Dagur - Tíminn - 23.10.1996, Blaðsíða 4
4 - Miðvikudagur 23. október 1996
jDagnr-CEtnnim
Frímerki
Stærsta
frímerkja-
sýning hér
til þessa
Frímerkjasöfn víða að úr
heiminum komu í kassavís
til Kjarvalsstaða í gær-
morgun. Mörg fágæt og verð-
mæt söfn verða til sýnis á
Nordiu 96, stærstu frímerkja-
sýningu, sem haldin er hér á
landi og verður opnuð á föstu-
daginn. Á myndinni eru frá
vinstri: Sverrir Einarsson, Sig-
urður R. Pétursson, formaður
sýningarstjórnar, Jón Zalewski
og Sigfús Gunnarsson.
Vinnumarkaðurinn
Um 5 þúsund ný störf
urðu til árið 1995
39 Um 2.000 ný stöif urðu til árið
1995 hjá þeim fyrirtœkjum sem
könnun Ftjálsrar verslunar náði
til, sem spanna um 40% vinnu-
markaðarins. Án þessara 2.000
starfa hefðu atvinnulausir verið
um 30% fleiri ífyrra. Könnunin
bendir jafnframt til að alls haji
hátt í 5 þúsund ný störf orðið til
á árinu. CC
Uppsveifla 1995 er stað-
fest í könnun Frjálsrar
verslunar meðal hátt í
600 fyrírtækja í fyrra. Velta
100 stærstu fyrirtækja ós
nær 4% umfram almennar
verðlagshækkanir, þúsundir
nýrra starfa urðu til, fleirí
fyrírtæki græddu en meðal-
laun hækkuðu samt hóflega.
Um 410 fyrirtæki gáfu
Frjálsri verslun upp íjölda
starfsmanna bæði 1994 og
1995. Aðeins fimmtungur
þeirrra, 20% höfðu fækkað
fólki og hjá fjórða hverju voru
starfsmenn jafn margir. Meira
en helmingurinn, 55% íjölgaði
starfsmönnum um sem svarar
hátt í 2.000 ársverk milli þess-
ara ára, sem er næstum fjór-
falt meiri ijölgun en árið áður.
Án þessara nýju starfa hefði
atvinnuleysi verið 6,5% en ekki
5,0%. Hafi
breytingar hjá
öðrum fyrir-
tækjum í land-
inu verið sam-
svarandi þýðir
það Qölgun
starfa um allt
að 5 þúsund á
árinu.
Meðallaun
um tæplega 52
þúsund starfs-
manna eða árs-
verka í rúmlega
540 fyrirtækjum
voru um 1.820
þús.kr. á síðasta ári. Meðal-
mánaðarlaun voru því 152
þús.kr. og höfðu hækkað um 6
þús. kr., 4% frá árinu áður.
Velta 100 stærstu fyrirtækja
var 395 milljarðar í fyrra, sem
er 5,6% hækkun milli ára. Hjá
60 þeim þeirra sem upplýstu
um hagnað nam hann liðlega
13 milljörðum, um 1 milljarði
meira en árið áður og um 4,5%
af veltu. Um helmingur allra
fyrirtækja var rekinn með
hagnaði í fyrra, sem er mun
hærra hlutfall en árið áður og
þykir vísbending um að hagn-
aður hafi orðið almennari en
áður.
Langsamlega mesta gróðaf-
yfirtæki, og 8. stærsta fyrirtæk-
ið á íslandi, er undanskilið í
framangreindum tölum. ÁTVR
skilaði hátt í 6 milljarða kr.
hagnaði, af sinni 10 milljarða
veltu á árinu. Veltan var
óbreytt frá árinu áður, en
hagnaðurinn minnkaði um 620
milljónir í fyrra. Næst á gróða-
listanum koma ísal með 1,3
milljarða, Póstur og sími með
1,1 milljarð og Eimskip með
920 milljónir kr.
Landsvirkjun var hins vegar
lengst neðan við rauða strikið,
með um 630 milljóna tap á
sinni 7,7 milljarða veltu. Og
tapið var litlu minna hjá Við-
lagatryggingu íslands, af að-
eins 850 milljóna veltu.
Eyjafjörður
Alþýðuflokkur
Kratar
gerast
bændavin-
samlegir
Drög að ályktunum
um landbúnaðarmál
fyrir flokksþingið
verður afar vinsam-
leg bændastéttinni.
Alþýðuflokksmenn vinna
þessa dagana hörðum
höndum að undirbúningi
flokksþingsins í Reykjavík í byrj-
un næsta mánaðar. í málefna-
vinnu hóps sem fer með land-
búnaðar- og neytendamál kemur
fram mikill skilningur og velvilji í
garð bændastéttarinnar. Állt
orðalag er til muna mildara en
fyrrum.
„Eðllleg samkeppni þar sem
einstaklingsframtakið fær að
njóta sín er best til þess fallin að
efla íslenskan landbúnað sem at-
vinnugrein,“ segir í drögum að
ályktun flokksþingsins, sem
Degi-Tfmanum hefur áskotnast.
