Dagur - Tíminn - 19.10.1996, Blaðsíða 19
Það þarf áreiðanlega ekki
að minna Akureyringa,
aðra Norðlendinga, eða
landsmenn yfirhöfuð, á að á
morgun, sunnudaginn 20. októ-
ber, verða haldnir stórir og
miklir tónleikar á Akureyri til
heiðurs og í minningu tónlistar-
mannsins með gullhjartað,
Ingimars Eydal, sem hefði orðið
sextugur þennan dag hefði
hann lifað. Ekki er heldur
ástæða til að tíunda tónleikana
mikið frekar, þeim hafa verið
gerð rækileg skil á undanförn-
um dögum og vikum, bæði hér
á síðum Dags- Tímans sem og
annars staðar. Fram munu
koma margir af helstu tónlist-
armönnum þjóðarinnar, þar
með taldir margir af vinum
Ingimars og starfsfélögum sem
leikið hafa með honum í gegn-
um tíðina. Fyllsta ástæða er til
að hvetja alla sem þess eiga
kost, að fjölmenna á þessa
merku tónleika sem hafa munu
yfirskriftina „Kvöldið er okkar“.
Eftir helgina verður svo
væntanlega komið í verslanir
veglegt safn laga Ingimars og
hljómsveitar hans á geislaplötu,
sem Jónatan Garðarsson hefur
haft yfirumsjón með og Spor
ehf. gefur út. Safnið mun einnig
heita „Kvöldið er okkar“, en
þessi þrjú orð eru, eins og sjálf-
sagt allir vita, í upphafi ljóðs
Kristjáns frá Djúpalæk, Vor í
Vaglaskógi, sem hljómsveit
Ingimars flutti við lag Jónasar
Jónassonar ásamt Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni fyrir rúmum 30 ár-
um síðan.
Ingimar Eydal hefði
orðið sextugur á
morgun. Af því tilefni er
hans minnst með
stórtónleikum og útgáfu
geisladisks.
jDctgitr-Sírtmut
Laugardagur 19. október 1996 - 31
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
Aþessu ágæta sumri sem
nú heyrir brátt sögunni
tU, hafa vörpulegir ungir
menn með hárkollur á höfði og
glysgalla á kroppum, reynt að
skemmta sér og vonandi nokkr-
um fleiri í leiðinni. Hefur þetta
víst bara gengið þokkalega hjá
þeim, enda ekki beinlínis óvanir
eða óreyndir menn á ferð. Má
segja að um gamla samstarfs-
vini og kunningja úr tónlistare-
lítunni sé að ræða, því þeir
flestir, ef ekki allir hafa með
einum eða öðrum hætti starfað
saman áður. Spooky Boogie,
eins og þeir hafa kosið mjög svo
frumlega að kalla sig, hefur
sem sagt verið á þeysireið um
landið í sumar við skemmtana-
hald, „vopnaðir" áðurnefndum
múnderingum og fremjandi
gleðipopp, sem hefur verið ein-
hvers konar blanda af diskó,
fönki og poppi. Platan, „Great-
est Hits“ hefur svo verið hluti af
dæminu hjá Ný dönsk/Sál-
ar/Rikshaw/Rottu/Pláhnetu-
drengjunum Richard Scobie,
Sigurði Gröndal, Ingólfi Guð-
jónssyni, Birni Jörundi Frið-
björnssyni og Tómasi Jóhann-
essyni, ásamt hjálparkokkum á
borð við, Stefán Hilmarsson,
Jens Hansson og hinn færeyska
James Olsen, en hún kom út
eigi fyrir svo löngu. Á henni eru
12 lög, bæði frumsamin og af
erlendum toga.
Með tilliti til fyrri verka liðs-
manna á íslenskum tónaijörs-
markaði, er þessi plata engin
bylting og almennt séð lítt
skapandi. En það er líklega
ekki heldur tilgangurinn með
henni, heldur að halda áfram
uppi ijörinu og það virðist að
nokkru hafa tekist.
Spooky Boogie. Skraulegur strákaskari.
□ead Sea Apple með
sfna fyrstu
Reykvíska rokksveitin Dead Sea Apple, hefur
verið við lýði um þriggja ára skeið, en hefur
hingað til aðeins sent frá sér eitt lag. Það var á
safnplötunni Ýkt böst frá Spor og nefndist Mist
Of The Mourning. Nú hefur hljómsveitin, sem
m.a. inniheldur söngvarann Steinar Nflson,
hins vegar gert samning við Spor og er fyrsta
platan að koma út nú í byrjun næsta mánaðar.
