Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Page 5

Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Page 5
jDagur-ÍEtmirm Þriðjudagur 24. september 1996 - 5 F R E T T I R Akureyri Tryggingafélög gegn slökkviliði? kjölfar brunans á skemmti- staðnum 1929 á Akureyri um helgina hefur komið f Ijós að eldvarnakerfið var ófullnægjandi og hafði slökkviliðið gert athugasemdir og krafist úrbóta. Til stóð að endurnýja kerfið en því var ekki lokið og telur slökkviliðsstjóri að húsið hafi ekki tengst slökkvistöðinni neinu viðvörunarkerfi. Ef boð um eld hefðu borist strax þegar eldur- inn kviknaði telur Tómas Búi að afstýra hefði mátt miklu tjóni. „Viðvörunarkerfið var trúlega ekkert tengt við okkur heldur aðeins til að vara gesti við. l'að uppfyllir ekki kröfu um tenging- ar og við fengum aldrei bruna- boð. Hefði kerfið verið beintengt til okkar fullyrði ég að þetta hefði far- ið allt öðruvísi. Pað er ekkert sem bendir til að hlutirnir hafi gerst snögglega þarna,“ segir Tómas Búi. Hann segir að forráðamenn staðarins hefðu átt að vera búnir að hlíta tilmælum frá eldvörnum en því miður sé það þannig að mönnum finnist oft nóg að uppfylla aðeins lág- markskröfurnar. Mannfæð innan eldvarnaeftirlitsins valdi því að eftirlit sé ekki sem skyldi. „Við erum fáliðaðir og getum ekki eingöngu skoðað húsin sem brenna, við þurfum að skoða hin húsin líka. Spurningin er um að- gangshörku, hvort loka eigi stöðum þar sem eitthvað at- hugavert finnst eða gefa mönn- um tíma til að leysa úr sínum málum, matið á því hlýtur fyrst og fremst að felast í því hvort fólk sé í hættu. Á 1929 eru ijór- ar greiðar útönguleiðir, fleiri en lágmarkskröfur gera ráð fyrir.“ En Tómas Búi er harðorður hvað varðar þátt tryggingafélag- anna. „Leiðin að mannsins hjarta í sambandi við eldvarnir liggur í gegnum pyngjuna. Ef við eigum að ná fram einhverjum árangri þá þurfa menn að hafa hag af því að hlutirnir séu í lagi, okkar hlutverk er ekki að vera varðhundar. Það virðist vera sem tryggingafélögunum sé Tómas Búi Böðvarsson, slökkvi- liðssljóri á Akureyri, gagnrýnir vinnubrögð tryggingafélaga í tengslum við eldvarnir og bóta- rétt. Hann telur rétt að auka kröfur um eldvarnir, núverandi kerfi valdi því að tryggingafélög- in eigi í stríði við slökkviliðið. Skemmtistaðurinn 1929 var illa farinnn að ilnnan eftir brunann um helgina eins og sjá má á myndinni. Mynd: Tómas Búi nánast sama um áhættuna, þau taka bara allt. í sambandi við bifreiðatryggingar eru menn nú að velja góða kúnna og veita þeim iðgjaldaafslátt. Ætti það sama ekki að eiga við hér?“ spyr Tómas Búi. „Auðvitað væri ekki óeðlilegt að aðili sem þverskallast við kröfum um lagfæringar á eld- vörnum ætti ekki vissu um að fá allt tjón bætt. Það er e.t.v. bóta- vissan sem kemur í veg fyrir að menn framkvæmi hlutina. Tök- um stórbrunann í Kaupfélaginu á Suðurnesjum sem dæmi. Þar var margbúið að krefjast úrbóta en allt fékkst bætt. Hvað þetta varðar er næstum því hægt að segja að trygging- arnar séu að berjast á móti slökkviliðinu." í gær var ekki búið að finna eldsupptök en slökkviliðsstjóri segir að ekkert bendi sérstak- Iega til að upptökin hafi verið af völdum rafmagns. „Við getum ekki útilokað neitt á þessu stigi, ekki heldur íkveikju.