Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.09.1997, Side 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.09.1997, Side 3
|Dagur-'3Imttrat Miðvikudagur 17. september 1997 - 3 F R E T T I R Akureyri D-listinn reynir við Kristján Þór Það stefnir í verulega endurnýjun á fram- boðslistum flokkanna fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar á Akur- eyri næsta vor. Forysta framsóknarmanna hefur undanfarið rætt við bæjarfulltrúa og efstu menn á listanum við síðustu kosningar um og á fulltrúaráðsfundi 25. september nk. fara línur að skýr- ast í því hverjir hyggjast gefa kost á sér og hvernig staðið verð- ur að framboðsmálum. Fram- sóknarmenn eiga fimm bæjar- fulltrúa, og reikna má fastlega með að Jakob Björnsson muni áfram leiða listann. Þórarinn E. Sveinsson, forseti bæjarstjórnar, hefur hug á starfi forstjóra Osta- og smjörsölunnar í Reykjavík þegar hún losnar á næstu miss- erum, Guðmimdur Stefánsson er fluttur til Reykjavíkm' og skiptar skoðanir meðal framsóknar- manna um störf Ástu Sigurðar- dóttur. Sigfríður Porsteinsdóttir nýtur aðeins stuðnings þröngs hóps og Oddur Halldórsson er nýliði. Meirihluti framsóknar- manna og alþýðuflokksmanna hefur verið gagnrýndur fyrir seinagang við afgreiðslu máia, og pólitísk mistök. Þar ber hæst ákvörðun um að ganga til samn- inga við SH en semja ekki um flutning ÍS til Akureyrar. Því hefur verið leitað í sumar að nýjum nöfnum til að hressa upp á ímyndina, og þar hefur nafn Elsu Friðfinnsdóttur, lekt- ors við heilbrigðisdeild Háskól- ans á Akureyri, oft komið upp. íhaldið með Kristján Þór í broddi fylkingar? Sjálfstæðismenn eiga þrjá fufi- trúa, Sigurð J. Sigurðsson, Val- gerði Hrólfsdóttur og Þórarinn B. Jónsson. AUt þetta fólk viU sitja áfram á Ustanum, helst er að slegist verði um sæti Þórar- ins, sumir sjálfstæðismenn vUja hann burt, telja að hann hafi kostað D-Ustann einn mann þeg- ar hann felldi Jón Kr. Sólnes út af Ustanum fyrir síðustu kosn- ingar. Stuðningur er við að bjóða fram póUtískt bæjarstjóraefni, og þar ber nafn Kristjáns Þórs JúU- ussonar, bæjarstjóra á ísafirði, hæst. Einnig hafa verið nefnd nöfn Björns Magnússonar, for- stöðumanns Fasteignamats rík- isins, og ýmissa manna í at- vinnuh'finu en nöfn þeirra hafa ekki fengist staðfest. UngUðar innan flokksins knýja einnig fast á. Aðalfundur fuUtrúaráðs verð- ur 29. september nk. Búast má við að verulegar breytingar verði á framboðslistum flokkanna á Akureyri í kosningunum á næsta ári. Hér stinga þau saman nefjum Sigríður Stefánsdóttir, vill halda áfram í bæjarstjórn, og Þröstur Ásmundsson, sem vill gjarnan verða aðalmaður. Mynd: GS Vinstra framboð? Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag, Gróska, KvennaUsti og Þjóðvaki hafa sýnt áhuga á því að bjóða fram sameiginlegan Usta. Við- ræður milli þeirra eru að hefjast að nýju. Það hefur gert umræð- urnar erfiðar að Alþýðuflokkur er í meirihluta en Alþýðubanda- lag í minnihluta bæjarstjórnar. Af þeim ástæðum hefur GísU Bragi Hjartarson (A) að mestu haldið sig til hlés, en hann mun ætla að hætta. Þrátt fyrir það hafa ýmsir x hópi krata sagt að alþýðubandalagsmenn séu h'tt samningsfúsir. Alþýðubandalag- ið á tvo menn, Sigríði Stefáns- dóttur, sem hefur fuUan hug á að halda áfram, en Heimir Ingimarsson er sagður vilja hætta. Þar banka ýmsir á dyr, hvað fastast Þröstur Ásmunds- son, varabæjarfuUtrúi, sem hef- ur mikinn áhuga á sameiningu vinstri maima. GG Höfði í gær voru kynnt úrslit í samkeppni um hönnun húsgagna í Höfða, móttökuhús Reykjavíkuborgar. Hlutskörpust í samkeppninni varð Þórdís Zoéga húsgagna- og innanhúsarkitekt sem hér sýnir borg- arstjóra og Hildi Kjartansdóttur formanni dómnefndar tillögur sínar. Mynó: E.