Dagur - Tíminn - 10.09.1996, Blaðsíða 11
JDagur-'ðKmom
Þriðjudagur 10. september 1996 - 23
FÍNA FRÆGA FÓLKIÐ
Rekur afbrýði-
semin Pitt upp
að altarinu?
Brad Pitt og Gwyneth
Paltrow hafa verið undir
smásjá blaðasnápa síðan
þau byrjuðu saman fyrir rúmu
ári og með reglulegu millibih
birtast fréttir með flennifyrir-
sögnum um að parið ætb að
ganga í það heilaga. Sú frétt
birtist enn einu sinni á dögun-
um og ástæðan var sögð sú að
John F. Kennedy yngri væri
farinn að sýna Gwyneth mikinn
áhuga og Brad væri farinn að
ókyrrast. JFK hefur sent henni
blómvendi og skilið eftir ótal
skilaboð á símsvaranum við
litla hrifningu leikarans en
þrátt fyrir að Gwyneth haf! út-
skýrt fyrir honum að JFK vilji
bara fá hana til að prýða for-
síðu tímarits sem JFK ritstýrir
þá hugsar Brad piparsveinin-
um JFK þegjandi þörfina. Gwy-
neth varð að lofa kærastanum
bráðlynda að hitta aðdáandann
aldrei og ekki svara skilaboð-
unum. Annars er það af parinu
að frétta að Gwyneth, sem
loksins er farin að vekja athygli
fyrir leikhæfileika sína en ekki
bara fyrir að vera kærastan
hans Pitt, var ekki par ánægð
með framleiðendur væntan-
legrar myndar með henni í að-
alhlutverki. Myndin átti upp-
haflega að heita Sydney en nú
hefur nafninu verið breytt í
Hard Eight og finnst henni nýja
nafnið hljóma eins og nafn á
klámmynd og vill hún síður
vera kennd við slíkar myndir.
Gwyneth Paltrow og Brad Pitt fá engan frið fyrir nærgöngulum Ijósmynd-
urum og eru stöðugt undir smásjá fréttamanna.
Cindy stendur í ströngu
Teitur Þorkelsson
skrifar
Kvennabúr
Soldánsins
úsund og eina nótt las ég í
fyrsta skipti þegar ég var
lítill. Æ síðan hef ég verið
hálf veikur fyrir hugmyndinni
um að eiga kvennabúr.
Marmaraklæddur súlnasalur,
fylltur legubekkjum, silkipúðum
og flauelsvoðum, þar sem tugir
og hundruðir kvenna af öllum
stærðum og gerðum baðast,
núa á sig ilmolíum og bíða eftir
mér. Þessi íburður, mýktin og
ilmandi kvennahópurinn virð-
ast eiga í fleiri sálir að venda
því langflestir karlmenn sem ég
þekki hafa látið í ljósi einhvers-
konar drauma um að sofa hjá
fleiri en einni konu í einu. Fyrir
þeim flestum virðist þetta liggja
í hlutarins eðli, „Auðvitað, hver
vill það ekki“ eða „Pað er nokk-
uð sem ég verð að prófa áður
en ég dey“ er mér svarað þegar
ég spyr hvort menn eigi sér
slíkan draum. Að vísu þekki ég
nokkra sem neita því alfarið,
segja að þeir gætu ekki einbeitt
sér ef þeir væru með mörgum
konum, ein kona sé nóg fyrir
þá. En það virðist vera hörgull
á konum sem hafa áhuga á að
vera í kvennabúrinu. Og það er
ekki fyrr en karlmaðurinn lítur
í eigin barm að hann kemst að
því hvers vegna. Að veltast um
með ótal öðrum karlmönnum
sem alhr eru að reyna að þókn-
ast einu og sömu konunni er
nefnilega ekki alveg eins spenn-
andi og að vera í sporum
soldánsins.
Ástarkveðja, Teitur.
Langar upp að
altarinu.
