Dagur - Tíminn - 23.10.1996, Blaðsíða 7
,21iigur-®trrarm
Miðvikudagur 23. október 1996 -19
MENNING O G LISTIR
Dýrin í
Laugardaginn 19. október frumsýndi Leikfé-
lag Akureyrar leikritið Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjorn Egner. íslensk þýðing taltexta er
eftir Huldu Valtýsdóttur en söngtextar eru í
þýðingu Kristjáns frá Djúpalæk. Leikstjóri
uppsetningarinnar er Ingunn Jensdóttir en
leikmynd hönnuð af Guðrúnu Auðunsdóttur.
Lýsing er unnin af Ingvari Björnssyni en tón-
listarstjórn og útsetningar eru verk Jóns
Rafnssonar og Krisfjáns Edelstein. Undirritað-
ur sá aðra sýningu verksins, 20. október.
Haukur
Ágústsson
skrifar
um leiklist
Leikritið Dýrin í Hálsaskógi
hefur notið mikilla vinsælda
hér á landi allt frá því að
verkið birtist fyrst á íjölum Þjóð-
leikhússins fyrir áratugum. Efni
þess er ævintýri, þar sem dýrin í
skóginum taka á sig eiginleika
manna. Á meðal þeirra ríkir
valdabarátta og ófriður en þau
finna til þeirrar nauðsynjar, að í
samfélagi þeirra verði að ríkja
friður og einlægni. ( þessu er
verkið innihaldsrík dæmisaga. í
ferli þess fléttast einnig önnur
atriði, sem horfa mega til heilla
yrðu þau tekin upp í mannlegu
samfélagi, en það er í raun um-
fjöllunarefni þessa sívinsæla
barnaleikrits.
Sviðsmynd Guðrúnar Auðuns-
dóttur er falleg. Hún byggir fyrst
og fremst á skóginum, en inn í
hann eru felldar lipurlega aðrar
senur sem fyrir koma í verkinu.
Lýsing Ingvars Björnssonar
gerir leikmyndinni góð skil og
eykur dýpt hennar, auk þess sem
hún dregur fram þá hluta leik-
myndarinnar sem mestu skipta
hverju sinni.
Aðalsteinn Bergdal er í hlut-
verki Liila klifurmúsar. Aðal-
steinn fer vel með hlutverk sitt.
Hann lifir sig inn það, hefur
greinilega gaman af því að Ieika
fyrir hina ungu leikhússgesti og
nær góðu sambandi við þá.
í hlutverki Mikka refs er Guð-
mundur Haraldsson. í fyrri hluta
verksins er túlkun Guðmundar
nokkuð á reiki, jafnt í raddbeit-
ingu sem fasi. í síðari hluta
kemst Guðmundur mun nær per-
sónunni og samfelldri mótun
hennar. Þannig á hann góðar
senur í stuldinum á svínslærinu
og leitinni að Bangsa litla. Guð-
mundur hlaut tíðum verulega líf-
leg andsvör áhorfenda.
Jónsteinn Aðalsteinsson leik-
ur Hérastubb bakara og einnig
manninn eða bóndann á bænum.
Ilann nær lipurlegum og víða
skemmtilegum tökum á báðum
hlutverkum sínum. Hið sama er
að segja um Mörtu Nordal í hlut-
verki bakaradrengsins, en hún
gerir einnig vel í hlutverki húsa-
músarinnar.
Marteinn skógarmús er leik-
inn af Skúla Gautasyni. Hann
kemst of oft ekki meira en svo í
samband við hlutverkið og verk-
ar því nokkuð stirðlegur. Því
miður má hið sama segja um
Guðbjörgu Thoroddsen í hlut-
verki Ömmu skógarmúsar. Aftur
á móti á Guðbjörg talsvert
skemmtilegan leik í hlutverki
konunnar á bænum.
Kristjana N. Jónsdóttir er í
hlutverki krákunnar. Hlutverkið
er ekki stórt, en Kristjana gerir
því skemmtileg skil og nær góðu
sambandi fram til áhorfenda.
Bangsapabbi er leikinn af Sig-
urði Hallmarssyni og Bangsa-
mamma af Þóreyju Aðalsteins-
dóttur. Bæði skortir nokkuð á
innlifun í hlutverk sín og við-
brögð við því sem gerist í ferli
leiksins. Hið sama má því miður
segja um flesta leikendur í
smærri hlutverkum og virðist
sem leikstjóranum hafl ekki tek-
ist að móta þessar persónur sem
skyldi eða gæða sýninguna í
heild því lífi og þeirri samfellu
sem í verkinu býr. Þetta kemur
ekki síst fram í ýmsum hópsen-
um, sem eru margar um of dauf-
legar.
