Dagur - Tíminn - 15.10.1996, Qupperneq 10

Dagur - Tíminn - 15.10.1996, Qupperneq 10
10 - Þriðjudagur 15. október 1996 Jkgur-'ðlmtrrat I / Þ R KNATTSPYRNA • England Shearer kom Newcastie á toppinn Mark Bosnich, markvörður Villa, fékk áminningu hjá dómara og yfirheyrslu lögreglu að leik loknum fyrir að senda stuðningsmönnum Spurs nasistakveðju. Newcastle er á kunnugleg- um slóðum, í efsta sæti úrvalsdeilarinnar rétt eins og liðið var nær allt síðasta tímabil. Það var dýrasti knatt- spyrnumaður heims, Alan She- arer, sem tryggði liðinu sigur gegn Derby á útivelli. Man- chester United lagði Liverpool á Old Trafford og United er nú eina taplausa liðið í deildinni. Alan Shearer kom Newcastle á topp deildarinnar í fyrsta sinn síðan í mars og þeir svart- hvítu hafa nú unnið sex úrvals- deildarleiki í röð án þess að leikur liðsins hafi verið mjög sannfærandi. Gamli jaxlinn Paul McGrath lék sinn fyrsta leik fyrir Derby og hafði Shear- er í strangri gæslu allan leikinn en enski landsliðsfyrirliðinn nýtti sér einu mistökin sem McGrath gerði og sigurinn var í höfn. „Við gerðum ein mistök og þar var Shearer mættur. Hann er eini maðurinn sem maður vill alls ekki að fái bolt- ann þegar mistökin koma,“ sagði Jim Smith, stjóri Derby. Góð byrjun Manchester United skaut erki- íjendurna í Liverpool af toppn- um og er nú eina ósigraða liðið í deildinni. United á erfiða viku fyrir höndum en liðið leikur í Meistaradeild Evrópu gegn Fenerbahce í Istanbul á mið- vikudag og mætir síðan topp- liði Newcastle næsta sunnudag. Alex Ferguson tók þá ákvörðun að hvíla Gary Pallister og Ryan Giggs fyrir Evrópuleikinn en báðir eiga við smávægileg meiðsl að stríða. David May kom inn í liðið fyrir Pallister og Ferguson var ánægður. „May var bestur á vellinum. Hann og Johnsen voru frábærir og þeir gerðu Schmeichel að manni leiksins. May tæklaði þrisvar frábærlega við vítateiginn," sagði Ferguson. Eric Cantona var ekki ánægður með eigin frammistöðu og sagðist hafa gleymt því að hann gæti spilað svona illa og Roy Evans, stjóri Liverpool, var einnig svekktur. „Maður býst ekki við að koma hingað og ráða ferðinni en það gerðum við þó í klukkutíma í dag. Ég held að enginn geti mótmælt því að við höfðum yfir- burði á vellinum. Eina vanda- málið var að við gátum ekki komið tuðrunni í netið og markið sem við fengum á okkur var ódýrt,“ sagði Evans. Loksins, loksins Rod Wallace var hetjan þegar Leeds lagði Nottingham Forest 2:0. Wallace skoraði bæði mörkin og tryggði George Gra- ham fyrsta sigurinn síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá Leeds. Frammistaða liðsins var þó ekkert til að gleðjast yfir og Graham á enn erfitt verk fyrir höndum. Forest hefur ekki unnið deildarleik síðan á fyrsta degi tímabilsins þegar liðið lagði Coventry. Wimbledon er sennilega það lið sem hefur komið mest á óvart undanfarinn mánuð. Á laugardag lagði liðið Sheffield Wednesday að velli og var þetta sjötti sigur Wimbledon í deild- inni í röð. Leikurinn einkennd- ist af kæruleysi