Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.08.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.08.1997, Blaðsíða 6
T 18 - Föstudagur 15. ágúst 1997 Pagur-®ímtrat 1 •• LIF FJOR iákvæði og ógiftir einstaklingar Ertu ein/n, fráskilin/n og allir vinirnir með harðgiftir með barnastóð? Orðin/n dauðlúin/n á þessu fjölskyldufólki sem aldrei getur hreyft sig spönn frá rassi nema í augsýn sé sumarbústaður og gasgrill? Sé svarið já, væri ráð að kíkja á kynningarkvöld Eðal- klúbbsins (ævintýraklúbbur fyrir jákvæða ógifta einstaklinga) sem haldið verður í kvöld á Café Romance kl. 21. Þar verður að öll- um líkindum her manns sem vantar líka ferðafélaga og vill fara í leikhúsferðir, jeppaferðir inn á hálendi eða upp á jökla, göngu- túra, sólarlandaferðir, drekka bjór eða spila keilu. Arkítektúr og hafnarmannvirki Sýning á verkum tveggja manna verður opnuð á Kjarvalsstöðum kl. 14 á morgun. Annar er af íslensku bergi en líkt og geimfarinn Bjarni fluttist Árni Haraldsson til Kanada á barnsaldri. Hinn heitir David Askevold og er af fyrstu kynslóð hugmyndalistamanna. Árni notar Ijós- myndir til að sýna hvernig módernisminn birtist í arkítektúr og skipulagi en David sýnir verk irmblásið af sjávarútvegi og hafnarmannvirkjum Kanadabúa. Danskir dagar Röðin er komin að Stykkishólmi. Þar hefjast í dag Danskir dagar og standa fram á sunnudag. Ekki er nokkur vegur að nefna allt það sem hægt verður að gera sér til skemmtunar en þetta verður m.a.: Útvarp Stykkishólmur verður starf- rækt, dansað verður og sungið á Breiða- firði í kvöld, bryggjuball kl. 22 og flug- eldasýning á miðnætti. Á morgun hefst golfmót kl.10, markaðstjald opnar kl.13 og um kvöldið verður unglingaball með Soma. Það eru hins vegar Milljónamær- ingamir ásamt Bjarna Ara og Ragga Bjama sem skemmta fullorðna fólkinu á Hótel Stykkishólmi. iDHgur-Ctnmm mælir með... ...gagnvirku leikhúsi í fyrsta sinn á Islandi. Hár og hitt í Borgar- leikhúsinu er kannski ekki frum- legasta leikrit sem sést hefur, né týpurnar alls ókunnuglegar en það er bará svo obboslega gam- an að fá að grípa fram í, fá við- brögð frá leikurum og bara gleyma rasssærinu gjörsamlega. Svo er hún Guðlaug Ebsabet Ól- afsdóttir meiriháttar hár- greiðslukona (og býr til einu týp- una sem ekki er samansúrruð klisja, sem eru þó NB ágætar ef vel leikn- ar). ...íslandsbænum í Vín í Eyjafirði. Bærinn er meistaralega gerður og stemmningin sem myndast er frábær. Maturinn er mjög góð- ur. ...Grettissögu, á hijóðbók. Ný- komin út, frá- bær saga og fínn lestur Ósk- ars Halldórssonar. Alls 9 klukkutímar á 6 snældum! En langar ökuferðir um landið líða hjá eins og í draumi þegar maður fylgir Gretti og ógæfu hans, skokkið verður leikur einn með hann í tækinu...Grettir er maðurinn. Gréta í Islandsbænum Gréta Berg sýnir verk sín I (slandsbænum í Vín í Eyjafirði. Gréta hefur haldið fjölda myndlistasýninga og núna er hún að vinna með fortíðina og gamla muni. Á myndunum eru einnig textar eftir m.a. Káinn og Davíð Stefánsson. „Málverkin koma á undan textunum hjá mér, svona oftast nær“, segir hún. Sýningin stendur til 30. ágúst. Lífsins ker Hrefna Harðardóttir leirlistarkona opnar sína fyrstu einkasýningu í dag í Galleríi Svart- fugli í Listagilinu á Akureyri. Sýninguna kallar hún Minninga-ker og er hugmyndin að baki nafninu sú að mannsævin skiptist í sjö ára tímabil og er talið að fólk breyti um stefnu eða standi á krossgötum að þeim loknum. Hvert ker geymir jarðneska eða ójarðneska minningu frá hverju tímabili. Sýningin verður opnað klukkan 20:30 og stendur til 31. Einn í elle Er annað hægt Isíðasta kvikmyndapistli kom afleysingamaður minn inn á að ég hafi loks komist í lang- þráð sumarleyfi. Ég er kominn aftur og vona ég að þetta svo- kallaða langþráða frí hafi ekki verið ósk þeirra sem lesa þessa pistla mína. En, takk fyrir hjálpina Hafliði, þú hélst þig við efnið. Þetta byrjar ekki vel. Hvað gerir þú lesandi góður þegar þú ferð í kvikmyndahús og þér leiðist? Pið vitið hvað ég geri. Ég geng einfaldlega út eins og gerðist með Júragarðinn, mynd númer tvö. Nú hugsar einhver, nú nú, hann þykist skrifa um kvikmyndir, en hvernig er það hægt þegar hann horfir ekki á alla myndina. Svarið er einfallt, C’ est la vie (svona er h'fið, þýð- ing BÞ). Og aftur gerist það. Nú var það nýjasta myndin um Batman og Robin í Borgarbíói á Akureyri. Ég hékk inni í tuttugu og fimm mínútur. Með alla þessa fínu leikara, ekki gott. Já, með alla þessa frægu leikara hélt ég að einhver aíþreying væri þarna á ferðinni enda fannst mér fyrsta Batman- myndin í fínu lagi en ekki þessi. Allavega fyrstu tuttugu og fimm mínúturnar og ég trúi því ekki að ég hafi misst af miklu. Ge- orge Clooney er ekki flottur sem Batman. Fleiri nöfn, Arn- old Schwarzenegger, Uma Thurman og Alicia Silverstone og einhver staðar átti súper- módelið Elle Macpherson að vera í myndinni. Það læðist óneitanlega að manni sá hugur að stórleikarar Hollywood verði að fá að leika í Batmanmynd enda hafa engar smástjörnur leikið í síðustu myndum. En af hverju. Þetta er orðið ansi út- þynnt. Ekki meira um það en mig langaði meira að sjá Men in Black en afleysinarmaðurinn horfði á hana. Það stefnir í að nokkrar ágætismyndir séu á leiðinni í Borgarbíó á Akureyri og bíð ég spenntur eftir þeim. Svona rétt í lokin. Ég var að horfa á Shine, Undrið enn og aftur, hún er komin á myndband. Sjáið hana. ALLT UM ARGENT NU WWW.ISLANDIA.IS/ARGENTINA/

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.