Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Blaðsíða 4
20 - Fimmtudagur 29. ágúst 1996 Jflagur-^tmom Pétur Gunnarsson skrifar Fyrst er að vilja ... Þegar ég hungraður bið um brauð, býður mér heimurinn steina,” söng útvarpið allan okkar uppvöxt og hlálegt er að þetta skuli í svo ríkum mæli vera orðin lýsing á starfsemi þess. Eink- um þar sem það hefur ágætum bökurum á að skipa, fyrsta flokks hráefni og alla burði til að halda úti metnaðarfullri dagskrá En peningar eru jú afl þeirra hluta sem gera skal og ekki skal dregið í efa fjársvcltiö sem stofn- unni er haldið í af óábyrgum aðil- um. Þó megum við gæta þess að láta ekki vanefnasönginn verða að við- kvæði, vögguvísu, afsökun. Satt að setja rekur mig ekki minni til að hafa heyrt ráðamenn RÚV auglýsa hátt og skýrt stefnu sína óskadag- skrá, meta hana til fjár og leiða síðan í ljós hve miklu skakkar. Sem ætti þó að vera forsenda fyrir þvf að hægt sé að gera kröfu á hendur fjármálavaldinu um það sem á vantar. Núverandi öndunar- vél er með öllu óþolandi. Og til- burðir til að hressa uppá rekstur- inn með auknum auglýsingum eins og hvert annað örvæntingaræði eiturætu. Nefskattur plús framlag ríkisins ættu einfaldlega að duga til að reka heilabú þjóðarinnar af myndarskap — þótt ekki sköðuðu þær tekjur sem búið aflaði sér sjálft. Ein er sú aukabúgrein sem mig dreymir um að sjá RÚV starfrækja. Það er nýting á þeirri óþrjótandi auðlind sem flæðir og vellur undir fótum þess. Efnið sem það hefur framleitt í gegnum tíðina. Af hverju opnar útvarpið ekki búð (nógur er víst góltílöturinn í and- dyrinu) með drcillngu út um allar jarðir þar sem miðlað væri snæld- um með völdu efni útvarpsins? Stálþráðurinn er fyrir löngu orðinn að segulbandi sem er orðið að kassettutæki, sem er orðið að vasakríli með eyrnatappa í annari hverri hlust. Öðrum hverjum bíl. Fólk þyrstir í efni, en fyrir ein- hverja hlaigilega meinloku hafa ís- lenskir framleiðendur ekki tekið við sér. Hvarvetna á byggðu bóli er kassettugerðin blómlegur iðnaður og heilu stæðurnar af eyrnaefni í „bóka“búðum. Hér er að vísu rekið Blindrabókasafn, en skilyrði, því miður, að vera blindur eða sann- anlega fársjúkur til að fá aðgang. Hljóðbókaútgáfa er byrjuð að standa í lappirnar, en veldur að- eins örfáum titlum. Risinn á þessum eyrnamarkaði, sjálft Ríkisútvarpið, sefur. Af hverju ekki að svara brýnni þörf og mala í leiðinni gull, skapa störf fyrir tæknilið, umbúðasmiði, afgreiðslu- fólk — fyrir utan höfunda efnis? En þetta var útúrdúr, erindið var að lýsa eftir dagskrárstefnu RÚV. „Fyrst er að vilja; afgangur- inn er tækni,“ segir biskupinn í Kristnihaldi undir Jökli. Fyrst er að gera heyrinkunna og berjast fyrir metnaðarfullri dagskrá — og þá mun „allt þetta veitast yður að auki.“ linumenii og Herra Norðurland Garri sá það í Degi í gær að hætt hefur verið við keppnina um „Herra Norður- land“. Einhver maður sem titlaður er af blaðinu skemmtanastjóri Sjallans er borinn fyrir þeirri afsökun að þátttaka hafi ekki verið næg til þess að halda þessa skemmtun. þó kemur fram í fréttinni að tveir þeirra Norð- lendinga sem boðað höfðu þátttöku muni ætla að taka þátt í keppninni um Herra ísland, sem haldin verður síðar í Reykjavík. Satt að segja þykir Garra rök skemmt- anastjórans um þátttöku- leysi léttvæg því greinilegt er að unnt hefði verið að fá þessa tvo til að keppa um Norðurlandstitlinn ef vilji væri fyrir hendi Tveir