leikmanna og staðan var orðin 1:1 eftir þrjár mínútur. í kjölfarið fylgdi fjör- ugur og opinn leikur en knattspyrnan var ekki í háum gæðaflokki. Nasistakveðja Tottenham og Aston ViUa mætt- ust á White Hart Lane, þar sem danski landsliðsmaðurinn Allan Nielsen skoraði eina markið í umtöluðum leik og tryggði heimamönnum sigur- inn. Þetta var fyrsta mark hans fyrir Spurs og félagið vann fyrsta heimasigurinn í deildinni síðan í mars. Þetta var einnig fyrsti sigur liðsins á Villa í sex ár. Chris Armstrong lék með Tottenham á ný eftir meiðsl en á móti kemur að kantmaðurinn Andy Sinton meiddist á hné og verður frá í nokkrar vikur. Það vakti þó meiri athygli að ástr- alski markvörðurinn Mark Bosnich, sem lék sinn fyrsta Ieik á tímabilinu, fékk áminn- ingu hjá dómaranum fyrir að heUsa áhorfendum að hætti nasista en stuðningsmenn Tott- enham höfðu baulað á hann nær allan leikinn vegna atviks í leik liðanna fyrir tveimur árum þegar Bosnich lenti í harkalegu samstuði við Jurgen KUns- mann. Bosnich var yfirheyrður af lögreglu eftir leikinn en ólík- legt er að hann sæti kæru. Vialli í stuði ítaUnn Gianluca Vialli var sett- ur út úr liði Chelsea fyrir leik- inn gegn Leicester og ástæðan var sögð meiðsl sem hafa hrjáð hann undanfarnar vikur. Ensku blöðin sögðu þó raunverulegu ástæðuna vera ósætti milli Vialli og framkvæmdastjórans, Ruud GuUit. En Vialli kom af bekkn- um í hálfleik þegar Chelsea var marki undir og það tók hann aðeins þrjár mínútur að jafna leikinn. Hann átti einnig skot í stöng og þátt í mörkunum sem Roberto Di Matteo og Mark Hughes skoruðu. Ian Wright bauð Arsene Wenger velkominn í enska bolt- ann með tveimur faUegum mörkum og tryggði Arsenal þrjú stig gegn botnliði Black- burn. Wenger fór fögrum orð- um um Wright eftir leikinn en sagði þetta þó fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar. Dion Dublin var settur út úr liði Coventry fyrir leikinn gegn Southampton á sunnudag þar sem hann hafði ekki skorað eitt einasta mark á tímabilinu. En Dublin kom inná og skoraði jöfnunarmarkið á síðustu rpín- útu eftir að Matthew Le Tissier hafði komið gestunum yfir. Guðni á toppnum Bolton er enn á toppi ensku 1. deildarinnar en liðið lagði botnlið Oldham að velli, 3:1. Guðni Bergsson var í lykilhlut- verki í vörn Bolton en Þorvald- ur Örlygsson lék aðeins fyrri hálfleikinn með Oldham. Utan úr hei Gautaborg meistari fjórða árið í röð AIK Gautaborg tryggði sér sænska meistaratitilinn í knattspyrnu fjórða árið í röð um helgina. Liðið tók á móti Trelleborg og sænsku lands- liðsmennirnir Stefan Petter- son og Andreas Andersson voru á skotskónum og skor- uðu tvö mörk hvor. Helsti keppinautur Gautaborgar, Helsingborg mátti þola 3:1 tap á útivelli fyrir Djuurgar- den. Tvær umferðir eru enn eftir í deildinni, en Gauta- borg hefur hlotið 50 stig úr 24 leikjum, níu stigum fleira heldur en IJelsingborg. Öre- bro, með þá Arnór Guðjohn- sen, Hlyn Birgisson og Sigurð Jónsson er í 5. sæti deildar- innar með 36 stig eftir 3:1 sigur á Halmstadt., 