Dagur - Tíminn - 18.10.1996, Side 2

Dagur - Tíminn - 18.10.1996, Side 2
j 14 - Föstudagur 18. október 1996 JDagur-®mThtn HELGARLIFIÐ L A N D I N U Uppskrift 'Arihe 19 að goou Aakureyri i Hvað skyldi nú vera hœgt að „hugga sig“ við á Akureyri um helgina? Enginn er sammála en allir á því að daðra aðeins við vellíðunar- púkann. Tœr upp í lofl, kjafta við vinkonuna, draga andann eða fara á pólitískan sellufund, er það skemmtilegt? Annars geri ég ekki neitt ■ ■ ■ Hver er draumahelgin mín? Hún er sú að slaka á með ijölskyldunni og gera ekki neitt. Það getur verið að vinkona mín komi í heimsókn og þá sitj- um við saman, kjöftum og höfum það huggulegt. Finnst þér þetta ekki nógu gott svar? Eigum við sem sagt að fara á kaffihús, í leikhús eða á listsýningu? Nei, annars eins og ég segi þá geri ég ekki neitt um helgina. Annars ættir þú að hringja í manninn minn og spyrja hann hvað hann ætlar að gera, ef til vill hefur hann hugsað sér að verja helginni allt öðruvísi en ég,“ sagði Ragnhildur Vigfús- dóttir, jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akur- eyrarbæjar, í stuttu og laggóðu samtali, aðspurð um sína draumahelgi í bænum. RagnMdur Vigfiísdóttir Breytilegar uppskriftir „Yfirhöfuð að gera ekki neitt sérstakt nema það að vera til“ Uppskrift að góðri helgi er breytileg og tekur að sjálf- sögðu mið af að- stæðum hverju sinni. Undan- farnar vikur hafa verið býsna annasamar hjá mér og helgarnar þá ekki undan- skildar, Síðasta helgi tók þó alveg steininn úr vegna Landsfundar Sjálf- stæðisflokksins og ýmislegs annars,“ segir Anna Blöndal, tækniteiknari á Ak- ureyri. „Af þessum sökum er óskahelgin mín núna rólegheit, með mikilli heimaveru með fjölskyldunni. Slappa af á föstu- dagskvöldi fyrir framan kamínuna og horfa á góða bíómynd. Vakna svo á laugardagsmorgni við nýlagað kaffi, kjallara- bollur og vínarbrauð sem einhver annar tek- ur til. Eftir svona tarnir finnst mér eftirsóknar- verðast að eiga tíma með manninum mínum og börnunum, þeim sem enn eru heima. Við höfum nefnilega lítið sést undanfarið. Fá sér jafnvel göngutúr ef veðrið er gott, hitta vini og ættingja. Yfirhöf- uð að gera ekki neitt sérstakt, nema það eitt að vera til. Eitt get ég þó nefnt. Á sunnudag langar mig að fara á tónleikana „Kvöldið er okkar“ sem haldnir eru í minningu Ingimars Eydal.“ Anna Blöndal Vatnið virkar vel á mig Síðan er ekið inn í Kjarnaskóg og börnunum sleppt þar lausum. Uppskrift að góðri helgi hjá mér gæti verið að liggja með tærnar upp í loft frá föstudegi til mánu- dags. Sofna seint og vakna ennþá seinna, það er einhvern tímann eftir há- degi,“ segir Valur Hilmarsson, umhverf- isfulltrúi hjá Ferðamálaráði .... íslands á Ak- ureyri. „Um þessa draumahelgi myndi ég borða það sem mig langaði til, og ef til vill færi ég á dans- leik með góðu rokkbandi. Myndi dansa frá mér allt vit og síðan færi ég heim að sofa. En þar sem ég er svo illa gerður að neyta ekki áfengis get ég ekki gefíð nein ráð um hvaða víntegund kemur fólki helst í stuð. Vatnið virkar mjög vel á mig,“ segir Valur. Hann segir ennfremur að þar sem hann sé fjölskyldufaðir með þrjú börn sé algjör draumsýn að ætla að sofa eitthvað lengur en til hálf níu á laugardags- og sunnudagsmorgnum. „Á laugardegi er gott að viðra börnin og taka þau með út í bíl og fara - í „bland í poka“ ferð. Þá er farið út í sjoppu og keypt bland í poka, ekið inn í Kjarnaskóg og börnunum sleppt þar lausum. En við hjónakornin liggjum undir trjánum þar til degi tekur að halla, og þá skal farið heim og grillað,“ segir Val- ur Hilmarsson. Helst fyrir utanbæjarfólk ... Alla þá, sem vilja njóta, býð ég velkomna á Gjugg í bæ á Ak- ureyri. Hinsvegar býst ég ekki við að njóta dagskráratriða mikið sjálfur, því mér skilst að þessi dagskrá sé helst ætluð utanbæjar- fólki,“ segir Þórarinn Egill Sveins- son, mjólkursamlagsstjóri KEA og forseti bæjarstjórnar. „Þegar vinnu í Mjólkursamlaginu lýkur í dag, föstudag, taka við hjá mér skyldustörf á vettvangi bæjar- stjórnar. Þá mun félagsmiðstöðin í Dynheimum tengjast á veraldar- vefnum við miðstöðvar ungs fólks víða um heiminu og ætla ég að vera viðstaddur opnun þessarar tölvu- tengingar. Ég ætla þó að vona að ég geti varið sem mestum tíma í eftir- miðdaginn með dóttur minni, Þór- dísi Ingu, sem þennan dag verður átta ára,“ segir Þórarinn Egill. „Á laugardagsmorgun efnum við til pólitísks sellufundar í Framsókn- arhúsinu, þar sem flokksmenn munu ræða þau helstu mál í bæn- um sem að- . , , -..... — kallandi eru. Ég vona þó að ég losni af þessum fundi fyrir klukkan tvö. Þá er mér boðið að vera viðstaddur frumsýningu Leikfélags Ak- ureyrar á Dýr- unum í Hálsa- skógi,“ segir „Hinsvegar býst ég ekki við að njóta dagskrárat- riða mikið sjálfur, því mér skilst að þessi dagskrá sé helst ætluð utan- bæjarfólki.“ Þórarinn E. Sveinsson Þórarinn. Annað sem hann stefn- ir á að gera um helgina er að fara í gönguferð í Kjarnaskógi, horfa á ensku knattspyrnuna í sjónvarpinu og eins og fjölmargir aðrir Akureyringar stefnir Þórar- innn sömuleiðis á að fara síðdeg- is á sunnudag á minningartón- leika um Ingimar Eydal sem haldnir verða í íþróttahöllinni. - sbs.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.