Dagur - Tíminn - 19.10.1996, Blaðsíða 14
26 - Laugardagur 19. október 1996 ^H0ttt-®ítttttttt Jlagur-®tmútn
'lvlatarkrókur
FiðluleiJcarinn Ewa Tosik-Warszawiak leggur til uppskriftir
að þessu sinni og eru þœr ekki af verri endanum. Banana-
súpa og kjúklingur með jarðhnetum. Nammi namm. Ewa er
pólsk en hefur búið í Borgarnesi í nokkur ár ásamt manni
sínum og syni þar sem hún kennir í tónlistarskóla staðarins.
Hún er einnig stjórnandi Kveldúlfskórsins í Borgarnesi. Ewa
skorar á dóttur vinkonu sinnar, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, í
Beykjavík í nœsta Matarkrók
Fordrykkur
50 ml kirsuberjalíkkjör
50mlvodka
ísmolar
100 ml greipsafi
Blandið saman og berið fram
Bananasúpa
fyrirjjóra
1 laukur
1 hvítlauksgeiri
30 g smjör
2 tsk. karrý
3 bananar
40 g hveiti
1 lítri kjúklingasoð
salt
7-8 msk. sýrður rjómi
1-3 msk. pistasíuhnetur.
Laukurinn skorinn í htla teninga
og hvítlaukurinn pressaður.
Steikt í stórum potti í smjörinu
við góðan hita í 1 mínútu og
hrært í á meðan. Einn banani er
skorinn í sneiðar og bætt í pott-
inn ásamt karrýinu. Steikt
áfram í stuttan tíma. Hveitinu er
stráð yfir og eftir stutta stund er
kjúklingasoðinu hellt yfir og
suðan látin koma upp. Sett í
blandara, eða í gegnum sigti.
Salti bætt út í eftir smekk.
Bananarnir tveir, sem eftir
eru, skornir í sneiðar og bætt út
í súpuna og suðan aftur látin
koma upp. Áður en súpan er
borin fram er sýrða rjómanum
bætt út í og söxuðum hnetum
stráð yfir.
Kjúklingur með jarð-
hnetum
Fyrir tvo
200 g kjúklingabringur
200 g jarðhnetur
/ tsk. engifer
l'/ msk. sykur
3 msk. sojasósa
Z tsk. sesamolía
3 msk. kjúklingasoð
1 msk. vodka
3 msk. sojaolía
1 msk. smjör.
Kjúklingabringurnar eru skorn-
ar í teninga. Sáldrið engiferi yfir
og látið bíða í stutta stund. Soja-
olían er hituð á pönnu og kjötið
og jarðhneturnar steiktar í 3-4
mínútur. Kjötið og hneturnar
þarf síðan að veiða upp úr
pönnunni og geyma en olían er
notuð áfram. Bætið smjöri,
vodka, kjúklingasoði, sojasósu,
sesamolíu og sykri á pönnuna.
Hrærið vel í og látið suðu koma
upp. Hrærið áfram þar til sósan
þykknar. Setjið kjötið og hnet-
urnar út í og hitið í um 1 mín-
útu. Hrærið í allan tímann.
Berið fram með hrísgrjónum
og salati (sjá næstu uppskrift).
Tómatsalat með eggjum
4 tómatar (afhýddir)
2 harðsoðin egg
3-4 hvítlauksgeirar
1 tsk. oregano
salt
l’/msk. olívuolía.
Tómatarnir eru skornir í báta
og eggin í sneiðar. Hvítlaukurinn
er pressaður, honum blandað
saman við saltið og marið sam-
an með hníf þar til úr verður
mauk. Tómatar, egg og hvít-
lauksmauk sett í skál. Olíu og
oregano bætt út í og öllu bland-
að saman. Ef til vill má bæta
smá sítrónusafa útí.
Ewa Tosik-Warszawiak.
n/P
« Lei
eimilis-
hamið
Súkkulaði- “mousse “
terta
400 g marsipan
4 egg
2 msk. kakó
Súkkulaðikrem:
2 msk. sykur
200 g suðusúkkulaði
2 eggjarauður
2'/ dl rjómi
Rifið hýði utan af 1 appelsínu.
Marsipanið mulið niður og
hrært vel saman með eggjunum
og kakóinu í jafnt deig. Sett í
form (ca. 23 sm) með lausum
botni og bakað við 175° í ca. 30
mín. Látið kólna í forminu.
Kremið: Súkkulaðið er brætt yf-
ir vatnsbaði, kælt aðeins. Rjóm-
inn þeyttur. Eggjarauður og
sykur þeytt vel saman. Rjóman-
um blandað saman við ásamt
súkkulaðinu og appelsínurasp-
inu. Kremið sett yfir kaldan
marsipanbotninn og tertan sett
inn í kæliskáp í 2-3 klst. Þaö má
gjarnan bera þeyttan rjóma
með kökunni.
