Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Qupperneq 2

Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Qupperneq 2
2 - Þriðjudagur 17. september 1996 Jbtgur-®mrám Heiti Potturinn Komin er upp einkennileg staða í basjarpólitíkinni í Eyjum. Eftir afhroð V-listans (eftiröpun á R-listanum) í síð- ustu bæjarstjórnarkosning- um þar sem Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Fram- sóknarflokkur buðu fram saman, náði listinn aðeins tveimur bæjarfulltrúum, frá allaböllum og krötum. Nú er bæjarfulltrúi allaballa á V-list- anum, Ragnar Óskarsson, farinn til Danmerkur í nám næsta árið. Þriðji maður á V- lista er framsóknarkona og tekur hún sæti Ragnars í bæjarstjórn. Alþýðubanda- lagið í Eyjum er því án bæjar- fulltrúa í fyrsta skipti síðan flokkurinn var stofnaður sem slíkur en iðulega hefur hann haft einn eða tvo bæjarfull- trúa... r Ípottinum voru menn sam- mála um að það gæti varla flokkast undir fagmannleg vinnubrögð hjá sjónvarpinu að láta Pál Benediktson fréttamann flytja landsmönn- um fréttir af aðalfundi Sam- taka fiskvinnslustöðva. Ekki vegna þess Páll hafi ekki staðið sig heldur vegna þess að Páll var að vinna fyrir Samtök fiskvinnslustöðva á þessum sama fundi sem pallborðsstjórnandi. Hann hafi verið þarna sem frétta- maður í hjáverkum..... Reykjavík Sjórinn fái áfram að móta strönd Viðejjar „Engin haldbær rök eru færð fyrir nauðsyn þess að sjór fái ekki áfram að móta strönd Viðeyjar eins og hann hefur gert um aldir“, segir m.a. í sam- þykkt Umhverfismálaráðs Reykjavíkur. Borgarstjóri hefur óskað umsagnar Umhverfis- málaráðs vegna umsókn- ar Samráðsnefndar um Viðey um styrk til að vinna gegn land- broti á þrem stöðum í eynni; Þórsnesi, Áttæringsvör og Eið- inu. Umhverfismálaráð bendir á að Viðey sé á Náttúruminja- skrá, sem þýðir að stefna ætti að friðlýsingu hennar. Og í frið- lýsingu felist að náttúrulegir ferlar ráði mótun lands og lífs að svo miklu leyti sem mögulegt er. „Það er svolítið ríkt í okkur mönnunum að vilja eiginlega h'ta á náttúruna svipað og bygg- ingar sem þurfi að halda við og mega ekki breytast“, sagði Sig- rún Helgadóttir varaform. Um- hverfismálaráðs. Einungis vegna þess að einhver skörð hafi myndast í vonda veðrinu í vetur hafi menn viljað verja milljónum í grjótflutninga. „En okkur fannst allavega að það væri annað þarflegra að gera við peningana en að berjast við sjóinn". Af greinargerð má ráða að slíkir grjótflutningar gætu jafn- vel orðið til meira tjóns en gagns, bæði á Eiðinu og á fugla- lífi í Áttæringsvör. Jaðlagastafl- inn við Þórsnes og suðurströnd Viðeyjar sé sömuleiðis of merki- legur til þess að réttlætanlegt væri að flytja í hann annars konar grjót og jarðefni. „Þarna er stór eldstöð, askja, fyrir tveimur milljónum ára. í Viðey er áberandi móberg og kubba- berg sem hefur myndast við gos í öskjuvatni og á Þórsnesi hefur vatnaset lagst ofan á móbergið. Hvergi eru þessi jarðlög eins heilleg og á suðurströnd Viðeyj- ar. Auk þess að segja merka sögu eru þessir klettar form- fagrir“, segir í greinargerðinni. Reykjavík Þór Jósefsson krýndur feg- urðarkóngur Þór Jósefsson, 23 ára Reyk- víkingur, var krýndur feg- urðarkóngur í keppninni um Herra ísland á Hótel Islandi síðasta föstudagskvöld og bar þar sigurorð af m'tján karl- mönnum. Þór mun taka þátt í Herra Evrópa í Kaupmanna- höfn 26. október næstkomandi í framhaldi af krýningunni. Mynd: Hari Akureyri Slippstöðin fær stórt verkefni fyrir MHF Áramótin verða sem fyrr mikill álagstími fyrir Slippstöðina, segir Ingi Björnsson framkvæmdastjóri. Verkefnastaða Slippstöðv- arinnar hf. á Akureyri er mjög góð, mikið um al- mennar „skveringar" á skipum af ýmsum stærðum og gerðum, og í stöðunni í dag nægir það fram á fyrri hluta vetrar. Ingi Björnsson, fram- kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar hf., segir að engin erlend verk- efni séu framundan hjá stöðinni annað en stórt verkefni fyrir þýska útgerðarfyrirtækið Meck- lenburger Hochseefischerei (MHF), dótturfyrirtæki Útgerð- arfélags Akureyringa hf., en Slippstöðin hefur fyrr á árinu haft ýmis verkefni á hendi fyrir MHF. Ingi segir að vandlega sé fylgst með erlenda markaðnum sem og hinum innlenda, það sé hluti af markaðsstarfinu. Samið hefur verið um breytingar á vinnsludekki, stækkun lestar og stækkun fiskmóttöku MHF-tog- arans og er áætlað að verkið taki allt að 9 vikur en skipið kemur til Akureyrar síðar í haust. Ingi segir að eins og fyrr verði tíminn um jól og áramót