Dagur - Tíminn - 23.10.1996, Blaðsíða 12
mmm
®ctgur-3IrmTmi
m
Magnús
Jónsson
veðurfrœðingur
Miðvikudagur 23. október 1996
Reykjavík
0-
SA4 SSV3 NV3 NNV 4 NNA3
S 2 N2 NNV3 N3
Stykkishólmur
0
A4 SSV4 NNV 5 N7 NNA4
NA3 SSA2 NNV6 NNA 4
Bolungarvík
!9 Fim Fös Lau Sun mnl
151------11-----11-----1 |---H5
101
5-
-10
- 5
0-
NA 4 NA3 N 5 NNA 6 NNA 3
NNA 5 A 2 N 7 NNA 5
Blönduós
15 Fim Fös Lau
10-
5-
Sun mm
---------(-20
A2 SSV2 NV2 NNA 2 N2
NNA1 LOGN N2 NNA2
Akureyri
Fös Lau Sun mm
---------------------------------(-20
SA3 SSV3 VNV3 NA3 NNV3
NA2 NNV2 S 2 N3
Egilsstaðir
F'm Fös Lau Sun mm
SSA4 SSA4 SSV3 SA2 NNV 4
SSA4 NNA3 S3 N3
Kirkjubæjarklaustur
SA3 SSA2 V2 N2 N2
SSV3 NV2 VSV3 NNA3
Stórhöfði
IG-, Fim Fós Lau Sun mm
10-
5-
-10
- 5
0
SA6 S 3 VNV4 NNV6 N3
SV3 NNV3 VNV3 N3
á innimálningu
F ' glíásijg 10
fc Véra:—1
fj&l litri 499^1
4 lítrar 1996
10 lítrar 4990
íjbósundir lita í be&J
KAUPLAND
0
Sfmi 462 3565 • Fax 461 1829
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Enn verður vætusamt á
landinu, einkum um
suðaustanvert landið með
mildu veðri. Vindáttin verðm-
suðaustlæg, víðast kaldi. Og
næstu daga er útlit fyrir
svipað veðurlag.
HANDBOLTI • Evrópumótin
Leikmenn KA, þeir Juiian Duranona og Sergei Ziza, mæta belgísku liði í Evrópukeppninni.
Mynd: JHF
íslensku liðin sleppa við
löng og ströng ferðalög
Islensku liðin þrjú, KA,
Stjarnan og Haukar sem
eiga sæti í Evrópumótun-
um í handknattleik sleppa við
löng ferðalög í 2. umferð
mótanna, en dregið var í gær-
dag. Öll llðfn leika gegn liðum
frá V-Evrópu og þau ættu að
eiga raunhæfa möguleika á
að komast áfram í keppninni.
„Við erum komnir með
nafnalista yfir leikmenn liðsins
og næstu dagar fara í að afla
sér enn frekari upplýsinga. Ég
veit lítið um styrkleika liðsins,
en gæti best trúað því að þetta
lið væri í svipuðum gæðaflokki
og svissneska liðið sem við lék-
um við í síðustu umferð," sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari KA.sem
dróst gegn belgíska liðinu Hers-
tal Liege í Evrópukeppni bikar-
hafa.
„Við erum hins vegar heppn-
ir að því leyti að við þurfum
ekki að fara í langt ferðalag,
það er aðeins um klukkustund-
ar keyrsla frá Luxemborg og
það eru til dýrari flugleiðir. Það
er hins vegar ókostur að eiga
heimaleikinn fyrst.“
Aðspurður um það hvort KA-
menn mundu kaupa útileikinn
sagði Alfreð að hann ætti ekki
von á því, en það væri alfarið í
höndum stjórnarinnar. Hand-
knattleiksdeild KA kom ekki vel
út úr síðustu umferð og nokkurt
tap varð á leikjunum gegn Ami-
ticia, meðal annars vegna þess
að aðsókn var mun minni en
búist var við.
Stuðningsmenn KA eru ef-
laust minnugir vel heppnaðrar
hópferðar til Stavanger í fyrra
og það er allt eins möguleiki að
efnt verði til hópferðar á úti-
leikinn í Belgíu í næsta mánuði,
þó engar ákvarðanir liggi fyrir
um slíkt.
Stjarnan fær lengsta ferða-
lagið af liðunum þremur, en hð-
ið mætir Sparkasse frá Austur-
ríki, sem er stutt frá Graz, ná-
lægt iandamærum Tékklands
og Ítalíu.
„Ég er alls ekki ósáttur við
þennan drátt, nema hvað ég
hefði vilja leika útileikinn á
undan. Ég veit ekki hverjar lík-
urnar eru á því að við komumst
áfram, ætli það séu ekki upp-
undir helmingslíkur á því,“
sagði Valdimar Grímsson, þjálf-
ari Stjörnunnar sem leikur
gegn austurríska liðinu Spar-
kasse.
Einn leikmaður Stjörnunnar,
Einar Einarsson, lék í Austur-
ríki fyrir nokkrum árum og
sagðist Valdimar vonast til að
hann gæti útvegað myndbönd
af austurríska liðinu.
