklúbbinn sem veitir
þdtttökurétt d hið vinsœla
Sprengjumót a Hellu sem
haldið verður 4. dgúst.