Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.08.1997, Side 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.08.1997, Side 2
HÚSIN í BÆNUM .JDagur-CEímmn Vesturgata 61 (Litlasel og Jórunnarsel) Freyja Jónsdóttir skrifar Sel er þekkt nafn úr sögu Reykjavíkur en svo hét býli sem var vestast í Vestur- bænum. Talið er að upphaflega hafi verið þar beitarhús eða sel frá jörðinni Vík og af þvi' sé nafnið dregið. Á fjórtándu öld er Sel talið til eigna Víkurkirkju. í jarðabók frá 1703 er einn ábúandi í Seli sem greiðir fyrir afnot af býlinu til bóndans í Vík með vættum fiski og smjöri. í íjöru Sels var reki fremur lítiil en hrognkelsaijara sæmileg og skelfiskíjara þokkaleg. Nokkur galli þótti á býli þessu að árlega braut sjór af túni. Á seinni öldum varð Sel sjálf- stæð jörð og hafa þar búið margir merkir menn. Útræði var þaðan og nöfnin Litla-Sel- svör og Mið- Selsvör (sem ekki eru sjáanlegar lengur vegna uppfyllingar) benda til þess að þarna hafi selsbændur komið að með aflaxm. Seint á átjándu öld bjó í Seli lögréttumaður, Þoríinnur Þor- finnsson ættaður frá Skildinga- nesi. Á nítjándu öld var prest- setur í Seli og sat þar dóm- kirkjupresturinn Brynjóifur Sig- urðsson. Til þess var tekið hvað húsakynni prestsins í Seli voru lóleg, saggafullur toríbær með löngum göngum og ósléttu moldargólíl. Þegar fram liðu stundir tóku að rísa tómthúss- býli á landi Sels og voru mörg þeirra kennd við staðinn. í desember 1848 er Ólafur Steingrímsson talin eigandi að hluta Selslands. Hann selur í desember 1885, syni sínum Guðmundi Kr. Ólafssyni lóðar- ræmu úr landi sínu. Guðmund- ur byggir á lóðinni en selur eignina 14. janúar 1895 Sigurði Einarssyni. Það selda var íbúð- arhús 12x8 álnir að grunnfleti, áfast sunnan við bæinn á Litla - Seli og timburskúr niður við sjó. Enn fremur tilheyrandi lóð með stórum kálgarði. Virðing sem var gerð 1895 segir að Guðmundur Kr. Ólafs- son haíi látið endurbæta hús sitt á Selslóð. Þá er tekið fram að hann hafi látið þilja eitt her- bergi á lofti hússins og sett þar upp einn ofn. Þá er þess getið að niðri I húsinu séu tvö íbúðar- herbergi, annað málað en hitt ómálað. Árið 1906 eru taldir til heim- ilis í Litlaseli: Sigríður Jafets- dóttir ekkja Sigurðar Einars- sonar útvegsbónda, fædd 1849, Nikólína og Gyða dætur þeirra. Á öðru heimili búa: Magnús Einarsson húsbóndi, fæddur 1868 að Miklaholti í Ásahreppi, Katrín Magnúsdóttir kona hans, fædd 1870 að Þúfu í Landeyj- um. Börn þeirra sem fædd eru á tímabilinu 1890 til 1907; Mark- ús Guðmundur, Ingólfur, Stefán, Margrét Ágústa, Óskar Gísli, Kristín, Brynhildur og Svava. Einnig voru foreldrar frúarinn- ar á heimilinu, Guðríður Ein- arsdóttir, fædd 1831 og Magnús Stefánsson, fæddur 1843. Þá bjuggu í Jórunnarseli, Jó- hann Þorbjörnsson tómthús- maður, fæddur 1862, kona hans Halldóra Árnadóttir, fædd 1864 í Breiðholti í Reykjavík ásamt sonum sínum; Guðmundi fædd- um 1896 og Gísli Ágúst, fædd- um 1890. Talið er að Jórunnarsel hafi verið byggt nokkrum árum seinna en Litlasel, en húsin eru sambyggð á lóð úr Selslandi. Gyða dóttir Sigríðar og Sig- urðar giftist Jóni Ottari Jónssyni skipstjóra og bjuggu þau á Vest- urgötu. Hin dóttirin Nikólína, giftist Guðmundi Guðnasyni gullsmið. Sigríður Jafetsdóttir selur eignina í desember 1813, Kar- vel Friðrikssyni, sjómanni. Kar- vel var fæddur 19. maí 1877 í Laugardal í Tálknafirði. Kona hans var Guðbjörg Kristjáns- dóttir, fædd 14. september 1876 í Gufudalssveit. Litlasel er tekið til virðingar 21. nóvember 1925. Þá er skráður eigandi Guðbjörg Krist- jánsdóttir ekkja Karvels. Húsið hafi verið stækkað á þann hátt að það hafi verið lengt um einn metra að eld- varnarvegg næsta húss. Einnig voru settir tveir kvistir á húsið, sinn á hvora hlið þess og það endurbætt mjög mikið að viðum og frágangi. í mati þessu segir að húsið sé byggt úr hlöðnum og steinlímdum grásteini á tvo vegu: Austurgaflinn er áður- nefndur eldvarnarveggur en vesturgaflinn er úr bindingi. Ilann er klæddur með borðum, pappa og járni þar yíir. Á hús- inu er járnþak á borðasúð með pappa í milli. Á neðri hæð eru tvö íbúðarherbergi, eldhús og gangur. Inn á útveggjum er borðagrind með pappa í milli og þiljað innan á. Skilveggir eru úr binding með tvöföldum þiljum. Klæðning er neðan á loftbitum og bæði veggir og loft eru lögð striga og maskínupappír, ýmist