Dagur - Tíminn - 06.09.1996, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn - 06.09.1996, Blaðsíða 5
|Dagur-®mtttm Föstudagur 6. september 1996 -17 VIÐTAL DAGSINS Peningagnótt er lukka gjaldkerans Guttomur Óskars son fréttaritari Tímans á Sauðár- króki í 40 ár s g starfaði sem aðalgjald- keri Kaupfélags Skagflrð- inga í 43 ár samfellt. Það var skemmtilegur tími, enda var aldrei þurrð í peningakassa félagsins. Það er mikil lukka hjá gjaldkera að lenda aldrei í neinum vandræðum þegar greiða þarf reikninga," segir Guttormur Óskarsson á Sauðár- króki. Um 40 ár eru liðin síðan Sauðkrækingurinn Guttormur Óskarsson gekk í björg með Tímanum og gerðist fréttaritari blaðsins í sinni heimabyggð. Þá hafði Jón Helgason, ritstjóri Tímans, samband við Guttorm og bauð starfið sem hann hefur gengt með sæmd allt fram á þennan dag - og mun áfram gera. María Björk Ingvadóttir á Sauðárkróki mun þó að mestu annast fréttaöflun fyrir Dag- Tímann á staðnum - og af öllu Norðurlandi vestanverðu. Framsóknarmaður uppá gamla móðinn „Já, þetta byrjaði með því að Jón Helgason hringdi í mig og bauð mér að taka þetta að mér - sem ég og gerði. Við þekkt- umst frá því ég starfaði í fræðsludeild Sambands ís- lenskra samvinnufélaga á árun- um 1944 til 1946, þá undir stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem seinna varð forsætisráð- herra og þingmaður Framsókn- ar hér í kjördæminu. Farsæll leiðtogi sem naut almenns trausts," segir Guttormur, sem sagður er framsóknarmaður uppá gamla móðinn. Ósagt skal um það látið, en hitt er annað mál að um liðna helgi fór hann í Varmahlíð og sótti í 54. sinn héraðsmót Framsóknar á Norð- urlandi vestra. Ekki er vitað um aðra sem sýnt hafa viðlíka tryggð þessum samkomum, sem Guttormur segir alla tíð hafa einkennst af „ ... góðum anda og almennri glaðværð," svo notuð séu orð hans sjálfs. í læri hjá Erlingi „Mér hefur alla tíð fallið vel við starf fréttaritarans. Það hefur gefið mér mörg tækifæri til að kynnast mönnum, málefnum og athafnalífi hér í Skagafirði, tækifæri sem ég hefði ekki annars fengið. Það var svo fljót- lega eftir að ég hóf störf hjá Tímanum að Erlingur Davíðs- son, sem þá var ritstjóri Dags, fékk mig til starfa hjá sér. Það var ekki síður skemmtilegt en að starfa hjá Tímanum - og stundum segi ég að það sem ég kunni í blaðamennsku hafi ég lært hjá Erlingi á Degi. Hann var skemmtilegur maður. Einhverju sinni hringdi ég til hans og hafði yfir í símanum frétt um útskrift nemenda í Iðn- skólanum á Sauðárkróki. Þar varð efstur á prófum Frosti Frostason frá Frostastöðum hér í Skagafirði. Þá varð Erlingi að orði: „Mikið heitir þessi piltur kaldraralegu nafni.“ Nei, ég minnist engra sérstakra frétta á mínum ferli í þessu fréttaritara- starfi sem eru mér sérstaklega minnisstæðar, þegar ég lít til baka,“ segir Guttormur. Gamlir menn eru vanafastir Guttormur segir að sérstaklega hafi verið á orði haft hve Dagur hafi verið vel skrifað blað þegar Erlingur Davíðsson ritstýrði því, og skrifaði reyndar að mestu leyti einnig. „Nóbelskáldið okkar, Halldór Laxness, sagði einhverntímann að Dagur væri best skrifaða blað landsins. Já, ég held að ég geti verið honum sammála í því efni. Sömuleiðis átti Tíminn á sínum bestu árum marga afar góða blaðamenn og snjalla, svo sem þá Jón Helgason, Andrés Kristjánsson, Þórarinn Þórar- insson og vin minn og sýslunga Indriða G. Þorsteinsson, sem ég hef þekkt allt frá barnæsku hans. Bæði Dagur og Tíminn hafa alla tíð verið mjög virkir þátt- takendur í lífi og starfi íslenskr- ar þjóðar," segir Guttormur - sem bætir því við að sér finnist hið nýja sameinaða blað nokk- uð gott. „Hitt er svo annað mál að gamlir menn eins og ég eru alltaf vanafastir. En ef breyting- arnar á blöðunum eru í takt við lífið í landinu er þetta allt x góðu lagi. í veröldinni er allt breytingum háð.