Sumarsalat
Létt og golt í hádeginu
1 hunangsmelóna
200 g skinka, skorin í rœmur
1 rauð paprika
3 stilkar sellery
smávegis ostur, skorinn í fern-
inga
agúrka
Út á látum við svo:
Sýrðan rjóma, 2 dl, bragðaðan
til með karrý eða papriku og
sinnepi. Melónan skræld, kjarn-
af teknir úr og ávöxturinn skor-
inn í teninga. Settir á fat, raðað
saman. Skinkuræmum eða
ferningaskorinni papriku, osti,
selleryi og agúrku öllu raðað
fallega á fatið. Hér berum við
með gróft brauð, smjör og sam-
anhrærðu sósuna.
Greipaldin m/fyllingu
í forrétt
3 stór greipaldin
250 g majones
1 dl sýrður rjómi
200 g rœkjur og humar ef til er
f dós góður aspas
steinselja í skraut
Skerið greipaldin til helminga.
Losið innan úr þeim og skerið
hvítu himnuna af, skerið hitt í
smábita. Majonesið og sýrði
rjóminn hrært saman og bragð-
að til. Ávaxtabitarnir, rækjurn-
ar og smátt skorinn aspasinn
hrært út í. Best er að setja fyll-
inguna í greipaldinskálarnar
rétt áður en þær eru bornar
fram. Skreytt með steinselju-
kvisti. Gott brauð borið með.
Epladessert
Fyrir 8
6 stór epli
100 g smjör
2 dl púðursykur
125 g hveiti
50 g saxaðar möndlur
Eplin eru skræld, kjarnar teknir
úr og eplin síðan skorin í báta.
Eldfast mót smurt og eplabát-
unum raðað þar í. Smjör, hveiti
og sykur mulið saman og því
stráð jafnt yfir eplabátana í
forminu. Söxuðum möndlum
stráð yfir síðast. Formið sett í
200° heitan ofn og bakað í ca.
40 mín. Dessertinn er svo bor-
inn fram með þeyttum rjóma,
vanilluís eða sýrðum rjóma.
Appelsínusnittur
Skúffukaka
100 g smjör
120gsykur
4 eggjarauður
90 g hveiti
3 msk. kartöflumjöl
2 tsk. vanillusykur
100 g muldar möndlur
3 tsk. rifið appelsínuhýði
Safi úr 1 appelsínu
4 eggjahvítur
Glassúr:
200 g flórsykur
4 msk. appelsínusafi
V,
iðhrosum
„Ilvað finnst þér um alla
þessa brandara um sparsemi
Skotanna?" spurði Skotinn
McMuggins landa sinn.
„Mór finnst að það mætti nú
spara eitthvað af þeirn," svar-
aði hann.
Tveir stúdentar ræddu sam-
an.
„Ég skrifaði heim og bað for-
eldra mína um peninga fyrir
nýjum leslampa," sagði annar
þeirra hálffúll.
„Fékkstu senda peningana?“
spurði vinurinn.
„Nei, ekki aldeilis. Ég i'ékk
sendan leslampa!“
Maðurinn hafði nýlega tryggt
húsið sitt brunatryggingu.
Þegar hann hafði skrifað und-
ir, sneri hann sér að sölu-
manninum og spurði: „Hvað
fengi ég út úr þessu, ef húsið
mitt yrði eldi að bráð á morg-
un?“
Sölumaðurinn horfði graf-
alvarlegur á manninn og
svaraði svo: „Li'klega 5 til 10
ár, gæti óg trúað.“
M
issirþúað...
l.Samkvæmt könnun, sem
gerð var í Gautaborg f Sví-
þjóð, eru karlmenn þar 50
ára og eldri 3 sm hærri en
feður þeirra voru á sama
aldri. Og svo hafa þeir líka
stærri maga!
2. Það var Kjartan Ragnars-
son sem samdi leikgerð af
bók Þórbergs Þórðarsonar
„Ofvitinn“.
3. Steingrímur Hermannsson
hljóp fyrsta spölinn í friðar-
hlaupinu á íslandi árið
1987.
4. Það var árið 1987 sem þing
bresku biskupakirkjunnar
samþykkti að leyfa konum
að stunda prestsstörf.
5. Við notum ekkert lyftiduft í
hina einu sönnu „sand-
köku“.
6. Varalitirnir, sem mest eru í
tísku í ár, eru í brúnum lit-
brigðum. Brúnn litur á föt-
um er iíka í tísku.
Smjör og sykur hrært vel sam-
an. Eggjarauðunum hrært sam-
an við, hrært vel á milli. Bland-
ið saman hveiti, kartöflumjöli,
möndlum, vanillu, appelsínu-
raspi og safa og hrærið saman
við eggja-, smjör- og sykur-
hræruna. Eggjahvíturnar stíf-
þeyttar og þeim blandað var-
lega saman við deigið. Deigið
sett í pappírsklædda skúffu (ca.
25 x 35 sm). Kakan bökuð við
180° í ca. 15 mín. Glassúrinn
hrærður saman og settur yfir
kökuna, þegar hún er orðin
köld. Stráið rifnu appelsínuhýði
yfir áður en glassúrinn er orð-
inn alveg stífur. Kakan skorin í
ferkantaða bita.