Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Blaðsíða 10
26 - Fimmtudagur 29. ágúst 1996
Jlagur-^tnnnrt
a^bei^Sér^jaö
-•°5saáöist
SiUQa
oóUJSBí
hr«igd£ * Austuriandi
. I leitifiaitiid
Áttu sprenghlægilegar myndir í ijölskyldualbúminu? í Degi-
Tímanum gefst kostur á að leyfa fleirum að njóta þeirra því
þar birtast daglega myndir frá lesendum. Veitt verða verð-
laun fyrir bestu myndirnar.
Myndirnar sendist (merktar eigendum) til Dags-Tímans,
Strandgötu 31, 600 Akureyri.
Meö eyrun sperrt heitir fyrsta myndin og er frá Bjarney
R. Jónsdóttur, Akureyri.
„...leyfið mannin-
um að ráða“
Fyrir rétt rúmlega fimmtíu
árum eða 1945 var ótrú-
legri lesningu fieytt inn á
markaðinn með bókinni Að-
laðandi er kona ánægð.
Bókin, sem er eftir leikkon-
una Joan Bennet, telur upp
leiðbeiningar um snyrtingu
og klæðnað kvenna en eins
kemur Joan inn á ráð til
þess að geðjast karlmönn-
um:
Leiðréttið aldrei karl-
mann að öðrum viðstödd-
um, málfæri hans, skoðan-
ir né setjið út á hegðun
hans eða siði.
Setjið móðurtilfinning-
una á hilluna og lcyfið
manninum að ráða þá
stuttu stund sem hann býð-
ur yður út. Þér verðið sjálf-
sagt undrandi yfiir, hve
gaman það er að láta
dekra þannig við sig.
Biðjið og forðizt kald-
hæðni. Karlmenn hata og
hafa hatað hæðni allt frá
því, er þeir voru á skóla-
bekknum; þeir hötuðu
hæðni kennarans, hæðni
konunnar geta þeir aldrei
fyrirgefið.
Kennd eða
ástleitin
Og Joan heldur áfram. Við
grípum niður í ráð um hvað
skuii gera þegar karlmaður
verður of nærgöngull við
stúlku.
Að undanteknum fáein-
um tilfellum (sem auðveld-
Iega má ráða við með dug-
legum löðrungi) geta stúlk-
ur sjálfum sér um kennt,
þær örva mennina til þess
að verða nærgöngula, en
hegða sér síðan mjög svo
bjálfalega. Níutíu og níu af
hundrað karlmönnum vilja
helzt komast hjá hvers
konar „árekstri", hvort
sem það nú er fyrir kjass
eða meiri „fríðindi“.
„Látið yður ekki í
kjass og kossa..."
Ef þér viljið komast hjá því,
að karlmaður verði
nærgönguii, sýnið það að
honum finnist þér eftir-
sóknarverð, skulið þér at-
huga eftirfarandi:
a. Drekkið ekki áfengi,
svo þér verðið kennd eða
ástleitin.
b. Sýnið manninum ekki
nein blíðuhót, þó sakleysis-
leg séu. Það kann að mis-
skiljast og er rangt gagn-
vart manninum.
c. Verið ckki kæruleysis-
leg í orðum eða gróf, til
þess að sýna hve „verald-
arvön“ þér séuð.
d. Verið ekki í einrúmi
með manninum, farið ekki
í heimsókn til hans í einka-
herbergi hans, eða í ferða-
lag með honum einum.
e. Látið yður ekki í kjass
og kossa, með þeim lykt-
um, að verða móðursjúk og
móðguð, er maðurinn held-
ur yður fúsa til fylgilags
við sig.
f. Istuttu máli sagt: Lof-
ið ekki meiru en þér viljið
efna.
Umsjón:
Marín Guðrún Hrafnsdóttir.
Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri
Viltu láta rödd þína heyrast - Hringdu virka daga kl. 10-11 - 462 4222
...KEA vill veita góða þjónstu í fínasta veitihgasal
hótelsins en rúmlega klukkustundar bið eftir for-
r rétti getur varla talist boðleg. Sérstaklega þar sem
bið eftir aðalrétti var drjúglöng líka. Skemmtilegt laugar-
dagskvöld breyttist í heldur leiða stund. 150 manna veisla í
hliðarsal er ekki afsökun fyrir lélegri þjónustu í aðalveit-
ingasalnum því slíkar uppákomur eru fyrirsjáanlegar. KEA
0, Meinhornið 1.
