Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Blaðsíða 2
14- Fimmtudagur 24. október 1996
|Dagur-®tOTmn
I L í F I Ð í
L A N D I N U
Ekki „mni“ að vilja vera heima
✓
IMenntaskólanum á Egils-
stöðum er nú boðið upp á
nám í ferðamennsku. Um er
að ræða nám sem á að vera
góður grunnur til nánast allra
starfa er tengjast hótel- og veit-
ingarekstri.
Vigfús Friðriksson, 19 ára
Fljótsdælingur í húð og hár, var
einn þeirra fyrstu sem innrituð-
ust í þetta nám, einn af sjö.
Hann segir námið hugsað
þannig að nemendur séu eins
nálægt atvinnumarkaðnum -
fólkinu sem er að snúast í
ferðaþjónustu og ferðamálum -
og hægt er. „Þetta er rosalega
góður stökkpallur, myndi ég
telja, fyrir frekara nám í ferða-
málum. Það er farið inn á alveg
ótrúlega mikið.“ Verklegi hlut-
inn leikur stórt hlutverk í þessu
námi og er meðal annars ein
önn kennd í Hússtjórnarskólan-
um á Hallormsstað. Vigfús segir
það mjög gagnlegt, þar sem
nemendur eiga að geta gengið í
hvaða störf sem er, t.d. á hótel-
um, að námi loknu. „Hér fáum
við ofboðslega góðan grunn.“
Til að byrja með hefur verið
boðið upp á tveggja ára nám. „í
mínu tilfelli er ég mjög sáttur
við það, þar sem ég ætla mér
ekki í stúdentinn. En ég veit að
það eru margir í Menntaskólan-
um ósáttir við það, því segjum
að þú ætlir að taka málabraut
með þessu þá lengir þetta
skólavistina um hálft til eitt ár.
Menn vilja geta tekið stúdents-
próf af ferðaþjónustubraut."
Vigfús segist stefna í
ákveðna átt með sínu námi.
„Það sem ég er að vinna mér
inn er þessi blessaði ferðamála-
grunnur. Nú hef ég ákveðnar
hugmyndir um hvað mig Iangar
til að gera og eitt af því sem
mig hefur lengi langað til að
gera, ég veit ekki hvernig það
verður eftir 10 eða 20 ár, er að
koma einhverju af stað uppi í
Fljótsdal. Ég sé svo mikla
ónýtta möguleika þar. Félags-
heimilið þarna er t.d. ónýtt
mestallt árið, ég tala nú ekki
rnn á sumrin. Þar væri hægt að
vera með upplýsingamiðstöð og
smá verslun. Það væri hægt að
selja hestaferðir sem boðið er
Vigfús Friðriksson
við kökubakstur í
Hússtjórnarskóianum.
upp á, miðstöð fyrir bændagist-
ingu á svæðinu, selt það sem
verið er að framleiða í dalnum,
t.d. leðurvörur. Það er hægt að
vera með leiðsögumann og
bjóða upp á skipulagðar göngu-
ferðir og ferðir upp á hálendið.
Það eru Qölmargir möguleikar.
Það veltur náttúrlega allt á í]ár-
magni, en þetta eru hugmyndir
sem mér detta strax í hug þeg-
ar minnst er á Fljótsdal og
ferðamál. Draumurinn er síðan
náttúrlega að virkja Skriðu-
klaustur.“
Vigfús segist ekki vera alveg
viss um hvort halda skuli í frek-
ara nám í ferðamálum, en eitt
sé víst, leiðin liggi heim. „Það
sem mig langar mest til að gera
er að geta nýtt það sem ég læri,
hvað sem ég læri, hérna heima
fyrir. Mönnum finnst ég kannski
vera svolítið gamaldags, en ég
er ekki að fara neitt. Ég er
kannski ekki sú týpa sem er
„inn“ hjá ungu kynslóðinni í
dag. Það eru allir að fara, allir
að tala um hvað allt sé vonlaust
og allt sé ömurlegt. Einhvern
veginn hef ég alltaf verið talinn
frekar heimakær, en mér finnst
það eiginlega ekki skipta máli.
Ég sé mikið af möguleikum á
Héraðinu í mörgu og vil nýta
þá.“
Námskeið í þjóð-
legri matargerð
Ferdaþjónusta bænda mun um
næstu mánaðamót efna til nám-
skeiðs í matargerð og verður það
haldið að Hólum í Hjaltadal.
„Þetta verður matreiðslunámskeið
með ívafi annarra þátta,“
sagði Helgi Thorarensen, kennari
við Bændaskólann að Hólum,
í samtali við Dag-Tímann.
s
námskeiði þessu verður
lögð sérstök áhersla á
fræðslu um úrvinnslu ís-
lensks hráefnis í matartilbún-
ingi á ferðaþjónustubæjum. Þar
má meðal annars nefna mat-
reiðslu og úrvinnslu á bleikju,
grænmeti og kjöti. Þá verður
einnig íjallað um brauðgerð,
grænmetisrækt og framreiðslu
matar. Sérfræðingar og kennar-
ar við Hólaskóla kenna á þessu
námskeiði sem ætlað er bænd-
um í ferðaþjónustu.
Á námskeiði þessu, sem
haldið verður dagana 31. októ-
ber til 1. nóvember, mun Ilall-
gerður Gísladóttir, þjóðhátta-
fræðingur, fjalla um íslenska
matarmenningu eins og hún
hefur birst þjóðinni og lifað
með henni í gegnum aldirnar.
-sbs.
í eldhúsi Hólaskóla i Hjaltadal.
Björg Pálsdóttir og Bryndís
Bjarnadóttir, sem þar er ráðskona.
Mynd: -sbs.
LJ| j 'ijj, v ÉPfi!
y
» ',v