mikill álagstími hjá Slippstöð- inni þar sem fiskiflotinn er þá í höfn. GG FRÉTTAVIÐTALIÐ Menn verða að halda fjárlög Halldór Jónsson settur tilsjónarmaður við Sjúkrahúsið á PatreksfirðL Heilbrigðisráðherra skipaði á dögunum Halidór Jónsson, tilsjónarmann með rekstri sjúkrahússins á Patreksfirði. Halldór er framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri þar sem góður árangur í rekstri hefur náðst. að er heilbrigðisráðuneytið sem tekur ákvörðun um að skipa til- sjónarmann og óskaði eftir því við mig að ég tæki þetta að mér,“ sagði Halldór um tildrög þessa nýja starfs. Skipanabréf hans nær til áramóta og verður hann í leyfi frá FSA meðan á þessu stendur. Vignir Sveinsson, skrif- stofustjóri FSA, gegnir starfi Halldórs á meðan hann er í burtu. „Ég geri ráð fyrir að vera að mestu í burtu a.m.k. fyrsta mánuðinn, en auðvitað eru viss verkefni í gangi hjá FSA sem ekki er ólíklegt að maður komi eitthvað að.“ En hvað er tilsjónarmaður? í lögum um þetta segir að starfssvið tilsjónar- manna sé að skipuleggja og hafa eftir- lit með reikningshaldi og gerð íjár- hagsáætlana stofnana og taka ákvarð- anir um fjárskuldbyndingar, þar á meðal um umfang starfsmannahalds, í samráði við ráðherra, eftir því sem nánar er lýst í erindisbréfi hverju sinni. Mun koma með tillögur „Mér er ætlað að fara ofan í þessa hluti hér en það er reyndar þegar búið að vinna ákveðna vinnu í því sam- bandi. Við getum sagt að ég muni gera það enn frekar og koma fram með til- lögur um hvernig hægt sé að haga þessum rekstri þannig að allir geti ver- ið sáttir. Það gildir þá bæði um heima- menn og aðra. Það er auðvitað alþekkt að víða er tekist á um bæði fjárveiting- ar og starfsemi. Allir eru meira og minna að leita sér leiða til að fram- kvæma hluti ódýrar en áður hefur ver- ið gert því í lengstu lög reyna menn að verja þjónustu sem er til staðar. Það liggur fyrir að það er alþingi á hverjum tíma sem ákveður íjárveitingar til stofnana og það er sá ijárhagsrammi sem hver stofnun hefur. Ég hef alla tíð sagt að það er eitthvað sem okkur ber að fara eftir. Hitt er annað mál að menn reyna auðvitað að færa rök fyrir sínum beiðnum ef menn telja sig þurfa meiri peninga. Hafa ráðstafað meiri peningum en úthlutað var Þessi stofnun hór eins og sumar aðrar hafa átt við fjárhagsvanda að stríða, eða hefur ráðstafað meiri peningum en hún hefur fengið og það segir sig sjálft að til lengri tíma litið gengur shkt ekki upp. Á þessu ári hefur bæði verið í gangi athugun á þessari stofnun og einnig aðgerðir til þess að breyta út- gjöldum, sem mér virðist að hafi leitt til sparnaðar á vissum sviðum. Slíkt er mjög ánægjulegt og ánægjulegast auð- vitað fyrir fólkið sjálft þegar það nær svona árangri með sínum gerðum. Það er líka það eina sem heldur til lengdar, þ.e. fólkið sem vinnur við þetta verður að vera tilbúið í svona aðgerðir. Æski- legasta lausnin er að stjórnendur og starfsfólk finni sér einhvern farveg í að láta hlutina ganga upp. - Telurðu að þér hafl verið falið þetta verkefni vegna þess góða ár- angurs sem náðst hefur í rekstri FSA? „Því get ég ekki svarað í sjálfu sér. Vissulega er það rétt að Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri hefur verið rekið í samræmi við fjárveitingar nokkuð mörg undanfarin ár. En það er auðvitað ekki verk eins eða örfárra manna. í reynd er það fólkið okkar, starfsmenn allir, sem gera þetta mögu- legt. Það á alls ekki við rök að styðjast að eigna mér persónulega þennan ár- angur, t.d. var ég í burtu í fjögur ár og allan þann tíma var spítalinn rekinn innan íjárlaga. Það hefur einfaldlega náðst sá andi, að þrátt fyrir mikinn niðurskurð hafa menn náð að setja upp nýjar áætlanir og vinna eftir þeim.“ Vel tekið af fólkinu - Hvernig hefur þér verið tekið fyrir vestan? „Mér hefur verið ágætlega tekið og fólk haft jákvæð orð við mig um komu mína þannig að ég vonast til þess að eiga gott samstarf við fólk hér eins og ég hef sem betur fer vanist á mínum aðal vinnustað. Auðvitað þarf oft að taka erfiðar ákvarðanir, sem bæði manni sjálfum og öðrum líkar ekki við, en slíkt fylgir einfaldlega stjórnunar- störfum." - Þannig að þetta leggst bara vel í þig? „Já, það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður og óg mun gera allt til að láta þetta takast. Auðvitað er spennandi að fá tækifæri til að kynnast rekstrinum og öllum aðstæðum hér, sem vissulega eru nokkuð aðrar en fyrir norðan.“ HA í

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.