Dagur - Tíminn - 15.10.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 15.10.1996, Blaðsíða 9
ÍDmjur-ÍEtmmn Þriðjudagur 15. október 1996 - 9 Kvenfélag í vöm og vanda Landsfundur Sjálfstæðisflokksins Árni Þór Sigurðsson skrifar Fjölmennasta kvenfélag landsins að sögn, Sjálf- stæðisflokkurinn, hélt að- alfund sinn um síðustu helgi. Það sem gerir þetta kvenfélag einkar sérstætt er að í öllum helstu forystuhlutverkum fé- lagsins eru karlar, en þar er ef til vill komin jafnréttishugsjón þeirra sjálfstæðismanna í reynd. Það fór ekki fram hjá neinum sem fylgdist með um- stanginu í kringum fundinn að forystunni var mikið í mun að afsaka stöðu jafnréttismála og rýran hlut kvenna í fremstu röð kvenfélagsins. Ekki er örgrannt um að greina hafi mátt obbolít- ið samviskubit í máli leiðtoga hins mikla kvenfélags. Hugarfarsbreyting En að slepptu öllu gamni, lítum þá á málið nánar. Rétt er þó að rifja upp að það var formaður Sjálfstæðisflokksins sem gaf flokki sínum nafnið „stærsta kvenfélag landsins", svo von er að menn reki í rogastans að sjá svo einlita karlahjörð í forystu- myndinni. Megininntakið í jafn- réttisboðskap Sjálfstæðisflokks- ins er að tryggja þurfi frelsi ein- staklingsins, það sé jafnrétti í reynd. Og að ekki megi tryggja konum meiri hlut og jafnari í gegnum „kvótakerfi" því þá veljist þær til trúnaðarstarfa vegna kynferðis en ekki vegna hæfileika. Hugarfarsbreyting er lausnarorðið á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins, ekki alveg nýtt af nálinni í þessari umræðu, en engu að síður ljósið í myrku karlaveldi flokksins. Konurnar láta sér vel líka og hugga sig við að Davíð Oddsson verði nú ekki formaður flokksins næstu 30 ár svo tími konunnar mun koma að lokum. Kvótakerfi Kynjakvóti hefur um margra ára skeið verið viðhafður í kjöri Útdráttur úr stjómmálayfirlýsingu Jafnrétti kynjanna var annað tveggja megin- mála landsfundar Sjálf- stæðisflokksins. Dagur- Tíminn birtir hér orðrétt kafla stjórnmálayfirlýsingar sem fjallar um jafnréttis- mál: Einstaklingsfrelsi - jafnrétti í reynd „Megininntakið í stefnu Sjálf- stæðisflokksins hefur jafnan verið frelsi og sjálfstæði ein- staklinganna til orða og verka. Einstaklingsfrelsi er jafnrétti í reynd og í anda þeirrar stefnu vilja sjálfstæðismenn að allir einstaklingar, konur og karlar, hafi lagalegar, efnahagslegar og félagslegar forsendur til sjálfs- ákvörðunar um eigið líf. Sömu tækifæri til menntunar, starfa og Iauna eiga að ná til beggja kynja. Raunverulegt valfrelsi þarf að vera til staðar bæði inn- an heimilis og utan, svo ein- staklingarnir fái notið hæfileika sinna í sem ríkustum mæli, þjóðinni til hagsbóta. Til að þetta geti orðið þarf viðhorfs- breytingu. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins leggur áherslu á að jafnréttismál verði skilgreind sem mannréttindamál. Sjálf- stæðisflokkurinn telur mikil- vægt að leita leiða til að eyða kynbundnum launamun, ásamt því að tryggja jafnræði kynj- anna fyrir skattalögum. Sjálfstæðisflokkurinn vill með verkum sínum styrkja fjöl- skylduna og efla hlutverk henn- ar sem grundvallareiningar samfélagsins. Þetta verður að gera þannig að þeir einstakling- ar, sem mynda fjölskylduna, fái í sem ríkustum mæfi notið hæfi- leika sinna og athafna á grund- velli jafnréttis." í trúnaðarstöður í mörgum fé- lögum, m.a. í Alþýðubandalag- inu. Það er aðferð sem beitt er til að tryggja sem jafnastan hlut kynjanna í trúnaðarstörfum. Vitaskuld væri hægt að bíða eft- ir hugafarsbreytingunni en kynjakvótinn er vafalítið mun skjótvirkari leið í jafnréttisbar- áttunni. Engum hefur komið til hugar að með þeirri aðferð séu konur valdar til trúnaðarstarfa kynferðis síns vegna en karl- arnir sökum hæfileika. Varla er við því að búast að í stærsta kvenfélagi landsins sé slíkur hörgull á hæfileikaríkum kon- um að kynjakvóti myndi kalla á dáðlausa forystu en hafna hæf- um körlum sem þvagrásarinnar vegna vaeru settir til hliðar. Nei, augljóst er að þessi málflutn- ingur á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins er fyrirsláttur og ber- sýnilegt að hugarfarsbreytingin á langt í land á þeim bæ. Karl- arnir geta því andað rólegar langt fram á næstu öld. Hlutur hins opinbera Sagt er að hið opinbera hafi nú gert sitt í jafnréttismálum með alls kyns formsatriðum, eins og löggjöf um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna, jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf o.s.frv. Nú sé kominn tími til að breyta við- horfi almennings til þess að einstaklingsfrelsið skili konum jafnri stöðu á við karla. Sann- Frá atkvæðagreiðslu á landsfundinum um helgina. MyndGVA leikurinn er vitaskuld sá að