Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Blaðsíða 8
8 - Þriðjudagur 24. september 1996 Ílagur-Hlímmn PJÓÐMÁL JDagur- Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Hörður Blöndal Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Brautarholti 1, Reykjavík Símar: 460 6100 og 563 1600 Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639 Stolið fyrir opnum tjöldum í fyrsta lagi Fyrir skömmu var upplýst að hert skattaeftirlit hefði skilað ríkissjóði 1500 milljónum á tveimur árum. Gott mál. Skattsvik eru á bilinu 10-15 millj- arðar árlega að bestu manna yfirsýn. Þau eru heiðvirðum skattgreiðendum dýrari en grunn- skólakerfið. Þess vegna heimtar almenningur að harðar verði gengið fram gegn skattsvikurum. Nú á almenningur að sýna stjórnvöldum gott fordæmi og ganga sjálfur hart fram gegn skattsvikum fyrir opnum tjöldum. Við getum stöðvað þá sem nota ekki sjóðsvélar. Nánast allir sem selja vörur og þjónustu eiga að nota sjóðsvélar. Neytandinn á að vera viss um að viðskiptin séu skráð rétt til þess að skattur af þeim skili sér. Á þessu er mikill misbrestur. Ástandið er sérlega slæmt í margs konar smáverslun og þjón- ustu þar sem gengið er út frá andvaraleysi hins al- menna borgara. Almenningur er hér með hvattur til að fylgjast glöggt með atferli kaupmanna við kassann. Gerið háværar athugasemdir við búðar- borðið ef vitnast um tilburði til að skjóta viðskipt- um undan skatti. þriðja lagi Nótulaus viðskipti eru skiljanleg að því leyti að bæði seljandi og kaupandi „hagnast“. Öðru máli gegnir um þegar farið er hjá sjóðsvélinni. Neyt- andinn greiðir fullt verð. Síðan greiðir hann skólagöngu barna þess sem stelur, sjúkrahúsvist hans og allt annað sem velferðarkerfið veitir hon- um. Þess vegna er beinn ávinningur af því að gera hróp að skattsvikurum af þessu tagi. Þjóðin er hvött til að byrja strax í dag. Stefán Jón Hafstein. V_______________________________________________________) iagtut* Voru viðbrögð Seðlabankans nauðsynleg að hækka vexti vegna þenslunnar í þjóðfélaginu? Pétur H. Blöndal alþingismadur (D) ú sœti í efnahags- og viöskiptanefnd Aiþingis Vegna aukinna fram- kvæmda er hætta á verðbólgu. Eitt af' því sem hægt er að grípa til er hækkun vaxta en spurning- in er hve langt er hægt að ganga þegar efnahagskerf- ið er orðið jafn opið og nú er. Það er miklu erfiðara að hækka vexti núna en var. Vextir hafa verið hærri á ís- landi en erlendis þannig að það er ákveðinn þrýstingur á fyrirtæki og opinbera að- ila að taka lán erlendis. Halldór Björnsson J'ormaður Dagsbrúnar Nei, það get ég ekki séð. Það eru ýmis keðjuverkandi áhrif sem svona vaxtahækkun getur haft í för með sér og sumt eykur beinlínins hætt- una á aukinni þenslu, sbr. vaxtahækkun bankanna og fleira. Ég get ekki lagt blessun mína yfir þennan gjörning, nú fara kjara- samningar að losna og ég held að það hefði verið mun skynsamlegra að halda að sér höndum hvað svona aðgerðir varðar. ♦ ♦ Björn Grétar Sveinsson formaður VMSÍ s Eg held að ég geti svarað því fyrir mig, að það er engin þensla hjá mér og ég held að flest af mínu fólki hafi ekki orðið vart við þessa þenslu, a.m.k. ekki þær þúsundir manna sem ganga um atvinnlausir. Ekki vil ég þeim neitt illt blessuðum en það hrærist í manni sá grunur að allt sé þetta einfaldlega undirbún- ingur fyrir hræðsluáróður varðandi kjarasamninga. Ögmundur Jónasson alþingismaður og formaöur BSRB Mér finnst alvarlegt af hálfu Seðla- banka að setja f gang vaxtahækkunarrúll- ettuna. Maður spyr sig hvort ráðandi öfl í þjóðfé- laginu séu farin að hafa áhyggjur af batnandi at- vinnustigi, þótt þenslan í samfélaginu sé ótvíræð. Háir vextir hafa farið illa með heimilin og atvinnulíf- ið og ég hélt að menn hefðu eitthvað lært, auk þess sem vextir hafa hækkað og ekki ábætandi í þeim efnum. Pólitísk hrossakaup „Meri nær endurkjöri í fimmtu lotu“ Fyrirsögn Mogga á laugardag. Hér er reyndar ekkert verið að skrifa um póli- tiskar hámerar heldur forseta Eistlands. Listin orðin að aðskotahlvt „Við getum því miður einnig nefnt ýmis innlend dæmi um hvar illa hefur tekist til, vegna þess að rýmið hefur reynst ætl- að öðru, og listin orðið sem að- skotahlutur. Stytta Einars Jóns- sonar af Jónasi Hallgrímssyni er nánast falin í Hljómskála- garðinum, Landbanki íslands hefur framið illvirki á verki Jóns Gunnars Árnasonar, „Sól- arauga“, með því að setja það upp á bílastæði í úthverfi Reykjavíkur þar sem það húkir í skugga grárra bygginga, og höggmyndasýning í Austur- stræti á Listahátíð fyrir rúmum tveimur áratugum mistókst hrapallega þar sem verk voru jafnvel eyðilögð listin reyndist vera truflun á staðnum.