Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Blaðsíða 6
22 - Fimmtudagur 29. ágúst 1996
©agur-Œtmtmt
Samkeppnin
leiddi til
uppboðsstríða
íslenska
útvarpsfélagið
10 ára
Sú var tíðin að það var ein
prentsmiðja á þessu landi
sem mátti prenta dagblöð
og dagblöð þurftu að sækja um
útgáfuleyfi til konungsins. Það
má líta á breytingarnar á út-
varpslögunum, fyrir rúmum
áratug, sem viðleitni stjórn-
valda til að hverfa frá þeirri
gömlu hugmynd að ríkið eitt
ætti að halda utan um rekstur
af þessu tagi. Þætti okkur t.d.
eðlilegt að gefið væri út eitt
dagblað af ríkisfyrirtæki á ís-
landi í dag?“ spurði Páll Bald-
vin Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri dagskrársviðs Stöðvar 2
og Bylgjunnar, þegar Dag-
ur-Tíminn leit við í glæsilegum
húsakynnum íslenska útvarps-
félagsins í vikunni.
íslenska útvarpsfélagið var
stofnað árið 1986 utan um
rekstur Bylgjunnar, fyrstu út-
varpsstöðvar í einkarekstri á ís-
landi. Sama ár komst Stöð 2 í
loftið, en 1990 keypti ÍÚ meiri-
hluta þar eins og menn muna.
Jón Óttar Ragnarsson og fé-
lagar hugðust í upphafi reka
nánast eftirlíkingu af erlendum
kapalstöðvum sem rúllaði á
kvikmyndum allan sólarhring-
inn. „En þeir breyta fljótt um
kúrs og fara að taka inn fram-
haldsþætti, setja af stað frétta-
þjónustu og ráða íþróttafrétta-
menn,“ sagði Páll. „Það var líka
greinilegt að það var talsvert
mikið af fýsilegu sjónvarpsefni
á lausu sem íslendingar fengu
ekki að njóta.“ Félagið fékk
leyfi til að útvarpa á tveimur
rásum þegar það keypti út-
varpsstöðina Stjörnuna fyrir
nokkrum árum og sagðist Páll
Baldvin allt eins eiga von á að
Stjarnan yrði aftur send í loftið, ingaraðilum til Islands. „Það
þá á öðrum forsendum en
Bylgjan.
„Þrótmin verður í átt að
frekari sérhæfingu."
Rökfastir unglingar
Þegar íjórar stöðvar eru farnar
að sjónvarpa efni fyrir 270.000
hræður er lfldegt að þjónusta
þeirra sérhæfist með tímanum,
að mati Páls.
„Við þurfum hins vegar að
koma okkur upp almennilegum
tækjrnn sem mæla allan sólar-
hringinn, á tilteknum fjölda
heimila, alla horfun allra heim-
ilismanna, til þess að átt okkur
á horfuninni." Slík fjárfcsting
hefur hingað til verið of dýr, en
Páll sagðist vona að stöðvarnar
tækju sig saman um hana í
framtíðinni. „Það
taka ábendingum
frá áhorfendum
með fyrirvara. í
kröfum um dag-
skrárefni ríkir
ákaflega mikil
óbilgirni gagnvart
öðrum. Þeir sem
setja mál sitt
fram af mestri
sanngirni og best-
um rökum eru
unglingar og
börn.“
verður að
hafa verið dæmi um uppboðs-
stríð um tiltekið sjónvarpsefni
hér á síðasta misseri."
Aðspurður hvort hætta sé á
að erlendir dreifingaraðilar
muni í framtíðinni hafa meiri
völd yfir því hvaða efni verður á
skjám íslenskra áhorfenda í
framtíðinni í kjölfar þess að
sjónvarpsstöðvunum hefur
fjölgað, kvaðst Páll ekki svo
vissum það. Þótt menn neyðist
til að kaupa misgóða pakka af
myndum og þáttum, þá sé þeim
í sjálfsvald sett hversu margar
þeirra eru settar á skjáinn.
„Fréttir eru
skemmtun“
„Fréttir manna á milli eru
skemmtiefni og hví skyldu þær
þá ekki vera það líka í fjölmiðl-
Frá tíu ára afmælisveislu íslenska útvarpsfélagsins.
Uppboðsstríð
Páll átti ekki von á að baráttan
um áhorfendur ykist gríðarlega
með tilkomu Stöðvar 3. Hins
vegar hefur samkeppnin nú
þegar hækkað verð á sjón-
varpsefni frá erlendum dreif-
um? Áhorfandinn verður að
hafa áhuga á að horfa á frétta-
tímann til enda og þess vegna
verður hann að vera spenn-
andi, skemmtilegur, sorglegur
og fræðandi,“ sagði Páll þegar
tortryggni áhorfenda gagnvart
mismunandi framsetningu sjón-
varpsfrétta bar á
góma. Hann var
hins vegar ófáan-
legur til að láta í
ljós skoðun sína á
því hvort sam-
keppnisaðilinn,
Ríkissjónvarpið,
hefði dagað uppi
í framsetningu á
fréttum, en
kímdi þó. „Víst veit ég það að
það hafa alltaf heyrst gagnrýn-
israddir um að fréttastofa
Stöðvar 2 taki pólitískt litaða
afstöðu," sagði Páll, en hann
taldi dæmin hafa sannað að af-
staðan væri ekki einlit og
fréttastofan jafn óháð peninga-
og póhtískum öflum og aðrar
fréttastofur landsins.
Reynsluleysi
rithöfunda
Lengi hafa forsvarsmenn Stöðv-
ar 2 lofað auknu innlendu dag-
skrárefni þegar hagur fyrirtæk-
isins batnaði. Enn hefur ekki
rofað til í þeim efnum, ef frá
eru taldir snöggsoðnir spjall-
þættir, en samkvæmt Páli er
bæði íslenskt leikið efni og
heimildarmyndir í sjónmáli.
