Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Blaðsíða 10
li : .,(lX r' tov ík?. iwwfcriW 10 - Þriðjudagur 24. september 1996 ■/ E N S K A KNATTSPYRNán/- iDagur-SmTOtn Uverpool trónir á toppnum Patrik Berger skoraöi tvö mörk í stórsigri Liverpool á Chelsea og fagnar hér með Robbie Fowler. Liverpool er í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir stórsigur á Chelsea á laugardag, 5:1. Newcastle spil- ar ekki eins vel en nær árangri og lagði Leeds á útivelli 1:0. Meistarar Manchester United lentu í vandræðum gegn Aston Villa og Arsenal stöðvaði sig- urgöngu Middlesbrough. Á sunnudag mættust síðán Tott- enham og Leicester og þeir síð- arnefndu tryggðu sér óvæntan sigur á lokamínútunum. Allra augu beindust að leik H 1. DEILD H Úrslit Bradford-Bolton 2:4 Grimsby-Oxford 0:2 Man. City-Birmingham 1:0 Oldham-Barnsley 0:1 Portsmouth-Norwich 0:1 QPR-Swindon 1:1 Reading-C. Palace 1:6 Southend-Port Vale 0:0 Tranmere-West Brom •2:3 Wolves-Sheff. Utd. 1:2 Stoke-Huddersfield 3:2 Staðan Bolton 8 6 1 1 21:11 19 Barnsley 7 6 0 1 15: 6 18 Norwich 8 5 2 1 9: 4 17 Stoke 8 4 2 2 13:14 14 Wolves 8 4 2 2 12: 8 14 C. Palace 8 3 4 1 15: 7 13 Tranmere 8 4 1 3 11: 9 13 Ipswich 8 3 3 2 15:12 12 QPR 8 3 3 2 11:10 12 Man. City 8 4 0 4 9: 9 12 West Brom 7 3 2 2 12:11 11 Swindon 8 3 2 3 9: 9 11 Sheff. Utd. 6 3 1 2 12: 9 10 Huddersfield 7 3 1 3 12: 11 10 Oxford 8 3 1 4 11: 8 10 Portsmouth 8 3 1 4 6: 9 10 Birmingham 6 2 2 2 8: 7 8 Port Vale 8 1 5 2 6: 8 8 Reading 8 2 1 5 10:20 7 Charlton 7 2 1 4 6: 8 7 Southend 8 1 3 4 7:14 6 Bradford 8 2 0 6 6:14 6 Grimsby 8 1 2 5 8:18 5 Oldham 8 0 2 6 7:15 2 Liverpool og Chelsea enda búist við jafnri og spennandi viður- eign liðanna í fyrsta og þriðja sæti deildarinnar. En raunin varð önnur. Eftir slaka byrjun tók Liverpool völdin og hrein- lega valtaði yfir Chelsea. Sókn- irnar gengu upp og mörkin komu á færibandi. Patrik Berg- er var aftur í aðalhlutverki og hann hefur nú spilað einn og hálfan leik með Liverpool og skorað íjögur mörk. Liverpool spilaði meistaralega og sigurinn var öruggur en þetta var fyrsta tap Chelsea á tímabilinu. Leik- menn Chelsea auðvelduðu heimamönnum verkið með því að skora tvö sjálfsmörk og það fyrra var með þeim glæsileg- ustu sem sést hafa í langan ti'ma. Andy Myers skoraði það á síðustu sekúndum fyrri hálf- leiks og honum var kippt útaf í hléinu. Leikur Liverpool hefur breyst mikið við tilkomu Berg- ers. Ilann spilar líkt og Steve McManaman mitt á milli miðju og framlínu og stingur sér inn í glufur í vörn andstæðinganna. Áhorfendur stóðu á fætur og fögnuðu Berger þegar hann gekk af leikvelli. „Mér leið alveg yndislega og ég vona bara að það verði áframhald á þessu. Ég hef aldrei upplifað aðra eins stemmningu eins og hér á An- field,“ sagði Berger. Sterkar varnir Manchester United og Aston Villa eiga bæði erfiða Evrópu- leiki fyrir höndum í vikunni og liðin verða að gera betur en á laugardag ef þau ætla sér langt í keppninni. Petta var leikur hinna sterku varna og færin voru fá. Tvisvar skutu leikmenn United þó í marksúlurnar en inn