Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Side 3
iOagur-Βmimt
|J-----
Föstudagur 11. júlí 1997 - 3
F R É T T I R
Neytendur
Samgöngur
Flugleiðir
leita til
dómstóla
Flugleiðir ætla að leita til
dómstóla vegna úrskurðar
áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála vegna setu manna í stjórn
Flugfélags íslands. Samkeppn-
isráð hafði úrskurðað að tengsl
Flugleiðamanna við Flugfélag
íslands mættu ekki birtast í
stjórnarsetu. Það staðfesti
áfrýjunarnefnd. Nú hafa Flug-
leiðir ákveðið að sækja máhð til
dómstóla á þeim forsendum að
Samkeppnisráð hafi ekki laga-
legar forsendur fyrir ákvörðun
sinni.
Fótbolti
Arnar Gunn-
laugsson
seldur
Arnar Gunnlaugsson knatt-
spyrnumaður hefur verið
seldur til Bolton-liðsins á Eng-
landi. Söluverð er 100 þúsund
pund. Undir samning þess eðlis
skrifaði Arnar síðdegis í gær.
Annar íslendingur, Guðni
Bergsson, leikur með Bolton,
sem nú festir sig í sessi sem „ís-
lendingalið". Arnar er þó viss
um að erfitt verði að komast í
byrjunarlið.
Hertar reglur um Fríkort
Samkeppnisstofnun
með tryggðarkort til
athugunar. Neytenda
samtökin vilja að
stofnað verði hér-
lendis sérstakt
embætti umboðs-
manns neytenda.
Tölvunefnd hefur hert regl-
ur um Fríkortin að ósk
Neytendasamtakanna.
Hefur Tölvunefnd lagt fyrir
Framsýni, útgáfufyrirtæki Frí-
kortanna, að viðbót komi við
notkunarskilmála fyrirtækisins
sem er, að korthafar geti með
skriflegri tilkynningu sagt sig úr
Fríkortinu, hætt þátttöku og
þannig fengið sig afmáða úr
skrám félagsins. Neytendasam-
tökin höfðu m.a. spurt hvort
viðtakendum kortanna hefði
verið gerð grein fyrir því hvaða
upplýsingar færu á skrá fyrir-
tækisins og hvernig hægt væri
að afmá þær upplýsingar.
Persónuupplýsingar?
Það var 2. maí sl. sem Neyt-
endasamtökin skrifuðu Tölvu-
nefnd bréf, þar sem óskað var
eftir að hömlur yrðu settar á
hvaða upplýsingar mætti skrá
niður innan tryggðarkorts, sbr.
Fríkorts og Safnkorts. Þetta var
gert til að koma í veg fyrir að
Það vekur athygli Neytendasamtakanna að reglur um tryggðarkort virðast ekki jafn strangar hér og á Norðurlönd-
unum. Á myndinni er starfsstúlka Hagkaups með Fríkort sem nýlega voru tekin upp í viðskiptum á Islandi. Myna. jhf
persónuupplýsingar væru
skráðar, eins og hvaða vöru
einstakir neytendur kaupa.
Dagur-Tíminn tók á þessu máli
fyrir skömmu og þar kom fram
hjá framkvæmdastjóra Fríkorta
að kortið sæi bara punkta en
alls ekki vörutegund.
Neytendasamtökunum hafa
einnig borist upplýsingar um að
Húsasmiðjan hafi breytt ein-
hliða ákvæðum um áunna
punkta án þess að láta við-
skiptavini sína vita.
Norrænar reglur ekki
hér
Hjá norrænu neytendasamstarfi
hafa tryggðarkort mikið verið
til umfjöllunar að undanförnu.
Umboðsmenn neytenda á Norð-
m-löndum hafa gefið út leið-
beinandi reglur um þau og vek-
ur athygli skv. Neytendasam-
tökunum að ísland á ekki aðild
að reglunum. Þá hefur vinnu-
hópur á vegum Norrænu emb-
ættismannanefndarinnar um
neytendamál lokið skýrslu um
tryggðarkerfi og í báðum tilvik-
um eru reglur íslenskra trygg-
ingakorta á skjön við það sem
segir í leiðbeiningum umboðs-
manna.
Neytendasamtökin vilja að
stofnað verði hérlendis sérstakt
embætti umboðsmanns neyt-
enda. Samtökin staðhæfa að
samkeppnisyfirvöld séu að
skoða tryggðarkortin og athuga
hvort ástæða sé til að grípa til
aðgerða vegna starfsemi þeirra.
BÞ
Ffug
Þotuflug F-15 herflugvélanna mun hafa áhrif á ferðaþjónustu.
Norðurvíknigur
friðarspiHir?