veggfóðrað eða málað. f þaklyfti eru þrjú íbúðarherbergi, eld- hús, búr, fataskápur og gangur. Allt nýtt að efni og vinnu og með samskonar frágangi og á aðalhæðinni. Þrír ofnar eru í húsinu og ein eldavél. í brunavirðingu frá 1942 eru Litlasel og Jórunnarsel ekki nafngreind en virðing a) er ná- kvæmlega eins og að ofan greinir, nema tekið er fram að inn- og uppgönguskúr sé við suðurhlið hússins, byggður af bindingi, klæddur utan borðum, pappa og járni á veggjum og þaki. Þiljaður innan með panel, veggfóðraður og málaður. Þá er hús b) brunavirt, einlyft, úr bindingi, klætt utan með kant- settum borðum, pappa og járni á þaki og veggjum. Á aðalhæð- inni er eitt íbúðarherbergi, eld- hús og gangur, allt þiljað með panel og málað að innan. í ris- hæð er eitt herbergi, einnig þilj- að og málað og framloft. Við þetta hús er einnig inngöngu- skúr, byggður eins og húsið, en hann er ójárnvarinn. Axel R. Magnússen og kona hns Margét Ólafsdóttir kaupa Vesturgötu 61 árið 1935. Axel var fæddur 27. mars 1892 að Innri-Fagradal í Dölum. Hann var af breiðfirsku bergi brotinn, foreldrar hans voru Anna Soffía Oddadóttir af Ormsætt, hún var ljósmóðir um margra ára skeið. Eaðir hans var Rögnvaldur Rögnvaldsson Magnússen kaup- maður í Tjaldanesi við Gilsljörð, ættaður frá Skarið á Skarðs- strönd. Axel var tvo vetur í fram- haldsskóla og stundaði einnig tónlistarnám á sínum yngri ár- um. Hann kenndi tónlist og var þekktur fyrir fagran orgelleik. í mörg ár var hann starfsmaðir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Axel R. Magnússen lést 1. nóvember 1968. Margrét Ólafsdóttir lést 12. mars 1958. Afkomendur þeirra eiga bæði Selshúsin á Vesturgötu 61 og búa þar. Áður fyrr var mat- jurtagarður fyrir sunnan húsin en nú er þar gróin flöt. Ekki eru allir sammála um hvort húsið sé Jórunnarsel. í gömlum blöðum er helst að sjá að það sé minna húsið en íbúi á Vesturgötu 61 telur að nöfnum hafi verið ruglað og stærra hús- ið sé Jórunnarsel. Heimildir Borgarskjalasafn og Þjdðskjalasafn. Endalok nor byggðani Til er frásögn af síðasta bardaganum sem afkom- endur íslensku landnem- ana á Grænlandi og Inoílar háðu um miðja 16. öld. Sé rétt frá hermt er gátan um endalok norrænnu byggðanna á vestur- hveli leyst. Það var Jón Þorkels- son, landsbókavörður, sem kom frásögninni á framfæri. Handrit hennar er í Landsbókasafni og er skrifað með fljótaskrifts- hendi frá á að giska 1830-1840, að áliti Jóns. Landsbókavörður tekur fram, að Jón Árnason, þjóðsagnaritari, telji blöðin komin frá séra Gunnari J. Gunnarssyni á Hálsi, sem kallar sögnina Sögubrot. Erfitt mun að ákvarða með vissu um aldur sögusagnarinn- ar, en ekki er hægt að ganga fram hjá henni þegar um svo merkan atburð er að ræða sem hvarf íslensku byggðarinnar, eða íbúa hennar er. Gunnar J. Gunnarsson, sem blöðin eru sögð komin frá, hef- ur ekki ritað sögubrotið sjálfur, því sé það rétt, að það sé skrif- að fyrir 1840 hefur hann verið fullungur til að setja slíka frá- sögn á blað. En Gunnar var fæddur 1839 og dó 1873. Faðir hans var prestur í Laufási og Gunnlaugur Briem sýslumaður var móðurfaðir hans. Má leiða getum að því að sögnin og blöð- in séu frá forfeðrum séra Gunn- ars J. Gunnarssonar komin. Þó þarf það ekki að vera, því hon- um er svo lýst, að hafa verið vel gefinn og áhugasamur. Er því líklegt að hann hafi ekki látið fram hjá sér fara svo merkilegt plagg, sem eyðing norrænna manna á Grænlandi er. En því miður lætur hann þess ekki get- HAGYRÐINGAR Ástalli Mörg er sálin miður glöð, mjög af raunum kvalin, félagshyggjuflokka blöð falla nú í valinn. Kratar bíða blaðatjón, bágt á Magga Frímanns. Eftir stendur Stefán Jón á stalli Dags og Tímans. Sjónum blasir vorum við, og veldur sálartjóni, markaðshyggju markaðs lið á Moggans valdatróni. Halló ísland! Litlu börnin leika sér og liggja öll í hóp. Pau drekka bjór og brennivín og brúka með því dóp. Pau úða þessu upp í sig og una glöð við sitt. Gegndrepa í tjöldunum þau gera hitt. Litlu börnin leika sér og langar ekki heim. Pabbi keypti pytlur og pela handa þeim. Réttu gróðaleiðina þeir snjöllu hafa hitt og hagsmunaaðilarnir þurfa sitt. í ágúst er svo gaman, allir djóka saman, börnin elska bjórinn og brennivín. Ýmsir vel sig auðga, aðrir fá að nauðga, og enginn þarf skúrkur að skammast sín. Búi

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.