Dagur - Tíminn - 15.10.1996, Side 3
|Dagur-®mmm
Þriðjudagur 15. október 1996 - 3
F R É T T I R
Reykingar
Fara stöðugt vaxandi á þessu ári
Samanburður á daglegum reykingum 1985 -1996
eftir kyni, 18-69 ára
mmmmmi Karlar ... Konur
Heilbrigðisstéttir sam-
ræma m.a. kröfur sínar
í reykingavörnum, sjúk-
dómafræði reykinga,
lífsstíl og mataræði á
námskeiðum á
vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins.
Reykingar hafa aukist hér-
lendis á þessu ári sam-
kvæmt upplýsingum
Tóbaksvarnarnefndar þrátt fyr-
ir að stöðugt sé haldið uppi
áróðri gegn þeim og þeirri
skaðsemi sem reykingar valda
á heilsufari fólks, ævilengd o.fl.
í dag reykja um 27% allra karl-
manna á íslandi, 15 ára og
eldri, og 26% kvenna og er ís-
land í þriðja sæti Norðurlanda-
þjóðanna; efstir eru Danir þar
sem 46% allra karlmanna og
39% kvenna reykja. Síðan koma
Norðmenn og á eftir íslending-
um Finnar og Svíar í neðsta
sæti þar sem 26% karla reykja
og 25% kvenna. Það er athygl-
isvert að það er rétt eins og
portúgalskar konur hafl ekki
uppgötvað sígarettuna, því að-
eins 5% þeirra reykja og aðeins
14% japanskra kvenna en jap-
anskir karlmenn reykja hins
vegar manna mest, eða 61% og
þar á eftir Spánverjar með
52%. Danskar konur reykja
hins vegar kvenna mest, eða
39% þeirra, og síðan þær
norsku með 32%.
Árið 1985 reyktu 43% ís-
lenskra karla daglega og 37%
kvenna, og það hlutfall fór síð-
Allir borgarstarfsmenn
sem eiga við áfengis- og
vímuefnavandamál að
stríða fá full laun frá borginni á
meðan þeir eru í meðferð, eða
hátt í tvo mánuði.
Nýmótuð stefna Reykjavíkur-
borgar gagnvart þeim starfs-
mönnum sínum sem eiga við
áfengis- og vímuefnavanda
verður kynnt í Gerðubergi í
dag. Þessi stefna felur það m.a.
í sér að borgin býður starfs-
an hægt minnkandi allt til árs-
ins 1993 er 30% íslenskra
kvenna reyktu daglega og 28%
karla. *
Ári seinna, 1994, tóku reyk-
ingar karla mikinn kipp, fóru í
31% en reykingar kvenna lækk-
uðu enn, fóru í 28%. Síðan þá
hefur sigið á ógæfuhliðina í
þessum efnum hvað varðar
daglegar reykingar kvenna,
þær fóru í 29% árið 1995 og í
31% á þessu ári. Hjá körlum
lækkaði hlutfall daglegra reyk-
inga hjá körlum árið 1995 um
tvö prósentustig, í 29%, sem
var hið sama og hjá konum, en
á þessu ári hafa daglegar reyk-
ingar karlmanna farið í 31% á
móti 30% hjá konum.
Ljóst er að árangur forvarn-
arstarfs gegn reykingum heflrr
ekki skilað þeim árangri sem
stefnt hefur verið að og þessi
aukning á árinu undirstrikar að
og jafnframt að framleiðendur
tóbaks hafa náð umtalsverðum.
mönnum sínum að gera samn-
ing um að fá full laun á meðan
þeir þurfa á meðferð að halda.
Þar verða einnig kynntar reglur
sem farið verður eftir í þessu
sambandi, en eftir því sem best
er vitað munu slíkar reglur ekki
eiga sér hliðstæðu annars stað-
ar í opinberri stjórnsýslu. Með-
al þeirra skilyrða sem eru fyrir
því að fá full laun í meðferð er
að viðkomandi hafi unnið í
minnst eitt ár hjá borginni.
árangri í sinni markaðssetn-
ingu. Einnig kunna kvikmyndir
að eiga sinn þátt í því, en á
tímabili sáust „hetjurnar“ ekki
reykja og þá fór hlutfall dag-
legra reykinga lækkandi. Nú er
hins vegar öldin önnur og því á
brattann að sækja. Um helgina
var haldið leiðbeinendanám-
skeið á Akureyri fyrir starfs-
menn heilsugæslu, sjúkrahúsa,
meðferðarstofnana á sviði
ávana- og fíkniefna, sem og
frjálsra félagasamtaka þar sem
m.a. var rætt um samræmingu
reykingavarna, sjúkdómafræði
reykinga, hfsstíl og mataræði og
leiðir til að hætta að reykja.
Nánar verður fjallaö um nám-
skeiðið á næstunni í Degi-Tím-
anum og m.a. rætt við Helga
Sigurðsson, krabbameinslækni.
GG
Vatnajökull
Gosið að
lognast útaf
Eg treysti mér ekki til að
gefa út dánarvottorðið
enn, en það bendir allt
til að gosið sé að lognast út
af,“ sagði Magnús Tumi Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur
hjá Raunvísindastofnun í
gærkvöldi.
Magnús útilokar alls ekki að
röð eldgosa sé nú að hefjast í
Vatnajökli. „Það gæti vel verið.
