Dagur - Tíminn - 06.09.1996, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn - 06.09.1996, Blaðsíða 10
22 - Föstudagur 6. september 1996 ©agur-CQntmn Bréfleiðis... Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 88,602 Akureyri Skólaþjónusta Eyþings - störf sáUræðinga Skólaþjónusta Eyþings tók formlega til starfa fyrir rúm- um mánuði síðan. Samkvæmt Lögum um grunnskóla nr. 66/1995 er henni ætlað margvíslegt hlutverk. Fyrst er talin almenn og greinabundin kennsluráðgjöf svo og námsráðgjöf og sálfræðiþjónusta. Samkvæmt stofnsamningi er henni ennfremur ætlað að sinna þróunar- og nýbreytni- starfi, endur- og símenntun kennara, skýrslugerð og upp- lýsingagjöf fyrir sveitarfélög og loks úrvinnslu á vinnu- skýrslum kennara. Frá 1. janúar 1997 á stofnunin enn- fremur að sinna sérfæðiráðgjöf við leikskóla í umdæminu. Helga Dögg Sverrisdóttir lýsir áhyggjum sínum í Degi Tímanum 4. sept. yfir því að Skólaþjónustan skuli ekki hafa á að skipa sálfræðingi. Hún vekur um leið athygh á ný- stofnuðu félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga og telur að einfalt sé fyrir Skólaþjónustuna að ganga til samninga við félagið. Vegna greinar Helgu telur Skólaþjónustan sér bæði rétt og skylt að gera örlitla grein fyrir hvernig málum hennar er háttað um þessar mundir. Stofnunin hefur nú á að skipa sex starfsmönnum í fimm og hálfu stöðugildi en alls er um níu stöðugildi að ræða. Þrír starfsmanna eru kennslufræðingar, með framhalds- menntun í skólaþróun, kennaraþróun og skólastjórnun. Tveir starfsmanna eru með tveggja ára framhaldsmenntun í sérkennslu með áherslu á alvarlega fötlun, lestrarerfið- leika og almenna námserfiðleika. Einn starfsmanna er kennari og landfræðingur og loks má telja vel menntaðan ritara. Það er rétt hjá Helgu að þrátt fyrir að margoft hafi verið auglýst eftir sálfræðingum til starfa hefur ekki enn tekist að ráða í stöður þeirra. Sérfræðiþjónusta skóla þarf að hafa meðal starfsmanna sinna góða sálfræðinga, annars vegar til þess að vinna fyrirbyggjandi starf með skólafólki og hins vegar til þess að veita liðsinni í málum barna sem geta búið við erfiðleika af margvíslegu tagi. Nú er það svo að enn sem komið er hefur engin beiðni um sálfræðiþjónustu borist til Skólaþjónustunnar frá skól- um á Norðurlandi eystra. Þegar slíkar beiðnir berast munu þær fá sömu afgreiðslu og aðrar beiðnir, þ.e. að Skólaþjón- ustan mun leita allra leiða til þess að útvega þá sérfræði- ráðgjöf sem völ er á. Helga bendir á félagið Reyni sem hentugan viðskiptaaðila fyrir Skólaþjónustuna. Víst er að þeir sálfræðingar sem hafa stofnað félagið búa yfir mikilli reynslu af skólatengdri sálfræðiráðgjöf. Það er því hugsan- legt að Skólaþjónustan muni leita eftir Uðsinni þeirra eða starfsbræðra þeirra í umdæminu þegar þar að kemur. Skólaþjónustan býr við það eins og önnur fyrirtæki að henni er settur ákveðinn íjárhagsrammi. Verði gengið til samninga við sálfræðinga hjá félaginu Reyni mun einn mannmánuður kosta mun meira en hjá sálfræðingi sem ráðinn yrði í fullt starf að Skólaþjónustunni sem sérfræð- ingur. Skólaþjónusta Eyþings hefur að vísu aldrei fengið bréf frá félaginu Reyni en samkvæmt bréfi frá einum þeirra sem standa að félaginu hefur hann boðist til að selja þjón- ustu sína á verktakataxta. f því bréfi segir m.a. Taxti sál- fræðinganna er kr. 3.500.