Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Side 10
22 - Föstudagur 25. október 1996 ^Dagur-®ímínn
3Haad ert cu) gertaót um ke£gina!?
Akureyri
Skákfélag Akureyrar
7 mínútnamót fyrir 45 ára og
eldri verðnr í kvöld kl. 20.
Spurningakeppni
Baldursbrár
Spurningakeppni Baldursbrár
verður haldin í kvöld klukkan
20:30 í Safnaðarsal Glerár-
kirkju. Að þessu sinni keppa
sex lið: Dekkjahöllin, trillukarl-
ar í Bótinni, Eldri borgarar,
FMN, RUVAK og Kór Glerár-
kirkju. Úrslitin ráðast síðan 8.
nóvember þegar sigurliðin og
Kjarnafæði, sem sigraði síðast,
mætast.
Listsýning í Gamla
Lundinum
Listsýning Ólafs Oddssonar
hefst á laugardaginn í Gamla
Lundinum. Ólafur er menntað-
ur sem verkfæra- og mótasmið-
ur. Opið frá kl 14 - 18 og stend-
ur sýningin til 3. nóvember.
Flóamarkaður N.L.F.A
Á laugardag verður flóamark-
aður í Kjarnalundi frá kl. 14 -
16. í boði eru kynstrin öll af
fatnaði einnig gjafavörur og alls
konar eiguleigir hlutir og bæk-
ur.
Fur dur í Samhjálp
Á m mudagskvöldið 28. október
kl I i-22 verður fundur í hús-
næt Krabbameinsfélag Akur-
ey "<x og nágrennis, Glerárgötu
2 Kristbjörg Þórhallsdóttir
kynnir samtökin SAMHJÁLP
KVENNA Á ÍSLANDI og starf-
semi hliðstæðra samtaka víða
um heim.
Bingó
Bingó verður í sal KFUM og K
Sunnuhlíð 12 á sunnudaginn kl.
15.
Fundur um
Alzheimersjúkdóminn
FAASAN er skammstöfun fyrir
Félag áhugafólks og aðstand-
enda sjúklinga með Alzheimer-
sjúkdóm og skylda sjúkdóma á
Akureyri og nágrenni. Nú er
vetrarstarfið að heíjast og fyrsti
fundur á laugardaginn kl. 13 í
Dvalarheimilinu Hh'ð. Gestir
fundarins verða Jakob Björns-
son bæjarstjóri á Akureyri og
Valgerður Magnúsdóttir félags-
málastjóri. Fundirnir eru öllum
opnir.
Landíð
Kaffihlaðborð
Laugalandi
Á sunnudaginn kl. 14-17 verður
kaffihlaðborð hjá Högum hönd-
um og Gullasmiðjunni Stubbur í
húsnæði þeirra í gamal kvenna-
skólanum Laugalandi Eyjafjarð-
arsveit. Þar verður til sýnis og
sölu framleiðsla og handverk
ýmiss konar auk sýnishorna af
jólavöru, bútasaum og frábæru
jurtalituðu íslensku bandi.
Blönduós
Danshljómsveitin Draumalandið
frá Borgarnesi skemmtir á laug-
ardagskvöld á Sveitasetrinu.
Laugarbakki og
Sauðárkrókur
í kvöld kl. 21. mun karlakvart-
ettinn Út í vorið halda söngtón-
leika í Ásbyrgi á Laugarbakka
Miðfirði. Sunnudaginn 27. októ-
ber mun kvartettinn halda
söngskemmtun í samvinnu við
Kaffi Krók Sauðárkróki kl. 16.
Málþing á
Egilsstöðum
Umboðsmaður barna heldur
málþing um málefni barna og
ungmenna í Austurlandskjör-
dæmi í menntaskólanum á Eg-
ilsstöðum á laugardaginn kl.
13:30-16:30. Frummælendur
eru börn og ungmenni undir 18
ára aldri og mimu þau m.a.
ræða um jafnrétti til náms,
hvernig tilveran liti út ef þau
mættu ráða í einn dag og hvað
taki við þegar 16 ára aldrinum
er náð. Þingmenn og sveita-
stjórnarmenn svara fyrirspurn-
um og umboðsmaður barna,
Þórhildur Líndal, flytur ávarp
og setur málþingið.
