Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Side 10

Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Side 10
Þriðjudagur 17. september 1996 -10 ^Dagur-CEímmn % l.deild Úrslit West Brom-Wolves 2:4 Barnsley-QPR 1:3 Birmingham-Stoke 3:1 Bolton-Portsmouth 2:0 Charlton-Reading 1:0 C. Palace-Man. City 3:1 Norwich-Southend 0:0 Oxford-Bradford 2:0 Port Vale-Grimsby 1:1 Sheff. Utd.-Ipswich 1:3 Swindon-Tranmere 2:1 Huddersfield-Oldham 3:2 Staðan Bolton 7 5 11 17:9 16 Barnsley 6 5 0 1 14:6 15 Wolves 7 4 2 1 11:6 14 Norwich 74 2 1 8:4 14 Tranmere 7412 9:6 13 QPR 7 3 2 2 10:9 11 Stoke 7 3 2 2 10:12 11 Huddersf. 6 3 12 10:8 10 C. Palace 7 2 4 1 9:6 10 Swindon 7 3 13 8:8 10 Portsm. 7 3 13 6:8 10 Ipswich 7 2 3 2 13:11 9 Man. City 7 304 8:9 9 West Brom 6 2 2 2 9:9 8 Birming. 5 2 2 1 8:6 8 Sheff. Utd. 5 2 12 10:8 7 Oxford 7 2 14 9:8 7 Reading 7 2 14 9:14 7 Port Vale 7 14 2 6:8 7 Charlton 6 2 13 5:6 7 Bradford 7 2 0 5 4:10 6 Grimsby 7 12 3 8:16 5 Southend 7 124 7:14 5 Oldham 7 0 2 5 7:14 2 Úrslit Leicester-Liverpool 0:3 (Berger 58,77 Thomas 61) Man. Utd.-Nottm. Forest 4:1 (Solskjær 22, Giggs 43, Cantona 82, 90) (Haaland 3) West Ham-Wimbledon 0:2 (Clarke 59 Ekoku 86) Everton-Middlesbrough 1:2 (Short 8) (Barmby 61 Junin- ho 81) Coventry-Leeds 2:1 (Salako 57 Whelan 65) (Couzens 1) Southam.-Tottenham 0:1 (Armstrong víti 66) Newcastle-Blackburn 2:1 (Shearer víti 45, Ferdinand 61) (Sutton 85) Chelsea-Aston Villa 1:1 (Leboeuf 45) (Townsend 18) Derby-Sunderland 1:0 (Asanovic víti 84) Staðan Liverpool Man. United Chelsea Sheff. Wed.* Newcastle Middlesbr. Aston Villa Wimbledon Derby Arsenal* Tottenham Leeds Sunderland Nott. Forest Everton Leicester West Ilam Coventry Southampt. Blackburn 64 2 0 11:4 14 6 3 3 0 16:6 12 63 30 9:4 12 5 40 1 8:5 12 640 2 9:7 12 6 3 2 1 14:7 11 6 3 2 1 8:5 11 6 3 0 3 7:6 9 6 2 3 1 8:8 9 5 2 2 1 9:7 8 6 2 2 2 5:4 8 6 2 1 3 6:11 7 6 1 3 2 5:4 6 6 1 3 2 8:11 6 6 1 2 3 5:9 5 6 1 2 3 3:8 5 6 1 2 3 4:10 5 6 114 3:12 4 602 4 5:9 2 60 1 5 4:10 1 * Leikur Arsenal og Sheff. Wed. í gærkvöld er ekki inni í töflunni. Berger tryggði toppsætíð Tékkneski landsliðsmaður- inn Patrick Berger kom in- ná sem varamaður í leik- hléi hjá Liverpool gegn Leicester á sunnudag og tryggði liðinu toppsæti ensku úrvalsdeildar- innar með tveimur mörkum. Með sigrinum komst Liverpool tveimur stigum upp fyrir erki- íjendurna í Manchester United, sem skaust á toppinn með 4:1 sigri á Nottingham Forest á laugardag. Liverpool sýndi engan topp- leik í fyrri hálfleik gegn Leicest- er. Berger, sem skipt var inná í hálfleik fyrir Stan Collymore, var í banastuði. Hann fékk frjálsa stöðu og var ýmist á miðju eða í framfínunni og frammistaða hans bætti Liver- pooi-liðið til muna. Hann valsaði í gegnum vörn Leicester að vild og kláraði tvær sóknir með firnafóstum og hnitmiðuðinn skotum í netið. Á milh marka Tékkans skoraði Michael Thom- as ódýrt mark. Roy Evans, stjóri Liverpool, var ánægður með Berger. „Ég minnist ekki dram- antískari innkomu í leik. Mörkin hans voru glæsileg og það verð- ur alltaf erfltt fyrir andstæðing- ana að dekka hann því hann er svo lunkinn að koma sér í réttar stöður,“ sagði Evans. „Fowler og Collymore eru ekki eins snarpir og vanalega og samvinna þeirra gengur illa en ég er viss um að það á eftir að smella saman aft- ur,“ sagði Evans. Eric Cantona fór á kostum í liði Man. Utd. gegn Forest og kórónaði frábæran leik með tveimur mörkum á síðustu tíu mínútunum auk þess sem hann átti þátt í hinum tveimur mörk- unum. Forest tók forustuna snemma leiks og fékk fleiri færi í fyrri hálfleik en Peter Schmeic- hel var vel á verði og Denis Ir- win bjargaði á marklínu fyrir United. Heimaliðið tók brátt við sér og Ole Gunnar Solskjær og Ryan Giggs komu United í 2:1 fyrir hlé. Norðmaðurinn Solskj- ær kom inn í lið United fyrir Jordi Cruyff, sem sat á bekknum allan leikinn. „United er með betra lið nú en á sfðasta tímabili og það gefur okkur hinum ekki mikla von,“ sagði Frank Clark, stjóri Forest. Stóð við loforðið Alan Shearer lofaði fyrir leikinn gegn sínum gömlu félögum í Blackburn að hann ætlaði að leiða Newcastle til sigurs og hann stóð við það. Shearer skor- aði úr vítaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks í 2:1 sigri Newc- astle og lagði upp síðara markið fyrir félaga sinn Les Ferdinand. „Ef við hefðum ekki haft Shearer og Ferdinand í framlínunni þá hefðum við tapað,“ sagði Kevin Keegan, stjóri Newcastle, eftir leikinn. „Samstarf þeirra geng- ur vel og á eftir að verða enn betra." Eini ljósi punkturinn í tapinu hjá Blackburn var endur- koma Chris Sutton, sem hefur misst af undanfórnu ári- vegna meiðsla. Hann skoraði eina mark Blackburn. Liðið virðist betra en staða þess gefur til kynna og ef Sutton finnur gamla formið þá gæti liðið unnið sig út úr vandræðunum. Franski miðvörðurinn Frank Leboeuf hefur verið drjúgur þegar hann bregður sér í sókn- ina hjá Chelsea og hann skoraði þriðja mark sitt á tímabilinu gegn Aston Viiia. Það var fyrr- um fyrirliði Chelsea, Andy Town- send, sem skoraði mark Villa í 1:1 jafntefli. Everton tapaði þriðja leikn- um í röð þegar Middlesbrough Eric Cantona lék á alls oddi með Man. Utd. gegn Forest skoraði tvö mörk og átti þátt í hinum tveimur í kom í heimsókn á Goodison Park. f fyrri hálfleik sótti Ever- ton mikið og liðið dældi háum boltum inn í teiginn, sem vörn Middlesbrough réði ekkert við. í síðari hálfleik var Boro búið að læra á háloftaspilið hjá Everton og beitti vel útfærðum skyndi- sóknum og hinir smávöxnu en knáu sóknarmenn Boro, þeir Nicky Barmby og Juninho tryggðu sigurinn, 2:1. Fall er fararheill! George Graham tók við stjóra- stöðunni hjá Leeds í síðustu viku og hans fyrsta verkefni var gegn botnliði Coventry. Graham sá fljótt að hans bíður mikið verk hjá Leeds og Coventry fagnaði fyrsta sigri sínum á tímabilinu. Rétt til að nudda salti í sár Leeds-manna þá var það Noel Whelan, sem seldur var frá Le- eds í fyrra, sem tryggði heima- liðinu sigurinn. Þegar John Sal- ako skoraði fyrra markið á 57. mínútu fógnuðu heimamenn óg- urlega, enda fyrsta mark félags- ins í 405 mínútur í úrvalsdeild- inni. Leeds spilaði með fimm í vörn en aftasta línan var þrátt fyrir það langt frá því að vera sannfærandi. Graham var þekktur fyrir að láta Arsenal spila þéttan og öruggan varnar- leik. „Þegar ég kom til Arsenal lagði ég alla áherslu á að þjálfa vörnina fyrsta árið og sú vinna er enn að skila sér hjá Arsenal tíu árum síðar,“ sagði Graham stoltur og hann sagðist ætla að predika sömu leikaðferð hjá Leeds. Enn taparSouness Southampton hefur verið undan- farin 18 ár í efstu deild en ef lið- ið spilar eins