5. stigum fleira heldur en Örgryte sem er í 10. sæti með 31 stig. Stórleikur Ronaldo með Barcelona Barcelona skaust á toppinn í spænsku 1. deildinni á laug- ardagiim með 5:1 útisigri gegn Compostella. Brasilíu- maðurinn Ronaldo sem leik- ur í miðherjastöðunni hjá Barcelona átti stórleik. Hann skoraði tvö af mörkum liðs- ins og lagði upp önnur tvö mörk fyrir samherja sína. í leikslok stóðu stuðningsmenn Compostella úr sætum sínum og klöppuðu fyrir Brasilíu- manninum, sem oft hefur verið líkt við Pele. Inter sigraði þrátt fyrir rautt spjald Paul Ince, enski landsliðs- maðurinn hjá Inter Milano, fékk að sjá rauða spjaldið gegn Piacenza fyrir að slá Piavani í fyrri hállleiknum. Piovani þurfti sjálfur að yfir- gefa leikvöllinn á lokamínút- unni fyrir olnbogaskot. Þrátt fyrir að Inter léki einum færri í 50 mínútur uppskar liðið 2:0 sigur og sæti á toppnum á ftah'u. Marco Branca og rússneski leik- maðurinn Djorkaef skoruðu mörkin. Hitt Milanóliðð, AC mátti þola tap á heimavelli sínum gegn Roma 0:3 og er það jafnframt fyrsti sigur Roma á heimavelli AC í tíu ár. URSLIT Úrvalsdeild Man. Utd.-Liverpool 1:0 (Beckham 23) Derby-Newcastle 0:1 (Shearer 76) Blackburn-Arsenal 0:2 (Wright 3,51) Leicester-Chelsea 1:3 (Watts 44) (Vialli 48, Di Matteo 64, Hughes 80) Tottenham-Aston Villa 1:0 (Nielsen 61) Wimbledon-Sheff. Wed. 4:2 (Ekoku 2, Earle 31, Leonhardsen 67, Jones 86) (Booth 3, Hyde 72) Leeds-Nottm. Forest 2:0 (Wallace 46, 90) Everton-West Ham 2:1 (Stuart 14, Speed 78) (Dicks víti 86) Coventry-Southampton 1:1 (Dublin 90) (Le Tissier 17) Staðan Newcastle Arsenal Liverpool Man. Utd. Wimbledon Chelsea Sheff. Wed. Aston Villa Everton Middlesbr. Tottenham Leicester Derby Leeds Sunderland West Ham Nottm. Forest Southampton Coventry Blackburn 9 7 0 2 9 62 1 9 62 1 9 5 40 9 60 3 9441 9414 9 3 3 3 9 3 3 3 8 3 2 3 9 3 2 4 9 3 24 9 24 3 93 15 8 2 3 3 9 2 2 5 9144 9135 9135 90 3 6 15:10 21 19: 8 20 18: 7 20 19: 6 19 16: 9 18 14:1116 11:1513 11:1012 10:11 12 14:13 11 7: 8 11 7:12 11 8:11 10 8:13 10 6: 6 9 8:14 9:16 11:13 4:14 5:13 Urslit Barnsley-C. Palace 0:0 Birmingham-Bradford 3:0 Bolton-Oldham 3:1 Portsmouth-Charlton 2:0 QPR-Man. City 2:2 Reading-Grimsby 1:1 Sheff. Utd.-Tranmere 0:0 Swindon-Oxford 1:0 West Brom-Huddersfield 1:1 Port Vale-Stoke 1:1 Southend-Wolves 1:1 Norwich-Ipswich 3:1 Staðan Bolton Norwich Barnsley Tranmere C. Palace Wolves Huddersf. Stoke Ipswich Sheff. Utd. West Brom QPR Oxford Portsmouth Swindon Man. City Port Vale Grimsby Birmingham Reading Southend Bradford Charlton Oldham 118 2 11 7 3 10 6 2 12 5 4 11 46 12 5 3 10 5 2 10 4 4 11 3 5 942 10 3 5 12 3 5 11 4 2 12 4 2 11 42 10 41 12 2 7 12 3 3 933 11 3 2 12 2 5 12 3 2 931 12 1 3 1 27:14 26 1 17: 7 24 2 17:10 20 3 16:13 19 1 23:1018 4 16:13 18 3 17:1217 2 15:16 16 3 17:16 14 3 16:1214 2 14:1314 414:1614 513: 914 613:17 14 5 12:13 14 5 11:13 13 3 10:14 13 615:2412 3 11:10 12 612:22 11 5 12:23 11 7 9:19 11 5 7:10 10 812:20 6

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.