Kratar segjast vera á móti
dýru milliliðakerii sem hafi slig-
að bændur undanfarna áratugi.
Þeir leggja áherslu á úrræði sem
efla framfaravilja og frumkvæði
bænda sem virðast hafa óbifandi
traust á. Áframhaldandi lækkun
ríkisútgjalda til landbúnaðar-
mála muni stuðla að þessum
markmiðum og undirbúa ís-
lenskan landbúnað undir alþjóð-
lega samkeppni sem muni auk-
ast á komandi árum. Þá vilja
jafnaðarmenn leggja niður
kvótakerfi í sauðijárrækt.
Jafnaðarmenn telja brýnt að
sátt ríki milli neytenda annars
vegar og bænda hins vegar.
Ileimildir blaðsins segja að
jafnvel í Bændahöllinni, sem
fengið hefur að skoða hugmyndir
krata, ríki fögnuður. Jafnvel sé
taláð um að þar sé talað um
þessa ályktim krata sem hina
vinsamlegustu sem til þessa
hafi sést hjá stjórnmálaflokkun-
um. -JBP
Nýtt meðferðarheimili stofnað
Bragi Guðbrandsson
forstjóri bamaverndarstoi
„Höfum verið að
byggja upp þjónust
á Norðurlandi og
þannig nýtt þá fag-
þjónustu sem fyrir er
á AkureyrL “
Meðferðarheimili fyrir
vímuefnaneytendur á
aldrinum 13 til 16 ára
sem eiga við mikið neyslu-
vandamál að stríða, mun hefja
starfsemi í Eyjafirði innan nokk-
urra vikna. Barnaverndarstofa,
sem tók við rekstri Unglinga-
heimilis ríkisins og yfirtók
stjórnsýslu barnarverndarmála
auk eftirlits með barnaverndar-
málum, rekur Meðferðarstöð
ríkisins fyrir unglinga í Grafar-
vogi í Reykjavík sem heitir
Stuðlar, en hún er hugsuð sem
greiningarstöð. Þar er vandi
unglinganna skilgreindur og
reynt að átta sig því hvaða með-
ferð henti viðkomandi unglingi
best. Meðferðin þar getur tekið
frá einum upp í fjóra mánuði og
niðurstaða hennar getur verið
sú að meðferðin á Stuðlum sé
fullnægjandi og viðkomandi geti
hafið nám eða starf á nýjan leik.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, segir að oft-
ar en ekki sé niðurstaðan sú að
viðkomandi unglingur þurfi að
langtímameðferð að halda og þá
koma allmörg heimili til greina.
Tvö þeirra eru í Skagafirði
nærri Steinstaðaskóla, að
Bakkaflöt og Laugamýri, en það
síðarnefnda er nokkurs konar
útibú frá Bakkaflöt, og þar eru
samtals 8 unglingar. Að Árbót í
Aðaldal eru 6 unglingar, Geld-
ingalækur að Rangárvöllum,
sem er fyrir yngstu skjólstæð-
ingana eða allt að 12 ára aldri,
Sólheimar 17 í Reykjavík, sem
er eftirmeðferðarheimili, en
elsta heimilið er að Torfastöðum
í Biskupstungum, sem starfrækt
hefur verið síðan 1982. Ekki er
óalgengt að börn sem lokið hafa
meðferð að Torfastöðum dvelji
um hríð að Sólheimum 17.
„Ástæðan fyrir því að við
horfum nú til Eyja-
Qarðar er sú að við
höfum verið að byggja
upp þjónustu á Norð-
urlandi og á Akureyri
er þegar einn starfs-
maðrn-, Ingþór Bjarna-
son sálfraiðingur, sem
þegar þjónustar heim-
ilin í Skagafirði og í
Aðaldal og þannig nýt-
um við þá fagþjónustu
sem fyrir er. Á Akur-
eyri er einnig margvísleg þjón-
usta sem svona heimili þarfnast
því það er ekki gott að það sé í
of mikilli ijarlægð frá þéttbýli. Á
Akureyri eru einnig AA-fundir,
sem ég geri ráð fyrir að þessi
unglingar sæki,“ sagði Bragi
Guðbrandsson.
Unglingar sem við félagsleg-
an vanda eiga tengdum vínu-
efnaneyslu þurfa mun lengri
meðferð en fullorðnir og því er
talið skynsamlegt að það sé sem
iíkast venjulegu heimili. Hús-
næði það sem leitað er að í
Eyjafirði er ætlað fyrir 5 til 6
unglinga auk starfsmanns, sem
venjulega eru hjón, ýmist með
börn eða barnalaus. Ileimilið
verður einkarekið, samið um
rekstrarijárupphæð. Nokkur
hús standa til boða sem hafa
verið skoðuð en ákvörðunar er
að vænta í næsta mánuði. Um-
sóknarfrestur rann út fyrir
tveimur vikum síðan og sóttu
fimm aðilar, þ. á m. fern hjón
um starfið. GG