“ -sbs. „Mér hefur alla tíð fallið vel við starf fréttaritarans. Það hefur gefið mér mörg tækifæri til að kynnast mönnum, málefnum og athafnalífi hér í Skagafirði,“ segir Guttormur Óskarsson m.a. hér í viðtalinu. Blessuð börnin Halldórsdóttir / morgun þegar við vöknuðum var haustlykt af golunni - eitt gult blað á öspinni og við sem vissum varla hvert sumarið fór.... að sem er efst í huga mér á þessum síðsumardögum er reyndar ekki vandi þjóðarbúsins á nokkurn hátt eða hörmungar úti í heimi, aldrei slíku vant, heldur það sem stendur hjartanu næst og eru mín eigin börn og það er að skólinn er að byrja eftir sumar- frí. Allt í einu rann það upp fyr- ir mér á miðju sumri að ég á nú tvö börn á skólaaldri og litla stúlkan mín, sem hefur beðið og beðið í tvö ár eftir því að fylgja bróður sínum í skólann, er nú komin með skólatösku á bakið, íþróttatösku í aðra hend- ina og blokkflautu í hina á leið inn í ævintýraheiminn, sem fram að þessu hefur verið henni að mestu hulinn, skól- ann! Og ég velti því fyrir mér hvort sé erfiðara, að vera for- eldri og sleppa barninu af stað í skólann, eða að vera sex ára og byrja í skóla. Ég er hreint ekki viss. Af umræðunni að dæma er ekkert sem gengur upp í skóla- kerfinu. Kennarar hafa ekki nægileg laun til þess að vilja vera kennarar, og kennarar vilja helst ekki fara út á land að kenna dreifbýlisbörnum. Bxíið er að færa grunnskólana frá ríkinu yfir á sveitarfélögin, svo nú getum við sagt „skólarnir okkar“, en þá sögðu einhverjir kennarar og skólastjórar upp og vildu ekki vinna við svoleiðis aðstæður. Reynt hefur verið að stofna skólamálaskrifstofur út um allt í stað fræðsluskrifstof- anna, en ekkert gengur að manna þær allai’, alltjent ekki enn. Og oddvitanefndir, bæjar- og sveitarstjórnir að ógleymd- um sjálfum skólanefndunum og foreldrafélögunum, allt þetta fólk situr sveitt og uppgefið yfir endalausri vinnu að skólamál- unum, skólakerfinu. Og allt í þágu blessaðra barnanna, sem þurfa svona stórt batterí til þess að geta byrjað og endað farsællega í skóla. Úff! hugsa ég og hrylli mig yfir morgunkaffinu. Af hverju finnst mér alltaf að málin séu ekki í réttri forgangsröð? Sjálf- sagt eina foreldrið á landinu sem finnst meira áríðandi að börnin hafi góðan leikvöll, tón- listarnám inni í stundatöflunm og viðunandi hvíldaraðstöðu, nú og aukna áherslu á verk- mennt en þurrt bóknám daginn út og inn, ásamt því að læra að fylla út skattskýrslur og halda ræður og tjá sig, heldur en það þurfi mörg stöðugildi af sál- fræðingum á skólamálaskrif- stofuna. Ég kem alltaf að sama punkti í vangaveltum mínum: af hverju eru börnin ekki sjálf spurð? Til dæmis látin vinna þemaverk- efni, hvernig viljum við hafa leikvöllinn okkar, skólann okk- ar, hvað viljum við gera í smíð- um, í hvernig vettvangsferðir viljum við sjálf fara? Kannski fáum við fullorðna fólkið þá líka spurrúngu eins og: Af hverju er alltaf verið að mata okkur? Börn eru nefni- lega uppáfinningasöm eins og allir foreldrar vita og varhuga- vert að reyna að steypa þau öll í sama mótið. Mér hlýnaði veru- lega um hjartarætur þegar fréttir bárust af verkefni sem leikskólabörn á Blönduósi unnu og er nú orðið frægt. Þau fundu að sjálfsögðu einföldustu lausn- ina, fluttu bara rækjuvinnsluna niður á bryggju þar sem hún getur verið í friði og fólk haft frið fyrir henni. Svona fréttir eru því miður ekki algengar. En allar þær umræður um skólamál við vini og kunningja, allar þær ímyndanir og spurn- ingar sem venjulegt foreldri veltir fyrir sér taka ekki úr manni kvíðann þegar að alvör- unni er komið og klukkan er orðin hálfátta á morgnana og tími kominn til þess að vekja þau stuttu, svo þau geti náð skólabílnum. Hvað verður um litla, óstýriláta stúlku í ævin- týraheiminum? Verður henni strítt, kannski lögð í einelti? Skemma stóru krakkarnir allt fyrir þeim litlu, eins og þegar ég var í skóla, eða er kannski einhver gæsla? Hvernig skyldi öryggis barnanna vera gætt? Skyldu vera belti í skólabflun- um? Hver hjálpar þeim í sturt- unni? í matsalnum? Þegar ég kyssi þau bless í morgunskímunni, horfir htla daman á mig athugul, klyfjuð af töskum og alls kyns skólavarn- ingi, og sjálfsagt sér hún eymd mi'na og kvíða: „Þetta er allt í lagi, mamma, við verðum kom- in heim aftur klukkan hálffjög- ur.“ ... kannski feykti golan því burtu þegar börnin fóru í vinnuna með tösku - og fuglarnirflugu heim.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.