Útsýnisflugmenn
Mýflugs fara í bann
á hábjargræðistím-
anum vegna heræf-
inga. Ferðaspjöll á
hálendinu?
Utsýnisflugmenn Mýflugs
eru óhressir með flug-
bann yfir hálendinu meðan
heræfingar standa dagana
1.-5. ágúst. Æfingin, sem
kennd er við Norðurvíking,
felur í sér sprengjuþotu-
sjónflug í 500 feta hæð yfir
helstu hálendisperlum
landsins: Herðubreið, Öskju,
Kverkfjöllum og Sprengi-
sandsleið. Stálfuglarnir
verða af gerðinni F-15 og
samkvæmt upplýsingum
sem Mýflugsmenn hafa
fengið fá þeir ekki að fara
útsýnisflug þessa daga sem
vígvélarnar æða í grennd
við hljóðmúrinn. „Þetta fel-
ur í sér hreina tekjuskerð-
ingu,“ segir Þorkell Jó-
hannsson, flugstjóri hjá Mý-
flugi, og er mjög óhress með
að þessi tími skuli valinn.
Hann vísar til útsýnisflugs
með ferðamenn, og kyrrðar
og friðar sem hálendisför-
um sé talin trú um að sé að
finna á íslandi. „Þetta gerist
reglulega annað hvert ár,“
segir Þorkell og telur að
taka hefði mátt tillit til
ferðaþjónustunnar við tíma-
setningu Norðurvíkings.
Ekki náðist í talsmann Flug-
málastjórnar vegna máls-
ins.
Ríkissaksóknari
Hallvarður
fær heimsókn
Dómsmálaráðherra
sendir mann til að
ræða fjárhagsmál við
ríkissaksóknara.
Fjárhagskröggur Ríkissak-
sóknara verða fundarefni
ráðuneytisstjóra dóms-
málaráðuneytisins með honum.
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra hefur óskað eftir því
við nafna sinn Geirsson ráðu-
neytisstjóra að hann ræði við
Hallvarð Einvarðsson um í]ár-
hagsstöðu hans. Þessi ákvörðun
kemur í kjölfar frétta um að
Landsbankinn hafi tekið íbúð
Hallvarðar upp í skuld, og get-
gátur um að sjálfstæði embætt-
isins sé í hættu vegna þess að
saksóknari sé illa staddur íjár-
hagslega. RÚV skýrði frá marg-
háttuðum íjárhagsvandræðum
saksóknara í fréttum í gær.
Fjölmargir lögmenn og aðrir
hafa lýst þeirri skoðun að sak-
sóknari verði að vera fjárhags-
lega óháður. Dagur-Tíminn hef-
ur heimildir fyrir því að fyrir
nokkrum árum hafi verið hreyf-
ing meðal lögmanna sem vildu
Þorsteinn sendir mann til Hallvarðs
en hvert er erindið? Tveggja
manna tal eða opinber könnun á
fjárreiðum saksóknara?
þá að samið yrði um starfslok
saksóknara vegna íjárreiða
hans. Ráðuneytistjóri var í fríi í
gær þegar Dagur-Tíminn reyndi
að ræða við hann um hvers
kyns erindi hans yrði við ríkis-
saksóknara. Dómsmálaráð-
herra lét ekki ná í sig í gær.
Spurningin er nú hvort erindi
ráðherra sé formleg beiðni um
að ríkissaksóknari geri opin-
berlega grein fyrir Ijárreiðum
sínum, eða einungis tveggja
embættismanna tal.
Nýbygging?
Sumarbústaður við Elliðavatn,
þar sem Hallvarður hefur nú
skráð lögheimili sitt, er nýsmíði
sem reist var í vetur. í samtöl-
um við fjölmiðla hefur Sigurður
Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi,
sagt að ekki sé leyfi fyrir heils-
ársbústað þarna. Hallvarður
hafi fengið leyfi til að byggja
bústaðinn á landi þar sem ekki
séu leyfðar nýbyggingar, ein-
ungis viðhald á eldri bústöðum.
Bústaðurinn er skráður á eigin-
konu Hallvarðar og er nýr. Eldri
bústaðurinn sem stóð á lóðinni
var mun minni og hafði verið í
niðurníðslu, ónotaður, í Ijölda-
mörg ár. Dagur-Tíminn vakti
athygli á þessum nýja bústað í
vor. Þá viðurkenndi byggingar-
fulltrúi Kópavogs að hann væri
reistur á „hápólitísku svæði“,
þar sem til skamms tíma hefði
verið fylgt harðri stefnu gegn
nýjum bústöðum. Þá staðfesti
hann að bústaður saksóknara
væri mun stærri en sá sem fyrir
hefði verið, og skýrði það með
nýtilkominni „slökunarstefnu".