Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Side 11
4Dagur-®ímmit Þriöjudagur 17. september 1996 -11
KNATTSPYRNA
Sex rauð spjöld og
ráðist á dómara á
SeHjamamesi
GOLF • Stigamót
Birgir Leifur sigraði
Sex rauð spjöld litu dagsins
ljós á Seltjarnarnesinu á
laugardaginn þar sem
Grótta og Dalvík áttust við í
lokaumferð 3. deildarinnar. Pað
voru heimamenn sem fengu öll
spjöldin sex og eftir 84 mínútna
leik þurfti að flauta leikinn af,
því Gróttumenn voru aðeins sjö
inni á vellinum.
„Ég hef aldrei lent í neinu
svipuðu á ævinni óg það á við
um flesta dómarana sem eru að
dæma í dag,“ sagði Garðar Örn
Hinriksson sem dæmdi leikinn.
Kristján Björgvinsson var
fyrstur til að fara af velli fyrir
gróft brot á 56. mínútu en stað-
an var þá 2:1, Gróttu í hag.
Fjórum minútum síðar sýndi
Garðar Örn Hinriksson, dómari
leiksins, Hauki Bragasyni, vara-
markverði Seltirninga rauða
spjaldið. Páll Líndal fékk að líta
rauða spjaldið á 71. mínútu og
þá voru Gróttumenn aðeins níu
á vellinum. Síðan sauð uppúr á
84. mínútu, þegar Dalvíkingar
skoruðu þriðja mark sitt og
breyttu stöðunni í 2:3. Heima-
menn töldu að flagga hefði átt
rangstöðu og dæma markið af
og mótmæltu kröftuglega og
þrír þeirra fengu að líta rauða
spjaldið í kjölfar þess. Börkur
Eðvarðsson, Björgvin Finnsson
og þjálfarinn, Sverrir Ilerberts-
son fengu allir brottvísanir. Þar
sem leikmenn Gróttu voru að-
eins orðnir sjö inni á vellinum,
var leikurinn flautaður af og
Dalvík verður þvf dæmdur sig-
urinn 3:0.
Búast má við því að málið
hafl eftirstöðvar fyrir Gróttu,
sex leikmenn þurfa að taka út
leikbann og einn þeirra sem
rekinn var útaf, gerði mis-
heppnaða tilraun til að ráðast
að áhorfenda á leið sinni til
búningsherbergja. Þá blandaði
stuðningsmaður Gróttu sér í
málin með því að veitast að
dómaranum eftir leikinn og
hrinda honum um koll. Það er
því líklegt að Grótta verði dæmt
í fésektir en leikskýrslan verður
tekin fyrir hjá Aganefnd KSÍ á
fundi hennar í dag.
Birgir Leifur Hafþórsson úr
Golfklúbbnum Leyni og
Ólöf María Jónsdóttir úr
Golfklúbbnum Keili tryggðu sér
á laugardaginn stigameistaratitl-
ana í golfi, en síðasta stigamót
sumarsins var haldið á Grafar-
holtsvelhnum á laugardaginn.
Birgir Leifur innsiglaði vel
heppnað keppnistímabil með
yfirburðasigri í karlaflokknum.
Hann lék hringina tvo á 141
höggi, einu undir pari vallarins.
Þorkell Snorri varð annar, á 148
höggum og Eyjamaðurinn Þor-
steinn Hallgrímsson úr GV varð
þriðji á 149 höggum.
Birgir Leifur 385 stig á mót-
unum, 39 stigum fleira en Björg-
vin Sigurbergsson, stigameistar-
inn frá því í fyrra. Kristinn G.
Bjarnason, sem ekki var með um
helgina, varð þriðji með 329 stig.
Alls voru stigamótin átta í sumar
og taldi skor þeirra sex bestu hjá
keppendum.