Vonast er til að sum verkefnin
komist í tökur í haust og á skjá-
inn síðar á árinu. „Ég óttast að
það megi kenna bæði rekstrar-
aðilum þessa fyrirtækis og þeim
sem hafa haldið utan um sjóði
niðri í sjónvarpi um að þessi
þróun í t.d. heimildamynda-
gerð, í strangri klassískri skil-
greiningu kvikmyndafræðinnar,
skuli ekki vera komin lengra.
Þetta er ekki öll skýringin. Það
hefur ennþá ekki tekist að fá
Páll Baldvin Baldvinsson, dagskrárstjóri á Stöð 2.
rithöfunda landsins til að sinna
þessari tegund af skáldskap af
alvöru; menn eru svo uppteknir
af bókstafnum að þeir átta sig
ekki á að hann getur breyst í
mjmd.“ Það mætti velta fyrir sér
hvort íslenska þjóðin sé ekki
einfaldlega of mannfá til að
halda uppi ört vaxandi Ijár-
frekri menningu. Páll sagðist
ekki telja að við ættum að láta
dýrari menningarfyrirbæri, svo
sem sjónvarp og kvikmyndir, af-
skipt. Það væri einyrkjaeðli ís-
lenskra listamanna, m.a. kvik-
myndagerðarmanna, sem stæði
þessum iðnaði fyrir þrifum.
Kraftar kvikmyndagerðar-
manna væru of dreifðir í tugum
smárra einyrkjafyrirtækja. Með
því að slá saman í 3-4 stór fyr-
irtæki væru möguleikarnir
meiri.
Hreyfingu á loftið
„íslenska útvarpsfélagið reynd-
ist fyrst og fremst vera einhvers
konar hreyfill í íslenskri menn-
ingarsögu. Það setti atburði 1'
gang. Við áttum okkur kannski
ekki á því fyrr en eftir 30-40 ár
hvort það hefur allt verið til
góðs eða ills, enda ekki hreyfl-
inum að kenna þótt alls kyns
lofttegundir fari á hreyfingu."
LÓA
HRAFN
JÖKULSSON
ritstjúri Alþýöubladsins og
varaþingmaður
S
Eg held að Stöð 2 muni
halda sjó ,í framtíðinni og
verða æ öflugri á fjöl-
miðlamarkaðnum. Eg tala nú
ekki um á meðan Ríkisútvarpið
Hafa náð góðu
pólitísku jafnvægi
Klerkurinn sterk-
asta vopnið
er látið reka á reiðanum undir
stjórn þessa furðulega klerks.
Ég held að þeir hjá íslenska út-
varpsfélaginu biðji fyrir
áframhaldandi starfi hans á
hverjum degi,“ segir Hrafn Jök-
ulsson ritstjóri um framtíð ís-
lenska útvarpsfélagsins.
Hrafn vildi nota tækifærið og
óska íslenska útvarpsfélaginu
til hamingju með afmælið.
Hann sagði bæði Bylgjuna og
Stöð 2 hafa sett verulega mark
sitt á þróun ijölmiðla, að miklu
leyti til góðs. „Stöð 2 og Bylgjan
hafa þrátt fyrir ýmsar hremm-
ingar veitt RÚV myndarlegt og
öflugt aðhald og eiga sérstakt
hól skilið fyrir að hafa breytt
yfirbragði og áherslum í frétta-
flutningi ljósvakamiðla. Þær
hafa knúið Ríkisútvarpið til að
horfast í augu við breytta tíma,
en fréttastofa Sjónvarpsins er
þó ákaflega staðnað apparat
ennþá.“ Aðspurður um afþrey-
ingargildi Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar sagði Hrafn að það væri
ótvírætt, en að sama skapi ekki
mjög merkilegt. Dagskrá Stöðv-
ar 2 hafi aldrei höfðað til hans.
„Hún er ekki mjög metnaðar-
full. Byggist upp á rútínuþátt-
um, bandarísku framhaldsefni
og misgóðum bíómyndum. Inn-
lend dagskrárgerð hefur alltaf
verið lftil og handahófskennd
og þar ætti stöðin að taka
myndarlega á í tilefni afmælis-
ins.“
Hrafn sagði að lokum að
hann teldi erfitt fyrir nýja aðila
að brjótast inn á ljósvakamark-
aðinn af einhverjum krafti.
Stöðvar 3 dæmið sýndi það. BÞ
Guðný
Guðbjörnsdóttir
alþingismaður Kvennalista
Fréttirnar á Stöð 2 eru oft
betri en hjá RÚV, ekki síst
út frá sjónarmiði kvenna
og Reykjavíkurborgar. Hins
vegar eru fréttastofur Bylgjunn-
ar og Stöðvar 2 stundum svolít-
ið fljótar á sér hvað varðar við-
kvæm mál og það má gagnrýna
þær fyrir það. Hvað menningar-
mál varðar, finnst mér afleitt
hvað innlend dagskrárgerð er
lítil,“ segir Guðný Guðbjörns-
dóttir alþingismaður.
Guðný segir að Stöð 2-Bylgj-
unni hafi tekist betur en hún
hafi átt von á að hafa gott pólit-
ískt jafnvægi í fréttaflutningi.
Hún telur stöðu þeirra sterka,
jafnvel fullsterka. „Annars er
það ágætt. Það þurfa að vera
sterkir miðlar og ábyrgir, en ég
vonast til að þetta nýja dagblað,
Dagur-Tíminn, muni sýna að
það sé pláss fyrir íleiri á mark-
aðnum. Það vantar meiri
breidd." -BÞ