Ofurfyrirsætan Cindy
Crawford hefur í nógu að
snúast. Auk þess sem hún
er eftirsóttasta og dýrasta fyrir-
sæta heims hefur hún reynt fyr-
ir sér í kvikmyndaleik, gefið út
líkamsræktarmyndbönd og
stjórnað sjónvarpsþáttum. Nú
ætlar hún að reyna fyrir sér á
enn einum vettvangnum því
fréttir herma að hún hafi gert
risasamning um að skrifa bók.
Þetta er þó enginn spennutryllir
heldur fræðirit um andlitsfarða.
Bókin er væntanlega í október
og ber heitið Cindy Crawford’s
Basic Face: A Makeup Work-
book. Ég hef verið svo heppin
að vinna með færasta förðunar-
fólki tískubransans og ég hef
safnað saman ýmsu fróðlegu,
segir Cindy.
Fyrirsætan stendur einnig í
ströngu í einkalífinu og vinir
hennar segja að stúlkan sé far-
in að þrá að eignast eiginmann
og barn. Nýjustu fréttir herma
að hún sé búin að taka saman
við gamlan kærasta, kráareig-
andann Randy Gerber, og ekki
sé langt að bíða þar til þau
haldi upp að altarinu. Cindy
sleit sambandi sínu við leikar-
ann Val Kilmer eftir að í ljós
kom að kauði hafði engan
áhuga á að ganga í það heilaga.
Kilmer hefur undanfarið sést í
fylgd með leikkonunni Eliza-
beth Shue, sem leikur á móti
honum í væntanlegri mynd, The
Saint, og Cindy ber ekki mjög
hlýjan hug til Shue. Hún hefin-
gert tískuhönnuðum það full-
ljóst að ef þeir bjóða Shue á
tískusýningar sínar í framtíð-
inni mun Cindy ekki sýna föt
þeirra.
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík
Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616
ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tiiboðum í
verkið „Mælaskipti".
Verkið felst í því að skipta um mæla í Reykjavík. Alls er
um að ræða um 13.200 mæla. Verkinu skal lokið fyrir
15. desember 1998.
Útboðið er opið fyrir alla pípulagningameistara, sem
Iðggildingu hafa í Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: Þriðjud. 17. sept. nk. kl. 14.00 á sama
stað. Nnr. 125/6.
Fundarboð
M Sjálfstæðisfélag Akureyrar
heldur fund í Kaupangi v/Mýrarveg miðvikudaginn 11.
sept. 1996 kl. 20.30.
Dagskiá:
Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins 10.-13. okt.
1996.
Stjórnin.
Fundarboð
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
á Akureyri
heldur fund í Kaupangi v/Mýrarveg miðvikudaginn 11.
sept. 1996 kl. 21.00.
Dagskrá:
Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins 10.-13. okt.
1996.
Stjórnin.
Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur
auglýsir lausar stöður
við grunnskóla Reykjavíkur
Álftamýrarskóli - tónmenntakennari.
Tónmenntakennara vantar í 'A stöðu.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í
síma 568 6588.
Árbæjarskóli - sérkennari.
í Árbæjarskóla vantar sérkennara í fullt starf við nýtt
sérkennsluúrræði.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í
síma 567 2555.
Foldaskóli - smíðakennari.
í Foldaskóla vantar smíðakennara í fullt starf vegna
skyndilegra forfalla. Reynsla af nýsköpunarstarfi æski-
leg.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í
síma 567 2222.
Hamraskóli - sérdeild fyrir einhverfa.
í sérdeild Hamraskóla vantar þroskaþjálfa í fuilt starf.
Þar vantar einnig stuðningsfulltrúa í hálft starf.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í
síma 567 6300.
Starfsfólk skóla vantar í eftirtalda skóla borgarinnar:
Árbæjarskóla, Engjaskóla, Hlíðaskóla og Voga-
skóla.
Störfin eru meðal annars fólgin í gangavörslu, gang-
brautarvörslu og stuðningi við nemendur.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar
viðkomandi skóla.
Umsóknir berist skólastjórum eða Ingunni Gísladóttur,
deildarstjóra starfsmannadeildar Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur, Tjarnargötu 12.
Umsóknarfrestur er til 13. september.
6. september 1996.
Fræðslustjórinn í Reykjavík.