Herborg Arnarsdóttir, úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur, varð sigur-
vegari á laugardaginn, en það
nægði henni ekki til að komast
uppfyrir Ólöfu Maríu Jónsdóttur
að stigum. Herborg spilaði fyrri
hringinn á 75 höggum og jafnaði
vallarmetið af bláum teigum síð-
ari daginn, þegar hún lék á 72
höggum. Ólöf María kom inn á
154 höggum og varð stigameist-
ari með 286 stig, níu stigum
fleira en Herborg sem varð önn-
ur.
Einvígi hjá Skagamönnum og KR-ingum
Topplið 1. deildarinnar í knattspyrnu, ÍA og KR sigruðu bæði í leikjum sínum á sunnudaginn og flest
bendir til þess að úrslit 1. deildarinnar ráðist ekki fyrr en annan laugardag, þegar liðin mætast í lokaum-
ferðinni á Akranesi. Á myndinni má sjá Hilmar Björnsson, leikmann KR á spretti gegn ÍBV á laugardag-
inn. KR vann nauman sigur, 1:0. Myn&.Bc
KNATTSPYRNA • íslandsmótið
l.deildkarla 2.deildkarla
3. deild karla 1. deild kvenna
Staðan
ÍA 16 12 1 3 40:15 37
KR 16 11 3 2 36:11 36
Leiftur 16 8 5 3 31:24 29
ÍBV 16 7 1 8 27:30 22
Stjarnan 16 6 3 7 21:28 21
Valur 16 6 2 8 17:22 20
Keflavík 16 3 7 6 15:24 16
Fylkir 16 4 3 9 21:23 15
Breiðablik 16 3 5 8 16:31 14
Grindavík 16 3 4 9 18:34 13
Sunnudagur
Keflavík-Fylkir 0:0
Stjarnan-Valur 2:4
Baldur Bjarnason 2 - Guðmundur
Brynjólfsson 2, Salili Heimir Porca vsp.,
Antony Karl Gregory.
Leiftur-Breiðablik 3:1
Pétur Björn Jónsson, Gunnar Már
Másson, Sverrir Sverrisson, - Kristófer
Sigurgeirsson.
ÍA-Grindavík 6:3
Haraldur Hinriksson 2, Ólafur
Adolfsson, Alexander Högnason,
Gunnlaugur Jónsson, Haraldur
lngólfsson, - Óli Flóventsson, Kekic
Siusa, Zoran Ljubicic.
KR-ÍBV 1:0
Ríkharður Daðason.
Markahæstir:
Ríkhaður Daðason, KR 12
Bjarni Guðjónsson, ÍA 11
Staðan
Fram 17 11 5 1 55:16 38
Skallagrímur 17 10 4 3 30:15 34
Þróttur R. 17 9 6 2 36:21 33
FH 17 7 4 6 26:21 25
KA 17 7 4 6 34:31 25
Þór 17 7 4 6 28:29 25
Víkingur R. 17 5 3 9 20:31 18
ÍR 17 5 3 9 20:37 18
Völsungur 17 4 3 10 23:39 15
Leiknir R. 17 1 2 14 17:49 5
Laugardagur
Þór-Völsungur 4:1
Birgir Þór Karlsson 2, Páll Gíslason,
Ilreinn Hringsson - Hjörtur Hjartarson.
Skallagrímur-KA 1:1
Sindri Grétarsson - Steinn V.
Gunnarsson.
ÍR-Þróttur 2:2
Kristján Brooks 2 - Heiðar
Sigurjönsson, Sigurður Hallvarðsson.
Fram-Leiknir 2:0
Hólmsteinn Jónasson, Þorbjörn
A. Sveinsson
Víkingur-FH 0:1
- Davíð Ólafsson.