vildi boltinn ekki. Þetta var íjórða jafntefli United á tímabil- inu og liðið hefur misst mikil- væg stig í baráttunni á toppn- um. Roy Keane kom aftur inn í United liðið eftir meiðsl og hol- lenski markvörðurinn Raimond van der Gouw stóð á milli stanganna í stað Peter Schmei- chel, sem er með magapínu. Andy Cole kom inná fyrir Ole Gunnar Solskjær í hléinu og var nálægt því að skora sigurmark- ið en skalli hans fór í þverslána. Sheffield Wednesday er farið að gefa eftir og Iiðið náði aðeins markalausu jalntefli á heima- velli gegn Derby, sem hefur ekki sigrað á Ilillsborough síð- an 1936. Leikurinn stóð ekki undir væntingum en dómarinn þótti slá slæmum leikmönnum út með hrikalegum mistökum. Leeds í lægð Dýrasti knattspyrnumaður heims, Alan Shearer, skoraði sigurmark Newcastle gegn Leeds og er það fyrsta markið sem hann skorar fyrir félagið sem ekki kemur úr vítaspyrnu. Shearer kann vel við að mæta Leeds og hefur nú skorað 10 mörk í síðustu 11 leikjum sem hann hefur mætt liðinu. Carlton Palmer var rekinn útaf í fyrri hálfleik eftir brot á Asprilla og Shearer með fjögurra mínútna millibili. Svo virtist sem hann myndi sleppa með skrekkinn en eftir að Shearer suðaði í dóm- aranum ákvað hann að reka Palmer útaf. Asprilla kom inn í byrjunarlið Newcastle að nýju í stað Les Ferdinand, sem var með flensu og gat ekki leikið. Adams snýr aftur Arsenal stöðvaði hraðför Midd- lesbrough upp töfluna með sannfærandi sigri á útivelli. Franski miðjumaðurinn Patrick Vieira var í byrjunarliði Arsenal í fyrsta sinn og vandræðagems- inn Tony Adams kom inná sem varamaður í fyrri hálfleik. Markahæsti leikmaður úrvals- deildarinnar, Fabrizio Ravanelli hjá Boro, hafði ekki heppnina með sér og átti skot í þverslá og stöng en veikleiki liðsins kom berlega í ljós í þessum leik - hriplek vörn, sem gæti orðið liðinu fjötur um fót rétt eins og á síðasta tímabili. Spurs í vanda Skallamark frá Ian Marshall íjórum mínútum fyrir leikslok tryggði Leicester sigurinn. Fyrsti útisigur Leicester í úr- valsdeildinni en Tottenharn hef- ur ekki unnið heimaleik í deild- inni f sex mánuði. Pað var ungl- ingurinn Emile Heskey, 18 ára, sem tætti vörn Tottenham í sig hvað eftir annað. Hann lagði upp fyrra mark Leicester, fisk- aði víti sem samherji hans mis- notaði og átti skot í stöng. Steve Claridge skoraði fyrra mark gestanna en meiddist í þann mund sem hann spyrnti í netið og í hans stað kom Marshall, sem síðar skoraði sigurmarkið. í lið Tottenham vantaði fyrirlið- ann Gary Mabbutt og framherj- ana Teddy Sheringham og Chris Armstrong, sem allir eru meiddir og framlínan var skip- uð unglingnum Rory AUen og varnarmanninum Sol Campbell. ÚRVALSDEILD Úrslit Aston Villa-Man. Utd. 0:0 Blackburn-Everton 1:1 Leeds-Newcastle 0:1 Liverpool-Chelsea 5:1 Middlesbrough-Arsenal 0:2 Nottm. Forest-West Ham 0:2 Sheff. Wed.-Derby 0:0 Sunderland-Coventry 1:0 Tottenham-Leicéster 1:2 Staðan Liverpool 7 5 2 0 16: 5 17 Newcastle 7 5 0 2 10: 7 15 Arsenal 7 4 2 1 15: 8 14 Man. Utd. 7 3 4 0 16: 6 13 Sheff. Wed. 7 4 12 9: 9 13 Aston ViUa 7 3 3 1 8: 5 12 Chelsea 7 3 3 1 10: 9 12 Middlesbr. 