Mun hún bera titilinn Crush.
Safn frá Jefc Black Joe
Mitt í því að framtíð hinnar hafnfirsku rokk-
sveitar Jet Black Joe, virðist að einhverju
marki vera í óvissu, söngvarinn Páll Rósin-
krans að huga að einherjaplötu sem koma á út
fyrir jólin og Gunnar Bjarni gítarleikari í skóla
hjá Paul McCartney í Liverpool, er nú komin út
20 laga safnplata með sveitinni þar sem flest
ef ekki öll hennar vinsælustu lög er að finna.
Nefnist safnið You Can Have It All og geymir
lög eins og Rain, Fly Away með söngkonunni
Sigríði Guðnadóttur, Higher and Higher, Titil-
lagið og Freak Out. Eins og gengur kann ein-
hvers að verða saknað, t.d. er ein albesta ball-
aða JBJ, Coming In, ekki með, en þannig er
það með safnplöturnar. Ekki kemst allt á þær.
...og líka frá Brimkló
Brimkló, sem var ein af vinsælli poppsveitum
landsins á áttunda áratugnum, með kappa á
borð við Björgvin Iialldórs, Guðmund Bene-
diktsson og íleiri góða innanborðs, á líkt og Jet
Black Joe safn sinna vinsælustu laga í útgáfu
nú. Munurinn hins vegar hjá Brimkló er sá að
sveitin hefur hafið störf að nýju nú í sumar og
hefur verið á fullri ferð í ferðaátakinu „Gjugg í
bæ“ og verður t.d. á Akureyri um þessa helgi.
Þá er á safninu þeirra eitt nýupptekið lag, Ef
rótarinn kjaftar frá, auk samtals 19 eldri laga.
Þeirra á meðal eru: Sagan af Nínu og Geira, Ég
las það í Samúel, Þjóðvegurinn, Síðan eru liðin
mörg ár, auk fleiri vinsælla laga, að svo
ógleymdu Herbergið mitt, einu albesta lagi
Brimkló fyrr og síðar við ljóð Vilhjálms frá
Skálmholti.
Koss HarðarTorfa
„Trúbadorinn eilífi“, Hörður Torfason, lætur
ekki deigann síga frekar en fyrri daginn og
hefur nú sent frá sér enn eina plötuna sem
hann nefnir Kossinn. Er dugnaðarforkurinn
þegar byrjaður að fylgja verkinu eftir með tón-
leikum, suður, austur og norður um land.
Haukur Morthens
kom á óvart á
sínum tíma með
plötunni Lítið brölt.
Endurútgáfur
Endurútgefnar plötur eru og verða nokkuð
áberandi í haust- og jólaútgáfunni. Hefur fyrr
verið minnst á Megasarplöturnar tvær sem nú
eru að koma frá Skífunni og frá Spor hafa nú
þrjár slíkar bæst við og eru fleiri á leiðinni.
Þetta eru plöturnar Fagra veröld, sem Sigfús
Halldórsson tónskáld með meiru gerði ásamt
Guðmundi Guðjónssyni söngvara fyrir 17 árum
og naut mikilla vinsælda; Þegar mamma var
ung, sem Diddú, Egill Ólafs o.fl. gerðu árið
1978 með 13 sígildum revíulögum, og síðast en
ekki síst er það svo Lítið brölt með Hauki
heitnum Morthens. Sú plata kom fyrst út fyrir
16 árum og vakti mikla athygli. Þar söng
Haukur 11 ný lög eftir Jóhann Helgason við
undirleik ungra manna í djassrokksveitinni
Mezzoforte. Á útgáfunni nú eru svo þrjú auka-
lög, þar af eitt sem ALDREI hefur komið út áð-
ur og heitir Hvar
ert þú? Þessar
þrjár plötur eru
allar í útgáfuröð-
inni „Hornstein-
ar íslenskrar
tónlistar“.
liiftiiLÍkiiuAiki áii L, á.i a k ÍÁí ikA iu.ÁlL.iíiÆk á & i íMIé ii.i, liii.HáiUi á L.ii.li
r * ’ f f * h > ? pm L p O P P r " , i Éái, r ■1 ii, m 1' i .i a it. ’V wv f t •. i m 1 ái A ».M 4 * hwif-i f ir ’ f ▼ r! 1 i ii ki i : . i i .k Á í i . a
T TH!'Tf ?!P ' r V wr vVV'T'"" TfT 1
Spooky
Boogie sprell
Minnumst
Ingimars