Undirleikur í verkinu er snot-
urlega af hendi leystur og má
þar ekki síst til nefna hina yngri
úr hljóðfæraleikarahópi, sem
léku fallega á hljóðfæri sín.
Söngur var almennt góður og líf-
legur og framburður greinilegur
hjá öllum leikendum, en fyrir
kom að framsögn væri nokkuð
lesleg og hefði mátt gera betur á
því sviði.
Einkennilegur ruglingur í töl-
uðum texta er í notkun orðanna
að borða og að éta, þar sem þau
virðast notuð eftir hendinni.
Þessu hefði mátt kippa í liðinn
eftir einhverri reglu, svo sem
þeirri, að almennt er gert ráð
fyrir því að dýr éti en borði ekki.
Þó ýmislegt megi finna að
uppsetningu Leikfélags Akureyr-
ar á Dýrunum í Hálsaskógi, náði
hún greinilega til hinna ungu
áhorfenda á sýningunni sem
undirritaður sá. Með því má
segja að tilgangi hafi verið náð
og þá líka vonandi því að boð-
skapur verksins um nauðsyn
samhyggðar og kærleika hafi
komist til skila.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Stóra sviðið
kl. 20.00:
Söngleikurinn Hamingjuránið
eftir Bengt Ahlfors
Fimmtud. 24. okt. Nokkur sæti laus
laugard. 26. okt., laugard. 2. nóv.
Nanna systir
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson
Föstud. 25. okt. Orfá sæti laus.
Föstud. 1. nóv., Laugard. 9. nóv.
Þrek og tár
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Fimmtud. 31. okt., 70. sýning
Nokkur sæti laus
sunnud. 3. nóv, föstud. 8. nóv.
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi
Kardemommubærinn
eftir Thorbjörn Egner
Sunnud. 27. okt. kl. 14.
Örfá sæti laus
Sunnud. 3. nóv. kl. 14.
Sunnud. 10. nóv. kl. 14.
Ath. takmarkaður sýningafjöldi.
Smíðaverkstæðið
kl. 20.30
Leitt hún skyldi vera skækja
eftir John Ford
Föstud. 25. okt. - Uppselt.
Sunnud. 27. okt,- Uppselt.
Föstud. 1. nóv. - Örfá sæti laus.
Miðvikud. 6. nóv. - Örfá sæti laus.
Laugard. 9. nóv. - Laus sæti.
Athygli er vakin á að sýningin er
ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið
kl. 20.30:
í hvítu myrkri
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Fimmtud. 24. okt. Uppselt.
Laugard. 26. okt. Uppselt.
Fimmtud. 31. okt. Uppselt.
Laugard. 2. nóv. Uppselt.
Sunnud. 3. nóv. Uppselt.
Fimmtud. 7. nóv. Uppselt.
Föstud. 8. nóv. Uppselt.
Föstud. 15. nóv. Laus sæti.
Laugard. 16. nóv. Laus sæti.
Athugið að ekki er hægt að
hleypa gestum inn í salinn eftir
að sýning hefst.
★ ★ ★
Miðasalan er opin mánud. og
þriðjud. kl. 13.00-18.00,
miðvikud.-sunnud. kl. 13.00-20.00
og til 20.30 þegar sýningar eru á
þeim tíma. - Einnig er tekið á móti
símapöntunum frá kl. 10.00 virka
daga. - Simi 551 1200.
§igrún
Astrós
Sýnlng föstud. 25. okt. kl. 20.30.
Sýning laugard. 26. okt. kl. 20.30.
Sýning laugard. 2. nóv. kl. 20.30.
Dýriní
Hálsaskógi
ettir Thorbjorn Egner
ÞýSendur: Hulda Valtýsdóttir
og Kristján frá Djúpalæk
Lýsing: Ingvar Björnsson
Búningar og leikmynd:
GuSrún AuSunsdóttir
Leikstjóri: Ingunn Jensdóttir.
Sýning fimmtud. 24. okt. kl. 15.00
Sýning laugard. 26. okt. kl. 14.00
Sýning sunnud. 27. okt. kl. 17.00
Sýning þriðjud. 29. okt. kl. 15.00
Sýning fimmhjd. 31. okt. kl. 15.00
Muniö kortasöluna okkar
Sími 462 1400
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími! miðasölu: 462 1400.
Jlttgur-'ðlutnraT
- besti tími dagsins!
LEIKFELAG AKUREYRAR