“ Húsið var tryggt hjá Sjóvá-Al- mennum og stóð rannsókn yfir í gær. Oddur Thorarensen, einn eigenda húsnæðisins, sagði að hann teldi ótímabært að segja til um hvort eldvarnabúnaður gæti haft einhver áhrif á bótarétt. „Við vorum í millibilsástandi og vorum að bíða fullkomins bún- aðar,“ sagði Oddur. -BÞ Egilsstaðir Eigendur Miðhúsa- silfursins fundnir? Nú er hugsanlegt að fund- inn sé bústaður eigenda Miðhúsasilfursins fræga. Á fimmtudag fundust mannvist- arleifar um 20 m frá staðnum þar sem margumræddur silfur- sjóður fannst á sínum tíma. Edda Bjnrnsdóttir, húsfreyja með meiru í Miðhúsum, segir það mjög ólíklegt að engin tenging sé á milli silfursjóðsins og þessa fundar. Áburður vissra manna um að silfursjóðurinn hafi verið falsaður hefur legið á Miðhúsafólki, en þau hafa alla tíð haldið fram sakleysi sínu. „Það er allavega ljóst að það eru ekki bara smiðir hér í nú- tímanum, þeir hafa verið hér á fyrstu öldum,“ segir Edda. Ver- ið var að byggja upp heimreið að bænum og skipta um jarðveg skammt frá húsi Eddu og manns hennar, Hlyns Halldórs- sonar. Edda fór til að skoða framkvæmdir og þar sem verið var að grafa og sá strax að þarna var ekki hefðbundið öskulag. Mikið af gjalli, kolum og járnmolum var í holunni og hringdi Edda strax í Guðrúnu Kristinsdóttur safnvörð, sem kom og kannaði staðinn. Auk gjallsteinanna fannst torf- hleðsla og virtist öskulag frá 1362 vera þar ofaná. Það bend- ir til að rústir sem þarna eru séu frá allra fyrstu öldum ís- landsbyggðar. Nú er búið að moka yfir fundarstaðinn og þar kominn vegur, en ljóst er að þarna þarf að framkvæma frekari rann- sóknir í framtíðinni. Einnig eru þarna fleiri rústir sem þarf að skoða. Mjög líklegt þykir að kveikt hafi verið í dag- heimili að Suðurhólum 23 á sunnudagsmorgun. Slökkviliðinu barst tilkynning kl. 05.59 um eldinn frá íbúum í Krummahólum 2 og skömmu síðar kváðu við sprengingar frá dagheimilinu, sem hugsanlega hafa verið af völdum bensíns. Mikinn reyk lagði frá húsinu þegar slökkviliðið kom á stað- inn og fóru fjórir reykkafarar inn í húsið. Það reyndist mann- laust og gekk greiðlega að slökkva eldinn. „Húsið er illa farið, allar innréttingar meira og minna ónýtar og allt illa far- ið af reyk og sóti. Það er tæp- lega tilbúið undir tréverk," seg- „Það eru svo margar rústir hér sem virðist þurfa að skoða og kíkja á, að það liggur við að maður megi ekki stinga niður skóflu, þá fer allt á annan end- ann,“ segir Edda. SBB ir Gunnar Örn Pétursson, varð- stjóri hjá slökkviliðinu. Að sögn Harðar Jóhannes- sonar, hjá RLR, sást til manns inni í húsinu skömmu fyrir brunann en sú lýsing er óljós og hefur enginn verið handtekinn vegna málsins. Slökkviliðið í Reykjavík var einnig kallað að lagerdyrum IKEA í Iloltagörðum í fyrrinótt. „Því betur hafði ekki annað gerst en að hleðslutæki fyrir gólfhreinsivél hafði brunnið yfir og olli miklum reyk, en þetta er húsnæði sem við erum mjög hræddir við. Rosalegur geymur með óhemju eldmat, en bruna- varnakerfið er ágætt," segir Gunnar Örn. Reykjavfk Grimiir um íkveíkju á dagheimili Til söiu er býlið Tjarnaland á besta stað í Eyjafjarðarsveit 10 mín. akstur frá Akureyri. Enginn framleiðsluréttur. Nánari upplýsingar hjá Ólafi í síma 463 1195 eftir kl. 17.00. PÓSTUR OG SÍMI ÚTBOÐ Múlastöð, Suðurlandsbraut 28, Reykjavík, 3. hæð - stækkun Póst- og símamálastofnunin óskar eftir tiiboðum í byggingu og fullnaðarfrágang á 3. hæð ofan á Suður- landsbraut 28 í Reykjavík. Hæðin er um 426 fm að flatarmáli. Verk það sem hér um ræðir nær til að fjarlægja núverandi þak af húsinu og byggja eina hæð ofan á húsið. Útvegginn skal steypa. Nýtt þak verður hefðbundið timburþak. Full- gera skal hæðina að innan sem utan. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, Pósthússtræti 3-5, Reykjavík, á kr. 8.000,- frá og með þriðjudeginum 24. september 1996. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 15. október 1996 kl. 11.00.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.