Dagur - Tíminn - 19.10.1996, Qupperneq 2

Dagur - Tíminn - 19.10.1996, Qupperneq 2
14 - Laugardagur 19. október 1996 !Hagur-®bmrm Karlakór Reykjavíkur syngur fyrir íbúa Stykkishólms um helgina og verða St. Fransiskusystur heiðursgestir á tónleikunum. Nunntir heið- ursgestir hjá karlakór Nunnurnar í Stykkishólmi virðast í fljótu bragði ekki eiga neitt sérstakt sameiginiegt með karlakór Reykjavíkur. Ef betur er að gáð koma þó tengsl í ljós því söngstjóri kórsins, Friðrik S. Kristinsson, er gamall nemandi systranna. í ár eru 60 ár liðin frá því að St. Fransiskusystur komu til Stykkishólms og af því tilefni verða þær sérstakir heiðursgestir á tónleikum sem Karlakór Reykjavíkur heldur í Hólminum í dag. Kórinn mun einnig heimsækja nunnurnar og syngja í kapellu þeirra. Einsöngvari með Karlakór Reykjavíkur á tónleik- unum í dag er Sigrún Hjálmtýsdóttir en hún syngur einnig einsöng á væntanlegum geisladisk kórsins. Efnisskrá tónleikanna er íjölbreytt og inniheldur bæði íslensk og erlend lög. Tónleikarnir byrja klukkan 17:00 og undirleikari er Anna Guðný Guð- mundsdóttir. AI unðl«t Fjölbreytt dag- skrá norðan og sunnan heiða UNGLIST, listahátfð ungs fólks, hefst f dag og stendur alla næsta næstu viku. Eins og fram kom í blaðinu í gær er hátíðin ekki einskorðuð við höf- uðborgarsvæðið líkt og fyrri ár heldur verður einnig ýmislegt um að vera á Akureyri. En lítum nánar á dagskrána þessa fyrstu daga hátíðarinnar. Listahátíðin verður sett í Ráðhúsinu í Reykjavík klukkan 12:00 í dag og á sama tíma verður opnuð sýning Iðnskólans í Tjarnarsal Ráð- hússins. Um leið og hátíðin hef- ur verið sett hefst ljósmynda- maraþon sem stendur til mið- nættis og myndlistarmaraþon sem stendur til klukkan 22:00 annað kvöld. Tvær aðrar sýn- ingar verða opnaðar í Reykja- vík. Sýning Bleks, áhugamanna um teiknimyndaseríxn-, verður opnuð í Kaffigallerí Amma klukkan 14:00 og klukkutúna síðar verður opnuð myndlistar- sýning í Gallerí Geysi í Hinu Húsinu. Á Akureyri verður líka heil- mikið um að vera í dag. Ketil- húsið verður opið frá 12:00 til 19:00 og þar sýna nemendur afrakstur námskeiða í ljós- myndun, skúlptúr og listmálun, svo eitthvað sé nefnt, en Ketil- húsið verður opið alla vikuna og verða þar ýmsar uppákom- ur. í kvöld verður svo slegið á létta strengi beggja megin heiða. í Reykjavík verður opn- unarhátíð Unglistar í Sundhöll Reykjavíkur þar sem gestirnir verða ofan í lauginni og fylgjast með skemmti- og menningar- dagskrá. Húsvíkingar sjá hins- vegar um fjörið á Akureyri því Leikfélag Húsavíkur sýnir leik- ritið „Auga fyrir auga“ í Kvosinni í MA. Og enn meira fjör Á morgun verður opnuð enn ein sýningin í Reykjavík, í þetta sinn á Café au lait, en þar munu ungar konur í Hússtjórn- arskólanum sýna ofna hluti og útsaum. Klukkan 12:00 hefst stuttmaraþon sem lýkur klukk- an tíu um kvöldið og um kvöld- ið flytja ungir tónlistarmenn klassíska tónlist í Tjarnarbíó. Heíjast tónleikarnir klukkan 20:00. Ekki verður minna um að vera eftir helgina. Á mánudags- kvöld munu framhaldskólar á höfuðborgarsvæðinu t.d. taka höndum saman og halda sam- eiginlegt listakvöld í Tjarnarbíó. „Það flottasta og frekasta úr hveijum skóla,“ segir í dag- skrárkynningu. Nemendur í MA og VMA ætla hins vegar að koma með eigin matarlistaverk á sýningu þar sem þau verða eyðilögð í sameiningu. Og þetta er bara byrjunin... AI Grænlenskar bókmenntir Þegar íslendingar grúfðu sig yfir skinn- pjötlur og sköpuðu ódauðlegar bókmenntir voru nágrannar þeirra, Grænlendingar, upp- teknir við selaveiðar og snjóhúsagerð. En þó seint hafi verið farið af stað eiga Grænlending- ar sínar eigin bók- menntir sem þeir eru stoltir af. Karen Langgárd, sem í vetur er sendikennari við Heimspekideild Háskóla íslands, hefur unnið ýmsar rannsóknir í grænlenskum bók- menntum en hún er dósent í málvísindum og grænlenskum fræðum við Háskólann í Nuuk á Grænlandi. Karen ætlar nú að bæta úr fáfræði íslendinga um grænlenskar bókmenntir og verður með fyrirlestur í Háskól- anum á Akureyri í dag. Heiti fyrirlestursins er „Ethnicity and Natioanality in Greenlandic Lit- erature“ og íjallar, eins og nafnið bendir til, um þjóðerni og þjóðernistilfinningu í græn- lenskum bókmenntum. Fyrir- lesturinn verður á ensku en síð- ar mun Karen flytja fyrirlestur um sama efni í Reykjavík, og þá á dönsku. Stutt bókmenntasaga Grænlenskar bókmenntir eiga sér tiltölulega stutta sögu. Fyrstu bókmenntirnar eru frá síðustu öld og fjalla mest um menningu eskimóa sem h'tið hafði verið til um á prenti fram að því. „Árið 1861 var fyrsta dagblaðið stofnað sem var með grænlenskum ritstjóra og skrif- að fyrir Grænlendinga. í blað- inu voru t.d. umræður um veið- ar á kajak og greinar um ýmis málefni líðandi stundar. Mikið var fjallað um kristindóm og siðfræði," segir Karen. Þjóðerniskennd Grænlend- ingar fór að vakna um aldar- mótin og Karen segir upphaf nútímabókmennta á Grænlandi sé hægt að rekja aftur til þess tíma. Grænlenskar bókmenntir hafa h'tið verið þýddar yfir á önnur tungumál. Karen segir þó að nokkrar nýrri bækur hafi verið þýddar yfir á íslensku í tengslum við bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs en Grænlendingar hafa sent inn bækur í þá keppni. Fyrirlesturinn í dag byrjar klukkan 13:00 í húsnæði há- skólans við Þingvallastræti. AI

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.