jafnvel betra en margir Raunar er vel hægt að ímynda sér að slík „Herra-keppni“ yrði jafnvel enn meira spenn- andi þegar keppendur eru aðeins tveir, heldur en ef um heila hjörð herramanna væri að ræða. Það er einfaldlega eitthvað karlmann- legt við átök þar sem maður mætir manni, einn og móti einum, eins og þegar íslenskir karlar í aldanna rás hafa gripið hvern annan glímutökum, - einn á móti einum - stigið og tekist á, gjarnan í hvítum sokkabuxum. En enga slíka karlmannlega átakaskemmtun vill skemmtanastjórinn í Sjallanum á Akureyri bjóða upp á og því e.t.v. eðlilegra að titla manninn leiðindastjóra. En óneitnalega vekur það athygli að aðeins tveir norðlenskir karlmenn hafa til að bera það sjálfsálit eða kannski öllu heldur þá sjálfsímynd að telja sig eiga erindi í keppni um Herra Norðurland. Þetta kann vitaskuld að stafa af eðlilegum ástæðum, sem Garri þekkir ekki til hlýtar, en óneitanlega er freist- andi að leytast við að velta upp einhverri skýringu á þessari hlédrægni. Hvað veldur? Eru það kannski norðlensku konurnar sem hafa valdið þessu? Eru þær slíkar valkyrjur að hafa drepið niður allt sjálfsálit og sjálfs- traust karlanna? Eða eru þær e.t.v. svo auðmjúkar dúkkulísur að hið karl- mannlega verndareðli norð- lensku karlanna beinlínis bannar þeim að und- irgangast jafn tepruleg ör- lög eins og að sýna sig á sviði eins og hverja aðra fegurðardrottningu? Hvorug þessara skýringa er þó líkleg til að vera sú rétta. Sannleikurinn er auðvitað sá að höfuðstöðvar þess vinnustaðar þar sem Garri hefur unnið undanfarin áratug eru nú komn- ar á Norðurland og því væri ekki nema eðli- legt að Garri færi að sjást á almannafæri norðan heiða í meira mæli en verið hefur. f ljósi þess sem margoft hefur komið fram í fyrri pistlum Garri - að Garri og línumenn Landsvirkjunar og RARIK séu einmitt afskap- lega svipaðar týpur þegar kemur að karl- mennskunni - þá er ekki óeðlilegt að norðan- menn fari heldur hjá sér þegar hætta er á samjöfnuði á götum úti við slík karlmenni sem h'numennirnir og Garri eru. Þetta er hins vegar ástæðulaus ótti því Garri hefur ekki í hyggju að skyggja mikið á aðra karla úti um land, jafnvel þó svo að nýja blaðið kunni að krefjast þess að hann þvæhst vítt og breitt um hin byggðu ból landsins. Skemmtanastjóri Sjallans á Akureyri getur þess vegna óhrædd- ur haldið áfram sínu striki með keppnir um Herra Norðurland, Garri mun halda sig til hlés og skemmtanastjórinn mun sleppa við að vera uppnefndur leiðindastjóri. Garri Teitur Þorkelsson skrifar Forleikur Sinfóm'ur sem fela f sér ástri'ðu- fulla tjáningu tilllnninga byrja sjaldnast með ofsa. Eins og vel heppnaður ástaleikur byrja þær á forleik. Það fyrsta sem eyrun nema gætu verið nokkrar fiðlur en fleiri hljóðfæri og tilbrigði við meginstef- ið eru smám saman kynnt til sög- unnar, tónarnir daðra við þig og gefa fyrirheit um þann samhljóm sem er í vændum. Þannig gerir for- leikurinn þér kleift að njóta tón- verksins til fullnustu, skynja hvernig öll hljóðfærin leggjast á eitt við að lyfta sálinni og upplifa hreina og kraftmikla tilfinningu. í ástarlíiinu gegnir forleikurinn að mörgu leyti sama hlutverki nema hvað hann getur falist í margskonar hegðun við næstum hvaða kringumstæður sem er. Hann þarf ekki endilega að felast í rómantískum kvöldverði með tangó í eftirrétt og enda í munúðarfullum samfórum í brúðarsvítu hótel Ritz í París til þess að veita þér