Hátíðartónleikar í
Hveragerði
Tónlistarfélag Hveragerðis og
Ölfuss efnir til sérstakra hátíð-
artónleika í tilefni af 50 ára af-
mæli Hveragerðisbæjar á laug-
ardaginn í Hveragerðiskirkju
kl. 17. Um er að ræða eins-
söngstónleika Sigrúnar Hjálm-
týsdóttur en henni til aðstoðar
og fulltingis eru Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari og
Martial Nardeau flautuleikari.
Kirkjukór Hveragerðis og Kot-
strandarsókna mun einnig
syngja með Diddú nokkur lög.
Strengjamót í Keflavík
Um helgina stendur Tónlistar-
skólinn í Keflavík fyrir strengja-
móti. Um 170 nemendur víða
að af landinu munu þá dvelja í
Keflavik við æfingar. Mótinu
lýkur með tónleikum í íþrótta-
húsinu við Sunnubraut í Kefla-
vík á sunnudag kl. 15.
Tónleikar Harðar Torfa
Hörður Torfa söngvaskáld heldur þrenna tónleika á norður-
landi til að fylgja eftir hljómdisknum Kossinum sem nýleg
kom út. í gær var Hörður á Ólafirði, í kvöld verður hann
með tónleika á Dalvík og á morgun er það Deiglan á Akur-
eyri. Tónleikarnir heíjast kl. 21. „Ég er í aðra röndina að
kynna kossinn en er líka með nýrra og eldra efni. Fólk vill
heyra, Línudansarann, Guðjón og Kveðja eftir vin minn. Ég
fæ að ráða fyrri hlutanum og segja það sem mig langar, en
síðan ráða áhorfendur og biðja þá um óskalög og syngja
með. Aðaláherslan núna er gegn ofbeldi í sjónvarpi og kvik-
myndum og eitt lagið Englaakur fjallar um þetta.“
Höfuðborgar-
svæðið
-cUil Julurrj ceUbfC cjuO cffu^Vjhif UjjtbfC
n\u\tlrlj Uurj£riifpaÍil^ yt*}S \vbchx
Nótur
frá 14. öld
Tónleikaþrenna Norðurljósa
er aftur farin af stað og
verða tónleikar nr. 2 á
sunnudaginn kl. 17 í þeim
ónýta tónleikasal anddyri
Háskóla íslands. Það er
sönghópurinn Voces Thules
sem m.a. sem flytur hluta af
Þorlákstíðum, íslenskum
gregorsöng sem er varð-
veittur í íslenskum nótna-
skrifum frá 14. öld. „Við
fengum að ljósrita eftir film-
um á Ámastofnun verkið í
heild sinni og erum að vinna
að því að taka verkið upp í
áföngum, þetta er verk upp
á svona 4 geisladiska."
Jafnréttisþing
Jafnréttisráð býður til jafnrétt-
isþings í dag að Grand Hótel
Reykjavík. Dagskráin hefst kl.
8.30 með afhendingu fundar-
gagna. Á þinginu verður fjallað
um örfáa þeirra málaflokka
sem varða og hafa áhrif á jafn-
rétti kynjanna. M.a verða
kynntar helstu niðurstöður
könnunar ÍM Gallup á viðhorf-
um þjóðarinnar til jafnréttis-
mála.
Hallgrímskirkja
Næstkomandi sunnudag kl. 14
verður guðsþjónusta á ensku og
er hún ætluð enskumælandi
íbúum höfuðborgarsvæðisins
sem og ferðafólki.
Vináttufélag Kúbu og
íslands
Vináttufélag íslands og Kúbu
býður liðsmönnum og öðrum
gestum að samfagna félaginu á
25 ára afmæli þess, á laugar-
daginn milli kl 17 -19 á efri
hæð veitingahússins Sólon ís-
landus við Bankastræti. Ávarp
flytur Ingibjörg Haraldsdóttir
formaður VÍK. Stína bongó læt-
ur kúbanska takta hljóma.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag.