það vantar mikið upp á að opinberir aðUar geri sitt tU að tryggja jafnrétti. Ekki er nóg að kveðið sé á um jafnan rétt kynjanna í lögum og reglugerðum ef ekki er farið eftir þeim í reynd. Þar eru ríki og sveitarfélög ekki undanskilin og má sérstaklega draga fram launamun kynjanna sem er enn talsverður, bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ijármála- ráðherrann, ætti stöðu sinnar vegna að hafa góð tök á að laga kynbundið launamisrétti hjá hinu opinbera og verður nú beðið með eftirvæntingu eftir árangri á því sviði. Vandamálið er að hugarfarsbreytingin í höfði íjármálaráðherra skUar Utlu í launaumslag þeirra þús- unda kvenna sem starfa hjá ríkinu. Til móts við nýja öld Sjálfstæðisflokkurinn á í mikilli sálarkreppu vegna jafnréttis- málanna. Samviskubitið nagar. Kvenfélagið stóra, sem Davíð Oddsson talaði um, er bæði í vörn og vanda. Reynt er að telja almenningi trú um að nú hafi staða kvenna batnað í flokkn- um með góðum árangri í mið- stjórnarkjöri, og risið er svo lágt á konunum sjálfum í flokknum að þær samsinna þessu eins og heilögum sann- leik. Eftir stendur að flokknum er stjórnað af nokkrum mið- aldra körlum, meira og minna öllum eins, sem eru metnaðar- og getulausir til að stíga skrefið til fulls og tryggja jafnan hlut kynjanna í forystusveit flokks- ins. Þannig ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn að mæta til leiks á nýrri öld. Það er mergurinn málsins. Höfundur er borgarfulltrúi Reykjavík- urlistans. Möðruvellir Nú fer uppskerutíð í hönd HBirgir Björn Sigurjónsson Hægt og sígandi er hag- kerfið að komast upp úr verstu lægðinni. Fyr- irtækin hafa verið að skila eig- endum sínum vaxandi hagn- aði síðustu 2-3 árin. Og AI- þingi hefur af mikilli rausn létt tekjusköttum af fyrirtækj- um. Þrátt fyrir veltuaukning- una í samfélaginu, skila fyrir- tækin ekki tilsvarandi aukn- ingu í veltusköttum. Ríkis- stjórnin hefur á þessu ári keyrt í gegnum Alþingi ný lög um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins, sem hefur svipt starfsmenn ýmsum verð- mætum réttindum og aukið skyldur þeirra. Á tæknimáh fjármálaráðherra heitir þessi aðför að réttindum ríkisstarfs- manna „að færa ríkisrekstur- inn í nútímalegra horf‘. En nú eru kjarasamningar að renna út og allir launamenn bíða þess í ofvæni að þeir fái eðU- legan skerf í efnahagsbatan- um og ríkisstarfsmenn bíða þess hvernig þeim verði bætt skert réttindi í nýjum kjara- samningum. Forystumenn ríkisstjórnar- innar hafa líka tekið eftir batnandi þjóðarhag og fagnað því að vonum, eins og við hin. En þeir hafa varað launa- menn og stéttarfélög við því að gera háar launakröfur, þá blasi bara við ný kollsteypa. Rök þeirra gegn kjarabótum til launamanna í góðæri eru að í uppsveiflu hagkerfisins sé svo mikil spenna að launa- hækkanir geti valdið stór- hættulegri verðbólgu og jafn- vel snúið við hagþróuninni í andhverfu sína. Rök þeirra gegn kjarabótum í haUæri þarf varla að tíunda, en þau eru á þann veg að kjarabætur til launamanna myndu ein- ungis auka atvinnuleysi og dýpka kreppuna. Með þessari rökfræði er hægt að fullyrða að kjarabætur til launamanna séu alltaf ótímabærar! Hálærðir hugmyndafræð- ingar hafa tekið þátt í mótun rökleysunnar um rangar tíma- setningar á kjarabótum til launafólks í landinu. Og vís- indagreinar hafa verið skrif- aðar til að sýna fram á að stéttarfélögin eigi ekki aðeins sök á kostnaðarverðbólgunni og lélegum lífskjörum al- mennings, heldur beri líka ábyrgð á atvinnuleysinu. At- vinnuleysið er sagt stafa af of háum launum, lítilli fram- leiðni launamanna, ósveigjan- leika á vinnumarkaði og of miklum réttindum launa- manna. Sorglegar staðreyndir um kjör og réttindi íslenskra launamanna blasa við. í áróð- ursbæklingi stjórnvalda til er- lendra Qárfesta tekst ekki að dylja þær. Þar kemur fram að laun í iðnaði hérlendis eru um helmingur launa í Danmörku, Noregi og Þýskalandi. Þar kemur sömuleiðis fram að launakostnaður í iðnaði er um 117% hærri í Þýskalandi og um 80% liærri í Danmörku og Noregi en hérlendis. Réttindi almennra launamanna — t.d. vörn gegn uppsögnum og starfslokagreiðslur, sem al- gengar eru í vestræmnn iðn- ríkjum — tilheyra löggjöf um réttindi starfsmanna ríkisins, sem var afnumin síðastliðið vor. Enda segir í áróðursbækl- ingi stjórnvalda að vinnuafl hérlendis sé með endemum ódýrt, sveigjanlegt og vinnu- fúst. Nú eru kjarasamningar framundan. Verkefni stéttar- félaganna er að tryggja launa- mönnum mannsæmandi kjör og réttindi á íslandi. Stöðvum landflóttann og gerum ísland að óskalandi launamanna og fjárfesta. Ilöfundur er framkvæmdastjóri BHMR.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.