Dagur - Tíminn - 14.09.1996, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn - 14.09.1996, Blaðsíða 7
IDagur-ÍIImrám Laugardagur 14. september 1996 - 7 Fiskvinnslan Skuldir í sjávarútvegi Aðalfundur Samtaka fisk- vinnslustöðva var haldin í skíðaskálanum í Hveradölum í gær. Auk skýrslu formanns stjórnar, Arnar Sigur- mundssonar, voru flutt erindi um laun og launakostnað í fisk- vinnslu, stöðu fiskvinnslu á ís- landi og í Noregi, Evrópusam- bandsmarkaðinn o.fl. í erindi Arnars kom m.a. fram að heildaraflinn á nýaf- stöðnu fiskveiðiári sé áætlaður rúmlega 1.950 þúsund lestir sem er mesti afli íslandssög- unnar. Þrátt fyrir það var þorskafli í lágmarki, eða 168 þúsund tonn upp úr sjó. Hrá- efnisverð hafi sveiflast verulega á árinu, hækkað um 1% í þorski en lækkað um .8% í ýsu en hækkað um 12% á. karfa en minna í öðrum tegundum. Hrá- efniskostnaður hefur sveiflast mjög eftir vinnslugreinum, er 50-70% af tekjum. „Ef marka má yfírlýsingar nokkurra forystumanna innan ASI að undanförnu er ljóst að verkalýðsfélög munu gera kröf- ur um stórfelldar Iaunahækk- anir í næstu kjarasamningum, eða um 20-30% hækkun á taxtakaup. Aðstæður fyrirtækja til þess að greiða hærri laun eru mjög misjafnar og þar hef- ur fiskyinnslan sérstöðu. Fisk- vinnslan í heild er rekin með verulégu tapi og getur ekki tek- ið á sig hækkun launakostnað- ar, en hann er nú 10-25% af tekjum, hæstur í frystingu botn- fisktegunda og þar er afkoman lökust. Verði niðurstaða kjara- samninga miklar launahækkan- ir er alveg víst að áframhald verður á þeirri þróun að fryst- ing botnfisks færist í auknu mæli yfir á frystitogara og vinnsla í landi dregst saman,“ sagði Arnar Sigur- mundsson. Ileifdarskuldir í sjávarútvegi er áætlaðar 107 millj- arðar króna sam- kvæmt upplýsing- um Seðlabankans og eru um 43 millj- arðar króna bundnir í innlend- um skuldum. Út- flutningsverðmæti sjávarafurða á síðasta ári voru 87 milljarðar króna og fyrstu sex mánuði þessa árs rúmir 56 milljarðar króna og stefnir í 92 milljarða króna á þessu ári að mati Þjóðhagsstofnunar. Stofn- unin telur að botnfiskvinnslan, frysting og söltun, sé nú rekin með 8,5% halla, frysting með 12,5% halla og saltfiskur með 1,6% halla en veiðar með tæp- lega 2% hagnaði. 47% af öllum þorski. x dag fer til söltunar, 35% til landfrystingar, 3% í flugfisk, 13% eru unnin á vinnsluskipum og rúmlega 1% í gáma og siglingar. Töluvert meira fór af ýsu til landfrysting- ar, eða 50%. „Lausnin á vandanum er ekki fólgin í gengisfellingum upp á gamla móðinn en hér er vá fyrir dyrum ef ekkert er að- hafst. Verði ekki breyting á af- komu mun frysting botnsfisks í landi dragast saman á næstu misserum og atvinna þúsunda leggjast af með tillieyrandi byggðaröskun," sagði Arnar Sigunnundsson. GG Kostnaðarliðir við botnfiskvinnslu sem hlutfall af heildartekjum _. Hráefniskaup Launa- kostnaður 1994 1995, áætl. 1996, áætl. Afskr. og Hagnaður ijárm.kostn. /l’ap Arnar Sigurmundsson form. Samt. fiskvinnslustöðv, „Efekkert er aðhafst til lausnar vanda botnfisk- vinnslunar mun atvinna þúsunda leggjast af með tilheyr- andi byggðaröskun. “ Akureyri Bærinn greiðir 300 þúsund í bætur Akureyrarbær hefur fall- ist á að greiða Hólmfríði Sveinsdóttur 300 þúsund krónur í bætur í tengslum við starf sem auglýst var á vegum bæjarins og Hólmfríður sótti um en fékk ekki. Um var að ræða stöðu starfsmanns fram- kvæmdanefndar um reynslu- sveitar félagaverkefnið. Hólmfríður taldi