Dagur - Tíminn - 18.10.1996, Side 7
19 - Föstudagur 18. október 1996
Jlagur-ÍEmtmrt
MENNING O G LISTIR
Vikuna 19. - 26. október mun
Unglist setja svip sinn á Akur-
eyri í fyrsta sinn. Þetta er lista-
hátíð ungs fólks sem fer nú af
stað fimmta árið í röð en hingað
til hefur hátíðin einvörðungu
verið bundin við framhaldsskól-
ana í Reykjavík.
Mynd: GS
Markmiðið með Unglist-
£irviku er að virkja
nemendur, efla sam-
stöðu milli framhaldsskólanna
og að kynna starfsemi fram-
haldsskólanna fyrir bæjarbú-
um. Unghst er opinn vettvangur
þar sem ungt fólk getur notið
lista og tjáð sig, gert tilraunir,
skapað og komið hugmyndum
sínum á framfæri.
Menntaskólinn og Verk-
menntaskólinn á Akureyri eru
að undirbúa vikuna og nám-
skeið í ljósmyndun og myndlist
er í fullum gangi. Þau Þór
Steinarsson, Þórarinn Torfi
Finnbogason frá VMA og Freyja
Dögg Frímannsdóttir og Ehn
Ragnheiður Guðnadóttir frá MA
skipuleggja listahátíðina.
„Þátttaka Akureyrar er byrj-
unin á að undirbúa jarðveginn
fyrir Unglist á íslandi 1997 þar
sem takmarkið er að allt landið
taki næst þátt. Við höfum verið
að vinna að því að koma saman
dagskrá fyrir Akureyri en fjár-
magnið er b'tið og eins njótum
við ekki sömu aðstöðu og
Reykjavíkurskólarnir. Við
reyndum að fá fyrirtæki til að
styrkja okkur en fengum heldur
dræmar undirtektir og flest fyr-
irtækin vildu ekki einu sinni
kynna sér málið.“
Listamennirnir sem halda
námskeið með nemendum skól-
ana gera það ókeypis en kostn-
aðurinn við Unglistarvikuna
felst í leigu á húsnæði og efnis-
gjöldum. Þrátt fyrir fáa kostun-
araðila eru nemendurnir bjart-
sýnir á að vikan muni takast vel
og að Akureyringar mæti á dag-
skráratriðin. „Við verðum með
aðstöðu í Ketilhúsi og þar verða
sýningar alla Unglistarvikuna,
eins verða sendar inn stutt-
myndir í stuttmyndasamkeppn-
ina, Einar Már Guðmundsson
kemur á bókmenntakvöldið 24.
október og það verða tónleikar
í Kvosinni í MA svo dæmi séu
tekin.“ mgh
Illa farið með gott hráefni
Dauðasök (A Time to Kill) ★ ★
Handrit: Akiva Goldman, byggt á samnefndri skáldsögu
Joh 5 Grisham
Leikstjóri: Joel Schumacher
Aðalhlutverh Matthew McConaughey, Samuel L. Jackson,
Sandra Bullock, Kevin Spacey, Charles S. Dutton, Donald
Sutherland, Kiefer Sutherland, Oliver Platt, Brenda Fricker
og Patrick McGoohan
Bíóborgin og Bíóhöllin
Bönnuð innan 16 ára
að er leiðinlegt að sjá illa
farið með góðan efnivið.
Hvað sem segja má um
vinsælar bækur John Grisham
þá falla þær vel að kvikmynda-
forminu. Umfjöllunarefnið í
Dauðasök er viðkvæmt fyrir
Bandarfkjamenn og það virðist
einnig vera of viðkvæmt fyrir
bandaríska kvikmyndagerðar-
menn. Mörgu af því sem er
mest krassandi í bókinni er
sleppt eða fært nær pólitískri
rétthugsun, það má engan
styggja.
Jake Brigance (McConaug-
hey) er ungur lögfræðingur í
Clanton, smábæ í Mississippi,
sem tekur að sér að verja Carl
Lee Hailey (Jackson). Sá er
þrælsekur um að hafa myrt tvo
menn. Það athyglisverða við
málið er að þeir myrtu, hvítir
menn, nauðguðu ungri dóttur
hans. Carl Lee Hailey er liins
vegar svartur.
Myndin fer mjög vel af stað.
Persónur eru kynntar, flestar
leiknar af þungavigtarleikur-
um, og allar forsendur eru til
staðar fyrir spennandi fram-
vindu. Haigt og hægt missir hún
síðan ílugið, verður fyrirsjáan-
leg og það sem verra er; hún
verður væmin með ódýrum
lausnum á eldfimu efni.