7 3 2 2 14: 9 11 Derby 7 2 4 1 8: 8 10 Sunderland 7 2 3 2 6: 4 9 Wimbledon 6 3 0 3 7: 6 9 Tottenham 7 2 2 3 6: 6 8 West Ham 7 2 2 3 6:10 8 Leicester 7 2 2 3 5: 9 8 Leeds 7 2 14 6:12 7 Everton 7 13 3 6:10 6 Nottm. Forest 7 13 3 8:13 6 Coventry 7 115 3:13 4 Southampton 6 0 2 4 5: 9 2 Blackburn 702 5 5:11 2 GOLF Birgir Leifur féll út í 8-manna úrslitum BLAK Tvöfaldur sigur ÍS á Haustmótinu Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Keili, náði alla leið í átta manna úr- slit á Opna ítalska mótinu í golfi, sem fram fór á Circolo golfvellinum á Ítalíu. Leikinn var höggleikur fyrstu tvo dag- ana og var Birgir Leifur í hópi þeirra 32 sem spiluðu sig inn í úrslitin, en Björgvin Þorsteins- son náði ekki svo langt. Leikin var holukeppni í úr- slitunum. Birgir lagði Hollend- ing að velli x 32-manna úrslit- unum og Þjóðverja í sextán manna úrslitunum. Hann féll síðan út fyrir Svía í átta manna úrslitunum, en viðureign þeirra var mjög spennandi. Leikar stóðu jafnir eftir sextán holur en á þeirri sautjándu, par fimm holu, lék Svíinn á þremur högg- um en Birgir á íjórum. Svíanum dugði því jafntefli á síðustu hol- unni og það gekk eftir. Sænski spilarinn fór alla leið í úrslita- leikinn en ekki hafa borist nein- ar fregnir af úrslitum mótsins. Þetta er síðasta mótið sem íslenskir kylfingar taka þátt í erlendis á þessu keppnistíma- bili, en fyrir dvrum stendur æf- ingaferð til Irlands þar sem leikið verður á hinum þekkta Portmanrock velli, en á þeim velli verður Evrópumót karla- liða haldið næsta sumar. A S byrjar keppmstímabilið vel í blakinu, en um síð- ustu helgi sigraði karla- og kvennalið félagsins á Haustmótinu sem haldið var í íþróttahúsinu í Austurbergi. Öll fimm liðin í 1. deild voru með lið í karlaflokknum þar sem fS hreppti 1. sætið, Þróttur Neskaupstað varð í 2. sæti, íslandsmeistarar Þrótt- ar í 3. sætinu, KA í því íjórða og Stjarnan í 5. sæti. Úrslit urðu þessi: Þróttur-Þróttur N 0-2 KA-Þróttur N. 0-2 ÍS-KA 2-1 Stjarnan-ÍS 0-2 Þróttur-Stjarnan 1-2 Þróttur N-Stjarnan 2-0 Þróttur-ÍS 1-2 Stjarnan-KA 1-2 KA-Þróttur 0-2 Þróttur N-ÍS 0-2 Úrslit urðu eftirfarandi í kvennaflokknum. Þrjú lið með í flokknum og leikin var tvöföld umferð. Víkingur-ÍS 1-2/1-2 Þróttur N-ÍS 1-2/2-0 Víkingur-Þróttur N 2-1 / 0-2 ÍS hafnaði í 1. sæti, Þróttur Neskaupstað í 2. sæti og Vík- ingur í því þriðja. KÖRFUBOLTI Islenskir dómarar erlendis rír íslenskir körfuknatt- leiksdómarar hafa fengið verkefni erlendis á leikj- um í Evrópumótunum. Kristinn Albertsson mun dæma viðureign Sunair BCO frá Belgíu og Budivelnik-Honda frá Úkram'u en leikur liðanna fer fram 1. október og leik Go Pass Pepinster frá Belgíu og Nikol Fert frá Makedóníu sem fram daginn eftir. Leifur Garðarsson mun dæma leik Real Madrid Teka frá Spáni og Benfica sem fram fer 8. næsta mánaðar og daginn eftir leik Turismo Andaluz frá Spáni og Albacomp frá Ung- verjalandi. Helgi Bragason mun dæma leik Plannja Basket frá Svíþjóð gegn CSC, liði rússneska flug- hersins.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.