...Það er til fyrirmyndar að fara með börnin í
sunnudagaskólann, en tæpast guði þóknanlegt að
r skálma inn kirkjuna með farsíma af stærstu gerð
og geyma við hlið sér til þjónstu reiðubúinn ef einhver
skyldi hringja. Nema viðkomandi hafi viljað opna almættinu
alla möguleika til að ná sambandi. Guðsbarnafaðir 0, Mein-
hornið 1.
ápjaBfr - og svo eru það starfsmenn í myndabandaleigun-
um, fisksalarnir og margir aðrir sem koma óorði á
r sjálfa sig og aðra með því að slá ekki inn viðskipti
í sjóðsvélar. Viðskiptavinir eiga alltaf að fylgjast með að ekki
sé svikið undan skatti með þessum hætti og láta til sín
heyra. Hátt og snjallt yfir búðarborðið! Það virkar! Hver
borgar skatt þess sem svíkur undan? Meinhornið, hátt og
snjallt!
ísland - ruslakista fyrir ólöglegar oggallaðar vörur:
Bifreiðaeigendur í
„Matador" með Matador
Þann 14. ágúst sl. vísaði ég lögreglunni á ólöglega Matador
hjólbarða undir tengivagni vöruflutningabíls á Akureyri.
Runólfur Oddsson innflytjandi hjólbarðanna brást við þessu
atviki og umfjöllun um það, með svipuðum hætti og svindlar-
inn sem sagði: „Aðrir sv; 'dla meira en ég.“
Ólögleg reglugerð?
Runólfur lýsir þeirri skoðun sinni í Degi þann 27. ágúst sl., að
íslenska reglugerðin um búnað ökutækja mismuni erlendum
og íslenskum framleiðendum og stangist því á við EES samn-
inginn og fullyrðir jafnframt að gallaðir hjóibarðar eins og
þeir sem hann hafði á boðstólum, séu seldir um alla Evrópu.
Aðrir selja lélegri vöru en ég
í tilraun til að bera í bætifláka fyrir sína gölluðu vöru, full-
yrðir Runólfur að víða á þjóðvegum landsins séu leifar af
tættum sóluðum vörubflahjólbörðum og að slíkir vörubfla-
hjólbarðar séu notaðir undir framöxla rútubfla. Við þessari
alvarlegu vísbendingu verðum við neytendur, fólksflutninga-
fyrirtækin og yfirvöld að bregðast, en einn „glæpur“ upphefur
ekki annan, og sú staðreynd stendur óhögguð, að allstaðar
þar sem Evrópustaðallinn gildir, er bannað að nota gallaða
vöru eins og umrædda Matador hjólbarða undir bíl eða tengi-
vagn eins og þann sem stöövaöur var á Akureyri.
í leit að ólöglegum Matador hjóibörðum
Runólfur reyndi símleiðis að fá mig til að draga í land með
fullyrðingar mínar rnn að hjólbarðarnir væru ólöglegir, m.a.
með því að upplýsa mig um að fyrirtæki í eigu Eimskipafélags
íslands hf. hafi notað gallaða Matador hjólbarða undir vöru-
flutningabfla sína, og að stjórnarmenn þar á bæ séu ekkert
hrifnir af þessu framtaki mínu. Ekkert veit ég um þau „góðu“
sambönd sem Runólfur telur sig hafa við eigendur viðkom-
andi flutningafyrirtækis, né heldur gremju þeirra í minn
garð. En það mun væntanlega koma í ljós þegar þessir ólög-
legu hjólbarðar finnast, hvernig allt er í pottinn búið og hvort
fyrirtækið hafi vísvitandi verið að brjóta lög.
Staðreyndir málsins:
Matador hjólbarðarnir sem lögreglan skoðaði á Akureyri,
voru ólöglegir hvað sem innilytjandinn Runólfur Oddsson
segir. Runólfur hefur sjálfur upplýst að fleiri slíkir Matador
hjólbarðar frá sér séu í umferð. Það verða yfirvöld sem munu
skera úr um hvor só sekur um ólöglegt athæfi, seljandinn eða
kaupandinn.
Vilhjálmur Ingi.