ÓI. Vinnumiðlanir Um 240 störf á lausu Atvinnuleysi hið minnsta í þrjú ár og bú- ist við frekari fækkun í september. Nær 240 laus störf voru skráð hjá vinnumiðlun- um í ágústlok, íjórfalt fleiri en næstu mánuði á undan. Atvinnulausum fækkaði lxTca langt umfram venju milli júh' og ágúst, í 3,2% af mannafla sem er lægsta hlutfail í þrjú ár. „Meðal skýringa eru vaxandi eftirspurn seinni hluta ágúst eftir starfsfólki m.a. í fisk- vinnslu, skólastarf, bæjarvinnu, framkvæmdir, kjötvinnslu, verslun og þjónustu ekki síst vegna fækkunar skólafólks á vinumarkaði samfara aukinni eftirspurn," segir í yfirliti Vinnumálastofnunar, sem býst við að atvinnulausum muni enn fækka núna í september. Atvinnuloysi meðal kvenna mældist rúm 5% eða næstum þrisvar sinnum meira en hjá körlunum. - HEI Lífeyrissjóðir Standa ekki allir við skuldbindingar Almennt er afkoma og ávöxtun eigna lífeyris- sjóða góð. Nokkrir sjóð- ir eiga þó ekki fyrir skuldbindingum sínum. Staða h'feyrissjóða er misjöfn eins og fram kemur í árs- reikiúngum þeirra og upp- lýsingum um ijárhagsstöðu sem bankaeftirlit Seðlabanka íslands hefur gefið út. Þar kemur fram að nokkrir sjóðir verða að grípa til róttækra aðgerða til að standa félagsmönnum sínum skil á h'feyrisgreiðslum. Nokkrir þeirra eru í þeirri stöðu að þeir fá ekki iðgjöld lengur þannig að sá tekjustofn er ekki lengur fyrir hendi. Að sögn Ragnars Hafliðason- ar, aðstoðarforstöðumanns bankaeftirhtsins, voru lífeyris- sjóðirnir settir undir eftirlitið ár- ið 1991 meðal annars til þess að eftirlitið gæti gert athugasemdir og komið í veg fyrir að sjóðir tæmdust og hluti sjóðfélaga fengi ekki greitt úr þeim. Ragn- ar sagði að ýmsar skýringar væru á bágri stöðu sumra sjóða. Sumir væru of litlir og áhættu- dreifing útgreiðslna h'til, auk þess sem sumir þeirra hefðu rýrnað verulega í óðaverðbólgu fyrri ára. Almennt séð hefði ávöxtun sjóðanna verið góð frá 1991 þegar bankaeftirlitið hóf eftirht með þeim. HH Samhjálp Sækja í frían mat Aðsóknin á kaffistofuna hefur aukist vegna þess að fleiri vita af okkur, segir Óli Ágústs- son, forstöðumaður Samhjálpar Hvítasunnumanna. s g veit ekki hvort skjólstæð- ingum okkar er að flölga en aðsóknin til okkar hefur aukist vegna þess að fleiri vita af okkur. Á síðasta ári voru skráðar 18.000-19.000 komur á kaffistof- una okkar,“ segir Óli Ágústsson, Óli Ágústsson, forstöðumaður Samhjálpar Hvítasunnumanna. Mynó: E.ÓI. forstöðumaður Samhjálpar Hvíta- sunnumanna. Á fundi félagsmálaráðs í lok sl. mánaðar var lagt fram bréf frá forstöðumanni Samhjálpar þar sem farið var fram á íjárstuðning vegna breytinga á kaffistofu safn- aðarins. Samþykkt var að vísa máhnu til umsagnar félagsmála- stjóra og til gerðar íjárhagsáætl- unar fyrir komandi ár. „Þetta hefur verið svona síg- andi ólukka þessi þróun hjá okk- ur, en engin bomba,“ segir Óli. Hann segir þá sem þiggja ókeypis mat hjá Samhjálp séu mest neð- anmálsfólk sem gistir einnig í gistiskýli Samhjálpar að Þing- holtsstræti. -grh

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.