Matthew McConaughey er
mjög mistækur í burðarhlut-
verki og lokaræðan hans í rétt-
arsalnum, sem hann flytur með
miklu kjökri, missir algerlega
marks þótt hún sé ágæt sem
slík.
Leikararnir eru samt í heild-
ina frekar góðir en upp úr
standa Samuel L. Jackson og
Patrick McGoohan, sem leikur
dómarann í réttarhöldunum.
Joel Schumacher gerir sæmi-
legar myndir. Þær eru sjaldnast
verulega góðar. Hann virðist
gera alltof margar málamiðlan-
ir því hér hafði hann tækifæri á
að gera samskiptum svartra og
hvítra í Bandaríkjunum trú-
verðug skil í spennandi sögu.
Hann klúðrar því með sæmilega
spennandi mynd, góðum per-
sónum en lausnirnar er ódýrar
í öllu sem máli skiptir.
Örn Markússon.
Sýning föstud. 18. okt. kl. 20.30.
Sýning laugard. 19. okt. kl. 20.30.
Dýriní
Hálsaskógi
eftir Thorbjorn Egner
ÞýSendur: Hulda Valtýsdóttir
og Kristján frá Djúpalæk
Lýsing: Ingvar Björnsson
Búningar og leikmynd:
Guðrún Auðunsdóttir
Leikstjóri: Ingunn Jensdóttir
Frumsýning 19. okt. kl. 14.00.
2. sýning sunnud. 20. okt. kl. 14.00
3. sýning þriSjud. 22. okt. kl. 15.00
4. sýning fimmtud. 24. okt. kl. 15.00
5. sýning laugard. 26. okt. kl. 14.00
6. sýning sunnud. 27. okt. kl. 14.00
MuniS kortasöluna okkar
Sími 462 1400
MiSasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið
kl. 20.00:
Söngleikurinn Hamingjuránið
eftir Bengt Ahlfors
I kvöld, 18. okt. Örfá sæti laus
fimmtud. 24. okt. Nokkur sæti laus
laugard. 26. okt., laugard. 2. nóv.
Nanna systir
eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson
Sunnud. 20. okt.
Örfá sæti laus.
Föstud. 25. okt.
Örfá sæti laus.
Föstud. 1. nóv., laugard. 9. nóv.
Þrek og tár
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Á morgun laugard. 19. okt. Uppselt
fimmtud. 31. okt. 70. sýning
Nokkur sæti laus.
sunnud. 3, nóv., föstud. 8. nóv.
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi
Kardemommubærinn
eftir Thorbjörn Egner
Sunnud. 20. okt. kl. 14.00.
Örfá sæti laus.
Sunnud. 27. okt. kl. 14.00.
Nokkur sæti laus.
Sunnud. 3. nóv. kl. 14.00.
Ath. takmarkaður sýningafjöldi.
Smíðaverkstæðið
kl. 20.30
Leitt hún skyldi vera skækja
eftir John Ford
Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson.
Lýsing: Páll Ragnarsson.
Búningar: Filippía Elísdóttir og Indriði Guðmundsson.
Leikmynd: Stígur Steinþórsson.
Tónlistammsjón: Þorvaldur Bjami Þorvaldsson.
Leikstjóri: Baltasar Kormákur.
Leikendur: HilmirSnær Guönason, Margrét
Vilhjálmsdóttir, Steinn Ármann Magnússon, Stefán
Jónsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Kristján Franklín
Magnús, Edda Amljótsdóttir og Erlingur Gíslason.
Sunnud. 20. okt., - örfá sæti laus.
Föstud. 25. okt., - örfá sæti laus.
sunnud. 27. okt - örfá sæti laus.
Athygli er vakin á að sýningin er ekki við hæfi
barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið
kl. 20.30:
í hvitu myrkri
eftir Karl Ágúst Úlfsson
íkvöld, 18. okt. Uppselt.
á morgun laugard. 19. okt. Uppselt.
Fimmtud. 24. okt. Uppselt.
Laugard. 26. okt. Uppselt.
Fimmtud. 31. okt. Uppselt.
Laugard. 2. nóv. Uppselt.
Sunnud. 3. nóv., fimmtud. 7. nóv, fðstud. 8 nóv.
★ ★ ★
Miðasalan eropin mánud. og þriðjud. kl. 13.00-
18.00, miðvikud.-sunnud. kl. 13.00-20.00 og til
20.30 þegar sýningar eru á þeim tfma.
Einnig er tekið á móti símapðntunum frá kl.
10.00 virkadaga.
Sími551 1200.