Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Qupperneq 5

Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Qupperneq 5
Jlagur-tHhrami Þriðjudagur 17. september 1996 - 5 F R É T T I R Loðdýraræktin Óánægja með skilnings- leysi Stofiilánadeildar Hæsta verð á íslensku refaskinni sem fengist hefur síðan á söluárinu 1980/1981. Loðdýrabændur vilja uppbyggingu, en gagnrýna afstöðu fjárfestinga- lánasjóða. Mikil óánægja ríkir meðal margra loðdýra- bænda með þá ákvörð- un Stofnlánadeildar landbúnað- arins að lána ekki til breytinga eða stækkana á loðdýrabúum, en margir telja að víða megi ná meiri hagkvæmni með stækkun búanna til nýtingar vinnukraft- inum. Margir loðdýrabændur fullyrða að ekki megi láta góð- ærið í atvinnugreininni framhjá sér fara en talið er að þetta góða verð nú muni vara í a.m.k. 5 ár, jafnvel lengur. Stofnlána- deildin sé hins vegar pikkföst í fortíðarvanda loðdýraræktar- innar og sé dragbítur á endur- reisnina. Ekki er fjarri að álíta að um 40% af skinnaverði í dag fari í fóður, laun og afborganir lána. Þess má geta að t.d. Kaupfélag Skagfirðinga og Byggðastofnun hafa hins vegar boðið upp á styrk til þeirra loð- dýrabænda sem vilja stækka við sig eða hefja loðdýraræktarbú- skap. Seld voru 22.296 minka- skinn á uppboði Dansk pelsdyr- avl (DPA) í Kaupmannahöfn 8. til 12. september sl. og var meðalverð 2.288 íslenskar krónur. Hæsta verð 4.960 krón- ur en meðaverð á söluárinu 2.605 krónur. Á sama uppboði voru seld 4.262 refaskinn, meðaverð 7.314 íslenskar krón- ur en meðaverð á söluárinu 6.647 krónur. Ilæsta verð sem fékkst fyrir refaskinn nú var 14.375 krónur sem er 13% hækkun frá síðasta uppboði og hæsta verð sem fengist hefur í 16 ár, eða síðan á söluárinu 1980/1981. Verð á undirflokk- um hækkaði einnig, eða um 12- 15%, sem er bein afleiðing hækkandi verða á bestu skinn- unum. Mikil eftirspurn er nú eftir skinnum og má búast við að það aukist enn. Á sama tíma dregur úr framboði á skinnum næsta framleiðsluár sem hefst í haust. Því valda m.a. auknar og strangari mengunarvarnir og vaxandi kröfur til þeirra sem hyggjast stofna ný bú, ekki síst á hinum Norðurlöndunum. Alls hafa verið seld skinn frá íslandi fyrir 254 milljónir króna hjá DPA á þessu ári, 67.715 minka- skinn og 11.715 refaskinn, þar af fyrir 72 milljónir króna í septembermánuði og er það um 70% allrar skinnaframleiðsl- unnar á íslandi. Alls voru seld 2,4 milljónir minkaskinna og 135 refaskinn hjá DPA í sept- ember, víða að úr heiminum, sem er um 97% þeirra skinna sem voru í boði, en á yflr- standandi söluári hafa verið seld um 10 milljón minkaskinna og nær 1 milljón refaskinna. Næsta skinnauppboð DPA er í desembermánuði, þá verða seld fyrstu skinnin úr þessa árs goti. GG Athugasemd Ásgeir Hannes leiðréttur Végna laugardagspistils Ásgeirs Hannesar Eiríks- sonar hér í blaðinu þar sem hann íjallar um nafngiftir á sveitarfélögum og meintar hug- myndir félagsmálaráðherra og annarra framsóknarmanna í þeim efnum, hafði Jón Krist- jánsson alþingismaður sam- band við blaðið. Jón er formað- ur í nefnd sem vinnur að end- urskoðun sveitarstjórnarlag- anna og kannast ekkert við þau sjónarmið sem Ásgeir Hannes segir framsóknarmenn hafa í þessum málum. „Það stendur yfir end- urskoðun sveitarstjórnarlaga og sérstök nefnd, sem ég er for- maður í, vinnur að því máli,“ segir Jón. Hann segir að í nefndinni eigi sæti fulltrúar hinna ýmsu aðila sem komi víða að. Nefndin er í miðjum klíðum og á að skila frumvarpi í upphafi næsta árs. „Lagagrein- in um nafngiftir sveitarfélganna hefur verið rædd, en ekki hefur verið gengið frá neinum tillög- um um breytingar á henni. Hins vegar held ég að óhætt sé að segja að í nefndinni sé uppi það sjónarmið að auka beri