- pr. tíma. Miðað er við unnar 45 mín. af hverjum klukkutíma, enda er ekki greitt sérstak- lega fyrir kaffi- og matartíma. Hugsanlega má deila um einhver smáatriði ef farið er í samanburð við kostnað Skólþjónustu af fastráðningu en í grófum dráttum virðist mismunurinn geta verið íjórfaldur. Skólaþjónustan hefur ekki þá Qármuni úr að spila að hún geti gengið til fastra samninga á þeim nótum. Hugsanlega má deila um einhver smáatriði ef gerður er samanburður á kostnaði Skólaþjónustunnar af fastráðningu sálfræðinga annars vegar og verktakasamningi við þá hins vegar. í grófum dráttum virðist mismunurinn geta verið íjórfaldur þannig að verktakasamningur kostaði ekki undir kr. 600.000 á mánuði fyrir einn starfsmann. Skólaþjónust- an hefur ekki úr þeim íjármunum að spila að hún geti gengið til fastra samninga á þeim nótum. Það er ásetningur Skólaþjónustu Eyþings að hafa á að skipa fjölhæfu og menntuðu starfsliði. Vonandi ber framtíð- in það í sér að við getum auk sálfræðinga ráðið til okkar starfsstéttir eins og talmeinafræðinga, iðjuþjálfa, námsráð- gjafa og jafnvel fleiri. Þegar sérfræðiþjónusta er veitt liggur það oft í hlutarins eðli að sérfræðingar, starfslið skóla og foreldrar þurfa að leggjast á eitt til þess að koma málum í höfn. Skólaþjónustan vill fullvissa Helgu Dögg og aðra foreldra um einlægan vilja til að veita börnum þeirra og starfsliði skóla alla þá aðstoð sem unnt er. F. h. Skólaþjónustu Eyþings, Jón Baldvin Hannesson forstöðumaður. ísland - ruslakista fyrir gallaðar vörur Bifreiðaeigendur í Matador með Matador Þann 14. ágúst sl. vísaði ég lögreglunni á ólöglega Matador hjólbarða undir tengivagni vöruflutningabíls á Akureyri. Runólfur Oddsson innflytjandi hjólbarð- anna brást við þessu atviki og umíjöllun um það, með svip- uðum hætti og svindlarinn sém sagði: Aðrir svindla meira en ég. Ólögleg reglugerð? Runólfur lýsir þeirri skoðun sinni í Degi þann 27. ágúst sl., að íslenska reglugerðin um búnað ökutækja mismuni er- lendum og íslenskum framleiðendum og stangist því á við EES samninginn og fullyrðir jafnframt að gallaðir hjólbarð- ar eins og þeir sem hann hafði á boðstólum, séu seldir um alla Evrópu. Aðrir selja lélegri vöru en ég í tilraun til að bera í bætifláka fyrir sína gölluðu vöru, full- yrðir Runólfur að víða á þjóðvegum landsins séu leifar af tættum sóluðum vörubflahjólbörðum og að slfldr vörubfla- hjólbarðar séu notaðir undir framöxla rútubfla. Við þessari alvarlegu vísbendingu verðum við neytendur, fólksflutninga- fyrirtækin og yfirvöld að bregðast, en einn glæpur upphefur ekki annan, og sú staðreynd stendur óhögguð, að allstaðar þar sem Evrópustaðallinn gildir, er bannað að nota gallaða vöru eins og umrædda Matador hjólbarða undir bfl eða tengivagn eins og þann sem stöðvaður var á Akureyri. í leit að ólöglegum Matador hjólbörðum Runólfur reyndi símleiðis að fá mig til að draga í land með fullyrðingar mínar um að hjólbarðarnir væru ólöglegir, m.a. með því að upplýsa mig um að fyrirtæki í eigu Eimskipafé- lags fslands hf. notaði gallaða Matador hjólbarða undir vöruflutningabfla sína, og að stjórnarmenn þar á bæ séu ekkert hrifnir