Markahæstir:
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fram 15
Ágúst Ólafsson Fram 15
Þorvaldur M. Sigbjörnsson, KA 12
Sindri Þór Grótarsson, Skaílagr. 11
Hreinn Hringsson, Þór 10
Heiðar Sigurjónssou, Þrótti 8
Lokastaðan
Dalvík 18
Reynir S. 18
Víðir 18
Þróttur N. 18
HK 18
Selfoss 18
Fjölnir 18
Ægir 18
Höttur 18
Grótta 18
11 4 3 47:30 37
10 4 4 45:26 34
10 2 6 43:32 32
8 6 4 39:27 30
8 3 7 38:36 27
5 6 6 39:46 24
5 3 10 28:39 18
4 5 9 33:36 17
3 6 9 26:47 15
3 5 10 34:53 14
Dalvík og Reynir leika í 2. deild
næsta sumar, en Höttur og Grótta
færast niður í 4. déild.
KVA frá Norðfirði og Sindri frá
Hornafirði komust upp úr 4.
deildinni.
Laugardagur
Fjölnir-HK 2:0
Grótta-Dalvík 0:3
Leikurinn var ílautaður af í stöðunni
2:3 þegar Gróttumenn voru orðnir sjö
inná vellinum.
Þróttur N-Seifoss 3:0
Reynir-Víðir 3:0
Ægir-Höttur 1:1
Staðan
Breiðablik 14
KR 14
ÍA 14
Valur 13
Stjarnan 14
ÍBV 13
ÍBA 14
Afturelding 14
14 0 0 79: 3 42
10 2 2 49:16 32
9 2 3 41:13 29
7 2 4 31:18 23
5 0 9 20:42 15
3 1 9 13:35 10
2 11112:51 7
1 0 13 8:75 3
Föstudagskvöld:
KR-ÍBA 5:0
fA- Aftur elding 11:0
Br eiðablik- Stj ar nan 11:0
Leik ÍBV og Vals var frestað þar
sem ekki var flugfært til Eyja.
Leikurinn hefur verið settur á
n.k. föstudag kl. 17:30
Fyrri leikur um sæti í 1. deild:
Reynir-ÍBA 2:2
Síðari leikur liðanna fer fram n.k.
laugardag á Akureyrarvellinum.
Markahæstar:
Ásthildur Helgadóttir, UBK 17
Stojanka Nicolic, UBK 16
Áslaug Ákadóttir, ÍA 15
Kristrún Lilja Daðad., UBK 14
Björgvin Björgvinsson.
X.
• Björgvin Björgvinsson hafði
nóg að gera um helgina. Hann
lék með handknattleiksliði KA
gegn Val á föstudagskvöldið og
klukkan 14 daginn eftir stóð
hann í marki Völsungs, sem
mætti Þór á Akureyrarvellinum.
Björgvin mun klára tímabilið
með Völsungum hann mun þó
ekki mæta á æfingar með Hús-
avíkurliðinu.
• Arnar Bragason, leikmaður
Völsunga slapp með skrekkinn
í leiknum gegn Þór á laugar-
daginn. Arnar fékk að líta gula
spjaldið tvívegis hjá Gísla Guð-
mundssyni dómara, en slapp
við útafrekstur. Arnar fékk
fyrra spjald sitt í fyrri hálfleikn-
um, fyrir kjafthátt. Gísli skráði
spjaldið, vitlausu megin á kort
sitt, á leikmann númer fimm
hjá Þór, Þorstein Sveinsson.
Gísli lét vita af mistökum sínum
í leikslok og Arnar verður því
væntanlega í leikbanni í lokal-
eik Völsunga.
• Stefán Arnaldsson og Rögn-
vald Erlingsson, handknatt-
leiksdómarar, dæmdu sinn
fyrsta leik saman í fimm mán-
uði á föstudagskvöldið. Þeir
blésu í flautur sínar á leik KA
og Vals.
• Tveir leikmenn íslands-
meistara Þórs í 3. flokki, fengu
eldskírn sína með meist-
araflokki félagsins gegn Völs-
ungi á laugardaginn. Það voru
þeir Orri Freyr Óskarsson og
Ingi Hrannar Heimisson sem
báðum var skipt inná í síðari
hálfleiknum.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080