ánægju og þjóna tilgangi sínum. Augntillit á réttum augnablik- um, létt snerting eða tvíræð at- hugasemd geta haft samskonar áhrif. Gönguferð að kvöldlagi, nán- ar samræður og ljúfur dans heima í stofu. Allt þjónar þetta sama til- ganginum, tvær manneskjur stilla saman strengi sína og hjörtun fara að slá í takt. Með því að gefa sig kynórum á vald í nokkur augnablik og hringja sem snöggvast í mak- ann rétt áður en þið hittist gæti verið hægt að setja tóninn fyrir eitthvað annað og meira en ýsu og kartöflur þegar heim er komið. Ástarkveöjur, Teitur Sj álfstæðisbarátta á heiðum uppi Unnar Ingvarsson skrifar Nú nýverið hefur forseti Ferðafélags fslands, Páll Sigurðsson prófessor og náttúruunnandi, ákallað dóm- stóla landsins í hinu morgun- blaði landsmanna, og beðið þess að íslenskir dómstólar, dugi þeim nú vel í baráttunni við nokkra norðlenska bændur í slagnum um Auðkúluheiði. Helst er að skilja á prófessorn- um að bændurnir hafi ekkert vit á hálendinu, og hvað þá skilning á göfugri starfsemi Ferðafélagsins, heldur ætli að reisa allskyns hús og hótel á viðkvæmum svæðum, - að í þeim búi vonglaður jarðvöðull sem öllu ætli að bylta þegar hann komi höndum sínum ylir Hveravelli. Ferðafélag íslands er eílaust hinn þarfasti félagsskapur enda skilst mér að það hafi verið stofnað fyrir tæpum 70 árum til að hvetja til ferðalaga og auka þekkingu á landinu. Ferðafé- lagið hefur líklega staðið sig með ágætum á þessu sviði, sæluhús hafa risið víða um land og eru til mikils hagræðis fyrir ferðamenn. Ég hef alltaf litið á Ferðafé- lagið sem félagsskap áhuga- manna um ferðalög um landið, sérstaklega um hálendi íslands. Þess vegna kemur mér og fleir- um verulega á óvart þegar fé- lagið hefur nú nokkurs konar sjálfstæðisbaráttu á heiðum uppi. Telur sér misboðið þegar einhver annar ætlar að fara inn á það svið að hýsa og aðstoða ferðamenn. Eins og forseti Ferðafélags- ins hefur eflaust tekið eftir, þá Qölgar ferðamönnum með hverju árinu og þeim verður að veita sómasamlega þjónustu. Góð tjaldstæði og hótel eru afar mikilvæg, og ég tel að ef þeim er haganlega fyrir komið, þá verndi þau landið en skemmi ekki. Auðvitað er mikilvægt að húsin standi nokkuð frá við- kvæmustu svæðunum og séu helst í hvarfi frá náttúruperlun- um sjálfum. Ég hef það á tilfinningunni að það skipti í raun litlu máli hvaða aðilar hyggðust byggja í nágrénni við skála Ferðafólags- ins. Ferðafélagið virðist hafa ákveðið að það hafi eignarhald á svæðinu og aðrir eigi ekki að koma þar nærri. Maður hlýtur að spyrja sig hvaða hvatir liggi að baki. Getur verið að þeir tæplega 6000 ferðamenn sem gistu skálana á Hveravöllum árið 1995 ráði mestu um ástæð- ur Ferðafélagsins. Er þetta sem sagt spurning um peninga? Eða hyggst Ferðafélagið halda áfram að sinna hlutverki sínu að kynna íslendingum landið og gera mönnum færara að ferðast um það, án þess að skemma náttúruna. Hver sem niðurstaðan verð- ur hjá dómstólum í þessu máli, þá er ljóst að Ferðafélagið verð- ur að lúta stjórnvaldi á Hvera- vöilum eins og annars staðar. Félagasamtök eins og Ferðafé- lagið hefur ekki og getur ekki fengið yfirráðarétt yfir þessum svæðum. Það er mín von að Ferðafélagsmenn sjái að sér og hefji gott samstarf við alla þá sem eiga land á hálendinu. Án samstarfs um þessi mál er hætt við að bæði náttúra landsins og uppbygging ferðaþjónustu bíði skaða af.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.