af þessu framtaki mínu. Ekkert veit ég um þau góðu sambönd sem Runólfur telur sig hafa við eigendur viðkomandi fluttningafyrirtækis, né heldur gremju þeirra í minn garð. En það mun væntanlega koma í ljós þegar þessir ólöglegu hjólbarðar finnast, hvern- ig allt er í pottinn búið og hvort fyrirtækið hafi vísvitandi verið að brjóta lög. Staðreyndir málsins: Matador hjólbarðarnir sem lögreglan skoðaði á Akureyri, voru ólöglegir hvað sem innflytjandinn Runólfur Oddsson segir. Runólfur hefur sjálfur upplýst að fleiri slfldr Matador hjólbarðar frá sér séu í umferð. Það verða yfirvöld sem munu skera úr um hvor sé sekur um ólöglegt athæfi, selj- andinn eða kaupandinn. Vilhjálmur Ingi "I 1 erðaskrifstofur hér á landi hafa nýverið auglýst útsölur á ákveðnum ferðum sem JL boðið hefur verið uppá í sumar og ekki ' hafa selst. Ekki er unnt að panta þær nema mæta á staðinn og því ætti flestum að vera það ljóst að ferð- irnar eru ekki á boðstólnum fyrir Jón og Gunnu sem búa ekki á suð-vesturhorninu. Hvað er verið að hugsa? T^að má skjóta því að í Meinhorninu að mjög 4P3P I Jerfitt getur verið að ná í framkvæmda- JL stjóra stórfyrirtækja, þingmenn og ýmsa ' „málsmetandi“ menn í þjóðfélaginu. Þeir ættu að vera meira á skrifstofunum sínum. T^að er ótrúlega hvimleitt þegar farið er í I 3 matvöruverslanir og vörurnar eru ekki Zr ÆT verðmerktar. Þetta er sérstaklega áber- andi í matvöruverslun KEA í Byggðavegi á Akur- eyri. Þar eru oft á tíðum flennistórar auglýsingar um tilboð á vörum en svo vantar verðmerkingarnar á þær sjálfar. Einnig kemur það stundum fyrir að verðið sem gefið er upp á vörum er ekki það sama og er slegið inn í kassann. Þessu þarf að kippa í liðinn. Heilbrigð sál Haustið er sá tími þegar íbúar landsins byrja á hefðbundnu tómstunda- og íþróttastarfi sem gjarnan fylgir skamm- deginu. Ýmsir klúbbar og félagasamtök vakna úr sumardvala og er bridgebreyfingin þar á meðal. Uppáhaldstóm- stundagaman undirrit- aðs er einmitt bridge en mikil vakning hefur átt sér stað innan hreyfing- arinnar síðustu ár sem má öðru fremur þakka glæsilegri heimsmeist- artign íslendinga árið 1991. Heilbrigð sái... Oft er bridgespilurum legið á hálsi fyrir að eyða frístundunum í spil. Þegar maður reyn- ir að útskýra kosti þess- arar hugaríþróttar heyrist gjarnan: „Held- urðu að það væri ekki nær að hreyfa sig eitt- hvað, spila fótbolta til dæmis.“ Það hefur því hlaðist upp hjá undirrit- uðum ákveðin sektar- kennd þegar bridge er annars vegar, Heilbrigð sál í hraustum líkama og seiseijá. Mesta happið Eða þannig hugsaði ég uns ég var svo heppinn að lenda í bílslysi í sum- ar. Sér kapítuli reyndar að stúlkukindin sem keyrði mig í klessu sá sérstaka ástæðu til að taka fram í lögreglu- skýrslu: „Þetta er í fyrsta sinn sem ég keyri á“ (hún var búin að vera með bflprófið í 3 mánuði) en þetta er nú útúrdúr. Hvað um það, að skýrslutöku lokinni lá leiðin á slysó og eftir þá heimsókn hef ég ekki fundið fyrir bridge- móralnum. Biðstofan var nefnilega full af „heilbrigðum sálum í hraustum líkömum", nema að líkamarnir voru sundurtættir, snúnir, marnir og blóð- ugir. Eitt áttu allir þeirra sameiginlegt: Fótboltaskó! Umsjón: Björn Þorláksson.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.