Öllum opin. Göngu-Hrólfar fara
í létta göngu um borgina kl. 10
laugardag frá Risinu.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist og
dansaðir gömlu dansarnir í
kvöld, föstudag, kl. 20.30 að
Auðbrekku 17 (í Dansskóla Sig-
urðar Hákonarsonar). Hljóm-
sveit Karls Jónatanssonar
skemmtir. Öllum opið.
Hana-nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana
-nú í Kópavogi verður á morg-
un. Lagt af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10. í tilefni 1.
vetrardags verða að venju
galdraðar pönnukökur með
kaffinu.
Skaftfellingafélagið í
Reykjavík
Fýlaveisla annað kvöld, laugar-
dag 26. okt., kl. 19 í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi 178.
Rangæingafélagið í
Reykjavík
Kirkjukaffið verður sunnudag-
inn 27. október að lokinni
messu í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju. Kökur eru vel
þegnar.
Norræna húsið
Sunnudaginn 27. okt. kl. 14
verður danska barna- og Qöl-
skyldumyndin „Otto er et næse-
horn“ sýnd í Norræna húsinu.
Aðgangur ókeypis og allir vel-
komnir.
Á sunnudag kl. 16 mun sænski
myndhöggvarinn Torgny Lars-
son halda fyrirlestur í Norræna
húsinu um umhverfislist. Fyrir-
lesturinn nefnist Genius Loci
(Andarnir á staðnum).
Dagskrá Unglistar
í dag, föstudag, er margt að
gerast á Unglist:
Kl. 17, í porti Hafnarhússins,
stendur Brettafélag Reykjavíkur
fyrir uppákomu fyrir alla unga
skeitara og deitara og hefst hún
kl. 17.
Kl. 20 verður í Tjarnarbíói
danssýningin Rauðu skórnir.
Kl. 22 um kvöldið hefst svo ís-
lenskt danstónlistarkvöld í
Norðurkjallara MH. Þar verður
kynnt efni þeirra íslensku dans-
sveita sem áttu lög á geisla-
disknum „Icelandic Dance
Sampler“.
Kl. 23 hefst svo gjörningur í
Gallerí Geysi, Hinu Húsinu, þar
sem þátttakendur í fjöltækni-
námskeiði Listasmiðjunnar
sýna verk sín og leikhópurinn
„Lífið er núna“ fremur leiklist-
argjörning.
Á laugardagskvöld í Tjarnar-
bíói eru svo hinir árlegu Rokk-
tónleikar Unglistar. Frítt inn,
eins og á flesta aðra dagskrár-
liði Unglistar.
Háskólahátíð
Háskólahátíð, þ.e. brautskrán-
ing kandídata, verður haldin í
Háskólabíói laugardaginn 26.
október kl. 14.
Laugardagskaffi
Kvennalistans
Eru konur að missa af upplýs-
ingaöldinni? Á laugardaginn
verður Ragnhildur Helgadóttir,
bókasafns- og upplýsingafræð-
ingur í laugardagskaffi í hús-
næði Kvennalistans að Austur-
stræti 16, 3. hæð. í erindi sínu
fjallar Ragnhildur um konur,
tölvur og Internetið og hefst
fundurinn kl. 11. Allir velkomn-
ir.
Breiðfirðingafélagið
Vetrarfagnaður Breiðfirðinga-
félagsins verður í Breiðfirðinga-
búð á laugardaginn og hefst kl.
22.
Kjallannn um helgina
Það verður mikið um dýrðir í Leikhúskjallaranum um helg-
ina. í kvöld, föstudag, verður Bylgjan með beina útsendingu
frá kjallaranum þar sem ívar Guðmundsson útvarpsmaður
og Sigurður Hlöðversson diskótekari munu sjá um að
stjórna kvöldinu.
Hljómsveitin Stjórnin fagnar vetri með gestum Leikhús-
kjallarans á laugardagskvöld ásamt skífuþeytara staðarins.