fram hjá sér gengið, m.a. vegna þess að hennar menntun félli betur að þeirn kröfum sem fram voru settar í auglýsingu. Ilún kærði ráðninguna til jafnréttisráðs og vann málið. Taldi kærunefnd jafnréttismála að ákvæði jafn- réttislaga hefðu augljóslega verið brotin. Mæltist nefndin til þess að fundin yrði lausn sem Hólmfríður sætti sig við. Nú meira en ári eftir að ráð- ið var í starfið hefur sátt náðst í málinu. Bærinn greiðir Hólm- fríði 300 þúsund krónur, „fyrir fjárhagslegt og ófjárhagslegt tjón sem hún kann að hafa orð- ið fyrir er hún varð af fyrr- greindu starfi." Bærinn telur að þrátt fyrir þetta sé hann ekki að viðurkenna að hafa sýnt af sér sök við ráðninguna og sé þ.a.l. ekki að viðurkenna bótaskyfdu með gerð sáttarinnar. Hólmfríður Sveinsdóttir sagðist eftir atvikum vera sátt við þessa niðurstöðu. Mat lög- fræðings hennar, Þorbjargar Jónsdóttur, hafi verið að lengra væri vart hægt að komast án þess að höfða dómsmál og því hafi þetta orðið nið- urstaðan. Mestu máli skipti að hafa fengið viðurkenn- ingu á því að hafa farið með rétt mál. „Ég skif raunar ekki af hverju forsvars- menn bæjarins eru að greiða mér þessa peninga ef þeir telja sig ekki hafa sýnt af sér sök. Eins finnst mér að bærinn standi vart undir nafni sem bæjarfélag þar sem jafnróttis- nxál eru í hávegum höfð, þrátt fyrir af hafa sérstaka jafnréttis- áætlun, jafnréttisfulltrúa og hafa hlotið viðurkenningar á þessu sviði,“ sagði Hólmfríður. ' HA Bœrinn greiðir Hólmfríði 300 þúsund krónur, „fyrir fjár- hagslegt og ófjárhagslegt tjón sem hún kann að liafa orðið fyrir er hún varð af fyrrgreindu starfi“ og telur að þráttfyrir þetta sé hann ekki að viðurkenna sök 107 milljarðar INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Fteykjavík Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616 UTBOÐ F.h. Húsnæðisnefndar Reykjavíkur, er óskað eftir tilboðum í: 1. Gler 2. Blikksmiði í 102 íbúðir við Álfaborgir/Dísaborgir í Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent á skrifst. vorri gegn kr. 10.000,- skil- atr. fyrir hvort verk. Opnun tilboða: Miðvikud, 2. okt. nk. kl. 11.00 á sama stað. Augl. nr. hnr 126/6 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavík Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616 ÚTBOÐ F.h. Borgarverkfræðingsins í Reykjavík, er hér með óskað eftir tilboðum í verkið: Borgarholt II - Spöngin og Vættarborgir. Helstu magntölur eru: - Götur, breidd 5-6 m 370 m - Götur, breidd 7-7,5 m 560 m - Bílastæði 2.100 m2 - Holræsi 2.140 m - Púkk 3.500 m2 - Mulin grús 7.400 m2 - Losun klappar 3.500 m3 Hluta verksins skal skila fyrir 1. des. 1996, en því skal að fullu lokið fyrir 1. júlí 1997. Útboðsgögn eru afhent á skrifst. vorri frá þriðjud. 17. sept. nk. gegn kr. 10.000,- skilatr. Opnun tilboða: Fimmtud. 26. sept. nk. kl. 11.00 á sama stað. Augl. nr. gat 128/6. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3- 101 Reykjavík Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616 UTBOÐ F.h. sjálfseignarstofnunarinnar Skógarbæjar, óskað eftir tilboðum í múrverk innanhúss fyrir hjúkrunarheimilið Skógar- bæ að Árskógum 2 í Reykjavík. Helstu verkþættir eru gólf- lögn, hlaðnir innveggir og múrhúðun hlaðinna veggja. Útboðsgögn eru hafhent á skrifst. vorri frá miðvikud. 18. sept. nk. gegn kr. 15.000,- skilatr. Opnun tilboða: Fimmtud. 10. okt. nk. kl. 11.00 á sama stað. Augl. nr. bgd 127/6.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.