svigrúm sveitarfélaga frá því sem nú er til að halda sínum nöfnum og ég veit ekki annað en að það sjónarmið sé uppi í ráðuneytinu líka,“ sagði Jón Kristjánsson. Reykjavík Hafnarfjörður Sjúkrahústengd heimahlynning Sjúkrahústengdri heima- hlynningu fyrir sjúklinga sem geta vegna eðli sinna sjúkdóma notið meðferðar í heimahúsum verður komið á í haust. Með sjúkrahústengdu heim ahlynningunni verður hægt að stytta legutíma sjúklinga, t.d. eftir skurðaðgerðir, og jafnvel sleppa innlögn, s.s. þegar um lyQa- meðferðir er að ræða. Heima- hlynningunni verður komið á undir stjórn Sjúkrahúss Reykja- víkur fyrir 24 sjúklinga sam- kvæmt samkomulagi því sem gert var um aðgerðir í rekstri Sjúkrahúss Reykjavíkur og Rík- isspítala. „Sú þjónusta mun m.a. styðja aldraða einstaklinga í því að búa heima eins lengi og kostur er,“ segir Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur. „Heimahlynningin mun þannig stuðla að því að fólk geti haldið sjálfstæði sínu í þjóðfélaginu sem lengst og þar með auknum lífsgæðum. „Kostnaður við heimhlynning- una er minni en sjúkrakostnað- ur á spítölum. Anna segir að varlega áætlað kosti sjúkradeild um 54 m.kr. á ári en jafnmargir sjúklingar í heimahlynningu myndu kosta frá 30 til 50 m.kr. Sjúkrahústengd heimhlynn- ing byggist á teymisvinnu heil- brigðisstéttanna, þ.e. lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkra- liða og eftir atvikum sjúkra- þjálfa, iðjuþjálfa og félagsráð- gjafa. Slík teymi munu vinna sem einn hópur að því gera við- komandi sjúklingi kleift að vera heima þrátt fyrir sjúkdóma og mikla umönnunarþörf. Anna telur að þeir sem eigi þess kost muni kjósa að fá sjúkraþjónustuna heim til sín frekar en að leggjast inn á spít- ala. -gos Starfsnámskeið sem gaf starf Fyrir helgina voru veittar viðurkenningar fyrir námskeið sem haldin voru á vegum félagsmálaráðuneytisins og fræðsluaðila í sjávarútvegi fyrir atvinnulaust fólk. Námskeiðin miðuðu að því að gera fólk að hæfari og eftirsókn- arverðari starfskrafti í fiskvinnsiu og sjávarútvegi. Það virðist hafa tekist og greinilegt að atvinnulífið hefur trú á málinu því þegar nemarnir auglýstu eftir störfum fengu nánast allir vinnu strax. Á myndinni hér að ofan má sjá forsprakka þessa framtaks veita nemum viðurkenningarskjöl í Fiskvinnsluskólanumí Hafnarfirði. Myn&.Pök Akureyri Vilja tíðari áhafnaskipti Kjarasamningar sjómanna eru lausir um næstu ára- mót og segir Konráð Al- freðsson, formaður Sjómannafé- lags Eyjafjarðar og varaformað- ur Sjómannasambands íslands, að þegar sé farið að huga að kröfugerð, hvernig standa eigi að einstaka málum og á hvaða mál megináhersla verði lögð. - En hver verða helstu málin í kjarabaráttu sjómanna? „Það verða tvímælalaust út- hafsveiðarnar, þessi geysilangi útiverutími og þau mýmörgu vandamál sem því fylgja, ekki síst félagslegs eðlis. Ekki síst er þetta vandamál gagnvart þeim skipum sem eru á úthafsveiðum og landa í erlendri höfn, t.d. á Flæm- ingjagrunni. Einnig þarf að skoða lengd túra í Smug- unni og aðbúnað manna um borð. Ég vildi einnig sjá tíðari áhafnaskipti. Við hljótum að kreíjast ákveð- lágmarks aðbúnaðar um ms Konráð Alfreðsson Félagsleg vandamál sjómanna á úthafs- veiðum verða á oddinum í komandi kjarabaráttu borð, og þá kemur það af sjálfu sér að það fara ekki öll þau skip á úthafsveiðar sem þar eru í dag. Koma þarf í veg fyrir að til úthafsveiða fari skip sem eru svo lítil að ekki eru kojur fyrir allan mannskapinn og tví- menna þurfi í kojur og engin aðstaða fyrir mannskapinn, hvorki setustofur með því sem þeim fylgir eins og sjónvarp, myndband, útvörp, hljóinflutn- ingstæki o.fi., né boðleg aðstaða í eldhúsi til að snæða. GG

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.