Síðustu 58 ár eru rólegasti tím-
inn í jöklinum mörg hundruð ár
og ef við tökum t.d. tímabilið á
seinni hluta síðustu aldar þá
varð gos á 5-10 ára fresti í
Vatnajökli. Upp á síðkastið hef-
ur hins vegar verið með af-
brigðum rólegt. Kannski er eld-
gosið núna vorboði þess að það
verði öllu líflegra í Vatnajökli
en verið hefur.“
Ef svo fer að hrina eldgosa
færi af stað gæti það haft mikil
áhrif hvað varðar stórhlaup á
Skeiðarársandi og/eða í Jökulsá
á Fjöllum. „Þarna gætu orðið
töluverðar búsiíjar og skemmd-
ir á mannvirkjum. Það eru
sögulegar heimildir til um að
hlaup hafa komið í Jöklulsá
þegar gosið hefur á vatnasvið
hennar undir jöklinum," sagði
Magnús Tumi. BÞ
Akureyri
Mánaðarlaun
hækki um 15-
20 þúsund kr.
Iðja, félag verksmiðjufólks á
Ákureyri og nágrennis krefst
þess að mánaðarlaun iðn-
verkafólks hækki rnn 15-20
þúsund krónur við gerð næstu
kjarasamninga.
í ályktun félagsfundar Iðju
frá sl. laugardegi er þess krafist
að lægstu launataxtar stór-
hækki ásamt auknum kaup-
mætti, þannig að lægstu laun
séu sambærileg við niðurstöður
Kjararannsóknanefndar um
greidd dagvinnulaun. Þorsteinn
E. Arnórsson formaður Iðju
segir að þetta þýði að iðnverka-
fólk vilji að mánaðarlaun þess
hækki úr því að vera t.d. 60
þúsund krónur eftir fimm ár í
matvælaiðnaði með námskeiða-
álagi í 80 þúsund krónur.
Snjóbolti
Svissneskt gaman
í íslenskum snjó
Leikmenn svissneska handknattleiksliðsins Amiticia tóku það létt
milli Evrópuleikjanna við KA á föstudeginum og sunnudeginum og
fóru m.a. í sund í Þelamerkurlaug. Þrátt fyrir að vera frá háfjalla-
landi fannst þeim greinilega nýjabrum í því að synda í heitri laug og
geta jafnframt spókað sig og leikið sér í snjónum. Á myndinni eru
þrír leikmenn Amiticia í léttri en hrollkaldri æfingu á laugarbarmin-
Um. Mynd.GG
Reykjavíkurborg
Full laun í meðferð
Blíndrafélagið
250 manna biðlisti eftir
Stjórn Blindrafélagsins segir
að borgarráð hafi siðferð-
islega og stjórnmálalega
ábyrgð á augnlækningum og fer
þess á leit að borgarráð ræði á
fundi sínum í dag - - á degi
Hvíta stafsins — skyldur sínar
gagnvart augnlækningum á ís-
landi og forgangsröðun þeirra á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Full-
trúar borgarráðs í stjórn
Sjúkrahúss Reykjavíkur hafa
samþykkt að öllum aðgerðum
öðrum en hinum brýnustu á
augnsjúklingum verði hætt dm
óákveðna framtíð.
„Félagið trúir þv og treystir
að niðurstaða þeirrar umræðu
verði að beina þvx' til Sjúkra-
húss Reykjavíkur að fyrirfram
ákveðnar augnaðgerðir í dag og
næstu vikur verði færðar fram í
forgangsröð spítalans og kapp-
samlega að því unnið að tæma
þann óþolandi biðlista sem nú
er. Reykjavíkurborg skilar af
sér augnlækningum á íslandi á
næstu mánuðum til Ríkisspít-
ala, það er brýnt að hún skili
ekki verr af sér en hún tók við“,
segir stjórn Blindrafélagsins.
í greinargerð sem Blindrafé-
lagið sendir borgarráði segir að
Reykjavíkurborg hafi axlað
Þegar endurheimt sjón-
ar er á við einn farsíma
vakna upp áleitnar
spurningar.
ábyrgð á augnlækningum á ís-
landi hinn 1. janúar sl. með
yfirtöku á Landakotsspítala. „í
dag rúmum níu mánuðum síðar
hefur forgangsröðun verkefna
skapað nýtt fyrirbæri: Biðlista
blindra og sjónskertra. Á ör-
skömmum tíma hefur orðið til
250 manna biðlisti eftir augn-
augnaðgerðum
aðgerðmn. Það er óyggjandi
vitnisburður um að Sjúkrahús
Reykjavíkur hefur ekki axlað
ábyrgð sína og þær skyldur sem
Blindrafélagið telur að það hafi
tekið á sig um forgangsröðun
verkefna."
Ennfremur segir í greinar-
gerðinni: „Þegar endurheimt
sjónar kostar 60 þúsund krón-
ur, eða á við farsíma, vakna
áleitnar spurningar um verð-
mæta- og gildismat á forgangs-
röðun er ekki rúmar svo knýj-
andi aðgerð."
Helgi Iljörvarr framkvæmda-
stjóri Blindrafélagsins sagðist
vongóður um að borgarráð
myndi láta til sín taka í þessu
máh. Aðspurður hvort svartur
dagur væri framundan á degi
Hvíta stafsins ef ekki úr rættist,
sagði Helgi:_„Við í blindrafélag-
inu erum bjartsýn. Það hefur
skapast skyndilegur og áður
óþekktur vandi á augndeildinni
og þess vegna leitum við til
borgarráðs á þessum hátíðar-
degi. Borgarráð hefur haft góð-
an skilning á þessum málefnum
og við trúum því og treystum að
það beiti sér fyrir lausn á þess-
um vanda, jafn skjótlega og
hann skapaðist." BÞ