og það hefur gert að undanfórnu liggur leiðin beint niður í 1. deild. Liðið hefur verið að skapa ágæt færi en klúðrað þeim öllum og klaufa- skapur einkennir varnarleikinn. Liðið hefur enn ekki unnið leik undir stjórn Graeme Souness og eru stuðningsmenn félagsins farnir að efast um ágæti hans sem framkvæmdastjóra. Southampton sótti grimmt en sókn Tottenham var bitlaus. Ian Walker var í stuði í marki Tot- tenham og varði hvað eftir ann- að meistaralega. Ein varnarmis- tök í síðari hálfleik urðu til þess að Tottenham hélt heim með öll stigin. Chris Armstrong skoraði markið úr vítaspyrnu. Wimbledon er komið á skrið og tryggði sér þriðja sigurinn í röð á útivelli gegn West Ham, sem spilaði betur úti á vellinum en Wimbledon með Chris Perry öruggan í vörninni og Robbie Earle ráðrikan á miðjunni, tóku yflrhödina. West Ham varð fyrir áfalli í fyrri hálfleik þegar Paulo Futre fór útaf meiddur en Rúm- eniim Florin Raducioiu lék ekki með liðinu vegna meiðsla. Michael Thomas skoraði eitt af þremur mörkum Liverpool gegn Leicest- er. Hér er hann í baráttu við Mustafa Izzet, miðjumann Leicester. HANDBOLTI • Þýskaland Patrekur með niu mörk Patrekur Jóhannesson lék stórt hlutverk með Tusem Essen í sigri liðsins á Min- den, 24:28 í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn. Patrekur var markahæstur sínu liði með m'u mörk úr tólf skotum, en Hvít- rússinn Alexander Tutskin skoraði sjö marka Essen. Sig- urður Bjarnason skoraði fjögur mörk fyrir Minden. „Þetta var hörkuleikur. Við vorum undir mest allan tímann og segja má að þeir hafi haft frumkvæðið, allt þar til staðan var 24:24. Þá varði Stefan Hec- ker, hinn 37 ára gamli mark- vörður allt sem á markið kom. Ég var ánægður með minn leik, þetta er besti leikur minn fyrir liðið og það verður gaman að mæta Wallau Massenheim, sem spáð er sigri í deildinni í næstu umferð. Þeir eru búnir að kaupa mikið af leikmönnum, en mér fannst þeir ekkert vera betri en Magdeburg í sjón- varpsleiknum á laugardaginn,“ sagði Patrekur. Patrekur sagði að reiknað væri með fullri höll, fimm þús- und áhorfendum á leiknum við Massenheim á miðvikudags- kvöld. Með liðinu leika margir heimsfrægir leikmenn, en þekktastir eru rússneski línu- maðurinn Dmitri Torgovanov og Frakkinn Fréderic Volle, sem lék stórt hlutverk í sigri Frakka á HM á íslandi í fyrra. Róbert lék með Samningar náðust á milli Aftur- eldingar og Schuttervald á föstudaginn um kaupverð á Ró- berti Sighvatssyni og Róbert gat því leikið með liði sínu gegn Patrekur Jóhannesson byrjar vel með Tusem Essen. Fredenbeck á laugardaginn. Hann skoraði fimm marka Schuttervald en heimamenn í Fredenbeck sigruðu 26:23 og skoraði Héðinn Gilsson, fjögur af mörkum Fredenbeck. Meist- arar síðasta ár, THW Kiel sigr- uðu Hameln, 29:21 og leik Massenheim og Magdeburg lyktaði með naumum sigri Massenheim, 30:29. Dagur handarbrotinn Dagur Sigurðsson, leikmaður með 1. deildarliðinu Wuppert- hal, handarbrotnaði á æfingu liðsins sl. föstudag. Dagur var að spila vörn þegar fingur hans flæktist f treyju annars leik- manns með þeim afleiðingum að hann brotnaði. Hann mun verða frá í nokkrar vikur. Ann- ar leikmaður liðsins brotnaði einnig á sömu æfingu, en Wupperthal hóf engu að síður keppnistímabilið með sigri 25:23.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.