Dagur - Tíminn - 10.09.1996, Blaðsíða 3
|DagurJðImTOm
Þriðjudagur 10. september 1996 -15
LÍFIÐ f LANDINU
Hagsmunir fórnarlamba
fótum troðnir?
Til eru íslensk lög frá 1938 sem heimila
svokallaða afkynjun kynferðisafbrotamanna.
Afkynjun er þegar kynkirtlar karla eða kvenna
eru numdir í burtu eða þeim eytt þannig að
starfsemi þeirra Ijúki að fullu. Þessum
aðgerðum hefur aldrei verið beitt þrátt fyrir
kröfur tiltekinna lögmanna og má þar
sérstaklega rifja upp 10 ára gamalt mál þegar
þjóðin klofnaði í tvennt í kjölfarið á kröfu
Svölu Thorlacius lögmanns um að alræmdur
kynferðisafbrotamaður yrði vanaður.
s
síðustu viku voru samþykkt
lög í Kaliforníu um vönun
barnaníðinga eftir annað
brot þeirra. Hrottafengnar
fregnir frá Belgíu og vxðar af
barnaklámi, misþyrmingum og
morðum misnotaðra barna,
hafa vakið upp reiði og óhug
hérlendis sem annars staðar.
Framleiðsla barnakláms á ís-
landi hefur ekki svo vitað sé
orðið að veruleika en siíjaspell
og kynferðisleg afbrot eru stað-
reyndir hér sem annars staðar
og telja sumir að fyrr á öldum
hafi smæð þjóðfélagsins og upp-
lýsingaskortur beinlínis aukið
Qölda slíkra mála. Margt bendir
einnig til að nokkurs konar
miðaldamyrkur hafi legið yfir
kynferðisafbrotum allt fram á
9. áratuginn og hagsmunir
fórnarlambanna ekki alltaf set-
ið í öndvegi.
Hörð viðbrögð
Svala Thorlacius mætti hörðum
viðbrögðum eftir að hún skrif-
aði greinina í Morgunblaðið fyr-
ir 10 árum. Hún gekk í stuttu
máli út á að sýna að stoð væri í
lögum til að beita þessari refs-
ingu, enda mat hún afbrot við-
komandi það alvarleg og mörg
að engin lausn dygði önnur.
„Það varð mjög mikið uppi-
stand. Menn risu margir upp og
lagaprófessorar viðruðu þá
skoðun sína að þeir teldu hrika-
legt að tala um vönunaraðgerð-
ir á fólki. Minna var talað um
fórnarlömbin sem verða fyrir
þessum mönnum. Þeim virtist
síður vorkennt,“ segir Svala.
Lögin eru frá 1938 undir
nafninu Læknisaðgerðir og
læknismeðferð. Þar segir m.a.:
„Afkynjun skal því aðeins leyfa
að gild rök liggi til þess að
óeðlilegar kynhvatir viðkom-
anda séu líklegar til að leiða til
kynferðisglæpa eða annarra
hættulegra óbótaverka, enda
verði ekki úr bætt á annan
hátt.“ Landlæknir þarf að veita
umsögn og lögreglustjóri að
samþykkja að undangengnum
dómsúrskurði.
Svala Thorlacius.
„Það varð mjög
mikið uppistand.
Menn risu margir
upp og laga-
prófessorar
viðruðu þá skoðun
sína að þeir teldu
hrikalegt að tala
um vönunar-
aðgerðir á fólki.
Minna var talað
um fórnarlömbin
sem verða fyrir
þessum mönnum.
Áhrif nasismans
„Það komst m.a. í umræðuna á
sínum tíma að þessi lagasetning
hefði verið undir áhrifum frá
nasistum," segir Svala.
En hefur hún efast um á
þeim 10 árum sem liðin eru að
krafa hennar hafi verið rétt-
mæt? „Nei. Ef þetta hefði náð
fram að ganga gagnvart þess-
um tiltekna manni þá væru
fórnarlömb hans væntanlega
færri en raun ber vitni á þeim
10 árum sem liðin eru.“
Svala er ennfremur svartsýn
á að fyrrgreindri lagaheimild
verði nokkru sinni beitt. „Mér
finnst það mjög ósenrúlegt. Það
virðist vera litið þannig á að
skerðingin á mannréttindum
kynferðisafbrotamannanna vegi
þyngra en hagsmunir fórnar-
lambanna. Ég get a.m.k. ekki
skilið það öðruvísi.“
Ríkissaksóknari fór
fram á vönun
Hallvarður Einarsson ríkissak-
sóknari gerði eitt sinn tilraun í
ákæru til að fara fram á að
ákveðinn einstaklingur yrði
vanaður. „Það eru áratugir síð-
an og þeirri kröfu var hafnað.
Ég veit ekki hvort önnur dæmi
eru um þessa kröfu í málshöfð-
un eða málatilboði ákæruvalds
en ég taldi þetta mál mjög al-
varlegt,“ segir Hallvarður.
Egill Stephensen saksóknari
segir að vönun sé aðferð sem
ekki sé tíðkuð í nútíma réttar-
ríkjum og þær þyki ekki mann-
úðlegar. Hann staðfestir þó að
fyrrgreindur þáttur laganna frá
1938 sé enn í gildi en ekki sem
hluti af refsingu heldur fyrir-
byggjandi aðgerðir að tilhlutan
heilbrigðisyfirvalda. Hvað sem
því líður og skilgreiningu hug-
taka, er þess sennilega að
vænta að þjóðir heims muni
þyngja refsiramma siim gagn-
vart barnaníðingum og finnst
mörgum túnabært.
Björn Þorláksson.
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 24. útdráttur
1. flokki 1990 - 21. útdráttur
2. fiokki 1990 - 20. útdráttur
2. flokki 1991 - 18. útdráttur
3. flokki 1992 - 13. útdráttur
2. flokki 1993 - 9. útdráttur
2. flokki 1994 - 6. útdráttur
3. flokki 1994 - 5. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. nóvember 1996.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í DV þriðjudaginn 10. september.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi í
Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni
á Akureyri, (bönkum, sparisjóðum og verðbréfa-
fyrirtækjum.
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
I 1 HÚSBRÉFADEILÐ • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKlAVlK • SlMI 569 690