Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Blaðsíða 3
Ptgur-®mrám
HJÓNALÍFIÐ í LANDINU
Föstudagur 25. október 1996 -15
Uppskrift að góðu hjónabandi
Það er ekki ójafnrœðið við eldhúsvaskinn eða bleyjuskiptingarnar,
hreingerningarœðið eða kynkuldinn, eilíft daðrið í kerlingunni eða
karlinum, sem er að hrjá ykkur í sambúðinnL Frœðingar virðast
sammála um að rót erfiðleika í ástarsamböndum liggi dýpra, í til-
finningalífinu.
Lausnarorð þeirra í stressvceddu nútímasamfélagi koma kannski
ekki á óvart: Slakið á!
Nú ef það tekst ekki hjálparlaust þá eru til allrar lukku fjölmarg-
ir reiðubúnir að leggja ykkur lið í baráttunni gegn ófullnœgjandi
kynlífL hringekjurifrildum eða bara við að gera gott hjónaband
enn betra.
LÓA
Vantar íjölskyldustefnu
IHjónabandsskólanum er
hjónum boðið upp á einka-
tíma með sálfræðingi þar
sem kenndar eru nýjar leiðir til
samskipta. Talið er að hjón sem
búa í lukkaðri sambúð noti
AÐRAR aðferðir til samskipta
en hinir.
Halldór Kr. Júlíusson, sál-
fræðingur, er skólastjóri skól-
ans og segir hann samskipta-
erfiðleika langalgengustu
ástæðu skilnaða. „Fólk verður
ráðþrota þegar það lendir í því
að endurtaka sömu rifrildin aft-
ur og aftur. Það er hægt að
kenna farsælar aðferðir til að
leysa ágreiningsmál."
Kennslunni er skipt í 10
stundir og fer annars vegar
fram í fræðslu og hins vegar
samræðuæfingum. Halldór er
viðstaddur æfingarnar og þjálf-
ar hjónin áfram. „Við byrjum á
einföldum hlutum og svo bæt-
um við við.“
Halldór segir heppilegast að
fólk tileinki sér farsælar sam-
skiptaaðferðir þegar það er að
byrja sambúð. „Við erum vana-
dýr og mótum okkar samskipta-
mynstur strax á fyrstu mánuð-
um sambúðar. Það eru margir
sem hitta ekki á þessar farsælu
samskiptaaðferðir, kannski að-
allega vegna þess að karlar og
konur bregðast misjafnlega við,
og hafa ólíka forgangsröð. Körl-
um finnst mjög mikilvægt að
missa ekki andlitið og sjálfsálit
sitt en tengslin eru aftur á móti
miklu mikilvægari fyrir konur.
Konur vilja yfirleitt ræða um
hlutina en karlar eiga erfitt
með það.“
Þegar rifrildi snúast einkum
um t.d. hver eigi að fara út með
ruslið eða ryksjúga segir Hall-
dór shkar ástæður ætíð á yfir-
borðinu, rótin sé þá að annar
aðilinn virði ekki viðleitni hins
til að halda heimilinu snyrti-
legu. Undir niðri kraumi ævin-
lega óánægja vegna brota á eft-
irfarandi þáttum sem hann seg-
ir grundvallaratriði samskipta í
sambúð.
• umhyggja
• tillitssemi og virðing
• jafnræði
„Þegar líkm-nar á hjónaskiln-
aði eru komnar yfir 40% er
þetta ekki einstaklingsbundið
vandamál heldur frekar samfé-
Helstu hættumerkin:
- stirðleiki og þagnir eru
farnar að verða einkenn-
andi í sambandinu.
- deilur hafa tilhneigingu
til að stigmagnast og fólk
á erfitt með að hcetta.
- fólki finnst það vera ein-
mana í sambúðinnL
lagsvandamál. Við þurfum að
fara að marka okkur ákveðna
íjölskyldustefnu. Það er mikil-
vægt að halda niðri atvinnuleysi
og hafa hagvöxt í landinu en ég
held það sé jafn mikilvægt að
Halldór Kr. Júlíusson.
þegnarnir standi ekki uppi með
einkalíf sitt í rúst um fertugt
vegna vinnuálags og jaðar-
skatta."
Anna Valdimarsdóttir,
sálfræðingur, heldur
fyrirlestra á námskeið-
inu Listin að elska og njóta
sem haldið verður á Hótel Örk
Hættum ekki að
hrífast við altarið
á morgun. Hún ætlar m.a. að
spjalla um erótík, kynlíf og af-
brýðissemi. „Við hættum ekk-
ert að taka eftir hinu kyninu
við hjónaband. Slíkt getur
valdið vandamálum og það
skiptir auðvitað máli HVERN-
IG maður horfir.“
ERÓTÍK
„Upphafleg merking erótíkur
er að vera í ástríðufullu sam-
bandi við lífið allt í kringum
sig, fegurðina, vinnuna, börn-
in, vini og maka. Þegar maður
er farinn að upplifa lífið af
ástríðu, kominn í gott ástar-
samband við sjálfan sig, þá
fylgir það oft með að kynlífið
verður mjög gott.
Því kynhvötin er bara ein
mynd af sjálfu lífsaflinu sem
knýr okkur áfram. Að upplifa
góða djúpa hluti í kynlífinu
gefur manni meiri orku til að
takast á við allt lífið.“
KYNLÍF
„Gallinn við þessa opnu og
djörfu umfjöllun um kynlíf í
dag er að okkur er sýnt kynlíf
sem enn ein neysluvaran. En
djúpt kynlíf er leið til persónu-
legs þroska. Til þess að ná
dýpt í kynlífinu þarf maður að
vera nokkuð heilsteypt mann-
eskja.“
AFBRÝÐISEMI
„Afbrýðissemi er mjög eðlileg
tilfinning. En við eigum stund-
um erfitt með að kannast við
tilfinningar eins og öfund og
afbrýði. Bældar tilfinningar
eitra meira út frá sér en þær
sem maður hleypir upp á yfir-
borðið. Fyrsta skrefið er að
viðurkenna afbrýðina hjá
sjálfum sér. Annað skrefið er
að tala saman í einlægni um
þær tilfinningar sem að baki
henni búa.“