Fá lið frá Austur-Evrópu eru
í Borgakeppninni og segja má
að Haukar hafi getað verið
heppnari með mótherja sína í
keppninni. Franska liðið átti
greiða leið í 2. umferðina, og
búast má við því að það verði
erfitt verkefni sem bíði Hauka-
liðsins.
• Mótherjar KA, Herstal Liege frá Belgíu, lagði Lusis Kaun-
as frá Litháen í 1. umferðinni í Evrópukeppni bikarhafa.
Belgíska liðið sigraði í heimaleiknum 20:16 en jafnt varð í
leik liðanna í Litháen, 18:18. Herstal Liege vann því samtals
38:34.
• Sparkasse Bruck frá Austurrrfld, sem mætir Stjörnunni,
komst áfram í 2. umferð í EHF-keppninni með því að leggja
gríska hðið Filppos Varies. Fyrri leik liðanna í Austurríki
lyktaði með tíu marka sigri heimamanna 27:17 en síðari
leiknum með fimm marka sigri Grikkjanna, 21:16. Saman-
lagt sigraði Sparkasse Bruck því 43:38.
• Fá lið frá Austur-Evrópu eru í Borgakeppninni og Haukar
hefðu því vissulega getað fengið meðfærilegri mótherja
heldur en US Creteil frá Frakklandi. Franska liðið lenti á
móti austurríska liðinu HC Ericsson frá Vínarborg í 1. um-
ferðinni og sigraði í báðum viðureignunum liðanna. Fyrri
leikinn í Vín 17:18 og síðari leikinn í Frakklandi 28:16 og
því samtals 44:33.
HANDBOLTI
Bregið /
2. umferð
Dregið var í 2. umferð á
Evrópumótunum um há-
degisbilið í gær. Þau lið
sem fyrr komu upp úr pottinum
leika heimaleik sinn á undan.
Fyrri leikir þessara liða fara
fram helgina 9.-10. nóvember,
en síðari leikirnir 16.-17. nóv-
ember, nema að félögin semji
um annað sín á milli. Eftirtalin
lið mætast í sextán liða úrslit-
um mótanna.
Evrópukeppni bikarhafa:
Magdeburg (Þýskal.)-Porto (Portúgal)
US d’ivry (Frakkl.)-Mosiavina Kutina
(Króatíu)
ItK Mladost (Maked.)-F. Savinesti
(Rúmeníu)
Skanderborg (Danm.)-Petroch. Plock
(Póllandi)
KA (fslandi)-HC Herstal Liége (Belg-
íu)
Fotex Veszpr. (Ungverjal.)-Viking
Stav. (Noregi)
TBV Lemgo (Þýskal.)-Ortigia Siracuse
(ftalíu)
Elgoriaga Bidasoa (Spáni)-Dukla
Prag (Tékkl.)
EHF keppnin:
PSK Riga (Lettl.)-Octavio Vigo (Spáni)
Strand (Luxemb.)-Gorenje Velenje
(Slóveníu)
Drott Halmst. (Svíþj.)-Virum Sor-
genfri (Danm.)
Prato (Ítalíu)-Karlovacka Banka
(Króatíu)
Montpellier (Frakkl.)-CSKA Moskvu
(Rússl.)
Jafa Promet (Maked.)-BM Granollers
(Spáni)
Stjarnan (fslandi)-Sparkasse Bruck
(Austurr.)
Banik Karvina (Tékkl.)-Flensburg II.
(Þýskal.)
Borgakeppni Evrópu:
Skövde (Svíþjóð)-ASKI Ankara
(Tyrkl.)
Drammen (Noregi)-Kovopetrol
(Tékkl.)
Benfica (Portúgal)-Horn Sittard. (Ifol-
landi)
Prosesa Adernar (Spáni)-Dyn.
AstrJRússl.)
US Creteil (Frakkl.)-Haukar (íslandi)
Sandefjord (Noregi)-Din. Búkarest
(Rúmeníu)
Nettelstedt (Þýskal.)-St. Otmar (Sviss)
Kolding (Danmörku)-Red boys (Lux-
emborg)
Meistarabikarinn
Þá var dregið í riðla í Evrópukeppni
meistaraliða, svonefndan Meistara-
bikar en Valsmenn féllu út úr keppn-
inni í 1. umferð, fyrir Schachtjor Do-
netsk frá Úkraníu. Riðlarnir líta
þannig út.
A-riðiU: Barcelona (Spáni), ABC
Braga (Portúgal), Granitas (Litháen)
og Schachtjor Donetsk (Úkraníu).
B-riðill: Badel Zagreb (Króatíu), Piek
Szeged (Ungverjalandi), Runar (Nor-
egi), Prinscipe Trieste (Ítalíu).
C-riðill: THW Kiel (Þýskal.), Wintert-
hur (Sviss), Red Star (Júgósl.) og SKA
Minsk (Hvíta Rússl.)
D-riðill: Caja Cantabr. Santander
(Spáni), PSG Asnieres (FrakkL), Celje
Pivorarun (Slóveníu), GOG (Dan-
mörku.