“ Svo ritar myndlistargagnrýnandi Morg- unblaðsins, Eiríkur Þorláksson. Komu verri til baka „Það voru einu sinni einhverjir úr Háskólanum með fund uppi í Hvalfirði og tóku alla verkstjór- ana þangað til að messa yfir þeim og kenna þeim að koma fram við fólk. Ég sendi þangað eina þrjá eða ijóra en ég held að þeir hafi verið verri þegar þeir komu til baka.“ Sá sem þetta mælir svo hraustlega er Alli ríki í yfirheyrslu í DV. Fiskurinn á enga möguleika Mikið er búið að dásama glæsi- lega sjávarútvegssýningu í fjöl- miðlum. Hún var sú stærsta sem haldin hefur verið hérlendis og dró að þúsundir útlendinga, sem ferðamálastjóri bókar nú sem túrista og þakkar öflugri kynningarstarfsemi að þeir hafi borgað hótelreikninga í nokkrar nætur hérlendis. Margt var fallega sagt um þær miklu tækninýjungar sem kynntar voru á sýningunni og eiga framleið- endur og sölumenn veiðitækja og vinnslubúnaðar bjarta framtíð fyrir höndum. Það var til að mynda mjög tilkomumikið og hrífandi að fylgjast með því hvernig hægt er að miðstýra frystihúsi í Hnífsdal úr Laugardalshöll- inni. Þetta gefur fögur fyrirheit um að hægt verði að stjórna Granda frá Ilraðfrystihúsi Eskifjarðar og að Horn- firðingar taki að sér daglega stjórn og rekstur á fiskvinnslu UA. Gjaldþrota menntakerfi á Kópaskeri getur svo hæglega séð um sýningar í Sambíóun- um í Mjódd og við Snorrabraut. Vígbúnaðarkapphlaup Einn var sá sýningargestur sem sá tækniframfarirnar frá dálítið öðru sjónarhorni en öll hagsmunahjörðin sem að sýningunni stóð. Það var sjáv- arútvegsráðherra Nýfundnalands, sem hér var staddur í opinberri heimsókn. Þegar fréttamaður spurði hvort hann væri ekki hrifinn var svarið: „The fish has not got a chance.“ Fiskurinn á enga möguleika. Maðurinn gat trútt um talað af bit- urri reynslu. Fiskimið Nýfundnalands uppurin og lífinu haldið í landsmönn- um með ölmusu frá alríkisstjórninni í Ottawa. Veiðitæknin er fyrir löngu komin á það stig að hún getur hæglega útrýmt öllu kviku í sjónum og nú beinist þró- unin öll að því að það verði hægt á sem skemmstum tíma og með sem minnstum mannafla. Ein af stórfréttum vikunnar var að nú kváðu Norsarar vera búnir að finna upp fiff til að setja á troll sem eykur veiðigetuna um þriðjung. Hugsunin er eitthvað svipuð og hjá methöfum vígbúnaðarkapphlaupsins. Þegar þeir voru búnir að framleiða at- ómbombur sem gátu eytt öllu lífi á jörð- inni fimmtíu sinnum, héldu þeir áfram að fullkomna tól sín þar til eyðileggingar- mátturinn var orð- inn hundrað sinnum meiri en þörf var á til að fullnægja þeim tilgangi að sprengja upp allt sem lífsanda dregur í okkar þekkta al- heimi. Áfallahjálp Fiskmarkaðir byggjast á öflugu upplýs- ingastreymi og svo náttúrle'ga gegnd- arlausum akstri með fisk landshorna á milli. Á uppboðunum hleypur kaup- endum kapp í kinn og þar ríkir marg- rómaður og tæknivæddur samkeppnis- andinn. Eitt smáatriði er þó ekki inni í tölvukerfunum. Það er á hvaða verði fyrirtækin þola að kaupa fiskinn. Fisk- vinnslan er rekin með rjúkandi tapi og verið er að skrúfa fyrir alla atvinnu í heilu byggðarlögunum, þrátt fyrir allar tölvustýrðu vinnslulínurnar og ofboðs- lega upplýsingamöguleika. Og öll nýja veiðitæknin eykur ekki aflann um eina stirtlu, þar sem kvót- inn bannar að veiðigetan sé nýtt. Rányrkja í Barentshafi og á Flæmska hattinum eru aðalsmerki ís- lensks sjávarútvegs og réttlætir ofljár- festingu. Það er kannski von að ráð- herrann frá Nýfundnalandi sé ekkert yfir sig hrifmn af hinum miklu fram- förum í sjávarútvegi og fiskvinnslu til að veiða og vinna sífellt minna og minna. Það er von að sjómenn kveini eftir sálfræðingum og áfallahjálp mitt í allri framfaradýrðinni. oó

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.